Morgunblaðið - 18.10.2006, Síða 23
verðkönnun
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 23
Nýttu þér þetta TILBOÐ og stofnaðu reikning á spron.is
Þeir sem stofna sparnaðarreikningana SPRON Vaxtabót eða
SPRON Viðbót á Netinu fyrir 12. nóvember næstkomandi
fá 10% vaxtaauka á áunna vexti um áramótin.
A
RG
U
S
/
06
-0
56
5
10% vaxtaauki!
Mesti verðmunurinn var á blóðþrýstingslyfinu
Amlo þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði verð
á lyfseðilsskyldum lyfjum í síðustu viku.
Amlo var dýrast á 3.325 krónur í Lyfjum og
heilsu og ódýrast í Skipholtsapóteki á 2.144
krónur sem er 1.181 krónu verðmunur. Þessi
tvö apótek eru rekin af sama aðilanum, sitt
undir hvoru nafninu. Verðmunur á frumlyfi og
samheitalyfi með sömu verkun reyndist enn
meiri eða allt að 66%.
Tvö dæmi búin til
Skipholtsapótek og Lyfjaver voru oftast
með lægsta verðið í könnuninni en Lyf og
heilsa við Egilsgötu var oftast með hæsta
verðið. Í könnuninni eru tekin dæmi af tveim-
ur einstaklingum
Dæmi 1. 43 ára karl á þremur lyfjum, svefn-
lyfi (Stilnoct) og tveimur blóðþrýstingslyfjum
(Amlo og Daren).
Heildarverðið á þessum lyfjum var lægst í
Skipholtsapóteki, kr. 5.284, en hæst í Lyfjum
og heilsu, kr. 7.466, sem er 41% verðmunur.
Heildarþátttaka Tryggingastofnunar í lyfj-
um karlsins var kr. 3.355 og hluti sjúklings í
verðinu gat mest orðið kr. 7.606 ef enginn af-
sláttur var veittur í apótekinu.
Dæmi 2. 38 ára kona á tveimur lyfjum, getn-
aðarvarnarlyfi (Diane mite) og bólgueyðandi
verkjalyfi (Voltaren rapid).
Heildarverðið á þessum tveimur lyfjum var
lægst í Skipholtsapóteki en þar kostuðu þau
samtals kr. 3.269 en hæsta heildarverðið var í
Laugarnesapóteki, kr. 4.228, sem er rúmlega
29% munur á hæsta og lægsta heildarverði.
Heildarþátttaka Tryggingastofnunar í lyfjum
konunnar gat hæst orðið kr. 310 og hluti sjúk-
lings í lyfjaverðinu gat mest orðið kr. 4.452 ef
enginn afsláttur var veittur í apótekinu.
Fáanlegt er á markaðnum ódýrara sam-
heitalyfið Vostar-S sem kemur í stað bólgu-
eyðandi verkjalyfsins Voltaren rapid. Við-
skiptavinum í öllum apótekum nema Lyfju,
Lyfjavali og Laugarnesapóteki var boðið sam-
heitalyfið. Í öðrum apótekum, sem buðu sam-
heitalyfið áður en lyfin voru afgreidd, var verð-
ið á því tekið með í niðurstöðum
könnunarinnar.
Könnunin var gerð í eftirtöldum apótekum:
Apótekaranum Smiðjuvegi 2, Apótekinu Skeif-
unni, Árbæjarapóteki Hraunbæ 102b, Garðs-
apóteki Sogavegi 108, Laugarnesapóteki
Kirkjuteig 21, Lyfjum og heilsu Egilsgötu 3,
Lyfju Lágmúla 5, Lyfjavali Álftamýri 1, Lyfja-
veri Suðurlandsbraut 22, Rima apóteki Langa-
rima 21 og Skipholtsapóteki Skipholti 50b.
Talsverður verðmunur milli lyfjabúða
Í fréttatilkynningu frá verðlagseftirliti ASÍ
kemur fram að verðkannanir á lyfseðils-
skyldum lyfjum séu unnar í samráði við Land-
læknisembættið og framkvæmdar þannig að
lagðir eru fram lyfseðlar í apótekum, en ekki
er gefið upp að um verðkönnun sé að ræða fyrr
en lyfin hafa verið skrifuð út og verð prentað á
pokamiða. Þetta tryggir að raunverulegt verð
til viðskiptavina komi fram í könnuninni.
„Taka skal fram að hér er aðeins um verð-
könnun á fáum lyfjategundum að ræða sem
endurspeglar ekki verð á öllum lyfjum í við-
komandi apótekum. Niðurstöðurnar eru þó
skýr vísbending til neytenda um að talsverður
verðmunur geti verið á milli lyfjabúða. Neyt-
endur ættu einnig að vera vakandi fyrir því að
spyrjast fyrir um það í apótekum hvort fáan-
legt sé ódýrara samheitalyf í stað þess sem
læknir hefur ávísað þar sem þau geta oft verði
mun ódýrari en frumlyf. Hér er aðeins um
beinan verðsamanburð að ræða en ekki er lagt
mat á gæði eða þjónustu söluaðila“ segir í
fréttatilkynningunni.
Mestur verðmunur á blóðþrýstingslyfi
+, , 0
1$/
%
%
-
% -
#
2 - . !
*/'
. !
/#
*
#..12
0 4 !
/#
" ! /#
- !
/#
#..51
*# ) 3
# #
#"
#" # #! .
%0
1
&
%0
2
/
%0
"
/
%0
2
(
#
2
&
2
%0
'
"
3
$
2
(
)
*
#
#! # !# # # # "
"#!
# # #
#!!
# # !
4
/
%0
(
($
0
0 3
4 -
*
%
%
4
- &2
#
Allt að 55% verðmunur var á lyfseðilsskyldum lyfjum þegar verðlagseftirlit ASÍ kannaði
verð í ellefu apótekum á höfuðborgarsvæðinu fimmtudaginn 12. október síðastliðinn
Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson
ÞAÐ er gömul vísa og ný að lítið
glas af rauðvíni getur verið heilsu-
samlegt. Nú telja vísindamenn að
hið sama gildi um bjór og sterk vín.
Fólk er þó hvatt til að ganga hægt
um gleðinnar dyr, því eins og ann-
að eru þessar veigar bestar í hófi.
Norska vefritið forskning.no
greinir frá því að fjöldi rannsókna
undanfarinn áratug bendi til að
vínneysla í hófi geti haft jákvæð
áhrif á líkama og heilsu. Sú nýjasta
þeirra leiðir í ljós að það er ekki
vín í sjálfu sér heldur vínandinn
sem það inniheldur sem virkar á
heilsufar fólks. Þetta þýðir að bæði
vín, bjór og sterkir drykkir geti
haft sömu jákvæðu áhrifin og rauð-
vín.
Áfengisiðnaðurinn hefur fjár-
magnað margar þessara kannana
en engu að síður eru þær nú orðn-
ar svo margar að erfitt er að segja
þær marklausar. Þó er undir-
strikað að skammturinn fari ekki
yfir einn drykk á dag.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Drykkur á dag
heilsa