Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 25
Hómópatanám
Um er að ræða 4 ára nám sem byrjar
21. og 22. okt. á vegum College of
Practical Homoeopathy í Bretlandi.
Mæting 10 helgar á ári í Reykjavík.
Kynning á náminu verður 20. okt.
Upplýsingar gefur Martin í símum
567 4991 og 897 8190.
Hómópataskólinn - Stofnaður 1993
www.homoeopathytraining.co.uk
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
Ávefnum CNN.com voru ný-lega birtar niðurstöðurrannsóknar sem gerð var áviðhorfi fólks til bólusetn-
ingar gegn inflúensu. Niðurstöðurnar
vöktu nokkra athygli því m.a. kom
fram að nokkurs misskilnings gætir
hjá almenningi gagnvart bólusetning-
unni. Einungis 48% aðspurðra hugð-
ust láta bólusetja sig en 46% ætluðu
að sleppa því vegna þess að fólk taldi
að bólusetningin sem slík gæti valdið
flensu.
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
var spurður út í hvernig þessi mál
stæðu hérlendis. „Það kann að vera
að þessa misskilnings gæti að ein-
hverju leyti hér,“ svaraði Haraldur,
„við höfum svo sem ekki gert neina
rannsókn á þessu, en sumum finnst
áreiðanlega að þeir verði veikir eftir
sprautuna.“ Haraldur segir þó að efn-
ið sé vel prófað og þó að fólk finni fyr-
ir einhverjum smáóþægindum sé það
ekkert í líkingu við venjulega flensu.
Tími bólusetninga er að hefjast
Á hverju ári láta 50.000–55.000
manns bólusetja sig hérlendis. „Það
mætti vera meira kannski,“ segir
Haraldur. „Við viljum líka helst að
allir sem eru í áhættuhópi, eru eldri
en 60 ára, láti bólusetja sig. Við vitum
að mörg fyrirtæki í landinu láta
sprauta sitt fólk til að minnka brott-
fall úr vinnu og þess háttar.“
Öllum inflúensufaröldrum getur
fylgt það sem Haraldur kallar um-
framdauða. „Það er að segja að þá
deyja fleiri en búast mætti við. Það er
mjög misjafnt eftir því hvað farald-
urinn er slæmur og yfirleitt er það
aldrað fólk sem verður verst úti,“ seg-
ir Haraldur og upplýsir að í febrúar
2005 hafi verið gerð athugun á dán-
artölum eftir að reiknuð höfðu verið
út eðlileg vikmörk í dánartíðni. „Þá
fór þetta fyrstu tvær vikurnar í febr-
úar á því ári umfram það sem búast
mátti við, þannig að hægt var að geta
sér til um það að einhverjir tugir
manna sem létust þá hefðu ella ekki
dáið.“
Á hverju ári er fólk hvatt til að láta
bólusetja sig og í ár fer að koma tími
á slíkt. „Ég var að kíkja yfir stöðuna í
gær, í nágrannalöndunum og svona,“
segir Haraldur. „Einstaka tilfelli hafa
komið upp, en engin hópsýking eða
farsótt brotist út í kringum okkur,
ekki ennþá, sem betur fer.“ Bóluefnið
kom venju fremur seint til landsins í
ár en bólusetning er að hefjast um
þessar mundir. „Í þessari viku er efn-
ið að fara til heilsugæslustöðvanna og
þeirra sem bólusetja, við erum eig-
inlega hálfum mánuði á eftir áætlun,
má segja.“
70–80% vernd
Haraldur hvetur fólk til þess að
láta bólusetja sig, ekki eingöngu til að
verja sjálft sig, heldur aðra líka.
„Margir sem láta bólusetja sig fá
samt flensu,“ segir hann. „Það stafar
af því að stundum er bóluefnið ekki
alveg í takt við það sem er að ganga.
Þetta bóluefni var búið til snemma á
árinu og þá voru menn að spá í það
sem var í gangi í haust. Svo getur ver-
ið að þó að það dugi nokkuð vel sé það
ekki alveg verndandi, þannig að
nokkrir tugir prósenta geta samt sem
áður fengið flensu. Þá yfirleitt væg-
ari, trúum við.“ Haraldur segir að
þetta valdi því jafnvel að menn missi
trúna á bóluefninu. „70–80% eru samt
varin þannig að á heildina litið gerir
þetta gagn. Það að láta bólusetja sig
er svolítil samfélagsaðgerð,“ segir
hann léttilega. „Bólusetning minnkar
nefnilega líkurnar á að viðkomandi
smiti aðra. Þannig að í þessu er fólgin
samfélagsvernd. Við höfum t.d. sagt
við heilbrigðisstarfsfólk sem er að
sinna gömlu og veiku fólki að það eigi
að láta bólusetja sig til þess að bera
nú ekki flensuna inn á stofnanirnar.
Þannig vinnst tvennt. Sá sem fær
bólusetninguna er verndaður og líka
sá sem hefði annars hitt hann fyrir
með flensuna.“ Þetta segir Haraldur
vera eitthvað sem fólk mætti gjarnan
hafa í huga.
Bólusetning
er samfélags-
leg aðgerð
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Vörn Mælt er sérstaklega með því að fólk sem komið er yfir sextugt láti bólu-
setja sig gegn inflúensu. 50.000–55.000 manns láta bólusetja sig hér árlega.Morgunblaðið/Golli
Við höfum t.d. sagt við
heilbrigðisstarfsfólk sem
er að sinna gömlu og
veiku fólki að það eigi að
láta bólusetja sig til þess
að bera nú ekki flensuna
inn á stofnanirnar.
HUGMYNDIR eru uppi í Bret-
landi um að þjálfa upp hunda sér-
staklega til aðstoðar flogaveikum.
Það eru sérstakar stofnanir í
Bretlandi og Bandaríkjunum sem
sérhæfa sig í þjálfun hunda fyrir
þá sem búa við fötlun af ýmsu tagi
sem taka höndum saman um
verkefnið en þetta mun vera í
fyrsta sinn sem sjónum er beint að
flogaveikum í þessu tilliti, segir
m.a. í netútgáfu Guardian.
Hundarnir yrðu þjálfaðir til að aðstoða eigendur sína í flogaveikikasti og
sumir gætu spáð fyrir um og varað eigendur sína við komandi kasti með 15–
50 mínútna fyrirvara, ýmist með því að gelta eða sleikja hendur sjúkling-
anna. Hundarnir myndu nota mismunandi aðferðir við að líta eftir fólki í
kasti. Á meðan sumir hundar myndu leggjast ofan á sjúklinginn til að halda
honum stöðugum myndu aðrir ganga beint að ísskápnum eftir vatni, fara í
símann eða ná í viðeigandi lyf.
Að sögn talskonu bresku flogaveikisamtakanna yrðu slíkir hundar ekki
bara hjálplegir í köstum heldur yrðu sjúklingarnir öruggari með að fara út
og ferðast um meðal ókunnugra.
Hundar til hjálpar
flogaveikum
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins