Morgunblaðið - 18.10.2006, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 18.10.2006, Qupperneq 37
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Ferðalög Tenerife. Viljum taka íbúð á leigu í suðurhluta Tenerife frá 18. des. 2006—6. jan. 2007. Upplýsingar síma 893 0250. Nudd Klassískt nudd. Árangursrík olíu- og smyrslameðferð með ívafi ísl. jurta. Steinunn P. Hafstað félagi í FÍHN, s. 586 2073, 692 0644, Húsnæði í boði Öldutún 8, Hafnarfirði Opið hús 19. október frá 17:30 til 18.00. Upplýsingar hjá Óla í síma 892 9804. Rúnar S. Gíslason hdl., lögg fasteignasali. Atvinnuhúsnæði Til leigu nýinnréttuð skrifstofu- herbergi í 104 Rvík. Securitas- öryggiskerfi. Tölvulagnir. Góð samnýting. Uppl. í síma 896 9629. Geymslur Geymum hjólhýsi, fjallabíla og fleira. Húsnæðið er loftræst, upphitað og vaktað. Stafnhús ehf., símar 862 1936 - 8991128 Námskeið Skartgripanám fyrir alla. Sjá heimasíðu www.listnám.is Listnám.is, Súðarvogi 26, 104 Rvík, Kænuvogsmegin, sími 699 1011. Silva Holistic Faith Healing námskeið Lærðu hvernig þú getur stuðlað að betri heilsu, líkamlegri og and- legri, með auðveldum heilunarað- ferðum sem allir geta notað. Helgarnámskeið 21.-22. okt. Verklegar æfingar. Uppl. & skráning á www.ljosmidlun.is og í síma 898 8881 - Hjalti. Námskeið í heilun Lærðu hvernig þú getur stuðlað að betri heilsu, líkamlegri og and- legri, með auðveldum heilunarað- ferðum sem allir geta notað. Helgarnámskeið 21.-22. okt. Uppl. & skráning á www.ljosmidlun.is og í síma 898 8881 - Hjalti. Keðjugerð - skartgripagerð Námskeið 23.-24. október HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN Laufásvegi 2 - 101 Reykjavík, símar 551 7800 og 895 0780, hfi@heimilisidnadur.is www.heimilisidnadur.is Handstúkur Námskeið í að prjóna handstúkur m. perlumynstri og smokkaprjóni, fimmtudag 19. og mánudag 23. október. HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN, Laufásvegi 2 - 101 Reykjavík, símar 551 7800 - 895 0780, hfi@heimilisidnadur.is www.heimilisidnadur.is Tómstundir Járn- og plastmódelbílar í miklu úrvali, góðar vörur, gott verð. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is Astonish náttúruvænar hrein- lætisvörur í úrvali, góðar vörur, gott verð. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600, www.tomstundahusid.is Til sölu Til sölu mjög vandað nýlegt af- greiðsluborð. Breidd 230 cm. Upplýsingar í síma 893 6818. Flott dömustígvél, góð fyrir svera kálfa. Ásta skósali, Súðarvogi 7. S. 553 6060. Opið þriðjud., miðvikud. og fimmtud. kl. 13-18. Ný heimasíða, www.storirskor.is Viðskipti Einföld leið til tekjuöflunar. Af mörgum talin sú besta! www.netorka.net Þjónusta Raflagnir og dyrasímaþjónusta Setjum upp dyrasímakerfi og gerum við eldri kerfi Nýlagnir og endurnýjun raflagna. Gerum verðtilboð Rafneisti sími 896 6025 lögg. rafverktaki • www.rafneisti.is Ýmislegt Nýtt! - Nýtt! Vandaðir inniskór úr leðri í mörgum gerðum og litum. Í skónum eru upphleyptir svæð- anuddpunktar. Stærðir 36-42. Verð 4.985 til 6.550. Misty skór, Laugavegi 178, sími 551 2070. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Mjög fínlegur og fallegur í BC skálum á 1.995 kr., buxur í stíl 995 kr. Sérstaklega gott snið, nú í nýjum lit í BCD skálum á 1.995 kr., buxur í stíl á 995 kr. Einfaldur og flottur í BC skálum á 1.995 kr., buxur í stíl 995 kr. Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf Vélar & tæki Tilboð - Flísa- og hellusagir Flísa- og hellusagir á tilboðsverði kr. 99.000 með 60 cm borði og vatnsdælu. Hallanleg. Mót ehf., Bíldshöfða 16, s. 544 4490. www.mot.is mot@mot.is Bílar Góður skólabíll! Frábært eintak, sparneytinn, lítið keyrður og í mjög góðu ásigkomulagi. Áhuga- samir hafið samband í síma 892 3282. Hjólbarðar Matador MP 58 ný vetrardekk (heilsársdekk) tilboð 4 stk. 175/70 R 13 + vinna kr. 25.800. 4 stk. 175/65 R 14 + vinna kr. 29.600. 4 stk. 195/65 R 15 + vinna kr. 33.600. 4 stk. 205/55 R 16 + vinna kr. 49.600 Kaldasel ehf., Dalvegi 16b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Ökukennsla Ökukennsla Reykjavíkur ehf. Ökukennsla - akstursmat. Snorri Bjarnason BMW 116i, 892 1451/557 4975. Sverrir Björnsson Volkswagen Passat '06 892 4449/557 2940. Ævar Friðriksson Toyota Avensis '02, 863 7493/557 2493. Gylfi Guðjónsson Subaru Impreza '06, 696 0042/566 6442. Gylfi K. Sigurðsson Suzuki Grand Vitara, 892 0002/568 9898. Hjólhýsi Vetrargeymsla Geymum fellihýsi, tjaldvagna o.fl. í upphituðu rými. Nú fer hver að verða síðastur að panta pláss fyr- ir veturinn. Sanngjarnt verð. Upplýsingar í síma 899 7012 Sólhús Bílar aukahlutir HÖGGDEYFAR Fyrir bílinn: Gabriel höggdeyfar, gormar, stýrisliðir, vatnsdælur, sætaáklæði, sætahlífar fyrir hesta- og veiðimenn, burðarbog- ar, aðalljós, stefnuljós, ASIM kúplingssett. GS varahlutir, Bíldshöfða, sími 567 6744. Varahlutir Vél óskast í Benz Sprinter. 2,2 líta dísel túrbóvél í árgerð 1999- 2001. Upplýsingar í síma 895 4444 eða á netfangið hroi@simnet.is. Þjónustuauglýsingar 5691100 Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn Smáauglýsingar sími 569 1100 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 37 hún fékk barnið í hendur aftur. Hún sagði frá hamingjunni þegar þau Óli fluttu inn á neðri hæðina í húsinu á Seljalandsveginum og skelfingunni þegar hún stóð uppi ekkja með þrjú ung börn. Á þessum árum þurftu konur í hennar stöðu oft að láta börn sín frá sér en það sagðist hún aldrei gera. Ég gleymi ekki stoltinu þegar hún horfði á syni sína útskrifast frá MA og sagði við mig. „Sjáðu nú strákana mína, það voru ýmsir sem sögðu að ég yrði að láta þá frá mér því að ein kæmi ég þeim aldrei til manns.“ Ljúfsárar minningar frá Mosvöllum þar sem hún gerðist ráðs- kona og síðan húsmóðir. Þar stóð hún fyrir stóru sveitaheimili fyrst í torfbæ við engin nútímaþægindi. Síðan fluttu þau í nýja steinhúsið og Tryggvi kom heim úr síldinni með saumavél. Lína var afskaplega flink í höndunum og hafði næmt auga fyrir því að sníða og sauma föt. Lífið fór oft óblíðum hönd- um um hana. Þetta setti auðvitað sitt mark á skapgerð hennar og stundum átti hún erfiða daga. Það var hins vegar stutt í kátínuna, ekki síst þegar þær hittust systur, hún og Fríða. Aldrei heyrði ég hana hlæja eins dátt og í eld- húsinu á Sunnubrautinni. Þá gátu þær systur hlegið svo mikið að hvorug mátti mæla en tárin streymdu úr augum. Meðan Lína hafði heilsu til heimsótti hún okkur nokkrum sinnum á ári. Heimsóknir hennar voru mikið ánægjuefni og ákveðnir fastir liðir á dagskrá. Hún bakaði alltaf pönnukökur og gerði kleinur. Við tengdamæðgur fórum yfirleitt saman í leikhús og tók- umst oft fast á um verkið eftir að heim var komið. Lína hafði sterkar skoðanir á mönnum og málefnum og hún var óhrædd við að setja þær fram . Hún var vel lesin, hafði vanist því að lesa allt frá barnæsku en þrátt fyrir lítil efni voru alltaf til bækur á heimilinu í Hælavík. Þar hafði hún líka vanist því að rök- ræða um hlutina. Það var ekki eins gaman að fara með neinni manneskju í leikhús eins og Línu. Þar kom það til að hún naut þess til hins ýtrasta og síðan var svo gaman að heyra skoðanir henn- ar á stykkinu á eftir. Við eigum mynd af Línu úr einni af síðustu heimsóknum okkar til hennar á sjúkrahúsinu á Ísafirði. Hún situr með gleraugun á nefinu, hvessir augun, um varir leikur bros. Hún les upp úr ljóði Sigmundar föður síns. Þetta var í síð- asta skipti sem ég sá glitta í konuna sem við þekktum. Að leiðarlokum er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt með henni samleið í hartnær 40 ár. Elín. Minningarnar um Línu móðursystur mína fylla hugann við fráfall hennar. Hugurinn reikar til Mosvalla í Önund- arfirði þegar sjö ára snáði úr Keflavík, nokkuð baldinn, var sendur þangað í sveit til sumardvalar. Það var mikil breyting fyrir strákinn af mölinni að koma á heimilið á Mosvöllum. Þar iðaði allt af lífi, stórt og myndarlegt sveita- heimili sem Lína stjórnaði með sínu stóra hjarta og af mikilli röggsemi. Alltaf var margt í heimili, því auk systkinanna voru sumarstrákar, oft tveir til þrír eins og ég, á hverju sumri. Á Mosvöllum var rekið hefðbundið sveitabú og Björn bóndi sá til þess að við krakkarnir tækjum virkan þátt í bú- störfum og oft var mikið að gera. Þetta átti vel við sveininn unga og varð til þess að hann var næstu sjö sumur á Mosvöllum. Lína var mikil húsmóðir og þegar maður hugsar til baka þá er erf- itt að skilja hvernig ein kona gat komist yfir allt sem hún gerði. Nýlagaður hafragrautur kl. sjö á morgnana, tíu manns í heimili, farið í fjósið til mjalta, hádegismatur, eftirmiðdagskaffi með heimabökuðu brauði og kökum, seinni mjaltir, kvöldmatur og kvöldkaffi. Ekk- ert rafmagn, engin hitaveita. Allur þvottur handþveginn. Maður skynjaði þetta ekki þá, en mikla virðingu bar ég fyrir henni frænku minni eftir því sem árin og þroskinn færðust yfir. Lína var vön því í lífinu að þurfa að hafa fyrir hlutunum. Rétt þrítug stóð hún ein uppi með þrjú börn eftir að maður hennar lést af slysförum. Þessi sumur var Lína mín önnur mamma. Ég minnist þess oft hvað það var gott fyrstu sumrin að kúra sig upp að henni á kvöldin þegar leiði var í huga yfir að vera svona langt frá mömmu og pabba. Eftir að Lína flutti til Ísafjarðar var gott að koma til hennar á Seljalands- veginn – alltaf tekið á móti manni með sömu hjartahlýjunni, glaðværðinni og væntumþykjunni. Mér leið oft eins og ég væri sonur hennar. Ég kveð þig, elsku frænka, og þakka þér fyrir allt. Það er bjart yfir minning- unni um þig. Sævar Reynisson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.