Morgunblaðið - 18.10.2006, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 39
Kópavogsbær, Rjúpnahæð vesturhluti. Úthlutun
á byggingarétti
Kópavogsbær auglýsir byggingarétt til úthlutunar á eftirtöldum lóðum:
1. Einbýlishús á einni hæð.
Um er að ræða 9 lóðir fyrir einbýlishús á einni
hæð: Austurkór nr. 85, 87, 89, 91, 93, 95, 127,
129 og 161. Bent er á að hreyfihamlaðir hafa
forgang á úthlutun byggingaréttar í Austurkór
127 og 129.
2. Einbýlishús á einni hæð auk kjallara.
Um er að ræða 27 lóðir fyrir einbýlishús á einni
hæð auk kjallara: Austurkór nr. 12, 14, 16, 18,
20, 22, 40, 42, 44, 46, 48, 50, 52, 54, 64, 66, 105,
107, 109, 123, 125, 135, 137, 139, 153, 155 og
157.
3. Einbýlishús á tveimur hæðum.
Um er að ræða 24 lóðir fyrir tveggja hæða ein-
býlishús: Austurkór nr. 4, 6, 8, 10, 24, 26, 28,
30, 32, 34, 36, 38, 56, 58, 60, 62, 111, 113, 115,
117, 141, 143 og 159.
4. Parhús á einni hæð.
Um er að ræða eitt parhús (2 íbúðir) á einni
hæð: Austurkór nr. 163 og 165.
5. Parhús á einni hæð auk kjallara.
Um er að ræða tvö parhús (4 íbúðir) á einni
hæð auk kjallara: Austurkór nr. 68, 70, 72 og
74.
6. Parhús á tveimur hæðum.
Um er að ræða 7 parhús (14 íbúðir) á tveimur
hæðum: Austurkór nr. 81, 83, 97, 99, 101, 103,
119, 121, 131, 133, 145, 147, 149 og 151.
7. Fjölbýlishús (fjórbýlishús á tveimur
hæðum auk kjallara).
Um er að ræða 9 fjórbýlishús á tveimur
hæðum auk kjallara: Austurkór nr. 76, 78, 80,
82, 84, 86, 88, 90 og 92.
8. Fjölbýli á 3 hæðum auk kjallara.
Austurkór 79 (6 íbúðir). Um er að ræða bygg-
ingarétt fyrir eitt fjölbýlishús.
Einnig er hægt að sækja um ákveðið
svæði til vara og er um að ræða tvö svæði,
svæði 1 og svæði 2:
Svæði 1 - tekur til byggingaréttar á lóðum
Austurkór 4 - 92 (sléttar tölur).
Svæði 2 - tekur til byggingaréttar á lóðum
Austurkór 79 - 159 (oddatölur)
Lóðagjöld.
Lágmarks gatnagerðar- og yfirtökugjöld:
Einbýlishús 12,3 milljónir kr.
(miðað við 700 m3)
Parhús 8.6 milljónir kr. (á íbúð)
(miðað við 600 m3)
Fjórbýlishús 6,1 milljón kr. (á íbúð)
(miðað við 450 m3)
Fjölbýlishús 4,7 milljónir kr. (á íbúð)
(Miðað við 300 m3)
Gert er ráð fyrir að ofangreindar lóðir verði
byggingarhæfar í desember 2007.
Skipulagsuppdráttur ásamt umsóknareyðu-
blöðum og úthlutunarreglum, fást afhent á
Tæknideild Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð,
frá kl. 8-15:30 mánudaga til fimmtudaga og
á föstudögum frá 8-14 frá mánudeginum
16. október 2006. Úthlutunargögn fást af-
hent fyrir 1.000 kr. en einnig er hægt að nálgast
gögnin á vefsíðu Kópavogs www.kopavogur.is
Umsóknum skal skilað á sama stað fyrir
kl. 16:00 mánudaginn 30. október 2006.
Vakin er athygli á reglum Kópavogsbæjar
um úthlutun á byggingarétti fyrir íbúðar-
húsnæði. Þá er jafnframt vakin sérstök
athygli á því að umsóknum einstaklinga
um byggingarétt þarf að fylgja staðfest-
ing banka eða lánastofnunar á greiðslu-
hæfi. Fyrir umsækjendur einbýlishúsalóða
35 milljónir kr. og fyrir umsækjendur par-
húsa 30 milljónir kr. Fyrirtækjum ber að
skila ársreikningi sínum fyrir árið 2005
og eða milliuppgjöri fyrir árið 2006 árituð-
um af löggiltum endurskoðendum. Yfir-
lýsing frá banka og lánastofnun um
greiðsluhæfi og lánamöguleika umsækj-
enda skal vera án fyrirvara. Æskilegt er
að umsækjendur leggi inn skattframtal.
Byggingarétti á lóðum verður úthlutað
með fyrirvara um samþykkt deiliskipulag.
Bæjarstjórinn í Kópavogi.
Ýmislegt
Vetrarfagnaður -
villibráðarkvöld!
Á Hótel Leirubakka fögnum við vetri á fyrsta
vetrardegi, 21. október, með glæsilegri villi-
bráðarveislu. Borðin svigna undan kræsingum
og dýrum veigum og gesta bíður gisting í
glænýrri hótelbyggingu.
Pantanir í símum 487 8700 og 865 0359 eða
á netfangi leirubakki@leirubakki.is.
Erum einnig byrjuð að taka niður pantanir fyrir
jólahlaðborð í nóvember og desember fyrir
einstaklinga og hópa.
Hótel Leirubakki,
851 Hellu,
sími 487 8700.
leirubakki@leirubakki.is
www.leirubakki.is
Félagslíf
HELGAFELL 6006101819 VI
GLITNIR 6006101819 III
I.O.O.F. 9 18710188½ Fl.
I.O.O.F. 7 18710187½ Fl
I.O.O.F. 18 18710188 Kk.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Raðauglýsingar 569 1100
FRÉTTIR
Ráðstefna um
gildi hreyfingar
SÍBS gengst fyrir ráðstefnu um
gildi hreyfingar n.k.föstudag, 20.
október, í Súlnasal Hótel Sögu kl.
13–16. Siv Friðleifsdóttir, heil-
brigðisráðherra, setur ráðstefn-
una og síðan flytur Guðmundur
Björnsson endurhæfingarlæknir
ávarp um áhrif líkamsþjálfunar.
Aðrir frummælendur eru dr.
Erlingur Jóhannsson prófessor,
forstöðumaður íþróttafræðaseturs
Kennaraháskóla Íslands á Laug-
arvatni, Ásdís Kristjánsdóttir,
sviðsstjóri lungnasjúkraþjálfunar
á Reykjalundi, Katrín Júlíusdóttir
alþingismaður, Héðinn Jónsson
sjúkraþjálfari, Gígja Gunn-
arsdóttir, verkefnastjóri hreyf-
ingar hjá Lýðheilsustöð, og Jóna
Hildur Bjarnadóttir, sviðsstjóri
almenningsíþróttasviðs ÍSÍ. Fund-
arstjóri verður Ludvig Guð-
mundsson, endurhæfingarlæknir.
Aðgangur að ráðstefnunni er
ókeypis. Óskað er eftir að þátt-
takendur tilkynni mætingu á net-
fangið helgi@sibs.
Opið bréf til
heilbrigðisráðherra
LÁRUS Þorvaldur Guðmundsson
skrifaði í Morgunblaðið í gær grein
um málefni heyrnarskertra. Í með-
förum Morgunblaðsins féll út úr
greininni að um væri að ræða opið
bréf til heilbrigðisráðherra og leið-
réttist það hér með.
LEIÐRÉTT
Málþing um
félagsstarf
fullorðinna
ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ Laugardals
og Háaleitis gengst fyrir málþingi
um félagsstarf fullorðinna í Fé-
lagsmiðstöðinni Hæðargarði 31
föstudag 20. október kl. 13 til 15.45.
Á málþinginu verða m.a. fulltrúar
heilbrigðiskerfisins, félagslega stoð-
kerfisins og notendanna sjálfra og
munu mælendur ræða kosti fé-
lagsstarfs á breiðum grundvelli.
Snerta þá málefnin í senn persónu-
lega reynslu fólks og faglega og
fræðilega þætti sem snúa að fé-
lagsstarfi, segir í fréttatilkynningu.
Á málþinginu verða umræður
með nokkuð óhefðbundnu sniði.
Þannig verður búið til nokkurs kon-
ar kaffihús, þar sem fólk skeggræðir
málin innbyrðis á milli erinda en að
loknum þessum „smáumræðum“
verður hugmyndum safnað saman
og þær bornar undir stærri hóp.
Samhliða málþinginu er stefnt að
því að opna netkaffi sem er til-
raunaverkefni í samstarfi við not-
endur félagsstarfs í Hæðargarði 31.
Tilgangur þess er að efla og styðja
við tölvulæsi og netnotkun fullorð-
inna. Aðgangur að netkaffinu verð-
ur opinn á tíma Hæðargarðs og
verður aðgangur að tölvunum gjald-
frjáls. Ennfremur verður boðið upp
á námskeið í tölvunotkun.
Aðgangur að málþinginu er opinn
og eru allir velkomnir. Stefnt er að
öðru málþingi með vorinu þar sem
sjónum verður sérstaklega beint að
notendum.
Viðbót við
prófkjörsgreinar
Í GREINUM í blaðinu sl. sunnudag
um baráttu frambjóðenda um sæti á
listum stjórnmálaflokka fyrir næstu
kosningar voru ekki taldir upp allir
þeir, sem bjóða sig fram, enda ekki
ætlunin að hafa upptalninguna tæm-
andi. Hins vegar hefði í sumum til-
vikum mátt hafa umfjöllunina ít-
arlegri.
Ekki var nefnt í aðalgrein að Ill-
ugi Gunnarsson, fyrrverandi aðstoð-
armaður forsætisráðherra, byði sig
fram í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Reykjavík, en framboð
hans var tíundað í styttri grein, þar
sem jafnframt voru taldir upp aðrir
fyrrverandi og núverandi aðstoð-
armenn ráðherra sem eru í fram-
boði. Illuga hefði réttilega átt að
geta í aðalgreininni, þar sem hann
er nýr frambjóðandi í Reykjavík.
Steinn Kárason umhverfishag-
fræðingur er einnig nýr frambjóð-
andi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík og stefnir á 3.–5. sæti, en
hans láðist að geta í umfjölluninni.
Þá var þess ekki getið að Kolbrún
Baldursdóttir sálfræðingur byði sig
fram í 6. sæti í Reykjavík. Hún skip-
aði 9. sæti í Reykjavíkurkjördæmi
suður í síðustu alþingiskosningum.
Fleiri dæmi er hægt að finna um
að frambjóðenda hafi ekki verið get-
ið og á það jafnt við um þá sem þeg-
ar sitja á þingi og þá sem sækja
þangað inn. Þar sem reynt var að
draga fram helstu átakalínur hefði
t.d. mátt hnykkja á baráttunni um 2.
sætið hjá sjálfstæðismönnum í
Reykjavík, þar sem Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra og Guðlaugur
Þór Þórðarson þingmaður berjast
auk þess sem Pétur Blöndal sækist
eftir 2.-3. sæti.
Freysteinn Jóhannsson,
Ragnhildur Sverrisdóttir.
Ráðstefna um
skjalastjórnun
Fimmtudaginn 19. okt verður hald-
in þriðja árlega ráðstefnan Skjala-
stjórnun á Íslandi á Grand Hótel í
Reykjavík.
Meginefni ráðstefnunnar nú er
innleiðing skjalastjórnar á vinnu-
stað; markviss skráning, flokkun,
vistun og endurheimt allra skjala
og bætt nýting skjalakerfa (hug-
búnaðar). Joe McDermott sérfræð-
ingur frá Bretlandi talar um þetta
efni. Fræðsla verður um helstu
skref í innleiðingarferlinu. Sérstakt
erindi er um innleiðingu skjala-
stjórnunar hjá Orkuveitu Reykja-
víkur.
Ráðstefnan er haldin af fyrirtæk-
inu Skipulagi og skjölum í samstarf
við Stjórnunarfélag Íslands, Rými,
Focal Sofware & Consulting og Fé-
lag um þekkingarstjórnun.Nánari
upplýsingar eru á heimasíðu ráð-
stefnunnar www.skjalastjornun.is
Vetrarfagnaður
Langnesinga
ÁTTHAGAFÉLAG Þórshafnar og
nágrennis heldur vetrarfagnað 1.
vetrardag 21.október í reiðhöllinni
í Víðidal 2.
Húsið verður opnað kl. 19 og
hefst borðhaldið kl. 20. Hljóm-
sveitin Hófarnir leikur fyrir dansi
að loknu borðhaldi. Veislu- og
skemmtanastjóri er Bjarni töfra-
maður. Miðar verða seldir miðviku-
daginn 18.október á Sléttuvegi 3,
4.hæð (hjá Arnþóri)
Ráðstefna um
Hjallastefnuna
FIMMTA ráðstefna Hjallastefn-
unnar um kynjajafnrétti í skóla-
starfi verður haldin dagana 19.–21
október á Hótel Selfossi. Þar verða
starfsmenn þeirra fimm leik- og
grunnskóla sem menntafyrirtækið
Hjallastefnan rekur svo og starfs-
menn frá 11 öðrum skólum sem
starfa í anda Hjallastefnunnar.
Að auki verða á ráðstefnunni
starfsmenn frá tveimur norskum
leikskólum sem starfa í anda
Hjallastefnunnar en þeir eru meðal
þeirra þúsunda kennara frá Norð-
urlöndunum sem heimsækja Ísland
til að kynnast Hjallastefnunni, segir
í fréttatilkynningu.
Fyrirlesarar á ráðstefnunni eru
Berglind Rós Magnúsdóttir, Ing-
ólfur Ásgeir Jóhannesson, Peggy
Burks og Þorgerður Einarsdóttir,
að ógleymdri Margréti Pálu Ólafs-
dóttur, höfundi Hjallastefnunnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra ávarpar ráð-
stefnuna við setningu og listamenn
gleðja hjörtu gesta. Þátttakendur
að þessu sinni eru um 300 talsins og
er ráðstefnan lokuð, þ.e. hún er ein-
ungis ætluð þeim kennurum og
starfsfólki sem notar Hjallastefn-
una að hluta til eða í heild.