Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 40
Staðurstund
Breska hljómsveitin Take That
var stödd hér á landi á dög-
unum og furðaði sig á þraut-
seigju íslenskra aðdáenda. » 51
fólk
Aðdáendur hljómsveitarinnar
Radiohead geta nú glaðst, því
nýrrar plötu er að vænta á
næstu misserum. » 51
tónlist
Steinunn Sigurðardóttir fjallar í
pistli sínum um ritgerð Sigfús-
ar Daðasonar, Athugasemdir
um Brekkukotsannál. » 43
bækur
Ultra Mega Techno bandið Stef-
án tjáir sig um upphafið, Airwa-
ves, Eurovision, snjóbolta og
frumleika í einlægu viðtali. » 41
viðtal
Eftir Birtu Björnsdóttir
birta@mbl.is
ÞAÐ BÍÐA trúlega margir spenntir
eftir að geta barið Mýrina augum,
kvikmyndina sem gerð er eftir
margfaldri metsölubók Arnaldar
Indriðasonar. Myndina sem Baltas-
ar Kormákur er búinn að hafa í huga
í næstum sex ár og verður frumsýnd
á föstudaginn.
Blaðamaður hitti Baltasar að máli
í liðinni viku þegar leikstjórinn var
nýkominn frá lokafrágangi mynd-
arinnar í Danmörku.
Baltasar komst fyrst í kynni við
Mýrina, eins og svo margir aðrir,
fyrir jólin árið 2000.
„Mér fannst svo merkilegt að tek-
ist hefði að gera trúverðuga íslenska
glæpasögu. Sagan er reyndar meira
en það, þetta er samfélagslýsing
með glæpahrygg sem bindur söguna
saman,“ segir Baltasar.
„Ég ákvað að kaupa réttinn að
sögunni en lenti reyndar í smá
stappi því það var annar aðili að
reyna það sama á sama tíma. En það
hafðist á endanum og vinnan við
handritið hófst.“
Baltasar segir þá vinnu hafa verið
þrautinni þyngri.
„Ég prófaði nokkra handritshöf-
unda og einnig var um tíma hug-
mynd um að hafa annan leikstjóra.
Ég ákvað á endanum bara að gera
þetta sjálfur, leikstýra og skrifa
handritið. Ég lokaði mig af í Skaga-
firðinum að vetri til og hætti ekki
fyrr en ég var búinn að brjóta mig í
gegnum þetta,“ segir Baltasar.
„Þetta er sennilega eitt erfiðasta
handrit sem ég hef gert. Það eru
ákveðnir þættir í frásögninni sem
ganga illa upp í kvikmynd. Til dæm-
is það að þú ert að elta mann sem þú
ert aldrei neitt á hælunum á alla
bókina, hann dúkkar bara upp í lok-
in. Þá skapast ekki þessi spenna sem
þarf í kvikmynd.“
Víðförlasta bók
Íslandssögunnar
Baltasar segist ekki hafa unnið
handritið í samvinnu við höfundinn
Arnald.
„Ég sýndi Arnaldi handritið þegar
ég var búinn með það og hann gaf
mér nokkur mjög góð ráð. Hann var
sáttur við atlögu mína að sögunni því
hann var kvikmyndagagnrýnandi
lengi og gerir sér alveg grein fyrir
því að kvikmyndin er allt annar mið-
ill.“
Þrátt fyrir að handritaskrifin hafi
reynst þrautin þyngri segist Baltas-
ar mjög trúr kjarna sögunnar, hann
fari bara aðra leið við að komast að
sömu niðurstöðu.
„Þegar ég keypti kvikmyndarétt-
inn af sögunni var Mýrin bara
áhugaverð glæpasaga sem var ný-
komin út. Þegar ég gerði myndina
var hún hinsvegar orðin víðförlasta
bók Íslandssögunnar. Allir eru búnir
að lesa hana og sex aðrar bækur um
sömu karakterana og hafa sínar
skoðanir á hvernig þetta eigi allt-
saman að vera,“ segir Baltasar.
Stór hluti af skoðunum lesenda
Arnalds er trúlega sú skoðun hvern-
ig aðalsöguhetjurnar líta út. Allir
eiga sinn Erlend.
Ingvar E. Sigurðsson fer með
hlutverk Erlends í Mýrinni, Björn
Hlynur Haraldsson er Sigurður Óli,
Elínborg er leikin af Ólafiu Hrönn
Jónsdóttur og Ágústa Eva Erlends-
dóttir er Eva Lind.
Hvernig ætli Baltasar hafi borið
sig að við leikaravalið?
„Ég hafði engan áhuga á útliti
leikaranna heldur eðli þeirra. Fólk
ber með sér ákveðna áru og það veg-
ur þyngra en útlitið,“ segir Baltasar.
„Ég þekki Ingvar mjög vel, við
vorum saman í bekk í Leiklistarskól-
anum. Ingvar er einfari, hann er
mjög hlýr maður en ekki opinn og
þannig finnst mér Erlendur vera.
Mér fannst Erlendur vera trúboði,
einn maður að reyna að bjarga
heiminum. Í hlutverk Sigurðar Óla
var ég að leita að andstæðu Erlend-
ar. Hann er nútímamaðurinn. Björn
Hlynur er svona eins og Brad Pitt,
það er eins og hann sé fæddur í
gallabuxum. Mér fannst þeir mynda
gott teymi.
Elínborg er aftur á móti frekar
óljós karakter, sérstaklega í fyrstu
bókunum. Hún verður því einskonar
stoðkarakter. Hún er sú sem Er-
lendur trúir fyrir vandamálum sín-
um án þess þó að segja það. Hún er
eins og mamma Sigurðar Óla og vin-
kona Erlendar. Hún er jörðin. Ólafía
Hrönn er að mörgu leyti eins, maður
segir henni margt sem maður myndi
kannski ekki segja öðrum.“
Ágústa Eva er Eva Lind, en hún
er trúlega þekktust landsmönnum
sem hin eina sanna Silvía Nótt.
„Ég kynntist Ágústu þegar hún
passaði strákana mína á Laufásborg
áður en hún varð Silvía Nótt. Þar
var hún lítil sæt mús í sandkassa en
svo birtist þetta skrímsli á Skjá ein-
um. Ég gerði mér grein fyrir að hún
hefur tvíeðli og það er nákvæmlega
það sama og Eva Lind, sem er við-
kvæm og þarf hjálp en getur einnig
verið andstyggileg. Manneskjurnar
á bakvið leikarana vógu því þyngst í
hlutverkavalinu,“ segir Baltasar.
Opnar dyr allstaðar
Upptökur Mýrarinnar tóku á ann-
an mánuð og segir Baltasar ferlið
hafa gengið vel.
„Það sem kom mér mest á óvart
voru viðtökurnar sem við fengum.
Við komum allstaðar að opnum dyr-
um, lögreglan var okkur einstaklega
hjálpleg. Kári Stefánsson opnaði Ís-
lenska erfðagreiningu fyrir okkur og
fer meira að segja með smá hlutverk
í myndinni. Þrátt fyrir að þjóðin hafi
yfirleitt verið jákvæð út í verkin mín
hef ég aldrei kynnst neinu þessu
líku, allir vildu hjálpa til. Ég held að
bókin hafi haft mikið um viðtök-
urnar að segja, hún er grunnurinn
að þessu öllu,“ segir Baltasar.
„Ég hef átt ansi misjöfn samskipti
við lögregluna gegnum tíðina, það
var svolítill hamagangur í mér þegar
ég var yngri. Ég hafði kannski til-
hneigingu til að mála þessa stétt
svolítið svarta en þegar ég fór að
vinna að Mýrinni með lögreglunni
voru þeir allir af vilja gerðir til að
hjálpa til á allan hátt. Mér fór að
þykja ansi vænt um þessa kalla sem
voru að berja mig hér í gamla daga.
Þetta eru menn sem eru að reyna
eins og þeir geta að halda okkur hin-
um réttum megin við línuna. Það er
örugglega erfitt að vera lögregla í
eins anarkísku ríki og Ísland er, þar
sem allir mega segja allt og gera
allt.“
Allir í bíó!
Mýrin er tilbúin til sýninga og
stóra stundin rennur upp næstkom-
andi föstudag.
Baltasar segist sáttur með útkom-
una en viðurkennir fúslega að hann
sé taugaóstyrkur gagnvart við-
tökum almennings.
„Sérstaklega núna þegar það er
ekkert meira sem ég get gert. Ég er
samt sáttur við mitt og finnst ég
hafa gert heiðarlega atlögu að
þessu,“ segir Baltasar.
„Það sem skiptir mig mestu máli
er að íslenskir áhorfendur komi í
bíó. Það er frábært að fá verðlaun
fyrir það sem maður gerir en það
sem skiptir mig mestu máli núna er
að Íslendingar fari í bíó að sjá ís-
lenskar myndir. Það hefur verið
dapurt ástand í því uppá síðkastið og
ég vona sannarlega að það muni
breytast. Annars gæti róðurinn orð-
ið þungur,“ segir Baltasar að lokum.
Trúverðug
íslensk
glæpasaga
Mýrin Björn Hlynur, Ólafía Hrönn og Ingvar í hlutverkum sínum sem Sigurður Óli, Elínborg og Erlendur.
Baltasar Kormákur leikstýrir Mýrinni,
sem gerð er eftir margfaldri metsölu-
bók Arnaldar Indriðasonar.
Morgunblaðið/Kristinn
Leikstjórinn Baltasar Kormákur segir sér það hjartans mál að Íslendingar
fjölmenni í bíó á íslenskar myndir, annars gæti róðurinn orðið þungur.
Airwaves-tónlistarhátíðin hefst
í dag. Árni Matthíasson mælir
með atriðum sem vert er að sjá
á fyrsta degi hátíðarinnar. » 41
tónlist
|miðvikudagur|18. 10. 2006| mbl.is