Morgunblaðið - 18.10.2006, Page 42
42 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
VIRTASTA áhafnargreinin í sam-
anlagðri tónsögu Vesturlanda,
strengjakvartettinn, var í brenni-
depli á sjötta norræna músíkdeg-
inum af tíu þegar ofanskráðir höf-
undar frá Finnlandi, Svíþjóð,
Kanada (Laporte & Sokolovic) og
Íslandi leiddu saman hesta sína í
Listasafni Íslands. Aðsóknin mót-
aðist sem fyrr mest af harðasta
kjarnanum – tónskáldum kvöldsins
og kollegum þeirra.
Feginn vildi ég geta fullyrt af
persónulegri sannfæringu að marg-
ir fagurtónkerar hefðu hér misst af
miklu. Og vissulega mátti það heim-
færa upp á spilamennsku kanadíska
Bozzini kvartettsins, er lék allt af
gífurlegri snerpu, innlifun og ná-
kvæmni. En fyrir vikið var lítið eftir
tónskáldunum til afsökunar, er gátu
sjaldnast borið fyrir sig klénan
flutning heldur urðu að koma til
dyra eins og þau voru klædd. Það
gerðist nefnilega fjarska fátt sem
maður hafði ekki heyrt margoft áð-
ur undanfarna áratugi. Úr því
„frumleiki“ og „nýhugsun“ ku æðsta
forsenda tónsköpunar okkar tíma,
er segir skilið við flest er nýtilegt
þótti fyrir 1960, lá því nærri að
spyrja: til hvers var leikurinn eig-
inlega gerður?
Það var segin saga, að vandeft-
irminnileg úrvinnsluefni nútíma-
tónskálda á við litbrigðaáferð eða
ýmiss konar dulspekileg pappírs-
„konsept“ stóðu sjaldnast undir
stærri strúktúr en sem nam 10 – 15
mínútna tímalengd – í ofanálag iðu-
lega niðurskipt í 6 – 8 smáþætti.
Hlustendur urðu því að lifa í epísód-
ísku ögurnúi. Eftir stóðu oftast
fljótgleymd tilfinningahrif á við
rykkjóttan heim risaskordýra í
„Broken Contours“ [10:45] Askos
Hyvärinens, eða meira líðandi og
stundum m.a.s. þokkalega áheyri-
legan „Phalanx“ [10:35] Mårtens
Josjös.
Ómiðilsvænir tilburðir Jean-
François Laportes í „Moments“
[13:30], er lengst af gengu út á að
framkalla eins óhljóðfæraleg (ó)
hljóð og frekast var unnt (m.a. með
því að strjúka bogum upp og niður
eftir strengjum – þvert á bogah-
árin!) voru hins vegar ofvaxnir mín-
um skilningi. Sérstaklega úr því
tölvutæknin gæti framleitt þau
margfalt betur og auðveldar.
Sem betur fór birti talsvert yfir
eftir hlé í bezta verki kvöldsins að
mínu viti, „Blanc Dominant“ [14:55]
eftir Önu Sokolovic, er tjaldaði víða
áhrifamiklum tjábrigðum við skáld-
lega ljúfsára angurværð. Þar – líkt
og í lokaverki Þórðar Magnússonar,
„Kvartett“ [18:55] frá í fyrra –
sýndu höfundur einnig tilþrifamikið
næmi fyrir hljómalitum. Og þó að
atvikabundið verk Þórðar næði ekki
jafn heilsteyptri framvindu og fyr-
irrennarinn, var þó alltjent hægt að
gleðjast yfir ýmsu, m.a.s. fimm tóna
fúgatói í einum af sex þáttum verks-
ins sem í stöðunni kom manni hvað
mest á óvart.
Óhljóðfæraleg hljóð
Tónlist
Norrænir músíkdagar –
Listasafn Íslands
Verk eftir Hyvärinen, Josjö (frumfl.), La-
porte, Sokolovic og Þórð Magnússon.
Þriðjudaginn 10. október kl. 20.
Bozzini strengjakvartettinn
Ríkarður Ö. Pálsson
„GEFÐU að móðurmálið mitt“ söng
Hamrahlíðarkórinn á inngöngu fyrir
þétt setinni Hallgrímskirkju á laug-
ardag. Íslenzki tvísöngurinn átti þar
tvöfalt erindi, því 14. október, af-
mælisdagur sr. Bjarna Þorsteins-
sonar, hefur verið dubbaður dagur
íslenzka þjóðlagsins, og boðskapur
sálmsins féll jafnframt vel að nor-
rænu samkundunni þar sem þjóð-
tungur Norðurlanda eiga í vaxandi
höggi við ásælni enskunnar.
Dagskráin var alíslenzk en fjöl-
breytt, og hvergi eldri en 25 ára ef
nýútsett þjóðlög eru undanskilin. Og
þó að einstaka atriði lafði aðeins neð-
arlega í fyrsta gæðaflokki, þá lifnaði
hvert einasta rækilega við í fram-
úrskarandi og einlægri túlkun
Hamrahlíðarkórsins, er hér tók á
hinum stóra sínum í tilefni dagsins.
Hnitmiðaður einfaldleiki höfunda
undir óviðjafnanlegum galdramætti
þessa látlausa kraftaverks íslenzkra
æskulýðskóra gat því efalítið sagt
tilraunasinnuðustu tónskáldum
meðal áheyrenda sitthvað um hvað
skilar sér bezt þegar öllu er á botn-
inn hvolft.
„Ísland“ (2004) eftir Örlyg Bene-
diktsson var dæmigert fyrir slíka
markvissa nálgun; tignarlegt en þó
viðráðanlegt fyrir áhugakór og vel
samið við hvetjandi nútímaljóð
Hannesar Péturssonar. Klasafeng-
inn aldaniðurinn í útsetningu Huga
Guðmundssonar frá 2001 á gömlu
lagi úr Hymnodiu Sacra sameinaði
fornt og nýtt í aðdáunarverðu jafn-
vægi undir aukaáhrifum íslenzks tví-
söngs.
Kórinn frumflutti síðan tvö lög
eftir Snorra Sigfús Birgisson –
sjarmerandi göngugikkinn „Dreng-
urinn bezti“ (þjóðlagsúts.) og hressi-
legu bordúnsþuluna „Heyrði ég í
hamrinum“ er byggð var á nokkrum
íslenzkum þjóðlögum. Svipuð en
hefðbundnari áferð var á ljúfu lagi
Mistar Þorkelsdóttur, „Vikivaka fyr-
ir stúdínufrænkur“, frá 2005 við
kvæði Ólafs á Söndum. Öllu þykkari
ritháttur var yfir „Fögnuði“ (2004)
við ljóð Matthíasar Johannessen eft-
ir Hauk Tómasson, er skartaði lit-
ríkri hómófóníu með hnífsbroddi af
síðmiðaldalegum fauxbourdon í lok-
in.
„Á raupsaldrinum“ (Þorgeir
Sveinbjarnarson) frá 2005 eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson var gætt gam-
ansömum þokka og hljómamálið í
mínum eyrum m.a.s. ávæningi af
djassi. Hægferðugu tónsetningar
Atla Heimis Sveinssonar á örljóðum
Stefáns Harðar Grímssonar, „Húm I
og II“ (2005), voru þrungnar mun-
úðarfullri næturlýrík, og féll dul-
úðugur klarínettblástur kórfélagans
Gríms Helgasonar fullkomlega að
heildinni.
Loks voru fimm verk eftir aldurs-
forsetann Jón Nordal – ástsæl
„Heilræðavísa“ hans frá 1981,
„Haust“, „Þögn“ & „Vor“ (1995;
Snorri Hjartarson) og hið áhrifa-
mikla „Vorkvæði um Ísland“ (1994)
við magnað ljóð Jóns Óskar um lýð-
veldisstofnunina 1944. Lét það eng-
an ósnortinn, enda má segja að Þor-
gerður Ingólfsdóttir hafi jafnvel
laðað meira fram úr unga söngfólki
sínu þennan dag en venjulega. Og er
þá mikið sagt.
Aldaniður ungra radda
Tónlist
Norrænir músíkdagar –
Hallgrímskirkja
Hamrahlíðarkórinn u. stj. Þorgerðar Ing-
ólfsdóttur. Laugardaginn 14. október kl.
14.
Ný íslenzk kórverk
Morgunblaðið/Sverrir
Góður Hamrahlíðarkórinn í Hallgrímskirkju.
Ríkarður Ö. Pálsson
Sun 22/10 kl. 14 UPPS.
Lau 28/10 kl. 14
Sun 29/10 kl. 14
Sun 5/11 kl. 14
Fös 20/10 kl. 20 Sun 29/10 kl. 20
Fös 3/11 kl. 20 Fim 9/11 kl. 20
Sun 22/10 kl. 20 Fös 27/10 kl. 20
Lau 28/10 kl. 20 Sun 5/11 kl. 20
BRILLJANT SKILNAÐUR
MANNTAFL
ÁSKRIFTARKORT
5 sýningar á 9.900
SÍÐASTA SÖLUVIKA!
Nánari uppl. á www.borgarleikhus.is
Lau 21/10 kl. 20 Fös 27/10 kl. 20
Lau 28/10 kl. 20
TÓNLISTARSKÓLI AKRANESS
Þjóðlagasveit tónlistarskólans á
Akranesi
Mið 25/10 kl. 20:30
Miðaverð 1.500
Fim 19/10 kl. 20
Fös 20/10 kl. 20
Sun 22/10 kl. 20
Aðeins þessar sýningar
Kortasala enn í fullum gangi!
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Lau 21. okt kl. 14 Aukasýning - í sölu núna
Sun 22. okt kl. 13 Aukasýning - í sölu núna
Sun 22. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 15 UPPSELT
Sun 22. okt kl. 16 UPPSELT
Sun 29. okt kl. 14 UPPSELT
Sun 29. okt kl. 15
Næstu sýn: 5/11, 12/11
Mike Attack - Gestasýning sýnd í Rýminu
Fös 20. okt kl. 20 Síðasta sýning!
Herra Kolbert – sala hafin!
Lau 28. okt kl. 20 Frumsýning UPPSELT
Næstu sýn.: 29/10, 2/11, 3/11, 4/11, 5/11, 9/11, 10/11, 12/11, 16/11
www.leikfelag.is
4 600 200
! "
# $
$ $$
$ %&'( )*+ ,-.
/ $#
$ $/
$ -,,&- 01-*- 2 + 3
444
5
!"##
$% & '( ()' * +,
$6
7
8 69 :7
7
;
<0= / 6
--.
/ 0.
12
3/- 4 1
" *! 8 : ! > ! ? @" A !
B 0 !
"C Gunnlaðarsaga
eftir Svövu Jakobsdóttur
laugardag 21. okt. kl. 20.00
sunnudag 22. okt. kl. 20.00
Hvað ef ...?
miðvikudag 18. okt. uppselt
Viðtalið
fimmtudag 19. okt. örfá sæti laus
Miðasala í síma 555 2222
www.hhh.is | www.midi.is