Morgunblaðið - 18.10.2006, Side 48
48 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Keppni í ruddmennsku
og dónaskap?
MÉR hefur oft blöskrað það sem
okkur áhorfendum er boðið upp á í
viðtalsþáttum í Kastljósi RÚV. Til-
efni þessara skrifa er einræða Öss-
urar Skarphéðinssonar mánudags-
kvöldið 9. október, þar sem Guðni
Ágústsson sat á móti honum við
borðið.
Í eina skiptið sem svo virtist að
Guðni fengi að svara, vegna þess að
Össur þurfti að anda, greip stjórn-
andinn fram í fyrir honum og baun-
aði á hann spurningu. Guðni fékk
hvorki að ljúka máli sínu né svara
spurningunni, vegna þess að Össur
var þá byrjaður aftur. Því miður er
þetta ekkert einsdæmi.
Ég hefði gjarnan viljað heyra
hvað Guðni hafði til málanna að
leggja, en finnst samt að hann hafi
komið út með pálmann í hönd-
unum, nema þetta hafi átt að vera
keppni í ruddamennsku og dóna-
skap. Það er allt gott um það að
segja að stjórnendur þáttanna
skjóti inn spurningum, en mér
finnst samt að aðalhlutverk þeirra
eigi að vera að sjá til þess að allir
þátttakendur fái að taka þátt og
framígrip ætti að banna.
Mönnum sem ekki kunna
mannasiði ætti ekki að hleypa inn í
kastljósið, en ef einhver slæðist inn
óvart ætti stjórnandinn að hafa
vald til að vísa honum á dyr í beinni
útsendingu.
Þórhallur Hróðmarsson.
Heilsutengd ferðaþjónusta
í íslenskum víðernum
VÍÐA erlendis eru farnar nátt-
úruskoðunarferðir með ferðafæra
sjúklinga um óbyggðir og þá gist í
óspilltri náttúru í umsjá tilheyr-
andi lækna eða sérfræðinga. Oftast
er um að ræða einstaklinga sem
ráða ekki við sterkar geðsveiflur
eða ofstopaáráttu eða hafa skadd-
ast vegna ofdrykkju eða fíkniefna-
notkunar. Sagt er að í slíkum ferð-
um læri þeir að upplifa þögn og
kyrrð m.a. til að íhuga eigið líf,
læra að þekkja sjálfa sig og sinn
styrk til að breyta um lífsstíl. Slík-
ar sjálfsskoðunarferðir hafa einnig
verið farnar í íslenskri óspilltri
náttúru a.m.k. með erlenda sjúk-
linga.
Nýlega lýsti íslenskur ferða-
málafrömuður því yfir að hann
hygðist nýta þær náttúruskemmdir
sem unnar hafa verið á Kára-
hnjúkasvæðinu til að skipuleggja
þangað ferðir fyrir erlenda ferða-
menn. Hefði hann og aðrir íslensk-
ir ferðarekendur ekki átt að athuga
það fyrr?
Áhugamaður um víðerni.
Trúlofunarhringur
týndist í miðbænum
TRÚLOFUNARHRINGUR tap-
aðist í miðbæ Reykjavíkur, hugs-
anlega nálægt Hverfisgötu, laug-
ardagskvöldið 7. október.
Fundarlaunum heitið. Skilvís finn-
andi vinsamlega hafi sambandi við
Guðmund í síma 660 8488
Henry Hlíðar er
týndur í Kópavogi
HENRY er vinalegur tveggja ára
högni, gulbröndóttur, með hvítt
trýni, háls og
hosur. Hann hef-
ur ekki komið
heim til sín að
Kópavogsbraut
113 síðan 11.
okt. Henry hefur
endurskinsól
með grænu
nafnspjaldi,
eyrnamerktur 4R212. Er líklega
ennþá á Kársnes-svæðinu. Ef ein-
hver hefur orðið hans var, vinsam-
legast hafið samband í símum
554 2957 / 695 8955 eða með tölvu-
pósti: hhar@internet.is
Velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
90ára afmæli. Ídag, 18. októ-
ber, er níræð Ráðhild-
ur Jónsdóttir, Gull-
smára 7, Kópavogi. Í
tilefni af þeim tíma-
mótum mun hún vera
með heitt á könnunni
fyrir ættingja og vini
sunnudaginn 22. október að Gullsmára
7, á 12. hæð í samkomusalnum, milli kl.
15 og 17.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur,
Sylvía Grétarsdóttir og Sigrún Erla
Lárusdóttir, söfnuðu kr. 4.220 til
styrktar ABC barnahjálp.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynn-
ingar um afmæli, brúðkaup, ætt-
armót og fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa
að berast með tveggja daga fyr-
irvara virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags- og mánu-
dagsblað. Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistilkynningum
og/eða nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur hringt í síma
569 1100 eða sent á netfangið rit-
stjorn@mbl.is. Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Engar nýjar vís-bendingar hafa
komið fram um morð-
ið á rússneska blaða-
manninum Önnu Po-
litkovskaju, en
samsæriskenning-
arnar dafna. Á vef-
síðu tímaritsins Der
Spiegel voru nokkrar
helstu kenningarnar
taldar upp. Þeirra
ósennilegust þótti að
hún hefði fyrir til-
viljun orðið fórn-
arlamb glæpamanna.
Politkovskaja hafði
gagnrýnt rússneska
valdhafa og beint
spjótum sínum að Vladimír Pútín.
Þremur dögum eftir að Politkovs-
kaja var myrt – nær væri að segja
tekin af lífi – opnaði Pútín loks
munninn og hafði þá verið spurður
á blaðamannafundi. Hann notaði
tækifærið til að gera lítið úr áhrif-
um Politkovskaju. Hann tók ekki
fram að það gæti hafa verið vegna
þess að markvisst var reynt að
þagga niður í henni og halda
henni úr sviðsljósinu. Hún var
hætt að koma fram í sjónvarpi og
sagt er að bækur hennar séu illfá-
anlegar í rússneskum bókabúðum
þannig að minni á Sovéttímann
þegar skrif tiltekinna manna fóru
um í ljósritum í óþökk stjórnvalda
og kallað var sam-
isdat.
Ramsan Kadýrov,
forsætisráðherra
Tétsníu, sem líta má á
sem lepp Pútíns, var
iðulega skotspónn Po-
litkovskaju. Hún
leiddi meira að segja
fram vitni að því að
hann hefði með eigin
hendi pyntað téténska
fanga. Kadýrov kemur
fyrir í sumum þeim
samsæriskenningum,
sem þýska vikuritið
birti í liðinni viku.
Hann lýsti yfir sak-
leysi sínu í sjónvarps-
viðtali, en fjarvistarsönnun hans
var í meira lagi undarleg: „Ég hef
ekki drepið konur og ég drep þær
aldrei.“
Rússnesk stjórnvöld eru við
sama heygarðshornið eftir morðið.
Á föstudag bannaði dómstóll í
Nisní Novgorod starfsemi sam-
taka, sem hafa flett ofan af mis-
þyrmingum á almennum borg-
urum í Tétsníu. Úrskurðurinn er
byggður á nýjum lögum úr smiðju
Pútíns, sem snúast um öfgahópa
og óháð samtök, en gagnrýnendur
sögðu að væru verkfæri til að
skerða borgaraleg réttindi. Það er
greinilega ekki vinsælt að talað sé
um það sem fram fer í Tétsníu.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er miðvikudagur
18. október, 291. dagur
ársins 2006
Orð dagsins: „Lækna mig Drottinn, að ég megi
heill verða; hjálpa mér, svo að mér verði hjálpað,
því að þú ert minn lofstír.“ (Jer. 17, 14.)
ise
uri,
glio
rs
NICOLAS
CAGE
SÝNIR
STÓRLEIK Í
MYNDINNI.
eee
BBC
eee
ROLLING STONE
eeee
EMPIRE
eeee
TOPP5.IS
eeee
SV, MBL
eee
MMJ, KVIKMYNDIR.COM
eee
EGB, TOPP5.IS
LOKASÝNINGARTILBOÐ 400 KR.
BJÓLFSKVIÐA
eee
H.J. - MBL
eeee
blaðið
ÓBYGGÐIRNAR
„THE WILD“
Sýnd með íslensku tali !
GLÆNÝ TEGUND AF FERÐAMÖNNUM
SIGURVEGARI
kvikmyndahátíðin í Berlín
BESTI LEIKSTJÓRINN
ÖRFÁAR SÝNINGAR!
EINN AF BESTU
KNATTSPYRNU-
MÖNNUM
SÖGUNNAR
/ KRINGLAN
BEERFEST kl. 8 - 10:10 B.i. 12.ára.
THE THIEF LORD kl. 6 - 8 LEYFÐ
HARSH TIMES kl. 10:10 B.i. 16.ára.
BÖRN kl. 10:10 B.i.12.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
WWW.HASKOLABIO.ISHAGATORGI • S. 530 1919
eeeee
H.J. MBL
eeee
TOMMI/KVIKMYNDIR.IS
WORLD TRADE CENTER kl. 6 - 8:30 - 10:10 B.i. 12.ára.
THE QUEEN kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 12.ára.
ZIDANE kl. 6 - 8
AN INCONVENIENT TRUTH kl. 8 LEYFÐ
THE ROAD TO GUANTANAMO kl. 10:10 Án texta B.i. 16.ára.
ÓBYGGÐIRNAR m/Ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
BJÓLFSKVIÐA kl. 6 B.i.16 .ára.
PIRATES OF CARIBBEAN 2 kl. 8:15 Tilboð 400kr. B.i. 12.ára.
SÖNN SAGA UM HUGPRÝÐI OG ÓTRÚLEGA MANNBJÖRG
eee
BBC
eeee
EMPIRE
eee
ROLLING STONE
eee
LIB, TOPP5.IS
NICOLAS CAGE SÝNIR
STÓRLEIK Í MYNDINNI
NÝJASTA STÓRVIRKIÐ FRÁ OLIVER STONE.
STÓRMYND SEM LÆTUR ENGAN ÓNSNORTIN.
BÖRN
KVIKMYND EFTIR RAGNAR BRAGASON
eee
Ó.H.T. RÁS2
eeee
HEIÐA MBL
HEIMURINN HEFUR FENGIÐ AÐVÖRUN.
VEGNA FJÖLDA
ÁSKORANA HEFUR
MYNDIN AFTUR
VERIÐ TEKIN TIL
SÝNINGA. eeeeV.J.V. TOPP5.IS
Munið afsláttinn
Söngvari The Whitest Boy Alive,Erlend Øye, hefur lýst yfir
áhuga á að syngja með norska raf-
tónlistarmann-
inum Skatebård
þegar hann kem-
ur fram á Airwa-
ves á föstudags-
nótt á Pravda.
Skatebård er víst
nískur á spilamennskuna, kemur
sjaldan fram og segist Erlend alls
ekki vilja missa af tækifærinu á að
koma fram með kauða. Erlend mun
einmitt spila á Pravda sem plötu-
snúður, en hvenær það verður er
leyndarmál.
Karlkyns-aðstandendur IcelandAirwaves hér á landi eru víst
orðnir afar spenntir fyrir komu
margra tónlistarmannanna en mest
hlakka þeir víst til að hitta hiphop-
píuna Amöndu Blank. Þykir hún
með fegurri gestum hátíðarinnar
og ljóst að hana mun ekki skorta
leiðsögn á meðan hátíðinni stendur.
Listamenn og blaðamenn eruþegar byrjaðir að flykkjast til
landsins. Liðsmenn The Go! Team
og skosku tregarokksveitarinnar
Call to Mind voru fyrstir á svæðið
og hafa nú þegar gert nákvæma út-
tekt á barmenningu borgarinnar.
Upplýsingamiðstöð IcelandAirwaves, sem ber hið form-
lega heiti Airwaves Info Center,
opnaði á mánudaginn á Hressó. Í
miðstöðinni mæta blaðamenn til að
ná í pressu-passana sína og upplýs-
ingar en erlendu listamennirnir
láta sig ekki vanta á barnum. Þar
er einnig til sölu Airwavesdiskar og
-bolir.
Annars verður Airwaves Barinná Pravda þétt setinn um
helgina af bæði blaðamönnum og
innlendum og erlendum listamönn-
um. Á meðan hljómsveitir og lista-
menn troða upp á efri hæð stað-
arins undir merkjum Airwaves club
verður Airwaves bar á neðri hæð
staðarins þar sem bæði innlendir
og erlendir plötusnúðar koma
fram. Destinyfjölskyldan og góð-
vinir ætla að hanga á þessum bar
um helgina.
Meistari Jens Lekman, semkemur fram á Airwaves í
stað Jenny Wilson, hefur víst
tengsl við íslenskt músíklíf og hef-
ur beðið nokkra meðlimi Benna
Airwaves-
molar
Amanda Blank