Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 2
2 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR edda.is Frostfiðrildin hennar Lindu Frostfiðrildin er sterk og áhrifamikil ljóðabók eftir Lindu Vilhjálms- dóttur sem hefur með fyrri bókum sínum skipað sér í röð fremstu ljóðskálda samtímans. Frostfiðrildin er falleg ljóðabók sem lætur engan ósnortinn. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag sunnudagur 12. 11. 2006 atvinna mbl.isatvinna Gestir í vikunni 10.516 » Innlit 19.029 » Flettingar 162.334» Heimild: Samræmd vefmæling ÓTTAST SKAMMTÍMAPÓLITÍK KRISTJÁN GUNNARSSON OG STARFSGREINASAMBANDIÐ ÓTTAST AÐ TIL KJARASKERÐINGA KOMI Á NÆSTA ÁRI >> 20 Hönnun rafkerfa VSB Verkfræðistofa ehf. Hafnarfirði auglýsir eftir verk-, tækni- eða iðnfræðingum til starfa að eftirtöldum meginverkefnum: • Hönnun rafkerfa í byggingar, lág- og smáspennu. • Hönnun raflýsingar innan- og utanhúss. Reynsla af hönnun og þekking á AutoCAD og helstu hönnunarforritum er æskileg en ekki skilyrði. Leitað er að einstaklingi þar sem fagmennska og metnaður er í fyrirrúmi við lausn verkefna. Hæfni og áhugi viðkomandi hefur áhrif á þróun í starfi. Frekari upplýsingar gefur Ragnar Viktor Karls- son í síma 585 8634, einnig má senda fyrir- spurnir á netfangið ragnar@vsb.is VSB Verkfræðistofa ehf. sinnir faglegri ráðgjöf og umsjón framkvæmda á fjölbreyttu sviði verkfræði. Starfseminni er skipt í 2 svið, byggingasvið og umhverfis- og framkvæmdasvið. Boðnar eru heildarlausnir við umsjón verklegra framkvæmda, frá forsögn og frumathugunum að lokaúttekt. Starfsmenn eru 29. VSB er aðili að FRV (Félagi ráðgjafarverkfræðinga). Nánari upplýsingar á heimasíðu www.vsb.is. Frumherji hf. óskar eftir a› rá›a starfsfólk í afgrei›slu/skrifstofustarf. Afgrei›sla og skrifstofustarf Starfssvi› Almenn afgrei›sla og móttaka vi›skiptavina vi› sko›un og skráningu ökutækja Vinnur sem gjaldkeri og sér um sjó›suppgjör Símsvörun og móttaka tímapantana og önnur skráningarvinna í tölvukerfi Sér um bakvinnslu, s.s. póstsendingar, ljósritun, skjalavörslu og önnur tilfallandi störf a› bei›ni yfirmanns Menntunar- og hæfniskröfur Stúdentspróf, verslunarpróf e›a sambærilegt nám Almenn ökuréttindi Gó› almenn tölvuflekking Gott vi›mót og hæfni í mannlegum samskiptum Geta til a› vinna nákvæmnisvinnu undir álagi er kostur Skógarhlí› 12 • 105 Reykjavík Sími 520 4700 www.hagvangur.is - vi› rá›um Frumherji er fljónustufyrirtæki á sko›- unar- og prófunarsvi›i, hi› stærsta sinnar tegundar á Íslandi, en fyrirtæki› er me› starfsemi á 7 mismunandi svi›um á 30 stö›um á landinu. Flest starfssvi› fyrirtækisins eru rekin sam- kvæmt vi›urkenndum gæ›astö›lum. www.frumherji.is Í bo›i er fullt starf, gó› starfsa›sta›a og starfsandi á sko›unarstö›vum Frumherja á höfu›borgarsvæ›inu. Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 20. nóvember nk. Númer starfs er 6056. Uppl‡singar veitir Gu›n‡ Sævinsdóttir. Netfang: gudny@hagvangur.is Yf ir l i t Í dag Sigmund 8 Bréf 56 Staksteinar 8 Minningar 60/64 Veður 8 Hugvekja 60 Hugsað upphátt 41 Myndasögur 74 Menning 66/75 Dagbók 78/81 Sjónspegill 68 Víkverji 80 Forystugrein 32 Staðurstund 78/79 Reykjavíkurbréf 42 Leikhús 72 Umræðan 46/56 Bíó 78/81 Auðlesið 58 Sjónvarp 82 * * * Innlent  90% foreldra finnst þeir stundum eða oft eiga erfitt með að samræma fjölskyldulíf og vinnu, samkvæmt könnun sem Capacent gerði fyrir Jafnréttisstofu. Meðalvinnutími karla er fimmtíu stundir og með- alvinnutími kvenna yfir fjörutíu stundir. Í greinaflokki sem hefst í Morgunblaðinu í dag eru viðmæl- endur blaðsins á einu máli um að stytting vinnutíma sé lykilatriði til að auka möguleika fólks til að sinna börnum sínum. »10 og baksíða  Eldri borgarar leggja mikið af mörkum til samfélagsins á hverjum degi, segir Ingibjörg Harðardóttir, lektor við Kennaraháskóla Íslands, en hún hefur rannsakað framlag eldri borgara til samfélagsins. Segir hún að samfélagið fyndi mjög mikið fyrir því ef eldri borgara nyti ekki við til að aðstoða hina yngri m.a.við barngæslu, fjárhagslegan stuðning o.fl. »forsíða  Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar telur heppilegra að skuldabréf, sem borgin fékk sem greiðslu fyrir eignarhlut í Lands- virkjun og renna mun til lífeyr- issjóðsins, sé með föstum vöxtum til að minnka áhættu sjóðsins vegna mögulegrar vaxtalækkunar. » 4  Tími hálkunnar er runninn upp. Læknir á slysadeild varar fólk við hálkunni til að forðast byltur og beinbrot eins og oft vill verða þegar ísinn hjúpar götur og stéttir. Nokkr- ir ökumenn skautuðu bílum sínum upp á umferðareyjar í gær en engin alvarleg slys höfðu orðið þegar Morgunblaðið fór í prentun. »forsíða Erlent  Bandaríska varnarmálaráðu- neytið, undir forystu Peter Pace hershöfðingja, vinnur nú að gagn- gerri endurskoðun á stefnu Banda- ríkjahers í Írak og hryðjuverka- stríðinu svokallaða sem ætlað er að skila breytingartillögum til George W. Bush forseta á næstunni. »forsíða  Mahmoud Abbas, forseti Palest- ínumanna, tilkynnti í gær að þess væri að vænta að myndun nýrrar þjóðstjórnar yrði lokið fyrir lok mánaðarins. Minningarathafnir um Yasser Arafat, fyrrverandi leiðtoga Frelsishreyfingar Palestínu, PLO, í gær voru fjölsóttar, en þá voru tvö ár liðin frá dauða hans. Við það til- efni lofaði Abbas að berjast fyrir málstað Arafats.  Íslamistar í Sómalíu sögðust í gær hafa náð samkomulagi við sendinefnd stjórnarinnar um að koma í veg fyrir frekari vopnuð átök. Formaður nefndarinnar hafði hins vegar ekki formlegt umboð stjórn- arinnar sem hefur ekki staðfest að samkomulagið hafi náðst. Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is RÚMLEGA 11.100 umferðaróhöpp voru tilkynnt til tryggingafélaganna árið 2005. Þar af voru um 7.200 bóta- skyld. Auk þeirra má reikna með að um 2.800 minni háttar óhöpp hafi orð- ið sem ökumenn gerðu upp sín á milli. Í þessum 11.100 umferðaróhöppum slösuðust rúmlega 900 manns og rúmlega 22.000 bílar skemmdust. Ef sá fjöldi bíla yrði settur í eina lest, þá yrði hún um 94 km löng. Þetta kemur fram í nýútkominni skýrslu Forvarn- arhúss Sjóvár um algengustu tjónin í Reykjavík á síðasta ári. Athygli vek- ur að tjónum fækkaði frá árinu áður. Þá vekur einnig athygli að 18 og 19 ára ökumenn valda flestum tjónum en flestir slasaðir eru 17 ára. Gróflega gerir Sjóvá ráð fyrir að kostnaður vegna umferðarinnar í Reykjavík sé ekki undir 8 milljörðum króna en um 56% allra tjóna á land- inu urðu í borginni. Flest tjón urðu á fjölförnustu göt- um borgarinnar, svokölluðum stofn- brautum. 417 tjón urðu á Miklubraut og verða tjón á þeirri götu flest á landinu. Þar slösuðust flestir eða 96 talsins. Á gatnamótum Kringlumýrar- brautar og Miklubrautar verða einn- ig flest tjón. Á síðustu sex árum hafa orðið rúm 520 tjón þar og rúmlega 200 slasast. Athygli vekur hversu hátt hlutfall slysa verður hjá yngsta hópnum, mun hærra en tjónahlutfall- ið í þeim aldurshópi. Þegar dreifing tjóna er skoðuð eft- ir kynjum sést að konur valda ein- göngu þriðjungi þeirra eða um 35%. „Eitt er ljóst að oftar verða slys í tjónum þar sem karlmenn eru öku- menn og þau verða alvarlegri að með- altali en þau slys þar sem konur eru ökumenn.“ Kostnaður í Reykjavík ekki undir 8 milljörðum Rúmlega 900 manns slösuðust í umferðaróhöppum 2005 Í HNOTSKURN »Flestir slasast í aftan-ákeyrslum í Reykjavík eða um 400 manns á síðasta ári. »Kostnaður trygginga-félaganna við tjónin í Reykjavík er tæpir 3,2 millj- arðar króna. Við það bætist tjón þeirra sem valda þeim. » Um 35% fengu tjón sittbætt úr kaskótryggingu og var meðalkaskótjónið met- ið rúmlega 400 þúsund kr. ÞAÐ var kannski ekki mikill vindur þegar Leif Österby ræsti í hlaup Frískra Flóamanna í Flóanum í gærmorg- un en um heldur óvenjulega hlaupakeppni er að ræða því ávallt er hlaupið með vindi. Hlaupararnir tuttugu og þrír, sem þátt tóku, voru þó ekkert að sýta það enda gátu þeir huggað sig við að vindáttin olli því að hlaupið var í suðurátt á Gaulverjabæjarveginum sem þýddi að hlaupið var niður í móti. Um 10 km hlaup var að ræða og mátti vænta þess að það tæki hlauparana rúmlega þrjátíu mínútur að komast í mark. Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Höfðu norðanáttina í bakið HRAFN Jökulsson, stofnandi skák- félagsins Hróksins, heiðraði í gær Ágúst Einarsson prófessor fyrir stuðning hans við útbreiðslu skák- listarinnar á Grænlandi. Þá lagði Hrókurinn í gær upp í leiðangur til Grænlands þar sem þrjú þorp á austurströndinni verða heimsótt og efnt til ýmissa skákviðburða með heimamönnum. Heiðraður fyrir framlagið Morgunblaðið/Ómar 1.850 MANNS höfðu kosið í próf- kjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík undir hádegið í gær. Þar af voru 1.087 utankjörfundaratkvæði. Hélt flokkurinn prófkjör vegna beggja Reykjavíkurkjördæmanna. Fyrstu talna um prófkjörsúrslit mátti vænta klukkan 18 og sömuleiðis vegna prófkjörs Sjálfstæðisflokks- ins í Suðvesturkjördæmi, Kragan- um. Þar höfðu 6% kjósenda kosið um hádegið í gær en alls voru á bilinu 11.000–12.000 manns þar á kjörskrá. Sjálfstæðisflokkurinn hélt einnig prófkjör í Suðurkjördæmi í gær og var kosið á 23 kjörstöðum sem flest- ir voru opnaðir kl. 9 í gærmorgun. Töldu talsmenn beggja flokka, Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks, að kjörsókn hefði farið vel af stað í prófkjörunum. Góð þátt- taka í prófkjöri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.