Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 17
njóta lífsins en gleymum því stund-
um að það kemur að skuldadögum.
Það þarf að standa skil á raðgreiðsl-
unum. Þegar við vöknum upp við
það er kannski ekki um annað að
ræða en auka við okkur vinnuna.
Það hlýtur að bitna á börnunum og
ekki síður samlífi hjóna.“
Feður nýta fæðingarorlofið
Gísli Hrafn hefur m.a. beint sjón-
um að feðraorlofi í rannsóknum sín-
um og þótt hann vilji ekki alhæfa út
frá þeim rannsóknum segir hann
margt benda til þess að foreldrar
nýti fæðingarorlofið betur í seinni
tíð. Margir reyni að teygja það upp í
níu mánuði og karlar nýti upp til
hópa a.m.k. lágmarksrétt sinn í
þeim efnum. „Samkvæmt tölum frá
Tryggingastofnun ríkisins eru upp
undir 90% feðra að færa sér orlofið í
nyt. Það er hátt hlutfall og við meg-
um heldur ekki gleyma því að um
10% barna eiga foreldra sem ætla
ekki að búa saman.“
Að áliti Gísla Hrafns hefur feðra-
orlofið ótvírætt gildi, bæði fyrir börn
og feður. „Tengsl myndum við aldrei
nema með samskiptum. Það liggur
því í hlutarins eðli að aukin sam-
skipti feðra við börn sín eru af hinu
góða, sérstaklega þegar þeir þurfa
að vera einir með börnin stóran
hluta dagsins. Feðurnir verða ekki
bara ánægðari og öruggari með sig
við þessar aðstæður heldur mynda
þeir líka tengsl sem eru líkleg til að
endast út lífið. Það er ekki til lítils
unnið. Hversu oft höfum við heyrt
menn á sextugs- og sjötugsaldri
óska þess að þeir hefðu haft meiri
tíma fyrir börnin sín. Að þessu leyti
er Ísland mun barnvænna samfélag
en áður. Á þessum árangri þurfum
við að byggja.“
Vonast eftir styttri vinnudegi
Það er mikið verk að vinna. Gísli
Hrafn fer ekki í grafgötur um það.
Hann er eigi að síður bjartsýnn á
framtíðina. „Við megum ekki fara út
í heimsósómakenningar um að nýj-
ustu tímarnir séu alltaf þeir verstu.
Að mörgu leyti stöndum við ágæt-
lega og ég held t.d. að við höfum á
heildina litið meiri tíma með börn-
unum okkar núna en fyrir fimmtíu
til sextíu árum. Það má heldur ekki
líta á það sem ókost að börn séu á
leikskólum, þar fer fram mjög fínt
starf.“
Gísli Hrafn segir það eigi að síður
staðreynd að vinnumenningin hér á
Íslandi sé ekki nægilega fjöl-
skylduvæn. „En vinnumenning er
breytileg eftir löndum og tímabilum
og það er hægt að gera ýmislegt
með góðu skipulagi. Það er líka allt-
of ríkt í okkur Íslendingum að trúa
því að við séum ómissandi í
vinnunni. Það er vondur rekstur á
fyrirtæki að vera með „ómissandi“
starfsfólk því það kemur alltaf eitt-
hvað upp á – fólk veikist, ákveður að
skipta um vinnu og þar fram eftir
götunum. Það er því fyrirtækjum
hollt að vera sveigjanleg.“
Það er þjóðfélagsleg ákvörðun að
hækka laun og stytta vinnudaginn
og Gísli Hrafn segir að slíkar
ákvarðanir taki tíma. „Ég vona að
við eigum eftir að upplifa styttingu
vinnutímans á Íslandi, nálgast t.d.
það kerfi sem þekkist annars staðar
á Norðurlöndunum. Ég sé það að
vísu ekki gerast á næstu fimm árum
en það ætti að vera raunhæfur
möguleiki ef horft er lengra fram í
tímann. Ávinningurinn yrði mikill.“
Morgunblaðið/Ásdís
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 17
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
MIKIÐ ÚRVAL AF EINSTÖKUM GJAFAVÖRUM
Myndir, lampar, vasar, skálar, úti- eða inniblómapottar...
LÚXUSGJAFIR OG SÖFNUNARVÖRUR - GÓÐ FJÁRFESTING
Frábært
verð
Einstakt tækifæri til þess að eignast kínverska listmuni beint frá framleiðendum OPIÐ
Í DAG
Ármúla 42
sími 895 8966
Opið alla daga frá kl. 10-18