Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 26

Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 26
lífshlaup 26 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Fékk það einhvern tímann á þig, að þurfa að skrifa heila bók um reynsl- una sem Thelma og systur hennar höfðu orðið fyrir sem börn? „Pyntingarnar sem þær þurftu að þola fylltu mig fyrst og fremst reiði. Ég hafði áður skrifað um kynferð- isglæpi fyrir blöð og tímarit og vissi því vel hvers kynferðisofbeldismenn eru megnugir. Styrkur Thelmu sjálfrar er líka alveg einstakur og frásögn hennar einföld og blátt áfram. Ég passaði mig samt á því að hvorug okkar skrifaði undir samning við útgefandann fyrr en Thelma hafði lesið alla bókina og var orðin sátt við hana. Ef hún hefði verið ósátt hefðum við strax hætt við að gefa hana út, en það var aldrei neitt hik á Thelmu.“ Siðareglur og verðlaun Þú fékkst Blaðamannaverðlaun Íslands árið 2005 fyrir Myndina af pabba. En tveimur árum áður komst siðanefnd Blaðamannafélags Íslands að þeirri niðurstöðu að þú, sem rit- stjóri Mannlífs, hefðir brotið með al- varlegum hætti gegn siðareglum blaðamanna með umfjöllun um kyn- ferðislega misnotkun og afleiðingar hennar. Hver er munurinn á þessum frásögnum? „Forsaga málsins er sú að í lok ársins 2002 hringdi í mig kona og sagði mér að hún hefði orðið fyrir kynferðisofbeldi, en þá þegar hafði ég birt margar greinar, bæði karla og kvenna, um kynferðisofbeldi í blaðinu. Hún bað mig um að birta sögu sína sem hún hafði skrifað sjálf. Ég las hana yfir og fannst hún vel skrifuð. Við hittumst einu sinni til að fylla upp í frásögnina. Þegar þessi kona var aðeins sex ára gömul fór 12 ára gamall bróðir hennar að leita á hana en hann var elstur í systk- inahópnum. Ofbeldið jókst stig af stigi og endaði með nauðgunum sem stóðu yfir þar til hún var 14 ára. Þessi stúlka varð síðan alvarlega veik á geði. Eins og ég nefndi er Thelma Ásdísardóttir mjög sterk en það er líka til fólk sem brestur und- an þessum pyntingum. Það sýndi grein konunnar vel og það var meðal annars tilgangurinn með því að birta hana. Þarna birtust raunverulegar afleiðingar kynferðisofbeldis. Konan hafði oft reynt að svipta sig lífi og inn á það var líka komið í greininni. Ég ákvað að bíða með að birta grein- ina til að gera hana sem best úr garði og birti hana síðan í jan- úarblaði Mannlífs árið 2003. Þá hafði ég bætt við viðtölum við starfsfólk Barnahúss og Stígamóta, sem sagði mér meðal annars að það væri ekki svo óalgengt hér á landi að stúlkur yrðu fyrir kynferðisofbeldi af hendi bræðra sinna. Ekki man ég eftir því að fjallað hafi verið um það í öðrum fjölmiðlum hvorki fyrir né eftir um- rædda grein. Síðan hringdi konan í mig og spurði hvar blaðið væri statt. Ég sagði henni að það væri farið í prentsmiðjuna og hún kvaddi. Nokkrum dögum síðar hringdi mág- kona hennar í mig og sagði mér að hún hefði svipt sig lífi.“ Gerður segir að einn bræðra stúlkunnar hafi kært hana fyrir siða- nefnd Blaðamannafélagsins. „Siðanefnd gerði aðallega at- hugasemd við það að ég skyldi birta sögu eftir svona veika manneskju og að ég hefði átt að átta mig á því hversu veik hún var. Auðvitað fór ekki á milli mála að hún var veik, en mér fannst það skipta máli því ástæðan fyrir þessum veikindum var kynferðisofbeldið. Ég birti hvorki nafn konunnar né mynd af henni. Ekki kom heldur fram hvar á land- inu atburðirnir hefðu orðið. Það furðulega í málinu var, að það bar aldrei neinn á móti því að þessi saga væri sönn, en það var helst það sem ritstjóri blaðs hefði átt að hafa áhyggjur af. Úrskurður siðanefndar barst mér á afmælisdaginn minn, 10. júní árið 2003, en sá sem margoft nauðgaði litlu systur sinni hefur aldrei tekið út refsingu fyrir glæp- inn og er enn þann dag í dag frjáls maður. Ég ákvað að læra ekkert af þessu og hélt mínu striki. Gleymist ekki Mér finnst úrskurður siðanefndar bara hafa sýnt hvað kerfinu er mikið í mun að vernda hvers konar misind- ismenn. Kannski finnst fólki þessir glæpir ennþá svo ógeðslegir að það vill ekki meðtaka að þeir geti átt sér stað. Eða kannski heldur fólk að börn gleymi. Sumir þeirra sem stoppuðu mig á götu eftir bókina um Thelmu höfðu orð á því hversu gott það væri hvað hún og systur hennar hefðu jafnað sig vel og hefðu verið kátar og hressar í Kastljósinu! Þeg- ar Thelma sagði mér sögu sína fyrst hugsaði ég auðvitað til úrskurðar siðanefndar og velti fyrir mér hvað ég væri að fara út í og hvað gæti hugsanlega gerst. Samt fannst mér ég þurfa að skrifa þessa sögu. Ég efast um að þessi úrskurður hefði fallið ef saga Thelmu hefði verið komin út. Saga hennar veitir fólki innsýn í líðan barna sem þolað hafa kynferðisofbeldi, meðan á því stend- ur og á fullorðinsárum. Reynsla af því tagi rjátlast hvorki af börnum né gleymist.“ Kaflaskipti Snemma vors árið 2003 fór Gerð- ur Kristný í þriggja mánaða leyfi frá ritstjórastarfinu, leigði sér íbúð í Nice í Frakklandi og sat þar ein og skrifaði Bátur með segli og allt, sem síðar átti eftir að fá Bókmenntaverð- laun Halldórs Laxness. Ákvað hún þá að verða rithöfundur í fullu starfi. „Mér leið svo óskaplega vel þarna suður frá, mikið sem mér fannst þetta skemmtilegt. Ég var einmitt í Nice þegar ég frétti að ég hefði feng- ið Bókaverðlaun barnanna fyrir Mörtu smörtu. Þarna fann ég líka að þegar ég fékk svona góðan tíma fyr- ir sjálfa mig vöknuðu hugmyndir kvölds, morgna og um miðjan dag. Því ákvað ég að hætta hjá Fróða þótt vissulega hafi oft verið skemmtilegt að ritstýra tímariti. Tölublöðum hafði verið fjölgað úr tíu í tólf í ritstjóratíð minni og sömuleið- is hafði aukablöðum líka fjölgað. Fyrst var gefið út aukablaðið Feg- urð og heilsa, svo bættist við annað um ferðalög og loks það þriðja um bíla og þá tók nú að syrta í álinn, fannst mér, enda lítil áhugamann- eskja um spojlera. Starfsfólki hafði ekki verið fjölgað að sama skapi og þessi eini blaðamaður sem ég mátti ráða varð að geta skrifað jafn vel um varaliti, dómsmál, poppkúltúr og viðskipti, sem reyndar er afar sjald- gæft. Í stað þess að blaðamaðurinn gæti sökkt sér ofan í áhugaverðar greinar fyrir Mannlíf fór mesta orka hans í að finna út úr því hvað hægt væri að gera við inngrónum tánögl- um svo auglýsingar seldust í Fegurð og heilsu. Það var kominn tími til að söðla um. Ég ákvað því að eignast barn og hætta síðan, sem ég og gerði. Starf rithöfundarins er líka of- boðslega skemmtilegt. Það er gam- an að skrifa bækur um það sem mann lystir, ferðast um landið eða út fyrir landsteinana og lesa upp ásamt kollegum sínum.“ Stöðug fjölskylda Hvar sleistu barnsskónum? „Ég bjó fyrstu fimm árin á Háa- leitisbraut en flutti svo í Safamýrina og bjó þar þangað til ég flutti að heiman. Fjölskyldulífið var stöðugt, einn pabbi, Guðjón Sigurbjörnsson læknir, og ein mamma, Ingunn Þórðardóttir, húsmóðir og hjúkr- unarfræðingur, við erum fjögur systkinin, tvær stelpur og tveir strákar, og ég er næstelst. Ég var í fimleikum, æfði með Fylki og einn vetur með Ármanni. Reyndar var ég svo skelfilega léleg að það jaðraði við ég væri læknisfræðilegt undur. Samt mætti ég árum saman á æfing- ar bara vegna þess að það var svo gaman að sprikla.“ Gerður Kristný segist hafa lesið mikið sem barn og vildi eiginlega frekar vera inni að lesa en úti að leika sér. „Ég var óttalegur innipúki, eins og það hét þá. Foreldrar mínir eiga sumarbústað í Grafningnum þar sem við vorum allar helgar á sumrin. Þar rigndi reyndar lungann úr áttunda áratugnum og því hafði ég næga ástæðu til að vera inni að lesa allt sem ég náði í.“ Og það kemur upp úr kafinu að upplestur hefur legið vel fyrir Gerði Kristnýju allt frá unga aldri, sem kannski var fyrirboði þess sem koma skyldi? „Kannski, ég var læs þegar ég byrjaði í sex ára bekk og fór alls ekki dult með það. Ég man eftir mér sitjandi uppi á kennaraborðinu að lesa fyrir allan bekkinn,“ rifjar hún upp. Bitin í rassinn Lestrarkunnáttan var á meðal þess sem fékk umsjónarkennarann til þess að senda Gerði til skólasál- fræðingsins í þroskapróf. „Ég man að ég þurfti að svara spurningunni hver fyrsti landnámsmaðurinn hefði verið. Ég hafði ekki hugmynd og svaraði loks: „Adam og Eva“. Samt var ég send upp í sjö ára bekk.“ Gerður lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð og fór svo í frönsku og almenna bók- menntafræði í Háskóla Íslands þar sem hún kláraði BA-próf 21 árs. „Ég skrifaði lokaritgerð um fegurðina í Les Fleurs du mal eftir Baudelaire og fór svo að vinna á Tímanum um sumarið. Í millitíðinni fór ég reyndar sem au pair til Frakklands, þar sem ég ætlaði að vera í hálft ár, en var bara í þrjá mánuði því á heimilinu voru hundar sem bitu mig í rassinn. Hjónin voru með „Great Dane“- hunda og höfðu ráðið mig svo ég gæti séð bæði um barn þeirra og hundana ef þau færu til útlanda. Mér þótti þeir alveg nógu hræðilegir þótt ég þyrfti ekkert að hafa af þeim að segja. Einn daginn fór ég til Par- ísar að skoða Pére Lachaise- kirkjugarðinn með vinkonu minni, þar sem við ráfuðum á milli leiða og virtum fyrir okkur legsteina dáinna fyrirmenna. Svo kem ég tilbaka, labba upp heimreiðina, koma þá ekki helvítis kvikindin sem áttu að vera lokuð inni í búri vaðandi að mér og bíta mig í botninn. Þeir voru fimm. Einn var með hálft eyra eftir slags- mál, annar var með blóðhlaupin augu, sá þriðji var með húðsjúkdóm, svo það vantaði á hann skinnið, og allir sem einn héngu þeir í mínum Levi’s-gallabuxum, sem vel að merkja voru mjög vinsælar í upphafi tíunda áratugarins. Ég stóð þarna og orgaði sem mest ég mátti þar til portúgalskur garðyrkjumaður birt- ist og bjargaði mér. Síðan þá hef ég ævinlega hugsað hlýtt til portú- gölsku þjóðarinnar. Eftir þetta fór ég sem minnst út og varð vistin því heldur daufleg. Litlu síðar hafði ég mig á brott, hélt heim og fór að vinna á Tímanum, þar sem enginn svo mikið sem glefsaði til mín.“ Skáldleg en praktísk Fékkstu tannaför? „Nei, ég get upplýst að ég ber ekki varanleg um- merki eftir þetta.“ Blaðamennskan og skáldskap- urinn hafa ævinlega haldist í hendur hjá þér, af hverju heldur þú að svo sé? „Ég er svolítið praktísk. Þegar ég var krakki ætlaði ég að verða tann- læknir og myndlistarmaður. Mér fannst blaðamennska alltaf mjög spennandi og lærði meðal annars hagnýta fjölmiðlun og fór í starfs- þjálfun hjá Danmarks Radio, danska ríkissjónvarpinu. Þar var ég í þrjá og hálfan mánuð og fékk að fylgjast Skírnarmynd Gerður Kristný kveðst heita Gerður út í bláinn en Krist- nýjarnafnið kemur frá Kristjáni, frænda hennar, sem lést ungur. Skál Breski rithöfundurinn Ian McEwan og Gerður Kristný skála í skyri á veitingastaðnum Lindinni við Laugarvatn fyrir fáeinum árum. Á sjó Gerður og Kristján sumarið 2003 í Baldri á leiðinni út í Flatey. Lestrarhestur Kátu-bækurnar voru í miklu uppáhaldi hjá Gerði og hér sést hún í jólafötunum að lesa Kátu. Unglingurinn Fimmtán ára og með sítt að aftan. Jakk- inn var keyptur í Kjallaranum og þótti mikil gersemi. Systkini Gerður, tíu ára, með systkinum sínum, Guð- jóni Inga, fjögurra ára, og Gunni Vilborgu, sex ára. » „Þegar við Kristján vorum að hittast fyrst var hann alltaf að tala um Buddenbrooks eftir Thomas Mann. Mikið sem mér fannst það þreytandi. Sem bet- ur fer var ég sannfærð um að Kristján gæti tal- að um eitthvað skemmtilegra en Thom- as Mann og ákvað því að gefa honum séns. Ég sé ekki eftir því.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.