Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 34
Tímamót
DMK markar tímamót í bankaþjón
Skoðaðu framtíðina með DMK
og sæktu um á spron.is
Nánari upplýsingar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í síma 550 1400 eða á spron
* skv. útlánareglum SPRON
Það er í nógu að snúast á árunum í kringum lok fram-
haldsnáms, þegar atvinnuferillinn er að byggjast
upp, fjölskyldan að vaxa og dafna, framtíðaríbúðin í
sjónmáli og svo mætti lengi telja.
• DMK DEBETKORT – fæst án árgjalds og með 200 fríum
færslum
• DMK KREDITHEIMILD – fylgir debetkortinu og er bæði
vaxtalaus og án nokkurs kostnaðar
• DMK YFIRDRÁTTARHEIMILD – hefðbundin og á
hagstæðum vöxtum
• DMK TILTEKTARLÁN – óhagstæðum skammtímaskuldum
breytt í eitt hagstætt lán, aðeins 1% lántökugjald
• DMK LÉTTLÁN – viðskiptavinir stýra afborgunum í takt við
getu hverju sinni, aðeins 1% lántökugjald
Samsetning DMK þjónustunnar og helstu kostir eru:*
A
RG
U
S
/
06
-0
55
2
lífshlaup
34 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
til starfans yrði að veljast óragur
maður og þann mann taldi forsætis-
ráðherrann sig finna í Stephenson.
Stephenson var fengin staða yf-
irmanns brezka vegabréfaeftirlitsins
í New York, en hún var algengt dul-
argervi fulltrúa brezku leyniþjónust-
unnar í sendiráðum og konsúlötum
erlendis. Stephenson rifjaði upp síð-
ar, að þegar þetta var frágengið hafi
Churchill tekið hann á eintal og sagt:
„Þú veizt hvað þú þarft að gera strax.
Við höfum rætt það út í æsar og er-
um á einu máli. Þú verður persónu-
legur fulltrúi minn í New York og ég
fullvissa þig um að þú hefur allan
þann stuðning sem ég get veitt þér.
Ég veit að þér mun vel farnast og að
Guð vakir yfir þér eins og okkur.
Þetta kann að vera okkar síðasta
kveðjustund. Farðu vel og gangi þér
vel!“
Stephenson fór vestur um haf að
sumarlagi 1940. Vegabréfaeftirlitið
hafði haft aðstöðu í lítilli skrifstofu í
brezka konsúlatinu í New York, en
Stephenson sá strax að hún dugði
hvergi til þeirra athafna sem hann
hafði á prjónunum. Hann fann sér
aðstöðu annars staðar og seinna
flutti hann starfsemina í Rockefeller
Center, þar sem eigandinn lagði til
húsnæðið endurgjaldslaust sem
framlag til málstaðar Bandaríkj-
anna.
Það var ekki heiglum hent að
koma á fót samræmdri leyniþjón-
ustu, ekki einasta til að njósna um at-
hafnir óvinarins og koma upp um út-
sendara hans, heldur líka til þess að
tryggja brezkar eignir og hagsmuni
og heyja pólitískt og efnahagslegt
stríð, sem útheimtu sérstakar að-
gerðir, eins og þær voru kallaðar.
Allt þetta ekki einasta í Bandaríkj-
unum heldur gjörvöllum vest-
urheimi. Og svo átti að vinna Banda-
ríkjamenn út úr
einangrunarskápnum og fá þá til að-
stoðar Bretum. „Ég byrjaði með
tvær hendur tómar,“ sagði Steph-
enson síðar. „Ég hafði enga reynslu á
þessu sviði. Ég var fyrst og fremst
bísnissmaður. Og mér varð oft fóta-
skortur fyrstu dagana.“
En byrjandafátið var fljótt að fara
af honum.
Meðal þess fyrsta sem þurfti að
gera var að tryggja Bretum föng í
tómar matarkistur og vopnabúr. Til
þessa kvaddi Stephenson sér til
hjálpar gamlan vin; lögfræðinginn
Bill Donovan, sem síðar varð sér-
stakur farandsendiherra Roosevelt
forseta og yfirmaður samræmdra ör-
yggisaðgerða Bandaríkjamanna á
erlendri grund; forvera CIA. Í sam-
einingu tókst þeim að tryggja Bret-
um 50 notaða tundurspilla, en
Roosevelt hafði ítrekað orðið að
hafna beiðni Churchill um herskip og
flugvélar. Þeim félögum tókst að
koma málum svo fyrir, að hvorki
gengu þau gegn almenningsálitinu
né heldur varð forsetinn sakaður um
brot á hlutleysisstefnu Bandaríkj-
anna, sem fengu í staðinn aðstöðu
fyrir flotastöðvar í Karíbahafi, á
Bermuda og Nýfundnalandi. Þetta
varð andinn í sérstökum láns- og
leigulögum og í kjölfarið fylgdu bæði
flugvélar og byssur.
Stephenson skipulagði ferðir
Bandaríkjamanna til Bretlands og
þeir báru vitni um staðfestu Breta í
baráttunni gegn nazistum og töluðu
fyrir því að Bandaríkjamenn styddu
Breta með ráðum og dáð og færu í
stríðið með þeim. Meðal þeirra sem
fór slíka ferð var Bill Donovan og
hann fór sem sérstakur fulltrúi
Roosevelt forseta án vitundar sendi-
herra Bandaríkjanna í London; Jo-
seph Kennedy, sem taldi ósigur
Breta vísan og varaði stöðugt við því
að Bandaríkjamenn létu glepjast til
þátttöku í styrjöldinni. Donovan
skrifaði greinaflokk um umsvif Þjóð-
verja í Bandaríkjunum og flutti um
þau erindi, sem var útvarpað um
gjörvöll Bandaríkin; í fyrsta skipti
sem annar en forsetinn fékk slíka
hlustun.
Þótt Stephenson væri ekki hokinn
af reynslu, þegar hann hófst handa í
New York, var starfsemi samræmdu
öryggisstofnunar Breta fljót að
vinda upp á sig. Auk heimanmund-
arins; stuðnings frá London og Kan-
ada, bjó Stephenson að velvild
Bandaríkjaforseta, samstarfinu við
Hoover og kunningsskap við Donov-
an og fleiri bandaríska íhlut-
unarsinna. Starfsmönnum stofn-
unarinnar fjölgaði í takt við
verkefnin og er talið að þegar mest
var, hafi þeir verið um þúsund tals-
ins í Bandaríkjunum og helmingi
fleiri í Kanada og Rómönsku Am-
eríku. Miðstöðin var í New York, en
skjalafölsunarmiðstöð og þjálf-
unarbúðir í Kanada.
„Þegar Frakkland féll var jafnvel
erfitt að sannfæra forsetann sjálfan
um gagnsemi þess að hjálpa Bret-
um,“ sagði Stephenson síðar. „Sendi-
herrar Bandaríkjanna í London og
París sögðu báðir stöðu Breta von-
lausa og meirihluti stjórnarinnar í
Washington hallaðist að þeirri skoð-
un. Allt þetta fann sér farveg í öfl-
ugri einangrun.“
Stephenson lýsti yfir pólitísku
stríði á hendur einangrunarsinnum.
Hann leitaði stuðnings meðal and-
nazistískra félagasamtaka, blaða-
útgefenda og blaðamanna, rak út-
varpsstöð og reynt var að torvelda
starf einangrunarsinna og skemma
fyrir þeim og félögum hollum naz-
istum sem mest var mögulegt. Ein-
hverju sinni lét Stephenson orð falla
um þá sem hann kallaði sigurveg-
arana; ásana fjóra, mennina sem
aldrei trúðu á annað en sigur yfir
nazismanum. Þessir menn voru
Churchill og Beaverbrook í Bret-
landi og Roosevelt og Donovan í
Bandaríkjunum.
Þegar Bandaríkjamenn gengu til
þátttöku í styrjöldinni í desember
1941, þurfti ekki lengur sérstakt út-
hald til þessa pólitíska stríðs, en á
öðrum vígstöðvum var áfram barizt
af fullri hörku fyrir málstað Banda-
manna og gegn nazistum og Jap-
önum.
Á níföldum njósnavettvangi
Bill Macdonald segir með ólík-
indum, hversu umfangsmikil starf-
semi Stephenson vestanhafs var. Op-
inbert heiti stofnunarinnar var
Brezka öryggissamræmingarstofn-
Ljósmynd/ Norma Feller
Fjölskyldan. Bill Stephenson í faðmi fjölskyldunnar. Myndin er tekin 1920.
Frá vinstri: Kristín Stephenson, Julianna með Bill Hodgins, Johinna Hodg-
ins, Lillian Stephenson og Vigfus Stephenson. Bill Stephenson situr með
Victor Hodgins á hnénu og Margaret Hodgins sér við hlið.
lýsi ar fást í næsta útibúi SPRON, í þjónustuveri í s ma 550 1400́ eða á spron.is