Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 35
t!
ustu við fólk á fullri ferð út í lífið.
.is
• DMK 90% ÍBÚÐALÁN – og sérkjör á brunatryggingu fyrir þá
sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð
• DMK RÁÐGJÖF – sérsniðin ráðgjöf að þörfum fólks
á leið út í lífið
• DMK REGLULEGUR SPARNAÐUR – er verðlaunaður með
sérstöku mótframlagi, styrkjum og sérkjörum
• DMK 50% AFSLÁTTUR – af árgjaldi kreditkorta SPRON
• DMK TILBOÐ – hjá völdum verslunum
og þjónustufyrirtækjum
Ný DMK þjónusta SPRON miðar að því að mæta
þörfum þeirra sem standa í þessum sporum og gera
fjármálin einfaldari, hagkvæmari og þægilegri.
Fram til áramóta fánýir viðskiptavinir íDMK gjafabréf fyrirtvo í Borgarleikhúsinu.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 35
unin og það var Hoover sem var höf-
undur þess heitis. Hún var ekki bara
einföld framlenging á brezku leyni-
þjónustunni og tengiliður við leyni-
þjónustur Bandaríkjanna og Kanada,
heldur spannaði hún starfssvið níu
brezkra stofnana á sviði njósna,
stuðnings við andspyrnuhreyfingar,
ritskoðunar, dulmáls, öryggismála og
samskipta.
Svo umfangsmikil starfsemi fékk
ekki dulizt með öllu, þótt leynt ætti
að fara. Talsverð umræða varð um
nauðsyn þess að koma böndum á
starfsemi erlendra ríkja í Bandaríkj-
unum og ráðherrar tóku málið upp
við forsetann. En með velvilja og ítr-
ustu gætni tókst að halda þannig á
málum, að aldrei sauð upp úr.
Einn titillinn, sem Bill Stephenson
hlotnaðist var „ljósmóðir bandarísku
leyniþjónustunnar“. Á stríðsárunum
fór hann margar ferðir til London;
Macdonald telur sig hafa heimildir
fyrir 43. Njósnaforinginn ferðaðist
ekki undir eigin nafni og hann var
heldur ekki alltaf einn á ferð. Í des-
ember 1940 fór Bill Donovan með
honum og ferðaðist undir nafninu
Donald Williams. Bandarískir blaða-
menn báru kennsl á hann og í New
York Times var þess getið, að hann
hefði aðallega átt félagsskap við tvo
aðra farþega, Frakka að nafni Des-
garges og O’Connell nokkurn, sem
reyndist vera Bill Stephenson. Vél
Pan American millilenti í Bermuda
og varð þar veðurteppt og Thomas
Troy, höfundur sögu CIA, segir frá
því að í átta daga hafi Stephenson
kynnt Donaldson umfangsmikla
starfsemi brezku leyniþjónustunnar
þarna, en farþegar, póstur og varn-
ingur voru saumfarin áður en þau
héldu yfir Atlanzhafið.
Donovan, sem Roosevelt hafði sent
til að vera „augu sín og eyru,“ var að
vanda tekið með kostum og kynjum í
Englandi, en leið hans lá lengra,
hann fór til Búlgaríu og Júgóslavíu
og allt til Mið-Austurlanda. Ráða-
menn Búlgara og Júgóslava voru
komnir á fremsta hlunn með að
ganga til liðs við möndulveldin, en
Donovan náði sambandi við júgó-
slavneska föðurlandsvini, sem gripu
til uppreisnar svo Hitler varð að
fresta innrásinni í Rússland meðan
hann leysti „vandamálin“ í Júgó-
slavíu og Grikklandi..
Þegar Donovan sneri aftur til
Bandaríkjanna í apríl 1940 var
Roosevelt kominn á þá skoðun, að
Bandaríkjunum væri nauðsyn á sam-
ræmdri öryggis- og leyniþjónustu
líkri þeirri sem Stephenson stjórnaði
frá New York. Forsetinn áleit leyni-
þjónustur landhers og flota bæði
máttlitlar og sundurþykkar, svo þær
væru ekki fallnar til þeirra stórræða,
sem hann hafði í huga. Bezt væri því
að fá nýja stofnun og til hennar yf-
irmann, sem ekki væri tengdur þeim
leyniþjónustum, sem fyrir voru. For-
setinn ákvað að veðja á „augu sín og
eyru.“ Bill Donovan fór í smiðju vinar
síns framan af og sagði síðar, að
Stephenson hefði kennt þeim allt
sem þeir kunnu um leyniþjón-
ustustörf á erlendri grund. Steph-
enson gerði líka hvað hann mátti til
þess að festa vin sinn í sessi og að-
stoða hann við uppbygginguna á
bandarísku herstjórnarþjón-
ustuskrifstofunni, (en í framhaldi af
henni var bandaríska leyniþjónustan
CIA stofnuð eftir stríð). Hann lét
honum í té upplýsingar og ráðunauta
og þjálfaði starfsmenn hans í þjálf-
unarbúðunum í Kanada.
Macdonald telur líklegt, að þótt
vettvangur Stephenson hafi verið
vestanhafs, þá hafi hann gegnum
sambönd sín í London og samstarfið
við Donovan, vitað af flestu því sem
gerðist í Evrópu á sviði njósna og
andspyrnuaðgerða og hann hafi kom-
ið beint að undirbúningi margra
þeirra verkefna.
Ljósmynd/Bill Macdonald
Æskuheimilið Heimili Stephensonfjölskyldunnar í Point Douglas, Winnipeg.
freysteinn@mbl.is
!
"
#
$
%
!