Morgunblaðið - 12.11.2006, Side 44
44 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
I.
ÞAÐ VAR laugardaginn 7. októ-
ber s.l. kl. 10.30, að við félagarnir
Sveinn H. Ragnarsson, (f. 1927),
fyrrum félagsmálastjóri Reykjavík-
urborgar, héldum áleiðis til Borg-
arness. Erindið var að skoða safn
það, sem komið hefur verið á fót í
minningu dr. Charcot og skips hans
Pourquoi pas? Safnið var opið frá kl.
13–16, svo við snæddum kjötsúpu á
ágætu veitingahúsi, sem rekið er í
sambandi við Landnámssetrið sem
Kjartan Ragnarsson hefur sett upp
af miklum myndarskap.
Síðan var haldið í Englendingavík,
þar sem hið franska safn var til húsa.
II.
Tengsl okkar Sveins við Pourquoi
pas? voru með þeim hætti, að Sveinn
var í sveit tvö sumur í Straumfirði,
árin 1936 og 1937. Fór heim í skólann
viku fyrir strandið. Afasystir mín
Marta Níelsdóttir, (1858–1941), og
maður hennar, Haraldur Bjarnason,
(1874–1964), bjuggu aftur á móti á
Álftanesi á Mýrum, en í landi þess er
skerið Hnokki, sem hið franska skip
strandaði á. Síðan eignuðumst við
Haraldur bróðir minn Álftanesið árið
1957 og áttum það saman til ársloka
1963, að ég seldi Haraldi minn hlut.
Mér er þetta slys mjög minnisstætt,
þótt ég væri aðeins 9 ára, er skipið
fórst, en á búskaparárum okkar Har-
aldar umgekkst ég marga hluti úr
skipinu og kannaðist við suma hluti á
safninu í Englendingavík. Sólhattur
úr skipinu hékk lengi í anddyri
gamla bæjarins á Álftanesi og smell-
passaði hann á mig og notaði ég hann
oft í útreiðartúrum, bæði þar vestra
og einnig í nágrenni Reykjavíkur,
þegar við bræður höfðum hesta okk-
ar í Víðinum í Mosfellssveit. Auðvit-
að týndi ég þessum merka grip, en
starfsmaður á Keldum gaf mér nýj-
an sólhatt, sem Rockefellerstofnunin
hafði sent að Keldum, hélt að hér
væri slíkt loftslag, að sólhattar
kæmu sér best fyrir landsmenn.
Fyrir sunnan hús það, er lengst hét
Atvinnudeild Háskólans er minning-
arskjöldur um dr. Charcot, þar sem
stendur, að hann og skip hans hafi
farist við Þormóðssker. Þetta er
rangt, því skipið strandaði á Hnokka,
skeri, sem er út af Álftanesfjörum.
Þetta þarf að leiðrétta og er búið að
standa þarna allt of lengi. Á Þor-
móðsskeri var reistur viti árið 1943
og fór ég upp á sker þetta á laug-
ardaginn fyrir hvítasunnu 1958.
Skerið er 26 metra hátt og vestan í
því fuglabjarg, sem Akurnesingar
eru duglegir að nýta og finnst óþarfi
að ónáða heimamenn með beiðni um
leyfi.
III.
Dr. Charcot – ætt og uppruni
Jean Baptiste Charcot fæddist
hinn 15. júlí 1867 í París. Thora Frið-
riksson segir svo frá í bók sinni:
„Merkir menn, sem ég hefi þekkt“ –
Dr. Jean Baptiste Charcot og út kom
í Reykjavík, Ísafoldarprentsmiðja,
1947: „Skipið, sem hann kom á hing-
að, hét Rose-Marine. Var þá í för
með honum mágur hans, George Vic-
tor Hugo og kona hans. Héðan úr
bænum ferðuðust þau til Þingvalla
og Geysis og var Þorgrímur Guð-
mundsson, (1884–1952), fylgdar-
maður þeirra og var það hann, sem
fyrstur kynnti mig fyrir Charcot.“
Þorgrímur var fæddur að Hömrum í
Eystri-Hrepp í Árnessýslu. Þessi
fyrsta heimsókn dr. Charcot mun
hafa verið 1902. Foreldrar dr. Char-
cot voru þau Jean Martin Charcot
hinn heimsfrægi taugalæknir og
brautryðjandi á því sviði og kona
hans, Augustine-Victoire Durvis.
Hugur Jean Baptiste hneigðist fljótt
til sjómennsku og sem barn lék hann
sér aðeins að bátum, sem hann sigldi
á lítilli tjörn. Þegar hann hafði aldur
til stóð hugur hans til náms við sjó-
liðsforingjaskólann í Borda í Brest.
Faðir hans aftók það með öllu og hóf
hann þá nám við Salpétriére-
skólann, sem fyrirlestrar föður hans
höfðu gert frægan. Lauk hann prófi
þar árið 1893, en doktorsprófi 1895.
Það var erfitt að vera sonur hins
heimsfræga Jean Martin Charcot,
svo hann hallaði sér að námi í lífeðl-
isfræði við Pasteur-stofnunina í Par-
ís. Hann varð kennari við
hjúkrunarkvennaskóla, sem ríkið
hafði sett á stofn við La Salpétriére.
Jean Baptiste vildi ekki eingöngu
verða sonur hans pabba síns (le fils
de papa), heldur frægur á öðru sviði
og heiðra með því minningu föður
síns. Frá og með árinu 1897 má
segja, að algjör straumhvörf hafi
orðið í lífi dr. Charcot og þá hafi
hann farið að hugsa um heimskauta-
ferðir.
IV. Lokadagar Pourquoi pas?
Hinn 3. september 1936 kom
Pourquoi pas? til Reykjavíkur með
bilaða vél, í eftirdragi danska varð-
skipsins Hvidbjörnen. Skipið lenti í
miklum ís við Grænland hinn 30.
ágúst og bilaði vélin eftir það. Við-
gerð á vélinni var undireins hafin, en
hún var ekki fullgjörð fyrr en 13.
september. Voru það síðustu forvöð
fyrir Charcot, hann átti að vera kom-
inn til Kaupmannahafnar á tilsettum
degi, því að þar stóðu til hátíðahöld
til heiðurs Charcot. Þar átti að gera
hann að heiðursdoktor við Kaup-
mannahafnarháskóla. Glöggir menn
sáu þunglyndisglampa í augum
Charcot í Reykjavíkurdvölinni og
settu það í samband við aldur hans,
hann var 69 ára og sá fram á, að hann
myndi ekki fara fleiri ferðir með
Pourquoi pas? Skipið var sjósett í
Saint-Malo þann 18. maí 1908. Var
skipinu hleypt af stokkunum án
seglabúnaðarins (sjá mynd). Cholet,
skipasmiðurinn, sagði, að það væri
svo rammbyggilegt, að það gæti ekki
liðast sundur þótt það strandaði.
Karlakór Reykjavíkur heiðraði
minningu Charcot með því að halda
söngskemmtun í Saint-Malo í Frakk-
landsferð sinni árið 1986. Skipið var
því 28 ára, þegar það fórst á skerinu
Hnokka undan Álftanesfjörum á
Mýrum hinn 16. september 1936.
V. Af hverju strandaði
Pourquoi pas?
Margar tilgátur eru uppi um orsök
þess, að skipið fórst og eru þessar
helstar:
1) Léleg kol, sem keypt voru í
verslun Jóns Edwald á Ísafirði á
heimleið.
2) Skipstjórnarmenn taka feil á
Akranesvita og Gróttuvita.
3) Akkeri látin falla of snemma,
ella hefði skipið rekið upp í sand um
Breiðasund.
4) Skipið og dr. Charcot voru bæði
feig.
5) Tímasetning hátíðarhaldanna
við Kaupmannahafnarháskóla, þar
sem átti að gera dr. Charcot að heið-
ursdoktor. Hann var kominn í tíma-
þröng.
Tilgáta nr. 1: Ég ræddi lengi við
Jón Pál Halldórsson á Ísafirði um
kolin. Hann sagði mér, að verslun
Jóns Edwald, (l886–1935), hefði selt
kol á þessum tíma og útilokað væri
að sú verslun hefði selt léleg eða
skemmd kol.
Tilgáta nr. 2: Talið útilokað að svo
færir skipstjórnarmenn sem stýrðu
skipi þessu hefðu gert slík mistök.
Tilgáta nr. 3: Þetta er bernsku-
minning mín frá dvöl minni á Álfta-
Voru dr. Charcot og skip
hans Pourquoi pas? feig?
Pourquoi Pas? sjósett þann 18. maí 1908 í Saint-Malo, án seglabúnaðarins. Bls. 102 í bók Serge Kahn. Pourquoi Pas?
Eftir Leif Sveinsson
Málþing um öldrunarlækningar - geðlækningar
á vegum Franska sendiráðsins á Íslandi, Geðlæknafélags Íslands,
Læknadeildar Háskóla Íslands og með aðild heilbrigðisráðuneytisins
í Hátíðarsal Háskóla Íslands -
mánudaginn 13. nóvember 2006 kl. 13:30-17:15
Fundarstjóri: Stefán B. Sigurðsson forseti læknadeildar Háskóla Íslands
Eru veikir aldraðir afskiptir? Ber okkur ekki að lækna aldraða?
Dagskrá
13:30 Setning: Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis - og tryggingamálaráðherra og
Nicole Michelangeli, sendiherra Frakka á Íslandi.
13:40 Hvernig undirbúum við efri árin? Hvernig er hægt að læra að
eldast? („The art of growing older“): Jean-Claude Monfort.
14:30 Fyrirkomulag á umönnun aldraðra og veikra í Frakklandi
Samhliða kynning tveggja franskra sérfræðinga í öldrunarlækningum
og -geðlækningum: Anne-Marie Mathieu og Jean-Claude Monfort.
15:30 Kaffihlé
16:00 Umönnun veikra og aldraðra einstaklinga á Íslandi; sjónarmið
öldrunarlæknisins; Pálmi V. Jónsson.
16:20 Umönnun veikra og aldraðra einstaklinga á Íslandi; sjónarmið
geðlæknisins; Ína Þórunn Marteinsdóttir.
16:40 Pallborðsumræður með fyrirlesurum og fulltrúa frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu.
Jean-Claude Monfort geðlæknir og öldrunarlæknir, yfirlæknir öldrunargeðdeildar í
París; háskólakennari í öldrunargeðlækningum frá 1990 í París, höfundur fjölda
greina og bóka um efnið.
Anne-Marie Mathieu öldrunarlæknir og yfirlæknir við Háskólasjúkrahús í París,
háskólakennari í öldrunarlækningum í París, höfundur fjölda greina um efnið.
Pálmi V. Jónsson öldrunarlæknir og sviðsstjóri öldrunarsviðs LSH, dósent í
öldrunarlæknisfræði við Læknadeild Háskóla Íslands.
Ína Þórunn Marteinsdóttir geðlæknir með reynslu í öldrunargeðlækningum frá 1992,
háskólakennari í öldrunargeðlækningum frá 1995 til 2000 í Uppsala (Svíþjóð).
Málþingið er einkum ætlað fagfólki sem vinnur með öldruðum en í raun snertir
viðfangsefni þess okkur öll og er aðgangur öllum frjáls og án endurgjalds.
Erindi og umræður fara fram á ensku.
www.openhand.is
Með OpenHand hefur þú fullan að-
gang að tölvupósti og getur auk
þess skoðað og uppfært önnur skjöl
með farsímanum þínum. Ekki þarf
sérframleitt tæki, heldur virkar
OpenHand á snjallsímum helstu
framleiðenda.
Fáðu nánari upplýsingar um Open-
Hand á www.openhand.is.
„Ég þarf ekki lengur að taka ferðatölvuna
með mér, hef allt í símanum; tölvu-
póstinn, dagbókina, tengiliði og fleira.“
Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á
Íslandi
„Lausnin er einföld, eitt tæki fyrir allar
þarfir.“
Hafsteinn Ingibergsson, Danól
ÖRUGGARA • ÓDÝRARA • SVEIGJANLEGRA
TÖLVUPÓSTUR
DAGBÓK OG FLEIRA
Í FARSÍMANN ÞINN
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
60
56
5
Skrifstofan þín á ferðinni