Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 45
nesi, óstaðfest, en var altalað á ár-
unum eftir skipskaðann.
Tilgáta nr. 4: Í bók Thoru Frið-
riksson er margoft bent á, að það var
alveg sama, hvað mörgum gestum
var boðið í Höfða af franska ræð-
ismanninum Zarzecki og reynt að
hafa boðsgesti 15–20, þá komu svo
mörg afboð, að það urðu alltaf 13 til
borðs. Tók þá ræðismaðurinn það til
bragðs, að rífa ekki 14 af almanak-
inu, heldur láta töluna standa, til að
forðast töluna 13. Ég persónulega
trúi ekki á, að talan þrettán sé
óhappatala.
Tilgáta nr. 5: Ekkert var fjær
Charcot en hégómagirni. Því hefur
hann frekar talið það kurteisi að
þiggja doktorsnafnbótina við Kaup-
mannahafnarháskóla en sérstakan
heiður. Dr. Hallgrímur Helgason,
(1914–1994), frændi minn, sagði við
mig og félaga minn í Kaupmanna-
höfn árið 1947, þá nýkominn frá
Zürich: „Þetta er eins og provinsbær
hjá Zürich“. Annars bar Charcot
virðingu fyrir Dönum, einkum hvað
þeim hafði tekist fram að þessu,
(l936), að halda brennivíninu frá
Grænlendingum. Nú er öldin önnur
þar.
VI.
Ekki verður feigum forðað né
ófeigum í hel komið. Aðeins Gonidec
stýrimaður reyndist ófeigur. Björg-
unarmaður hans Kristján Steinar
Þórólfsson, (1917–1977), vann það
ótrúlega afrek að bjarga Gonidec,
þar sem hann barst að landi í kletta-
skoru, eftir að hafa flotið á landgang-
inum alla leið að brimgarðinum, en í
gegnum hann synti hann að eina
staðnum við ströndina, þar sem lífs-
von var og þar var Kristján staddur
af tilviljun, eða voru það örlagadís-
irnar sem stýrðu honum þangað?
Kristján var þá vinnumaður í
Straumfirði. Hann var heljarmenni
að burðum eins og sjá má af mynd-
inni af honum, sem tekin er úr Borg-
firzkum æviskrám VII. Jóhanna
Magnea Helgadóttir ekkja Kristjáns
lifir mann sinn og býr í Borgarnesi.
Hún er fædd 1915 og eignðust þau
Kristján fimm börn.
VII.
Menn hefðu talið, að minning-
arathöfnin í Reykjavík frá Landa-
kotskirkju hefði verið svipur hjá sjón
miðað við útförina frá Notre-Dame
kirkjunni í París, en svo var ekki.
Minningarathöfnin um Charcot og
menn hans hér í Reykjavík gleymist
engum, sem viðstaddur var. Ræða
herra Meulenbergs biskups í Krists-
kirkjunni í Landakoti var svo látlaus,
svo háleit og innileg, að hún vakti að-
dáun allra, sem skildu frönsku. En
það sem Frökkum þótti merkilegast
var að öllum verslunum var lokað í
Reykjavík meðan á minningar-
athöfninni stóð og allri atvinnu-
starfsemi hætt sömuleiðis.
Mig minnir, að gömlu hjónin í
Straumfirði, þau Þórdís Jónasdóttir,
(l876–1967), og Guðjón Samúel Sig-
urðsson, (l868–1939), hafi verið
framarlega í göngunni á eftir líkbíl-
unum, í sínum bestu fötum að vísu
en ekki orðum skreytt eins og tign-
armennirnir við athöfnina. Við
strandið mæddi mest á Straum-
fjarðarfólkinu og þar fékk Gonidec
þá hjúkrun, sem skildi milli lífs og
dauða. Kristján Þórólfsson var
sæmdur einu æðsta heiðursmerki
Frakka fyrir sína hetjulegu björg-
un, en það var samúð heillar þjóðar
með aðstandendum hinna 40
Frakka, sem skærast skein:
Þegar býður þjóðarsómi,
þá á Ísland eina sál.
Heimildir:
1) Thora Friðriksson, Dr. Jean Baptiste
Charcot, Ísafoldarprentsmiðja, Reykjavík,
1947.
2) Öldin okkar 1931–1950, Forlagið Iðunn,
Reykjavík, Valdimar Jóhannsson, 1951.
3) Serge Kahn, Jean-Baptiste Charcot,
heimskautafari, landkönnuður og læknir.
JPV-útgáfa 2006.
4) Borgfirzkar æviskrár, I-XII, Prentverk
Akraness.
5) Morgunblaðið, 17. september 1936.
6) Alþýðublaðið, 19. september 1936.
7) Trausti Jónsson: Veður á Íslandi í 100
ár, Ísafold 1993.
Skipið með hinum sterklegu þverböndum og stefnið er sér-
styrkt með fjölmörgum bjálkum. Úr bók Serge Kahn, bls. 101.
Ljósmynd/Leifur Sveinsson
Tveir munir frá sýningunni í Englendingavík; báð-
ir úr Pourquoi Pas? a) Servantur með fastri skál
og loki. Frá Álftanesi á Mýrum. b) Kýrauga úr
gamla hlöðuskúrnum á Álftanesi.
Kristján Þórólfsson, bjarg-
vættur Gonidecs stýrimanns.
Dr. Charcot.
Höfundur er lögfræðingur í
Reykjavík.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
OPIÐ HÚS - FUNALIND 15 - JARÐH. - KÓP.
Glæsileg 102 fm rúmgóð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð auk 25,4 fm bílskúrs í eftir-
sóttu húsi í Lindarhverfi. Húsið er sérlega fallegt og allt klætt að utan með inn-
brenndu, lituðu áli. Þrefalt gler er í gluggum. Bílskúr er fullbúinn og með sjálfv. opn-
ara. Íbúðin skiptist í hol, stofu, tvö herbergi, eldhús og baðherbergi auk þvottahúss.
Á jarðhæð er sérgeymsla og hjólageymsla. Hellulögð afgirt verönd út af eldhúsi/-
stofu. 6122
EIGNIN VERÐUR TIL SýNIS Í DAG(SUNNUDAG) FRÁ KL. 15-17. V. 29,5 m.
OPIÐ HÚS - BERJAVÖLLUM 1, HAFNARFIRÐI
Eignamiðlun og Ás kynna glæsilegar 3ja og 4ra herbergja íbúðir til afhendingar
strax. Húsið er hannað af Funkis arkitektum. Mikið er lagt í íbúðirnar, m.a. er hiti í
gólfum á baðherbergi, borðplötur eru úr steini. Allar innréttingar eru sérsmíðaðar frá
HB Harðarsyni. Lýsing hönnuð af Lúmex. Möguleiki er á að fá íbúðina afhenta með
öllum gólfefnum. Allar íbúðir eru með bílskýli og 14 fm svölum, nema jarðhæð sem
er með sérverönd. Verð frá 20,2 millj. 5457
HÚSIÐ VERÐUR TIL SÝNIS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 13-16.
SKÚLAGATA - FYRIR ELDRI BORGARA
Falleg 3ja herb. íbúð á 3. hæð í húsi fyrir
eldri borgara við Skúlagötuna með útsýni til
sjávar og Esjunnar. Eignin skiptist m.a. í hol,
svefnherbergi, baðherbergi, stofu, borðstofu
og eldhús. Íbúðin á hlutdeild í samkomusal
á 1. hæð og húsvarðaríbúð. Aðgangur að
mötuneyti með heitum mat er í næsta húsi.
Sérgeymsla á jarðhæð. Öryggishnappur er í
íbúð. Húsvörður. Verð 23,9 millj. 6255
GRANDAVEGUR - LAUS - M/BÍLSKÝLI
Vel skipulögð og falleg 3ja herb. 87 fm íbúð
á 8. hæð fyrir eldri borgara (60 ára og eldri),
ásamt stæði í bílsgeymslu og yfirbyggðum
svölum. Útsýni út á Faxaflóann og víðar.
Verð 28,8 millj. 6254
KARFAVOGUR - LAUS FLJÓTLEGA
Mjög fallegt og vandað 166 fm parhús á
tveimur hæðum við Karfavog. Húsið skiptist
þannig. Neðri hæð: Hol, stofa, borðstofa,
eldhús, snyrting, þvottahús og geymsla. Á
efri hæð eru fjögur herbergi og baðherbergi.
Innbyggður bílskúr. Verð 45,5 millj. 6262
REIÐVAÐ - GLÆSILEG ENDAÍBÚÐ
4ra-5 herbergja glæsileg 122,7 fm endaíbúð
í lyftuhúsi með sérinngangi af svölum ásamt
stæði í bílageymslu. Íbúðin hefur verið inn-
réttuð á einkar glæsilegan hátt, m.a. er
granít á vinnuborðum. Stórar svalir. Fallegt
útsýni er til Bláfjalla og víðar. Eign í sér-
flokki. Verð 33 millj. 6250
VESTURGATA - ÞJÓNUSTUÍBÚÐ
Íbúð fyrir 67 ára og eldri í húsi númer 7 við
Vesturgötu. Gengið er inn frá Garðastræti.
Íbúðin er nr. 212 og er á 2. hæð með sérinn-
gangi af svölum. Íbúðin er í þjónustuhúsi á
mjög góðum stað í miðbænum. Íbúðin
skiptist í svefnherbergi, baðherbergi, stofu
og eldhúsgang. Íbúðin er laus til afhending-
ar við kaupsamning. Verð 17,9 millj. 6258
BÆJARGIL - GLÆSILEGT
Fallegt tvílyft raðhús auk bílskúrs á eftirsótt-
um stað í Garðabæ við Bæjargil. Eignin
skiptist í forstofu, þvottahús, hol, snyrtingu,
eldhús, stof og borðstofu á neðri hæð. Á ef-
ri hæð eru 4 rúmgóð svefnherbergi og bað-
herbergi. Nýstandsett baðherbergi. Eikar-
hurðir. Eldhús með nýjum tækjum og vinnu-
borði. Búið er að endurnýja planið og setja
hita í. Svalir á efri hæð. Skjólsæll garður út
af stofu með timburverönd. Gólfefni eru
parket, dúkur og flísar. Verð 43,0 millj. 6260
OP
IÐ
HÚ
S
OP
IÐ
HÚ
S
Húsavík – þar sem gott orðspor skiptir máli
Mjög falleg 126,5 fm miðhæð ásamt 23,9 fm bílskúr. Eignin skiptist: Anddyri, skáli,
þrjú svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofa og borðstofa. Eigninni hefur verið vel
við haldið og er búið að endurnýja m.a. eldhús sem er með glæsilegri vandaðri inn-
réttingu og góðum borðkrók. Baðherbergið er allt endurnýjað með stórum sturtuklefa
og innréttingu við vask. Allt flísalagt og gluggi á baði. Rafmagn hefur verið endurnýj-
að að hluta. Parket, flísar og dúkur á gólfum. Góð geymsla í kjallara. Áhv 20,0 millj.
Lífsj.stm.rikisins með 4,15% vöxtum. Verðtilboð.
Opið hús í dag milli kl. 15 og 17. Allir velkomnir miðhæð.
Skólavörðustíg 13
Sími 510 3800
Fax 510 3801
www.husavik.net
Reynir Björnsson
lögg. fasteignasali
Opið hús
Goðheimar 16 - Laus fyrir jól