Morgunblaðið - 12.11.2006, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 51
Frábært útsýni og tenging við náttúruna á besta stað við Grandahvarf í Kópavogi
Íbúðirnar í Grandahvarfi eru vandaðar
sérhæðir frá 124-144 fm að stærð.
• Glæsilegar fullbúnar sérhæðir
• Sérlóð fyrir íbúðir á neðstu hæð með trépalli
• Glæsilegur frágangur lóða og sameiginlegra svæða
Myndavél með upptöku verður uppsett við innkeyrslu í götuna,
vöktuð af stjórnstöð Öryggismiðstöðvarinnar.
Einnig fylgir öryggiskerfi hverri íbúð.
Útivistarreitur með útsýnisskífu, grillaðstöðu og sviði í rómverskum stíl.
Allar nánari upplýsingar, teikningar, skilalýsing og bæklingur fást hjá
fasteignasöluni Kletti í síma 534 5400.
aðar niðurgreiðslur
óháð þeirri þjónustu
sem þeir velja því.
Þetta ósamræmi í nið-
urgreiðslum til ólíkra
aðila hefur haft þau
áhrif að færri keppa
um að bjóða þjón-
ustuna með þeim af-
leiðingum að framboð
minnkar. Leikskólaráð
samþykkti tvær til-
lögur í vikunni sem
miða að því að tryggja
val um úrræði fyrir for-
eldra. Tillögurnar miða
að því að leikskólasvið fái auka-
fjárveitingar til að annars vegar nið-
urgreiða hærri upphæð með hverju
barni sem er hjá dagforeldri og hins
vegar breyta reiknireglu sjálfstætt
starfandi leikskóla.
Greiðslur til dagforeldra
hækka um tæp 40%
Dagforeldrar eru afar mikilvægir
þjónustuaðilar við foreldra í Reykja-
vík. Foreldrar sem velja þjónustu
dagforeldra eru mjög ánægðir með
þjónustu þeirra enda sýnir ný könn-
un menntasviðs að yfir 90% foreldra
eru mjög ánægð með þjónustu dag-
foreldra. Þrátt fyrir þetta hafa dag-
foreldrar í Reykjavík hætt störfum í
miklum mæli og fáir bæst við vegna
ónógra niðurgreiðslna borgarinnar
til þjónustunnar. Dagforeldrar hafa
af sömu ástæðu þurft að hækka gjöld
á foreldra mikið á undanförnum ár-
um. Þetta hefur leitt til þess nú er af-
ar mikið misræmi á verði á þjónustu
dagforeldra annars vegar og þjón-
ustu borgarrekinna leikskóla, sem
taka við börnum við 18 mánaða ald-
ur, hins vegar. Munurinn á gjöldum
til leikskóla og dagforeldra er á
bilinu 30.000–40.000 kr.
á mánuði. Nýr meiri-
hluti í Reykjavík vill
stuðla að því að þjón-
usta dagforeldra verði
áfram valkostur fyrir
foreldra með ung börn
og ætlar að hækka
meðalgreiðslur með
hverju barni úr 27.000
kr. í 38.000 kr. á mán-
uði. Dagforeldrar eru
sjálfstæðir aðilar í
rekstri og taka ákvarð-
anir um gjaldskrár
þjónustunnar en leik-
skólaráð beindi í tillögu sinni sl.
mánudag til dagforeldra að láta for-
eldra njóta þessara niðurgreiðslna
borgarinnar eins og frekast er kost-
ur.
Reiknireglu sjálfstæðra
leikskóla breytt
Sjálfstætt starfandi leikskólar sem
fá niðurgreiðslur frá Reykjavík-
urborg eru 15 talsins. Þessir skólar
eru mikilvægur valkostur í þjónustu
við foreldra ungra barna líkt og
Leikskólar Reykjavíkur og dagfor-
eldrar. Foreldrar velja ólíka þjón-
ustu á mismunandi forsendum, t.d.
vegna hugmyndafræðilegrar nálg-
unar, sveigjanleika skólans eða ná-
lægðar við heimili. Það er því mik-
ilvægt að foreldrar fái sömu
greiðslur frá sveitarfélagi með barni
sínu í leikskóla óháð rekstrarformi.
Fyrrgreind tillaga meirihlutans set-
ur því barnið í forgang óháð rekstr-
arformi og leggur til að nið-
urgreiðslur til sjálfstætt starfandi
leikskóla séu ekki minni en með-
alkostnaður borgarrekinna skóla.
Þetta felur í sér að regla sú sem fyrr-
verandi meirihluti í Reykjavík notaði
um að einkareknir skólar fengju
styrk út frá fimm hagkvæmast reknu
skólunum fellur brott. Breytingin
hefur þær afleiðingar að nú fá börn
jafnháar upphæðir óháð því hvaða
leikskóla foreldrar velja handa þeim.
Enn er verk að vinna
Þrátt fyrir þessar aðgerðir þarf
enn að efla þjónustu við yngstu börn-
in. Næsta verkefni er að skoða betur
þjónustuþörf og þær kröfur sem
gera þarf til leikskóla í Reykjavík
vegna barna yngri en 18 mánaða til
að bjóða upp á raunverulegt val fyrir
foreldra. Í drögum að starfsáætlun
Leikskólasviðs 2007 er gert ráð fyrir
að markviss vinna fari af stað varð-
andi smábarnadeildir leikskólanna,
skilgreiningar á þeirri þjónustu sem
yngstu börnin þurfa að njóta og því
fé sem borgin og foreldrar greiða
fyrir þessa þjónustu óháð þjón-
ustuaðila. Mikilvægt er að tryggja
áfram val um þjónustu þannig að for-
eldrar geti valið hentugasta kostinn
fyrir barnið sitt, hvort sem það er
dagforeldri, sjálfstætt starfandi leik-
skóli eða borgarrekinn leikskóli.
þjónustu áfram tryggt
»Næsta verkefni er aðskoða betur þjón-
ustuþörf og þær kröfur
sem gera þarf til leik-
skóla í Reykjavík vegna
barna yngri en 18 mán-
aða til að bjóða upp á
raunverulegt val fyrir
foreldra.
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
Höfundur er borgarfulltrúi og for-
maður leikskólaráðs.
FYRIR skemmstu fjallaði rit-
stjórnargrein Morgunblaðsins
um stefnu Bandaríkjanna í utan-
ríkismálum og spyr á hvaða leið
þetta gamla forysturíki í baráttu
fyrir lýðræði, frelsi og mann-
réttindum sé. Orðrétt: „Hvenær
villtist þessi þjóð af réttri leið?
Hvenær hætti hún að vera tákn
fyrir háleitar hugsjónir en fór í
stað þess að vinna með sama
hætti og andstæðingar hennar
hafa gert og forystumenn henn-
ar hafa fordæmt? Hvenær
breyttust Bandaríkin í and-
hverfu sína?
Það er bara eitt afl til í
Bandaríkjunum, sem getur
breytt þessari vegferð. Það er
fólkið sjálft. Kjósendur í Banda-
ríkjunum geta sett þá frá völd-
um, sem hafa leitt þessa miklu
þjóð í ógöngur og sett aðra í
þeirra stað, sem treystandi er til
að halda á lofti baráttu fyrir
mannréttindum og frelsi um all-
an heim. Bandaríkjamenn þurfa
að endurskoða frá grunni sam-
skipti sín við aðrar þjóðir.“
Allt er þetta satt og rétt. Og
nú hefir fólkið þar vestra beitt
afli sínu og sett þá frá völdum
sem ábyrgð bera á ófarnaði um-
liðinna ára.
Og úrslitum réðu afglöpin í
Írak og haukurinn í stól her-
málaráðherra settur af.
En það er víðar sem mikið
liggur við að kjósendur beiti
þessu afli sínu. Í þessu grein-
arkorni verður aðeins vikið að
einu atriði fyrir íslenzka kjós-
endur. Hinu sama og úrslitum
réð í bandarísku kosningunum:
Innrásinni í Írak og afleiðingum
hennar.
Hópur frambjóðenda Sjálf-
stæðisflokksins hefir verið
spurður hvort þeir álitu að ís-
lenzkir ráðamenn hafi gert
rangt með því að gera land okk-
ar að aðila þess hildarleiks. Allir
– með einni undantekningu –
svöruðu aðspurðir neitandi,
flestir með þeirri viðbáru að
upplýsingar um ástand mála í
Írak, sem þá lágu fyrir, hafi
gert ódæðið afsakanlegt.
Minna má á, að 1945 voru öll-
um Íslendingum fullkunnugir
glæpir Öxulveldanna. Samt neit-
uðum við að segja þeim þjóðum
stríð á hendur vegna þess eiðs,
sem íslenzk þjóð hafði svarið að
fara aldrei með ófriði á hendur
neinni þjóð.
Þeir tveir menn, íklæddir ve-
sælu valdi, sem að næturþeli í
Prag austur tóku einir ákvörðun
um að rjúfa þann eið mega með
sanni nefnast þjóðníðingar.
Er þá ekki að því komið að ís-
lenzkir kjósendur beiti afli sínu í
næstu kosningum til þess að ný-
ir valdhafar hefjist þegar í stað
handa um að deyfa þann óafmá-
anlega smánarblett sem þessir
óhappamenn hafa sett á æru Ís-
lands?
Sverrir Hermannsson
Afl atkvæða
Höfundur er fyrrverandi formaður
Frjálslynda flokksins.