Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 12.11.2006, Blaðsíða 66
Um allan heim bíða lesend- ur í ofvæni eftir hverri nýrri bók metsöluhöfundarins Mary Higgins Clark. Sem fyrr fer þessi vinsæli höfundur á kostum og má fullyrða að nýja bókin hennar „Heima er engu öðru líkt“ gefur fyrri bókum hennar ekkert eftir. Alþjóðlegur metsöluhöfundur: Mörkinni 1 • Sími 588 24 00 Staðurstund Sinfóníuhljómsveit Íslands og FL-Group ætla að bjóða öllum landsmönnum á tónleika hljóm- sveitarinnar. »83 tónlist Eftir Sæbjörn Valdimarsson saebjorn@heimsnet.is ALLIR eiga sinn uppáhalds Bond og það er örugglega vísir að karla- grobbi hjá þeim sem muna Sean Connery í hlutverkinu að hafa litið með nokkurri vanþóknun á spor- göngumennina. En eftir að hafa séð nýjustu myndina í bálknum er óhætt að slá föstu við Connery- aðdáendur: Takið gleði ykkar aft- ur, dagar hins dúllulega James Bond eru taldir, í bili a.m.k. Daniel Craig er jafnvel harðari nagli en fyrirmyndin Connery – því hann er blæbrigðaríkari, á jafn auðvelt með að sýna mýkt. Túlkun hans stendur næst myrkri og óbeislaðri skáldsagnapersónunni; 007 er ber- sýnilega að ganga í endurnýjun líf- daganna með Casino Royale ár- gerð 2006. Aftur að upphafinu Á föstudaginn hefst nýr kafli í einum lífseigasta framhalds- myndaflokki sögunnar, sem telur 21 mynd og sex leikarar hafa mannað titilhlutverkið í. Casino Royale hentar vel sem frumraun nýs leikara og sem boðberi nýrra áherslna, því hún er fyrsta verk Ians Flemings um leyniþjónustu- manninn Bond. Í upphafi bók- arinnar (sem kom út fyrir rösklega hálfri öld) er Bond nýgræðingur, ungur og óreyndur með hendur óflekkaðar af blóði. En eitt aðal- hlutverk þessa sköpunarverks Flemings er að ryðja úr vegi glæpamönnum, hættulegum breska heimsveldinu og reyndar heiminum öllum. Talan, dulnefni leyniþjónustumanna, er jafnframt tákn þess að þeir hafa leyfi til að drepa. Sú staðreynd er eitt grundvall- areinkenni persónu Flemings; í bókunum er Bond ískaldur morð- ingi ef því er að skipta. Á yfirborð- inu fágaður og vel til hafður heimsmaður með auga fyrir fal- legum konum og smekkmaður á Tímarnir breytast og Bond með Ástfanginn Bond Eva Green og Daniel Craig sem Vesper Lynd og James Bond. 07, árgerð ’06, Daniel Craig, er mættur á byrjunarreit 007 Daniel Craig er jafn- vel harðari nagli en fyrirmyndin Connery. |sunnudagur|12. 11. 2006| mbl.is Sean Connery: 10 (1962–1971) Mótaði 007, tryggur sögupersónunni. Flottur og ósnertanlegur en var greinilega farið að leiðast við- fangsefnið þegar á leið. George Lazenby: 6 (1969) Meginógæfa Ástralans voru hrokafullir meðleik- arar (Diana Rigg, Telly Savalas, Gabriele Ferzetti), sem töldu sig hátt yfir tískusýningarmanninn hafinn og gerðu allt til að jarða hann jafnt í vinnunni sem ut- an hennar. Tíminn hefur leitt í ljós að það var byggt á misskilningi, Lazenby átti að fá fleiri tækifæri. Roger Moore: 7 (1973–1985) Þegar Connery hafði loks tekist að sleppa úr fjötr- um 007 töldu framleiðendurnir sjálfsagt þörf á að létta yfirbragð hetjunnar. Moore gerir vel það sem fyrir hann er lagt, er fínn skemmtikraftur sem fer mun betur að vera í hvítum smóking en svörtum. Timothy Dalton: 4,9 (1987–1989) Fallinn. Pierce Brosnan: 6 (1995–2002) Hann hefur útlitið en ekki vigtina og myndirnar hans eru litlausar brellusúpur. Hann er eins og móðir Teresa við hliðina á Craig. Daniel Craig: 10 Þrátt fyrir hrakspárnar er loksins fundinn leikari sem fyllir skarð Connerys. Hann hefur mýkt og hörku, drottnandi útgeislun og er ámóta karlmannlegur á velli og Skotinn. Það er óskandi að hann skorti ekki úthaldið. Sean Connery Roger Moore Pierce Brosnan Daniel CraigGeorge Lazenby Þeir hafa leikið James Bond Timothy Dalton
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.