Morgunblaðið - 12.11.2006, Qupperneq 72
72 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ var gleðiefni fyrir nokkrum ár-
um þegar hafist var handa við heild-
arútgáfu sönglaga Sigvalda Kalda-
lóns á plötu. Fyrsta bindi
útgáfunnar, Svanasöngur á heiði,
kom út fyrir tveimur árum; tvær
plötur í vænu umslagi, sem uppfullt
var af ítarefni um tónskáldið; grein-
um og textum. Það var fengur að því.
Nú er seinni hlutinn kominn út og
ber hann nafnið: Ég lít í anda liðna
tíð. Eins og í hittifyrra fylgir plöt-
unum tveim vegleg bók í sama broti,
með öllum söngtextunum, á íslensku
og í enskri þýðingu, fjöldi ljósmynda
úr fjölskyldualbúmi Sigvalda Kalda-
lóns auk greina. Þar skrifar Trausti
Jónsson um Sigvalda og segir meðal
annars: „Innkoma Sigvalda Kalda-
lóns í íslenskt tónlistarlíf á sínum
tíma var hógvær í fyrstu, undirleikur
á harmóníum eða píanó á söng-
skemmtunum, þátttaka í sönghópum
og kirkjutónlistarstarfi. Allt án þess
að nokkrum dytti í hug það stíflubrot
sem varð þegar hann 35 ára að aldri,
orðinn héraðslæknir vestur í Ármúla
við Djúp, laumaði með aðstoð vinar
síns Sigurðar Þórðarsonar á Lauga-
bóli út hefti með sjö sönglögum. Á
fáum árum varð hann vinsælasti
sönglagahöfundur þjóðarinnar og
hefur vinsældunum ekki linnt síðan.
Áhrif hans voru margþætt, hér má af
handahófi nefna þrennt: Í fyrsta lagi
varð frumkvæði hans fjölda söng-
lagahöfunda gríðarleg fyrirmynd, í
öðru lagi reyndust lögin stórkostleg-
ur happafengur fyrir söngvara um
land allt, og í þriðja lagi urðu tón-
smíðar hans eins konar viðmið þeirra
sem vildu meiri og betri menntun,
„áfram, lengra, upp og hærra“.“
Til að fagna útgáfunni verða tón-
leikar í Salnum í kvöld kl. 20 þar sem
söngvararnir Auður Gunnarsdóttir,
Bergþór Pálsson, Eyjólfur Eyjólfs-
son, Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir,
Gunnar Guðbjörnsson og Hulda
Björk Garðarsdóttir syngja með
Jónasi Ingimundarsyni, en hann hef-
ur haft veg og vanda af
útgáfunni, í samvinnu
við Gerðuberg.
Á tónleikunum verð-
ur flutt úrval af þekkt-
ustu einsöngslögum
Sigvalda Kaldalóns og
má þar nefna perl-
urnar
„Hamraborgina“,
“Betlikerlinguna“,
„Þótt þú langförull
legðir“, „Ave María“,
„Draum hjarðsveins-
ins“ og „Þú eina hjart-
ans yndið mitt“ svo fátt
eitt sé nefnt.
Þrjú ný andleg verk
Annað íslenskt tónskáld, Óliver
Kentish verður hins vegar aðalmað-
urinn á tónleikum Sinfóníuhljóm-
sveitar í Neskirkju kl. 17 í dag því að
hljómsveitin frumflytur hvorki
meira né minna en þrjú verk eftir
hann.
Verkin þrjú eru samin fyrir
strengjasveit og heita Lacrimosa,
Omnia vincit og Finale.
Fyrstnefnda verkið er fyrir tvær
strengjasveitir og gengur þá Kamm-
ersveit Tónlistarskóla Hafnarfjarðar
til liðs við hljómsveit-
ina.
Á tónleikunum
verða einnig leikin
Konsert fyrir flautu og
óbó eftir Salieri og Se-
renaða fyrir tíu blás-
ara, selló og kontra-
bassa eftir Antonín
Dvorák. Einleikarar í
konsert Salieris eru
Hallfríður Ólafsdóttir
og Daði Kolbeinsson,
en stjórnendur á tón-
leikunum eru Ármann
Helgason og Óliver.
Með flutningi á
konsert Salieris heldur Sinfón-
íuhljómsveit áhugamanna áfram að
minnast Mozarts af því tilefni að 250
ár eru liðin frá fæðingu þessa höf-
uðsnillings tónlistarinnar. Salieri var
samtíðarmaður og vinur Mozarts í
Vínarborg, þótt látið sé liggja að því í
leikritinu Amadeus, sem nú er sýnt í
Borgarleikhúsinu, að hann hafi átt
einhvern þátt í dauða meistarans.
Óliver Kentish fæddist á Englandi
en íslenskt tónlistarlíf hefur um ára-
bil notið krafta hans sem sellóleik-
ara, tónlistarkennara, kór- og hljóm-
sveitarstjóra og tónskálds.
Kaldalóns og Kentish
á tónleikum í dag
Morgunblaðið/Kristinn
Áhugasöm Sinfóníuhljómsveit áhugamanna frumflytur þrjú verk eftir að-
alstjórnanda sinn, Óliver Kentish, á tónleikunum í dag.
Sigvaldi Kaldalóns
Fáðu úrslitin
send í símann þinn
Fréttir
í tölvupósti
Í dag kl. 14 UPPS. Sun 19/11 kl. 14
Sun 26/11 kl. 14 Sun 3/12 kl. 14
Fim 16/11 kl. 20 Sun 26/11 kl. 20
Fös 1/12 kl. 20 Fös 8/12 kl. 20
Fös 17/11 kl. 20 Fös 24/11 kl. 20
Lau 2/12 kl. 20 Lau 9/12 kl. 20
Fim 16/11 kl. 20 UPPS. Fim 23/11 kl. 20
Sun 3/12 kl. 20 Fös 8/12 kl. 20
Sun 19/11 kl. 20 Síðasta sýning.
Lau 18/11 kl. 14 Lau 25/11 kl. 14
Frítt fyrir 12 ára og yngri
ÚTFÁFUTÓNLEIKAR
HELGA RAFNS
Mið 22/11 kl. 20 Miðaverð 2.300
WATCH MY BACK
Kómískur spuni. Flutt á ensku.
Sun 19/11, sun 26/11 kl. 20.10
Miðaverð 1.000 kr.
Í kvöld kl. 20 Fös 17/11 kl. 20
Lau 18/11 kl. 20 Fös 24/11 kl. 20
SAKAMÁL Á SVIÐ
Leiklestrar á 3ju hæðinni.
Í dag kl. 17 ath. breyttan tíma
Sun 19/11 kl. 20
Allir velkomnir, ókeypis aðgangur
Í kvöld kl. 20 4.sýning Græn kort
Lau 18/11 kl. 20 5.sýning Blá kort
Sun 19/11 kl. 20 Lau 25/11 kl. 20
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
SNIGLABANDSINS
Fim 23/11 kl. 21 Miðaverð 3.500
ÚTGÁFUTÓNLEIKAR
STEBBA OG EYFA
Mið 29/11 kl. 20 og 22. Miðaverð 4.000
JÓLALEIKRITIÐ RÉTTA LEIÐIN
Mið 22/11 kl. 18 og 20 Frums. UPPS.
Fim 23/11 kl. 9:30 og 13:00
Fös 24/11 kl. 9:30 og 13:00
Mán 27/11 kl. 9:30 og 13:00
Sýningartími 1 klst. Miðaverð 500 kr.
www.leikfelag.is
4 600 200
Herra Kolbert
Fim 16. nóv kl.20 örfá sæti - 9.kortasýn
Fös 17. nóv kl.19 UPPSELT - 10.kortasýn
Lau 18. nóv kl. 19 UPPSELT
Fim 23.nóv kl. 20 UPPSELT
Fös 24.nóv kl. 19 örfá sæti laus
Næstu sýn: 25/11, 1/12, 2/12, 8/12, 9/12. Ekki við hæfi barna.
Einungis sýnt í nóv og des! – Tryggðu þér miða núna
Karíus og Baktus - Sýnt í Rýminu
Sun 12.nóv kl. 14 UPPSELT
Sun 12. nóv kl. 15
Sun 19.nóv kl. 14 og 15 örfá sæti laus
Næstu sýn: 25/11, 2/12, 8/12, 9/12, 16/12. Sýnt í nóv og des.
Ath styttri sýningartími – lækkað miðaverð
Miðasalan er opin alla daga nema mánudaga kl. 14-18 og fram að sýningu sýningardaga.
Símasala kl. 10-18 þriðjudaga - föstudaga. Miðasala á Netinu allan sólarhringinn.
www.opera.is opera@opera.is Sími: 511 4200
ATH! SÍÐUSTU SÝNINGAR
Frumsýning 18. nóvember kl. 20 - 2. sýning 25. nóvember kl. 20
3. sýning 2. desember kl. 20
ATH! AÐEINS ÞESSAR ÞRJÁR SÝNINGAR
STRENGJALEIKHÚSIÐ
Strengjaleikhúsið í samvinnu við íslensku óperuna
SKUGGALEIKUR
Ný íslensk ópera eftir Karólínu Eiríksdóttur,
Sjón og Messíönu Tómasdóttur
ARÍUR UM ÁSTINA - HÁDEGISTÓNLEIKAR ÞRIÐJUD. 14. NÓV. KL.12.15
Jónas Guðmundsson, tenór, og Kurt Kopecky, píanó, flytja rússneskar og ítalskar aríur í hádeginu
Miðasala virka
daga frá kl.11-16
og 2klst. fyrir sýn.
Sími 5629700
www.idno.is
Sýningar kl.20
Sýnt í Iðnó
Lau. Örfá 18.11
Sun. Upps. 19.11
Fim. Aukas. 23.11
Fös. 24.11
Lau. 25.11
!"
# $% %& '
Sun. 12. nóv. kl. 20 - Nokkur sæti laus
Fös. 17. nóv. kl. 20 - Nokkur sæti laus
Sun. 19. nóv. kl. 20
Fim. 23. nóv. kl. 20 - Næstsíðasta sýning
„Stórkostleg sýning í stórbrotnu umhverfi!“
Birgir Páll Hjartarson, framkvæmdastjóri.
ALLRA SÍÐASTA SÝNING!
sunnudaginn 12. nóvember kl. 20.00
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS
Mozart
FIMMTUDAGINN 16. NÓVEMBER KL.19.30
Hljómsveitarstjóri ::: Robert King
Einsöngur ::: Gillian Keith
Kór ::: Hamrahlíðarkórar
Kórstjóri ::: Þorgerður Ingólfsdóttir
græn tónleikaröð í háskólabíói
W. A. Mozart ::: Regina coeli, K. 127
Sancta Maria, mater Dei, K. 273
Postulasónata, K. 278
Excultate, jubilate, K. 165
Sinfónía nr. 34 í C-dúr, K. 338
Regina coeli, K. 108