Morgunblaðið - 12.11.2006, Page 73
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 2006 73
menning
Til sölu glæsilegt sumarhús
Vaðnes, Grímsnesi
Um er að ræða 120 fm fokhelt sumarhús með sauna og geymslu á einum
besta stað í Grímsnesi. 150 fm verönd er í kringum húsið. Húsið stendur á
1 ha kjarrivöxnu eignarlandi. Húsið er vel staðsett, stutt í golfvelli og alla
þjónustu. Ca 40 mín. akstur frá Reykjavík. Verð 22.800.000.-
Mögul. að taka einbýlishúsalóð á Reykjavíkursvæðinu upp í eignina.
Upplýsingar í síma 896-2036 og 698-9873
Hin rómuðu Arkarjólahlaðborð hefjast
laugardaginn 18. nóvember.
Í ár höfum við fengið í lið með okkur
landskunna veislustjóra,
þá Gísla Einarsson og Ómar Ragnarsson.
Félagarnir munu skiptast á að stjórna
herlegheitunum, fara með gamanmál og sjá til
þess að allir njóti dvalarinnar.
Krakkajólahlaðborð
með Bárði úr Stundinni okkar
26. nóvember, 3. desember og 10. desember.
Pantanir:
483 4700
www.hotel-ork.is
ALGENGT er að meðlimir hljóm-
sveita skelli sér í smáhlé frá hóp-
starfinu og ráðist í gerð sólóplatna.
Máski til að fá meiri pening í eigin
vasa en líka til að leyfa egóinu að fá
sínu framgengt og sjá hverju þeir af-
kasta á eigin spýtur. Þegar þeir svo
gefa út sólóplötur má oft greina
hvaða þátt viðkomandi hafa átt í
hljómi „bandsins“, en á móti skortir
þá stundum fyllingu hljómsveit-
arinnar. Ágætt dæmi er að þegar
gítarleikarar Sonic Youth, Thurston
Moore og Lee Ranaldo, gáfu út sína
sólóplötuna hvor var greinilegt að
Moore var popparinn sem hélt mel-
ódíunni saman með sértæku gítar-
glamri en Ranaldo var kaótíski
gítarböðullinn. Saman gátu þeir gert
dásamlegt melódískt kaós sem ein-
kennir gítarleik Sonic Youth en
hvorn í sínu lagi skorti þá mótvægi
hins.
Við höfum ekki mörg „myndlistar-
bönd“ til að við getum talað af
reynslu um sólóferil meðlima þeirra,
en meðlimir Gjörningaklúbbsins
eiga það þó til að ráðast í sólósýn-
ingar og eina slíka er nú að finna í
101 galleríi þar sem Sigrún Inga
Hrólfsdóttir, ein af þremur meðlim-
um Gjörningaklúbbsins, sýnir alein.
Af þessari sýningu að dæma er Sig-
rún gítarböðull Gjörningaklúbbsins.
Verkin eru tvístruð og sum hver
sjúskuð eða óvönduð og við fyrstu
sýn var ég hálfhissa yfir því dáðleysi
og ráðaleysi sem sýningin bar með
sér. Við nánari íhugun áttaði ég mig
hins vegar á að það var einmitt í
gegnum þessa bresti að ég skynjaði
manneskjuna að baki sýningunni og
af þeim sökum var það sem ég fann
að sýningunni (og ég fann margt að
henni) ekki endilega löstur. Mikil-
vægara þótti mér að sjá sorg og
söknuð til æsku og ævintýra, sælu
og samlyndis sem listakonan vísar til
með verkum sínum. Ég nefni t.d.
ljósmynd af Keith Richards, gítar-
leikara The Rolling Stones, sem
listakonan skýrir „Keith alone“
(Keith aleinn) og virkar sem áhersla
á einstaklinginn án hópsins og má
þess vegna sjá sem sjálfsmynd lista-
konunnar. Sama má segja um teikn-
ingu af tárfellandi dádýri (kannski
búið að týna hjörðinni sinni) og
teikningu þar sem orðið „einmana“
er skrifað fyrir miðju blaðsins. Þá
hefur Sigrún teiknað stakar eyjar
úti á hafi og ekki má gleyma DVD-
upptöku af þremur kattartegundum
lokuðum í sínu búrinu hver.
Ég útiloka ekki að sitthvað á sýn-
ingunni kunni að vera freudískt
glappaskot, en hvort sem er þá er
viss athugun á einstakleika í gangi
og tilraun til að finna eigin sérkenni
og sjálfstæði í tungumáli myndlistar.
Morgunblaðið/Ómar
Teipuð smádýr Söknuður til æsku og ævintýra að mati gagnrýnanda.
Athugun á
einstakleika
MYNDLIST
101 gallerí
Opið fimmtudaga til laugardags frá 14–
17. Sýningu lýkur 24. nóvember. Aðgang-
ur ókeypis.
Sigrún Inga Hrólfsdóttir
Jón B.K. Ransu
Tveir bandarískir námsmenn hafahöfðað mál gegn kvikmynda-
verinu 20th Century Fox en þeir
segjast hafa verið blekktir til að
koma fram í kvikmyndinni Borat:
Cultural Learnings of America For
Make Benefit Glorious Nation of
Kazakhstan, sem er vinsælasta kvik-
myndin í Bandaríkjunum og víðar
um þessar mundir.
Í málsskjölum kemur fram að í
myndinni sjáist námsmennirnir
tveir viðhafa ummæli sem lýsi kyn-
þáttahatri. Þeir hafi verið blekktir til
að hegða sér með
tilteknum hætti,
sem þeir hefðu
undir venjulegum
kringumstæðum
ekki gert.
Talsmaður
kvikmyndavers-
ins sagði að máls-
höfðunin væri án
nokkurra raka.
Í myndinni leikur breski grínleik-
arinn Sacha Baron Cohen frétta-
manninn Borat frá Kasakstan, sem
ákveður að gera heimildarmynd um
Bandaríkin. Í myndinni eru náms-
mennirnir kynntir sem félagar í
nemendafélagi í háskóla í Suður-
Karólínu.
Fólk folk@mbl.is