Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 84

Morgunblaðið - 12.11.2006, Síða 84
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is STÓR hópur eldri borgara er ánægður og telur sig við góða heilsu og framlag þeirra til samfélagsins er mjög mikið þótt það hafi lít- ið verið rætt til þessa, að sögn Ingibjargar Harðardóttur, lektors við Kenn- araháskóla Íslands, sem rannsakað hefur framlag eldri borgara til samfélagsins. Segir hún að sam- félagið fyndi mjög mikið fyrir því ef eldri borgara nyti ekki við til að að- stoða hina yngri á marga mismun- andi vegu. Felst þetta m.a. í stuðn- ingi við börn, barnabörn og barnabarnabörn í formi barna- gæslu, fjárhagslegs stuðnings o.fl. Segir Ingibjörg því ljóst að stór hópur eldri borgara leggi mikið af mörkum á degi hverjum. Rannsóknin var unnin af Rann- sóknastofnun KHÍ og studd af Sparisjóðunum. Í spurningakönnun meðal eldri borgara kom fram að framlag þeirra er margþætt en nefna má að 62% þeirra aðstoða við barnagæslu og rúmlega þriðjungur þeirra sinn- ir barnagæslu tvisvar í viku eða oft- ar. Í viðtalskönnun við eldri borg- ara í tengslum við rannsóknina kom oft fram að afi eða amma kæmu til bjargar hjá barnafjöl- skyldum þegar veikindi herjuðu á heimilin. „Það er því ansi hætt við að samfélagið fyndi mjög mikið fyrir því ef þessa nyti ekki við,“ segir Ingibjörg. Könnunin leiðir í ljós að nokkuð algengt sé að eldri borgarar styrki afkomendur sína eða aðra fjár- hagslega m.a. hafa 46% þeirra lán- að peninga, rúmlega fjórðungur hefur keypt nauðsynjar, s.s. fatnað, húsbúnað og slíkt og fjórðungur hefur styrkt til þátttöku í einhvers konar tómstundastarfi og nám- skeiðum. Einnig hefur 21% lánað veð í húsnæði sínu. Í könnun meðal almennings kom fram að algengast var að einstaklingar í aldurshópn- um 16–24 ára hefðu þegið fjárhags- legan stuðning frá eldri borgurum. Telur Ingibjörg að Félag eldri borgara hafi sýnt frábært framtak með því að láta rannsaka þessa þætti og draga þá fram í dagsljósið. Eldri borgarar leggja mjög mikið af mörkum 62% eldra fólks aðstoða við barnagæslu og 46% veita fjárhagsaðstoð Í HNOTSKURN »Rannsóknin var þríþætt.Í fyrsta lagi voru tekin viðtöl við 21 eldri borgara um framlag þeirra sjálfra til samfélagsins og niðurstöður þeirra voru meðal annars nýttar til að semja spurn- ingar í spurningakannanir. »Tvær kannanir voru síð-an framkvæmdar, ann- ars vegar fyrir 1.200 ein- staklinga á aldrinum 67 til 85 ára og hins vegar fyrir 1.350 einstaklinga á aldr- inum 16 til 75 ára. 66% Ís- lendinga töldu framlag eldri borgara til samfélagsins mikið. Ingibjörg Harðardóttir ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1100 SUNNUDAGUR 12. NÓVEMBER 316. DAGUR ÁRSINS 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. ÞETTA FÓLK Á SKILIÐ AÐ ÞJÁST SKJÁREINN næst í gegnum Skjáinn og Digital Ísland E N N E M M / S IA / N M 2 4 4 8 0 Sex frægir einstaklingar hafa samþykkt að gangast undir stranga meðferð sem breytt getur lífi þeirra til framtíðar. Komast þeir heilir í gegnum dagskrána sem bíður þeirra í einangrunarbúðunum í Sólheimum í Grímsnesi? SEX FRÆGIR EINSTAKLINGAR bROTNIR NIÐUR OG BYGGÐIR UPP AFTUR ÞÁTTURIN N HEFST Í K VÖLD KL. 20.30 FYLGIST M EÐ FRÁ BYRJ UN 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: auglysingar@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is  Suðaustan 15– 23 m/s, hvassast á annesjum norð- anlands. Snjó- koma eða slydda fyrir norð- an. Talsverð rigning sunnanlands. » 8 Heitast Kaldast 7°C 0°C HJÓNIN Karen Ralston og Olgeir Jón Þór- isson eiga tvo syni sem greindir hafa verið ein- hverfir, Nikulás Árna, 13 ára, og Arthur Bjarna, 6 ára. Þau hafa á undanförnum árum þreifað fyrir sér um breytt mataræði, í þeirri von að geta hjálpað drengjunum sínum í átt að eðlilegu lífi. Árangurinn hefur verið vonum framar, Nikulás Árni er nú í sjöunda bekk og tekur samræmd próf eins og bekkjarfélagarnir og Arthur Bjarni er kominn vel á veg. „Við urðum alveg steinhissa þegar við átt- uðum okkur á því að þessar upplýsingar voru fyrir hendi þarna úti en einhvern veginn hafði þeim ekki verið komið á framfæri hér,“ segir Karen um það þegar þau uppgötvuðu hversu mikil áhrif breytingin á mataræðinu hafði. Einhverfutilfellum fjölgað um 1.500% Á heimili Karenar og Olgeirs Jóns er nú mjólkurlaust, sykurlaust og hveitilaust fæði og þau segja mikilvægt að viðhalda breyttu mat- aræði því annars geti allt farið í sama farið. Á síðustu tuttugu árum hefur einhverfutil- fellum fjölgað um allt að 1.500% og leitað hefur verið skýringa á hinni miklu aukningu. „Það er eðlilegt að fólk líti í kringum sig og velti fyrir sér umhverfisþáttum,“ segir Evald Sæmundsen, fötlunarsálfræðingur á Greining- ar- og ráðgjafarstöð ríkisins, um vangaveltur um tengsl umhverfisþátta og einhverfu. | 30 Tengist einhverfa mataræði? 20 ÍBÚÐIR í nýbyggingu við Laugaveg voru í vikunni auglýstar til sölu í Fasteignablaði Morgunblaðsins en íbúðirnar standa á reitn- um þar sem Stjörnubíó var áður til húsa. Samkvæmt upplýsingum frá Fasteignamark- aðnum, sem sér um sölu íbúðanna, er um að ræða tveggja og þriggja herbergja íbúðir sem afhendast fullbúnar en hverri íbúð fylgir sér bílastæði. Arnar Hannes Gestsson, framkvæmda- stjóri Stórvals, sem á verslunarhúsnæðið í ný- byggingunni, segir að í því sé húsnæði fyrir sex verslanir en búið sé að leigja það allt út. Auk þess séu 11 íbúðir til viðbótar í húsinu en til standi að leigja þær út. Arnar Hannes segir að mikil eftirspurn hafi verið eftir íbúðunum og fimm íbúðanna séu þegar fráteknar. Hann segir að verð íbúðanna sé mismunandi en það sé frá því að vera rúmar 400 þúsund krónur á fermetrann. Ístak hafi séð um byggingu íbúðanna. Morgunblaðið/Kristinn Nýjar íbúðir Á gamla Stjörnubíósreitnum. 20 nýjar íbúðir við Laugaveg HANN hafði í nógu að snúast, verkamað- urinn, þegar ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í slippnum við Reykjavíkurhöfn fyrir helgi. Áratugum saman hefur kliðurinn frá höfninni og smiðshögg frá slippnum verið órjúfanlegur þáttur í borgarlífinu. Eftir að yfirmönnum Daníelsslipps var gert að flytja fyrirtækið annað eftir sjötíu ára starfsemi er hins vegar ljóst að smiðshöggin eru smátt og smátt að víkja fyrir annars konar hafnarlífi. Líklega munu einhverjir sakna slippsins og dráttarbrautanna sem þar voru. Morgunblaðið/RAX Dyttað að fleyjunum sem kyssa bárurnar
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.