Morgunblaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006 21
edda.is
„NÖTURLEG OG FYNDIN“„ÓTRÚLEGA MIKIL SAGA“
n
ins
004
„Afar vel heppnuð saga ... höfundi tekst
að gera gleði og sársauka næstum heillar ævi
skil í merkilega stuttri frásögn og söguhetjan
sjálf fylgir lesandanum að lestri loknum.“
Kristrún Heiða Hauksdóttir, Frbl.
„Kristín skrifar knappan, hæfilega
ljóðrænan stíl, og notar hann til að koma
ótrúlega mikilli sögu til skila.“
Úlfhildur Dagsdóttir, bokmenntir.is
„Nöturleg og fyndin ...
Lesendum er margsinnis
skemmt í þessari vel
hugsuðu sögu, þeir finna sárt til
aðstæðna drengsins. Jón hefur
fullan sóma af þessu verki sínu.“
Páll Baldvin Baldvinsson, Frbl.
„Indjáninn er fín viðbót við
íslensku skáldævisöguflóruna auk
þess að vera gott innlegg í umræðu
um einelti og þroskaraskanir.“
Soffía Auður Birgisdóttir, Mbl.
„Frábær bók!“
Bryndís Loftsdóttir, Eymundsson
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
ZIAD AMRO er stofnandi öryrkja-
bandalags Palestínu og stjórnandi
félags blindra Palestínumanna.
Amro hélt nokkur erindi um stöðu
fatlaðra Palestínumanna í Reykjavík
í vikunni og áhrif „beinbrotsstefnu“
Yitzhak Rabins, fyrrverandi for-
sætisráðherra Ísraels, á tíðni fötlun-
ar á meðal þúsunda Palestínumanna.
Amro segir aðspurður ekki hægt
að aðskilja daglegt líf og menningu
Palestínumanna frá stormasömu
sambandi þeirra við Ísraelsmenn.
Átökin hafi áhrif á alla og þau komi
fram í menningunni, gott dæmi sé
leikritið „Handan við múrinn“, sem
fjalli, eins og nafnið gefur til kynna,
um áhrifin af aðskilnaðarmúr Ísr-
aelsmanna sem verði fullbúinn þre-
falt lengri en Berlínarmúrinn.
Inntur eftir stöðu fatlaðra Pal-
estínumanna í dag segir Amro
málaflokkinn hafa liðið fyrir mikinn
fjárskort í palestínsku stjórninni.
„Þetta má rekja til þess að Ísr-
aelsstjórn hefur ekki afhent palest-
ínskum yfirvöldum tekjur af skatt-
greiðslum í lok hvers mánaðar eins
og þau eiga að gera. Samanlagt
skulda þau nú Palestínumönnum 600
milljónir Bandaríkjadala [41,5 millj-
arða króna] og hefur fjárskorturinn
leitt til þess að stjórnin getur ekki
staðið við skuldbindingar sínar.“
Missa sjónina í fangelsum
Amro segir aðbúnað fatlaðra í Pal-
estínu því fara ört versnandi.
„Nú eru um 320 fatlaðir í haldi Ísr-
aelshers sem hefur um 10.000 Pal-
estínumenn í haldi. Helmingi þess-
ara fanga, eða um 5.000, var rænt.
Margir þeirra hafa ekki aðgang að
nauðsynlegum lyfjum og vitað er um
nokkra sem eru að missa sjónina
vegna þess að þeim er neitað um
læknishjálp. Jafnframt er vitað að
Ísraelsmenn gefa palestínskum
föngum verkjalyf við öllum sjúk-
dómum, óháð alvarleika þeirra.“
Amro, sem er 41 árs, missti sjón á
vinstra auga á sjöunda aldursári
vegna sjúkdóms. Þegar hann var
rétt liðlega tvítugur árið 1987 missti
hann sjónina á því hægra, í kjölfar
táragasárásar Ísraelshers í Hebron,
þar sem hann var við háskólanám.
Hann fékk svo Fulbright-styrk til
háskólanáms í Bandaríkjunum og
vill taka fram að honum sé vel við
bandarísku þjóðina, mun síður við
stjórnvöld í Washington sem ávallt
fylgi Ísraelsmönnum að máli.
Hann er harðorður í garð Yitzhak
Rabins, fyrrverandi forsætis- og
varnarmálaráðherra Ísraels, og svo-
kallaðrar „beinbrotsstefnu“ hans,
sem tekin hafi verið upp á dögum
fyrstu uppreisnar Palestínumanna á
níunda áratugnum og ætlað var að
örkumla sem flesta Palestínumenn.
„Með þessu hugðist Rabin komast
hjá fordæmingu alþjóðasamfélags-
ins, þar eð morð þykja fréttnæmari
en örkuml, auk þess sem þannig var
komið í veg fyrir að þeir sem urðu
fyrir árásum Ísraelshers gætu orðið
píslarvottar. Það er vitað að 18.000
Palestínumenn örkumluðust á dög-
um fyrri uppreisnarinnar og 6.000 til
viðbótar frá því sú síðari hófst í októ-
bermánuði árið 2000. Þúsundir
manna hafa því örkumlast. Þá hafa
110 fatlaðir Palestínumenn verið
myrtir á síðustu sex árum.“ Fræg sé
sagan af því þegar ísraelskur skrið-
dreki ók yfir mann í hjólastól.
Verða að viðurkenna þjóðstjórn
Spurður um hótun Khaleds
Meshaal, æðsta leiðtoga Hamas, um
að hefja þriðju uppreisnina innan sex
mánaða ef ekki tækist að koma á
friði segir Amro aðra uppreisnina
enn í fullum gangi og sú þriðja myndi
líklega fela í sér harðari aðgerðir.
Þess má geta að Meshaal hefur
dregið hótunina til baka.
„Fyrir nokkrum dögum sendu
Hamas-samtökin frá sér tímamóta-
yfirlýsingu um að þau væru tilbúin
að hefja friðarviðræður við Ísr-
aelsmenn um stofnun palestínsks
ríkis þar sem landamæri Ísraels eins
og þau voru fyrir sexdagastríðið árið
1967 verða lögð til grundvallar.“
Aðspurður að lokum um væntan-
lega þjóðstjórn Palestínumanna seg-
ir Amro að stjórnvöld í Bandaríkj-
unum og Ísrael hafi áður lagst gegn
myndun hennar og að þegar hún
liggi fyrir eigi þau engra annarra
kosta völ en að hefja friðarviðræður
að nýju, viðræður sem Sameinuðu
þjóðirnar ættu að leiða.
„Þúsundir hafa
örkumlast“
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Baráttumaður Ziad Amro gætir hagsmuna fatlaðra Palestínumanna.
Hann hefur litla trú á friðarvilja Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels.
ÁHUGASAMUR starfsmaður vöru-
sýningar í Peking fylgist spenntur
með þegar vélmennið Seisaku-kun
gerir tilraun til að hjóla upp litla
brekku. Að sögn dagblaðsins China
Daily, er Seisaku-kun fremst á sínu
sviði þegar kemur að hjólreiðum,
enda sérhannað til að herma eftir
hreyfingum mannslíkamans.
Talið er að í náinni framtíð muni
vélmenni verða sjálfsagður hluti
lífsins á hverju heimili.
Reuters
Skyldi það hafa það?
Suva. AP, AFP. | Yfirmaður hers
Fídjí-eyja, Frank Bainimarama,
sagði í gær að viðræður og for-
sætisráðherra eyjanna hefðu farið
út um þúfur og hann hótaði að
steypa stjórninni af stóli í dag ef
hún yrði ekki við kröfum hans.
Bainimarama gaf forsætisráð-
herranum Laisenia Qarase og
stjórn hans frest til hádegis að
staðartíma í dag, á miðnætti að ís-
lenskum tíma, til að verða við
kröfum hans, meðal annars um að
hætta við þrjú umdeild lagafrum-
vörp og víkja lögreglustjóra
eyjanna formlega frá.
Skömmu áður hafði Qarase lýst
því yfir að stjórnin hygðist fresta
afgreiðslu lagafrumvarpanna sem
herinn hefur lagst gegn. Í einu
frumvarpanna er kveðið á um sak-
aruppgjöf til handa mönnum sem
rændu völdunum árið 2000. Bain-
imarama segir að hin frumvörpin
tvö ívilni frumbyggjum á kostnað
Fídjí-búa af indverskum uppruna.
Qarase sagði að afgreiðslu frum-
varpanna yrði frestað til að óháð
nefnd gæti skorið úr um hvort þau
brytu í bága við stjórnarskrána.
Forsætisráðherrann sagði að
lögreglustjóri eyjanna, Ástralinn
Andrew Hughes, yrði í leyfi þar til
ákveðið yrði hvort endurnýja ætti
ráðningarsamning hans. Qarase
hét því einnig að styðja ríkissak-
sóknara eyjanna ef hann kæmist
að þeirri niðurstöðu að ekki bæri
að ákæra Bainimarama fyrir nýleg
ummæli hans um stjórnina. Lög-
reglustjórinn er sagður vera
hlynntur því að Bainimarama verði
ákærður fyrir áróður gegn stjórn-
inni.
Her Fídjí-eyja sýnir
stjórninni klærnar
! "#
* +(
),&(-, . . (-/ , (-, ) (+- (
+ 0(
1 ( )( )
/