Morgunblaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 2006 25
SUÐURNES
PÓSTSENDUM
www.simnet.is/heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Árnesapóteki Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði
Glucosamine 1000 mg í hverri töflu
Sodium- og skelfiskfrítt
Glucosamine
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Ég var svo oft að
leita mér að ákveðnum fötum og
fann ekki neitt. Ég varð því bara að
sauma þau sjálf,“ sagði Alda
Sveinsdóttir fatahönnuður sem
hannar föt undir vörumerkinu iD-
Alda og selur í eigin verslun í
Reykjanesbæ. Hún sagðist jafn-
framt hafa verið umvafin saumandi
og heklandi konum á sínum yngri
árum sem gætu hafa haft áhrif á þá
ákvörðun hennar að læra fatahönn-
un.
Ljósanótt í Reykjanesbæ hefur
gjarnan verið vettvangur mikillar
gerjunar í menningarlífi Reykja-
nesbæjar og jafnframt hafa íbúar
notað tækifærið og látið gamlan
verslunardraum rætast. Alda
Sveinsdóttir fatahönnuður er einn
af þessum íbúum en hún opnaði
Rokk Smiðjuna í bílskúr við heimili
sitt á Suðurgötu, sem selur fatnað
og fylgihluti. Margir halda að Rokk
Smiðjan hafi einungis verið Ljós-
anæturuppákoma en svo er aldeilis
ekki og að sögn Öldu er hún á fullu
við markaðssetningu samhliða
saumaskapnum. „Mig hafði langað
til að opna vinnustofuna mína og
þessi stóri bílskúr gaf mér það
tækifæri. Ég sit því við saumavélina
ef rólegt er í búðinni.“
Suðurnesjaverslun
Eins og nafn verslunarinnar gef-
ur til kynna svífur rokkið yfir vötn-
um og Alda segist vera bæði mikið
fyrir rokkið og pönkið. „Þemað í
nýju fatalínunni minni er rokk í
rómantík. Ég er mjög rokkuð og
pönkuð í litavali, nota mikið skæra
liti eins og rautt og blátt, ásamt
svörtu og hvítu. Rómantíkin er hins
vegar í blúndunum, rykkingunum
og dúlleríinu í fötunum.“
Í bland við hönnun býður Alda
upp á sérvaldar notaðar kvenflíkur
og fylgihluti sem koma ýmist frá
Bretlandi eða Danmörku, en slíka
verslun fannst henni vanta í bæj-
arfélagið. Áhugi á notuðum fötum
hefur gjarnan verið tengdur við
ungt fólk en Alda segir það hafa
komið sér ánægjulega á óvart að
konur á öllum aldri komi í versl-
unina. „Ég held nú stundum að þær
villist hér inn en svo er ekki. Tískan
undanfarið hefur verið á þá leið að
blanda saman notuðum fötum og
nýjum og það er ekki bara unga
fólkið sem hefur áhuga á því. Ég hef
fengið mjög góðar viðtökur síðan ég
opnaði og mér finnst það mjög
ánægjulegt að mest selst af minni
hönnun. Konur koma kannski til að
kaupa notuð föt en fara svo út með
eitthvað af mínum fötum,“ sagði
Alda sem jafnframt selur hönnun
annarra Suðurnesjakvenna. „Mig
langar til að hafa þetta svona Suð-
urnesjaverslun og þær sem eru að
selja verkin sín hér eru tvíburasyst-
urnar keflvísku, Gunnhildur og
Brynhildur Þórðardætur, sem
hanna undir merkinu Lúka Art &
Design, og Lóla pönk eða Linda
Guðmundsdóttir úr Garðinum.“
Úr ferðamálafræði í hönnun
– En hvers vegna fór kona sem er
menntaður ferðamálafræðingur í
fatahönnun?
„Það var nú eiginlega margt sem
kom til,“ sagði Alda. „Ég hafði nú
aðallega farið í ferðamálafræði
vegna nálægðarinnar við flugstöð-
ina og þótt ég hafi klárað námið þá
fann ég mig aldrei nógu vel. Svo
þegar maðurinn minn fór í kvik-
myndanám til London ákvað ég að
kynna mér hönnunarskóla og var
svo lánsöm að það var eitt laust
pláss í London Center for Fashion
Studies og þaðan lauk ég námi árið
2004. Ég fann strax að þetta var
eitthvað dýpra og meira fyrir mig.
Þrátt fyrir að hafa ekki alltaf haft
brennandi áhuga á fatahönnun sem
slíkri hafði ég samt sem áður alltaf
dregist að öllu tengdu listum og fag-
urfræði. Það var held ég bara tíma-
spursmál hvenær ég fyndi það sem
hentaði mér. Ferðamálafræðin var
að mestu leyti góður atvinnumögu-
leiki fyrir mér en fatahönnunin opn-
aði nýjar dyr að sköpun og lífs-
ánægju þótt hún sé eilítið
áhættusamari atvinnugrein. En
hamingjan er áhættunnar virði,“
sagði Alda Sveinsdóttir og sagðist
sjá möguleika í því að nýta ferða-
málafræðina í markaðssetningu
hönnunar sinnar fyrir erlenda
ferðamenn.
Rokkuð og rómantísk föt
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Hönnuður Alda Sveinsdóttir selur eigin hönnun og annarra Suður-
nesjamanna í verslun sinni og opinni vinnustofu í Reykjanesbæ.
Í HNOTSKURN
»Alda Sveinsdóttir lærðiferðamálafræði en sneri
sér fljótt að hönnun.
»„Fatahönnunin opnaði nýj-ar dyr að sköpun og lífs-
ánægju.“
Alda Sveinsdóttir
selur eigin föt í
opinni vinnustofu
TENGLAR
............................................
www.myspace.com/idalda
Grindavík | „Ég hef stefnt að þessu lengi,
alveg frá því ég fylgdist með systur minni í
þessari keppni,“ segir Stefanía Ósk Mar-
geirsdóttir, píanónemandi í Tónlistarskól-
anum í Grindavík, en
hún náði öðru sæti í
miðstigi í keppni píanó-
nemenda sem EPTA,
Evrópusamband píanó-
kennara, hélt nýlega í
Salnum í Kópavogi.
Tónlistarskóli Grinda-
víkur birti frétt um
þetta á vef bæjarins.
Stefanía Ósk segir að
sér hafi þótt það svo
spennandi þegar Dína
María, eldri systir hennar, tók þátt í
keppninni fyrir þremur árum að hún hafi
ákveðið að taka sjálf þátt. Síðan hafi hún
fengið mikla hvatningu frá píanókenn-
aranum, Önnu Málfríði Sigurðardóttur.
Hún hefur æft sig fyrir þessa keppni í
hálft ár. Segir að það hafi verið strembið
enda sé mikil vinna að fínpússa lögin
þannig að hún nái þeim fullkomlega.
Stefanía er fimmtán ára gömul, nem-
andi í tíunda bekk Grunnskóla Grindavík-
ur og hefur auk þess stundað píanónám
frá átta ára aldri.
Hún hefur verið dugleg að koma fram í
bænum. Leikið á tónleikum á vegum tón-
listarskólans og við ýmis tækifæri í grunn-
skólanum og á hjúkrunarheimilinu. Hún
segist hafa fengið mikla æfingu í að koma
fram og sviðsskrekkurinn hafi lagast mik-
ið að undanförnu.
Hún stefnir að því að halda áfram í tón-
listarnámi en framtíðin er að öðru leyti
óráðin. „Fótboltinn, vinirnir og fjöl-
skyldan,“ segir Stefanía þegar hún er
spurð um önnur áhugamál. Hún varð þó
að sleppa úr æfingum í knattspyrnunni
þegar álagið var sem mest í undirbúningi
fyrir píanókeppnina.
Þá er hún að stofna hljómsveit með vin-
um sínum, segist bara eiga eftir að útvega
sér hljómborð. Stefanía reiknar með að
þetta verði rokkhljómsveit.
Lengi stefnt
að þátttöku
Stefanía Ósk
Margeirsdóttir
AUSTURLAND
Vopnafjörður | Úrslit spurninga-
keppninnar Með íslenskuna að
vopni, sem haldin var meðal grunn-
skóla á Austurlandi í tengslum við
dag íslenskrar tungu, urðu á þann
veg að b-lið grunnskólans Egilsstöð-
um og Eiðum bar sigur úr býtum.
Atti liðið kappi við grunnskólann á
Fáskrúðsfirði í úrslitakeppninni,
sem haldin var á Vopnafirði. Grunn-
skóli Vopnafjarðar varð í þriðja sæti.
Í verðlaun fékk sigurliðið 200 þús-
und krónur, Fáskrúðsfjarðarkepp-
endur 100 þúsund og þeir vopnfirsku
50 þúsund. Féð rennur væntanlega
til nemendastarfs viðkomandi skóla.
Karl Th. Birgisson samdi spurningar
og var spyrill og dómari Gunnar
Gunnarsson blaðamaður. Sigríður
Dóra Sverrisdóttir á Vopnafirði
skipulagði keppnina og er stefnt að
því að hún verði árlega.
Nemendur á Egilsstöðum
unnu íslenskukeppni
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Sigurvegarar Anna Berglind, Svav-
ar og Magnhildur í Egilsstaðaskóla.
Eskifjörður | Bergen, gömul nóta-
stöð og eitt af elstu húsunum á Eski-
firði gengur nú í endurnýjun lífdag-
anna sem lúxushúsnæði.
Fjárfestingarfélagið Klif ehf. er að
hefja framkvæmdir við að endurgera
þetta gamla timburhús sem 6 íbúða
fjölbýlishús. Það stendur við fjöruna
miðsvæðis á Eskifirði.
Íbúðir verða á tveimur hæðum,
nema turníbúð sem verður á þriðju
hæð. Þær eru ýmist þriggja eða fjög-
urra herbergja og frá 78,8 fermetr-
um upp í 117,8 fermetra hver og
verður verð um 200 þúsund krónur á
fermetra.
Íbúðunum fylgir stór verönd sem
liggur að fjörunni og svalir sem
verða á efri hæðunum með útsýn yfir
fjörðinn.
Einkabryggja fylgir húsinu
Allar íbúðir afhendast fullbúnar
með parketi á gólfum, flísalögðum
baðherbergjum og uppsettum tækj-
um. Utandyra verður jörðin þöku-
lögð og malbikað að inngangi með
aðgengi fyrir ýmiss konar neyðar-
þjónustu.
Upplýst grjóthleðsla og bryggja
er við fjöruborðið, en húsinu fylgir
sérbryggja.
Boðið er upp á möguleika á vali á
innréttingum og gólfefnum ef gengið
er frá kaupum fyrir 15. desember og
heitir Klif þeim sem það gera glaðn-
ingi að andvirði 180 þúsunda króna.
Baldvin Samúelsson hjá Klifi segir
áætluð verklok í byrjun apríl á næsta
ári og sé stefnt að því að afhenda
fyrstu íbúðirnar mánuði fyrr.
Vígsla skólamannvirkja í dag
Í dag verða ný skólamannvirki
vígð á Reyðarfirði. Eru það nýbygg-
ingar við leikskólann Lyngholt og
grunnskóla Reyðarfjarðar, sem
einnig mun hýsa tónlistarskóla Eski-
fjarðar og Reyðarfjarðar ásamt al-
menningsbókasafni. Að auki hafa
farið fram endurbætur á eldra hús-
næði skólans. Um einum og hálfum
milljarði hefur verið varið til endur-
bóta á grunnskólum Reyðarfjarðar,
Eskifjarðar og í Neskaupstað frá
árinu 1998. Vígsluathöfnin á Reyð-
arfirði hefst kl. 16 í sal grunnskólans.
Þá verður á sunnudag opið hús í
Melgerði 13 á Reyðarfirði, nýju fjöl-
býlishúsi fyrir eldra fólk, og er þar
einnig þjónusturými fyrir eldri borg-
ara. Fasteignafélag Austurlands ehf.
reisti húsið og býður fólki að skoða
það milli kl. 14 og 16.
Gamla nótastöðin
verður glæsibygging
Afstöðumynd/Klif ehf.
Bryggjuhús Gamla nótastöðin í fjörunni um miðbik þorpsins á Eskifirði
umbyltist brátt í fallegt fjölbýlishús með fagurri útsýn og einkabryggju.
Gamla Bergenhúsið
á Eskifirði gert upp
sem fjölbýli í fjöru
Í HNOTSKURN
»Gera á upp gamla nótastöðsem stendur í fjörunni í
miðju þéttbýlis á Eskifirði.
»6 íbúðir verða í húsinu ogá tveimur hæðum.
»Skólamannvirki á Reyðar-firði verða vígð í dag.
Borgarfjörður eystri | Bakkagerðis-
kirkja á Borgarfirði eystra er 105
ára um þessar mundir. Hún var vígð
á fyrsta sunnudegi í aðventu árið
1901. Um fimm ára skeið hefur verið
unnið að viðgerðum á kirkjunni og
er þeim nú að mestu lokið. Nk.
sunnudag verður messað í Bakka-
gerðiskirkju þar sem þessa verður
minnst. Sóknarnefnd Bakkagerð-
iskirkju hefur einnig unnið að end-
urbótum á húsinu Heiðargerði á
Borgarfirði í samstarfi við Heil-
brigðisstofnun Austurlands og er
þar nú sameiginleg starfsaðstaða
fyrir heilsugæslu, söfnuð og sókn-
arprest, sr. Jóhönnu Sigmarsdóttur.
Vígslubiskup Hólastiftis, hr. Jón Að-
alsteinn Baldvinsson, prédikar við
messuna í Bakkagerðiskirkju og
blessar safnaðarheimili og heilsu-
gæslusel í Heiðargerði. Sóknar-
nefnd býður til kaffisamsætis í
Fjarðarborg að messu lokinni.
Bakkagerðis-
kirkja 105 ára