Morgunblaðið - 01.12.2006, Qupperneq 54
|föstudagur|1. 12. 2006| mbl.is
staðurstund
Leikkonan Ilmur Kristjánsdóttir
hefur verið áberandi upp á síð-
kastið prýdd rauðu nefi. Ilmur
er aðalskona vikunnar. » 57
íslenskur aðall
Ragna Sigurðardóttir fjallar um
sýningu á myndskreytingum
barnabóka sem stendur yfir í
Gerðubergi. » 57
af listum
Anna Sveinbjarnardóttir skellti
sér á ítölsku kvikmyndina Gerið
eins og við á kvikmyndahátíð í
Háskólabíói. » 58
kvikmyndir
„Rými sumra skúlptúra Katr-
ínar Sigurðardóttur getur
minnt á fimmtándu aldar mál-
verk …“ » 59
myndlist
Sigur Rós opnaði í gær sýningu
á myndum sem meðlimir sveit-
arinnar tóku í Svasílandi á
haustdögum. » 61
fólk
Í kvöld mun hljómsveitinTodmobile stíga á svið frammifyrir alþjóð og halda útgáfu-tónleika í beinni útsendingu
úr sjónvarpssal Ríkisútvarpssins.
Verða þar flutt lög af nýju plötunni
Ópus 6 ásamt þekktum lögum frá
langri sögu Todmobile.
Þau Andrea Gylfadóttir, Eyþór
Arnalds og Þorvaldur Bjarni Þor-
valdsson hafa nýlokið æfingu í hljóð-
veri Þorvaldar í Kópavoginum þeg-
ar blaðamann ber að garði. Það
virðist liggja nokkuð vel á þeim og
ekki laust við að það sé ákveðin
spenna í loftinu enda ekki á hverjum
degi sem menn halda útgáfutónleika
í beinni útsendingu.
„Ópus 6 er fyrsta platan sem við
þrjú gefum út saman síðan platan
Spillt kom út árið 1993,“ segir Ey-
þór sem situr ásamt Þorvaldi og
Andreu í sófa í upptökurými hljóð-
versins. „Þó höfum við komið að
ýmsu síðan þá,“ heldur Þorvaldur
áfram. „Við gerðum „best of“-plötu
og ein plata var gerð á meðan Eyþór
var í fríi árið 1996. Einnig kom út
DVD-útgáfa og plata með tónleik-
unum sem við héldum með Sinfó.“
Í upphaflegri mynd
Tónleikar Todmobile með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands árið 2003 voru
ákveðinn vendipunktur í sögu
hljómsveitarinnar. Þá sneri Eyþór
aftur til liðs við sveitina og þar með
var Todmobile komin í sína upp-
runalegu mynd. Í kjölfarið fór sveit-
in að spila meira og semja nýtt efni.
„Þegar við hættum á sínum tíma
vorum við eiginlega búin að gera allt
sem hægt var að gera að okkar
mati,“ útskýrir Eyþór. „Við vorum
búin að fá öll hugsanleg verðlaun og
einnig það sem sjaldan fæst: góða
gagnrýni og góða plötusölu. Við
hættum fyrir fullu húsi. Þegar hug-
myndin að tónleikunum með Sinfón-
íuhljómsveitinni kom upp fannst
okkur það góður vettvangur til að
taka upp þráðinn, enda voru útsetn-
ingarnar á gömlu lögunum alltaf
hugsaðar svona „sinfónískar“,“
skýtur Þorvaldur inn í. „Þessir tón-
leikar tókust grefilli vel og urðu til
þess að okkur fannst vera kominn
tími til að skapa nýtt efni og spila
meira og það höfum gert með þess-
um ópusi.“
Tónleikar í Barcelona
Upptökur á Ópus 6 hófust í vor
ásamt þeim Eiði Arnarssyni bassa-
leikara, Ólafi Hólm trommuleikara
og Kjartani Valdemarssyni hljóm-
borðsleikara. Einnig fengu þau til
liðs við sig strengjakvartettinn The
Reykjavík Sessions Quartet. Þegar
búið var að taka upp alla grunna að
lögunum héldu þau Andrea, Eyþór
og Þorvaldur til Barcelona og tóku
þar upp restina.
„Við leigðum okkur heilmikið hús
í Barcelona og dvöldum þar í um
þrjár vikur,“ segir Þorvaldur og
bætir við að slæmt símasamband og
netleysi hafi hjálpað mikið til.
„Þarna náðum við góðri einbeit-
ingu og tókum upp allan sönginn og
öll smáatriði.“
„Þetta er virkilega gefandi um-
hverfi,“ segir Andrea og dregur ekki
dul á hrifningu sína á borginni frek-
ar en drengirnir. Og þau stefna á að
halda tónleika þarna með vorinu á
þeim slóðum þar sem þau bjuggu.
„Við höfðum að leiðarljósi þegar
við sömdum lögin að það yrði gaman
að spila þau á tónleikum,“ útskýrir
Þorvaldur.
„Todmobile er náttúrlega mikið
tónleikaband þannig að það liggur
beinast við að hugsa á þeim nótum,“
bætir Andrea við.
Hvort nýju lögin séu Todmobile-
leg segir Eyþór að hver og einn
þurfi að dæma um það.
„Hljómsveitin hefur í raun og
veru farið mjög víða í mús-
íksköpun,“ segir hann. „Við erum
alltaf að leita að einhverju nýju.“
„Það má segja að það Todmobile-
legasta við plötuna sé að á henni
kennir ýmissa grasa. Það eru marg-
ar ólíkar stemningar á henni,“ bætir
Þorvaldur við.
Frammi fyrir alþjóð
Hljómsveitin Todmobile hefur
ávallt lagt mikinn metnað í útgáfu-
tónleika sína. Fyrstu útgáfu-
tónleikar þeirra voru haldnir í Ís-
lensku óperunni árið 1989, en í þann
tíð tíðkaðist ekki að halda slíka tón-
leika þar.
„Okkur finnst því við hæfi að fara
nýja leið núna með þessari plötu,“
segir Eyþór en eins og fyrr segir
verða útgáfutónleikar Ópus 6 haldn-
ir í beinni útsendingu úr sjónvarps-
sal.
„Okkur langaði líka til að bjóða
þjóðinni í heild sinni á tónleikana,“
segir Andrea.
„Þetta er náttúrlega ofboðslega
mikil áskorun,“ heldur Þorvaldur
áfram og segir að ýmislegt geti farið
úrskeiðis með svona sjónvarps-
tónleika. „Það gefur bara auka-
adrenalín.“
Bjóða þjóðinni á tónleika
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Ópus 6 Todmobile með þeim Eyþóri, Andreu og Þorvaldi Bjarna stígur á stokk í sjónvarpssal í kvöld.
Hljómsveitin Todmobile heldur
útgáfutónleika í sjónvarpssal
Eftir Þormóð Dagsson
thorri@mbl.is
ÞAÐ verður mikið um að vera í
Hafnarborg klukkan 17 í dag. Þá
verða opnaðar þrjár ólíkar sýningar
í listamiðstöðinni sem að standa fjór-
ir listamenn.
Í Sverrissal og Apóteki sýnir Sig-
rún Guðjónsdóttir, Rúna, stein-
leirsmyndir og verk unnin á pappír
með akrýl, olíukrít, pastel og bleki,
en Rúna hefur unnið mikið með jap-
anskan pappír, sem er efnismikill og
gljúpur og því ólíkur efniviður stein-
leirnum sem hún hefur haldið tryggð
við í gegnum tíðina. Sýningin nefnist
Ofið úr þögninni.
Í Bogaskálanum opnar Guðný
Magnúsdóttir innsetningu sem hún
kallar Snjó. Listakonan segir verkið
vera á mörkum myndlistar og hand-
verks, hins huglæga og þess efn-
islega.
Ígulker, kuðungar og vír
Þeir Jean Antonine Posocco og
Yngvi Guðmundsson sýna svo verk
sín í kaffistofunni. Verk Yngva eru
unnin úr ígulkerum, kuðungum og
vír en Jean Antonine sýnir mynd-
skreytingar úr bókinni Rakk-
arapakk.
Hafnarborg er opin alla daga
nema þriðjudaga frá klukkan 11 til
17. Á fimmtudögum er opið frá
klukkan 11 til 21.
Sýningunum lýkur laugardaginn
30. desember.
Þrjár sýningar
í Hafnarborg
Opnun Verk eftir Rúnu sem opnar sýningu í Hafnarborg í dag.
Ólíkar sýningar fjögurra listamanna