Morgunblaðið - 05.12.2006, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 15
ERLENT
Washington. AFP. | George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, mun ekki út-
nefna John Bolton til áframhaldandi
setu sem sendi-
herra Bandaríkja-
stjórnar hjá Sam-
einuðu þjóðunum,
þegar embættis-
tíð hans rennur út
síðar í desember,
að því er kom
fram í yfirlýsingu
Hvíta hússins.
„Forsetinn hef-
ur með semingi
samþykkt ákvörðun John Boltons,
sendiherra Bandaríkjastjórnar hjá
Sameinuðu þjóðunum, að störfum
hans fyrir stjórnina ljúki þegar emb-
ættistíð hans rennur út,“ sagði Dana
Perino, talskona Hvíta hússins.
Útnefning Boltons var umdeild á
sínum tíma en eftir sigur demókrata í
kosningunum í nóvember þótti ljóst
að dagar hans hjá SÞ væru taldir.
Bolton segir
af sér hjá SÞ
John Bolton
PALESTÍNSKIR mótmælendur halda uppi myndum af
föngum í haldi Ísraelsmanna, þ.m.t. af Marwan
Barghouti, leiðtoga Fatah-hreyfinginnar, fyrir utan
egypska sendiráðið á Gaza-svæðinu í gær. Kröfðust
mótmælendurnir lausnar fanganna. Omar Suleiman,
yfirmaður egypsku leyniþjónustunnar, átti í síðustu
viku fund með ísraelskum ráðamönnum, í því skyni að
ryðja úr vegi mikilvægri hindrun fyrir friðarferlinu,
nefnilega þeirri staðreynd að nú eru hátt í 10.000 pal-
estínskir fangar í ísraelskum fangelsum.
Tzipi Livni, utanríkisráðherra Ísrael, fer til Frakk-
lands í næstu viku þar sem hún mun eiga fund með
Jacques Chirac, forseta landsins, Philippe Douste-
Blazy utanríkisráðherra og öðrum ráðamönnum.
AP
Krefjast lausnar úr haldi Ísraelsmanna
Caracas. AFP. | Vinstrisinninn Hugo
Chavez fagnaði endurkjöri sínu í
forsetakosningunum í Venesúela
innilega aðfaranótt mánudags er
hann strengdi þess heit að stuðla
að „byltingarlýðræði“ í landinu, um
leið og hann sendi helsta fjandvini
sínum, Bandaríkjastjórn, tóninn.
„Yfir 60 prósent [kjósenda]
greiddu áætlun sósíalista atkvæði
sitt,“ sagði Chavez, þar sem hann
stóð í sigurvímu á svölum for-
setahallarinnar í höfuðborginni
Caracas.
Írönsk stjórnvöld fögnuðu úrslit-
um kosninganna en áður hafði ver-
ið haft eftir forsetanum að hann
legði nú áherslu á góð tengsl við
bandarísk stjórnvöld, þvert á fyrri
stefnu.
Forsetinn notaði hins vegar
tækifærið og sendi George W.
Bush, forseta Bandaríkjanna, tón-
inn við mikinn fögnuð stuðnings-
manna sinna sem létu ekki grenj-
andi rigningu aftra sér frá því að
taka þátt í fögnuðinum með leið-
toganum. „Þetta er enn einn ósigur
heimsveldis Herra Hættu,“ sagði
Chavez og vísaði til sögupersónu,
bláeygðs Bandaríkjamanns sem
stelur landi frá grunlausum kot-
bændum, í skáldsögu Rómulos
Gallegos frá árinu 1929.
Annar „ósigur djöfulsins“
„Þetta er annar ósigur fyrir
djöfulinn sem vill drottna yfir
heiminum,“ sagði leiðtoginn og
endurtók umdeild ummæli sín um
Bush.
Hann lét þó ekki staðar numið
heldur sendi Kúbuleiðtoganum
Fidel Castro, sem að öllum lík-
indum liggur fyrir dauðanum,
„bróðurlega kveðju“ og sneri sér
því næst að líkneski af Jesú Kristi
og bað almættið um guðlega leið-
sögn.
„Þetta er bylting,“ sagði verka-
maðurinn Juan Carlos Braca-
monte, sem ferðaðist 450 km til að
berja leiðtogann umdeilda augum.
Sigurreifur Chavez boðar
áherslu á „byltingarlýðræði“
Í HNOTSKURN
»Chavez leiddi misheppnaðvaldarán hersins árið 1992
og náði fyrst kjöri sex árum
síðar, árið 1998, og svo endur-
kjöri til sex ára árið 2000.
»Þegar 78% atkvæða höfðuverið talin hafði Chavez
hlotið 61,35% atkvæða en and-
stæðingur hans, jafnaðarmað-
urinn Manuel Rosales, 38,39%.
Reuters
Í sigurvímu Hugo Chavez fagnar
sigrinum aðfaranótt mánudags.
Varsjá. AFP. | Andrzej Lepper, land-
búnaðarráðherra Póllands, og einn
nánasti samstarfsmaður hans eru
undir rannsókn vegna ásakana um
að ráðherrann hafi þvingað konu til
að hafa við sig mök í staðinn fyrir
starf hjá flokki sínum, Sjálfsvarnar-
flokknum. Janusz Kaczmarek ríkis-
saksóknari hóf rannsóknina á ákær-
unum sem geta leitt til allt að átta
ára fangelsisvistar.
Lepper, sem er fyrrverandi svína-
bóndi og hnefaleikamaður, er að-
stoðarforsætisráðherra og leiðtogi
flokks síns. Pólitísk framtíð hans er
nú í uppnámi eftir að dagblaðið Gaz-
eta Wyborcza birti í gær viðtal við
einstæða tveggja barna móður sem
fullyrti að hún hefði verið þvinguð til
að hafa mök við Lepper í staðinn fyr-
ir starf hjá flokknum, boð sem hún
hefði ekki getað hafnað sökum fjár-
hagsstöðu sinnar. Sagðist hún líka
hafa þurft að hafa mök við sam-
starfsmanninn til að halda stöðunni.
Lepper und-
ir rannsókn
Motorlift
Ke›judrifnu Chamberlain Motorlift bílskúrshur›aopnararnir
eru öflugir og sterkbygg›ir og fást fyrir allar stær›ir og ger›ir
bílskúrshur›a. Motorlift er me› kröftugum en hljó›látum
mótor og flægilegri fjarst‡ringu sem au›veldar umgengni
um bílskúrinn e›a geymsluhúsnæ›i› í hva›a ve›ri sem er.
Motorlift fæst í byggingavöruverslunum um land allt.
bílskúrshur›aopnarar
Fí
to
n
/
S
ÍA
ME‹ ÍSLENSKUM LEI‹BEININGUM.
THE MBA THAT TAKES CHINA SERIOUSLY
introduced by BI Norwegian School of Management
In addition to the full-time MBA program, BI also offers:
• An 18 month part time Executive MBA in cooperation with ESCP-EAP
• Two-year Master programs in Business, Financial Economics, International Marketing & Management
(one year in Norway and one year in Germany, UK, France or Singapore)
• Two-year part time Executive MBA in Technology Management in cooperation with NIT in Hamburg
Information meeting on Thursday November 7th
at 17.00 at hotel Nordica, Reykjavik
For further information, please contact Program Manager Ellen H. Berg: Tel: +47 46 41 00 65
e-mail: ellen.h.berg@bi.no or mba@bi.no www.bi.edu