Morgunblaðið - 05.12.2006, Blaðsíða 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ FriðgerðurBára Daníels-
dóttir, ávallt nefnd
Fríða, fæddist í
Reykjavík 27. nóv-
ember 1942. Hún
lést á heimili sínu
23. nóvember síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Daníel
Ellert Pétursson, f.
13. júní 1900, d. 14.
júní 1977, og Guð-
laug Jónína Jóhann-
esdóttir, f. 18. mars
1910, d. 31. maí
1969. Systkini Fríðu eru: Einar, f.
6. september 1927, d. 8. maí 2001,
Vigdís, f. 15. febrúar 1935, Mál-
fríður Agnes, f. 25. nóvember
sínu, m/s Selfossi, 27. mars 2001.
Foreldrar hans voru hjónin Finn-
bogi Kristjánsson skipstjóri og
Lovísa S. Elífasdóttir húsmóðir.
Uppeldisfaðir hans var Einar G.
Helgason. Börn þeirra Fríðu og
Finnboga eru: 1) Sigríður, f. 9.
september 1961. Börn hennar og
Jóns Hrafns Guðjónssonar eru: a)
Hrafnhildur Karla, maki Benedikt
Magnússon, sonur þeirra Magnús
Indriði, b) Guðjón Arngrímur og c)
Stefán Karl. 2) Lilja Björk, f. 20.
mars 1963, maki Rúnar Kjart-
ansson, dætur þeirra eru Jónína
Bára og Sigríður Sandra. Af fyrra
hjónabandi á Lilja þá a) Finnboga
Ríkharðsson, maki Marit Hveding,
börn þeirra eru Michell og Alex-
ander og b) Sævar Ríkharðsson. 3)
Kristján Finnbogi, f. 8. maí 1971.
Börn hans og Maríu Báru Jón-
atansdóttur eru Arnar Daníel og
Kristín Ásta.
Fríða verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
1936, d. 3. febrúar
2006, Pétur Jóhann-
es, f. 16. september
1938, d. 26. maí 1979,
Jónína Helga, f. 3.
september 1940, Örn
Sævar, tvíburabróðir
Fríðu, f. 27. nóv-
ember 1942, Gunn-
laugur Guðmundur,
f. 15. ágúst 1945, d.
30. nóvember 1998,
Unnur, f. 19. mars
1947, og Freyja Kol-
brún, f. 14. sept-
ember 1948.
Fríða giftist 26. desember 1961
Finnboga Finnbogasyni skip-
stjóra, f. í Reykjavík 11. sept-
ember 1940, d. um borð í skipi
Elsku amma, nú þegar þú ert
sofnuð svefninum langa þá streyma
fram minningarnar um þær fjöl-
mörgu stundir sem við áttum saman.
Það voru ófáar heimsóknirnar
sem enduðu á því að hvíslað var
,,amma, má ég gista?“ og ef útlitið
var svart var sparisvipurinn settur
upp og þá var sigurinn oftast unn-
inn. Svo var haldið út í sjoppu þar
sem við tókum spólu og keyptum ís
og nammi. Oftast var einnig farið
morguninn eftir í JL-húsið eða Kola-
portið, þaðan komum við yfirleitt
með ýmislegt góðgæti og dót.
Bestu kjötsúpu í heimi gerðir þú,
hún var svo ljúffeng að það var ekki
hægt að komast hjá því að borða
tvisvar yfir sig. Svo var hún enn ljúf-
fengari þegar mamma og pabbi sáu
ekki til, því þá sigtaðirðu súpuna fyr-
ir mig, það fannst mér alltaf best.
Ég á alltaf eftir að muna eftir
fyrsta skiptinu sem ég kom með
Benna til þín. Við ætluðum bara að
fá eina spólu lánaða hjá þér, en þú
talaðir svo mikið við Benna, þurftir
að fá að vita allt um hann. Ég var
farin að skammast mín ansi mikið og
langaði orðið bara að hverfa ofan í
gólfið. En þarna þurfti hann að heita
því að elska mig alla ævi, aðeins
sautján ára. Þegar við loksins losn-
uðum þá var klukkan orðin svo
margt að við þurftum að fara beint
heim að sofa.
Allar þessar stundir og hinar ætla
ég að vera dugleg að segja Magnúsi
Indriða frá svo að hann muni alltaf
hvað hann átti elskulega langömmu.
Elsku amma, ég veit að afi tekur
vel á móti þér, nú þegar þið fáið að
vera aftur saman.
Þín
Hrafnhildur Karla,
Benedikt og Magnús Indriði.
Það fækkar í systkinahópnum af
Skúlagötunni, systkinum sem rík
eru af elsku og samkennd. Það var í
febrúar sl. sem við fylgdum Maddý
til grafar. Nú fylgjum við Fríðu syst-
ur hennar. Bræðurnir Pétur, Einar
og Gulli kvöddu með nokkurra ára
millibili.
Þegar litið er yfir farinn veg er
þarft fyrir okkur hin að vita, hve kát-
ínan, samheldnin og glaðværðin ein-
kenndi Skúlagötusystkinin. Minn-
ingabrot æskunnar með Fríðu og
fjölskyldu, gistinætur bæði í Hlíð-
unum og á Nesinu. Siglda frænkan
sem bar í okkur leyndardóma út-
landanna, útlenskt nammi, Andrésar
Andarblöð og myndatyggjó eru hug-
ljúfar æskuminningar.
Seinna varð það sjálfsagt í þínum
huga þegar þú sigldir með Boga að
versla fyrir aðra það sem ekki fékkst
hér eða var of dýrt. Flest af því var
eitt og annað sem verðandi og ný-
bakaðar mæður þurftu á að halda,
óléttuföt, barnaföt, rúm eða stólar
frá Mothercare. Bestu þakkir fyrir
einlæga gleði, greiðvikni og gjaf-
mildi. Votta ég Siggu, Lilju og Krist-
jáni og fjölskyldum þeirra samúðar-
kveðjur sem og eftirlifandi
systkinum hennar. Fríða mín, inni-
hald ljóðsins Einmana finnst mér
hafa átt við þig eftir makamissinn.
Hvíl í friði.
Hvílan er auð. Ég vaki. Vindur hvín
um vetrarnótt. Frá gluggans silkitjöldum
berst niður – sem af fjarlægum
úthafs – öldum;
ó að þær gætu borið mig til þín!
(Helgi Hálfdánarsson)
Jónína Holm.
Friðgerður Bára
Daníelsdóttir
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST
Þegar andlát ber að höndum
Önnumst alla þætti útfararinnar
ÚTFARARSTOFA
KIRKJUGARÐANNA
Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is
✝
Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför
ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa,
SIGURBJARNAR ÞORLEIFSSONAR,
Maríubaugi 123,
Reykjavík.
Hulda Fríða Ingadóttir,
Þorleifur Sigurbjörnsson, Catherine Elisabet Batt,
Magna Huld Sigurbjörnsdóttir, Ármann Fr. Ármannsson,
Ingi Guðmundsson, Hildur Pálsdóttir,
Jón Ó. Guðmundsson, Erla Guðný Gylfadóttir,
Andri Ingason, Birta Ingadóttir,
Sara Huld Ármannsdóttir, Thelma Huld Ármannsdóttir,
Alexander Batt Þorleifsson, Guðný Dís Jónsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
SESSELJA GÍSLADÓTTIR,
Hæðargarði 33,
er látin.
Jarðarför verður auglýst síðar.
Grétar Kjartansson,
Jón Kjartansson,
Jóhanna Kjartansdóttir, Ólafur Magnússon,
Guðrún Tómasdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
MAGÐALENA ÓLAFSDÓTTIR
húsmóðir,
Austurgerði 8,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn
27. nóvember.
Jarðarförin fer fram frá Bústaðakirkju í dag, þriðjudaginn 5. desember
kl. 13.00.
Hannes Vigfússon
Ómar Hannesson, Anna Karlsdóttir,
Elín Hannesdóttir,
Baldur Hannesson, Særós Guðnadóttir,
Haukur Hannesson,
Bryndís Hannesdóttir, Halldór Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
ÞÓRUNN SIGURBJÖRG SIGFÚSDÓTTIR,
Túngötu 2,
Grenivík,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudag-
inn 28. nóvember.
Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn
8. desember kl. 13:30.
Sigfús Jónasson, Sigurveig María Sigvaldadóttir,
Sigurður Marinó Kristjánsson,
Stefán Jónasson, Bryndís Albertsdóttir,
Þórður Jónasson, Fanney Lára Einarsdóttir,
Birgir Jónasson, Þórdís Hólmfríður Jónsdóttir,
Þorbjörg Jónasdóttir, Kristinn Sigurðsson,
Steinunn Jónasdóttir, Ómar Grétar Ingvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir
og amma,
GUÐRÍÐUR ÞÓRUNN
JÓNSDÓTTIR BOATWRIGHT,
Hulduhlíð 11,
Mosfellsbæ,
áður búsett á Akranesi
og í Bandaríkjunum,
lést fimmtudaginn 30. nóvember.
Sálumessa verður sungin í Kristskirkju í Landakoti fimmtudaginn 7. des-
ember kl. 10.30.
Minningarathöfn fer fram sama dag í Akraneskirkju kl. 14.00.
David E. Boatwright,
Helen Kuszmaul, Brad Kuszmaul,
Jónína Chamberlain, Jon Chamberlain,
Sigrún H. Boatwright, Halldór Ingi Haraldsson,
David J. Boatwright, Lenna Boatwright
og barnabörn.
Kristín Gunnarsdóttir
✝ Kristín Gunn-arsdóttir fædd-
ist á Hæðarenda í
Grindavík 3. sept-
ember 1926. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Skjóli 7. nóvember
síðastliðinn og var
jarðsungin frá Foss-
vogskirkju 16. nóv-
ember.
um. – Dídí og bíltúr-
arnir til Grindavíkur,
þar sem ættingjarnir
bjuggu. – Dídí og hlát-
urinn. – Dídí sem vann
allan daginn á leik-
skólanum og hafði
okkur hjá sér þegar
hún skúraði þar í
dagslok. – Dídí og
brauðið girnilega sem
stóð smurt á borðinu á
morgnana, en hún og
Dóri farin til vinnu. –
Dídí sem spurði alla
tíð frétta af mér og
mínum. – Dídí sem sagði alltaf „..og
hvað er að frétta af Gillimann mín-
um?“. – Dídí sem ég hitti síðast á
Borgarspítalanum, veik fullorðin
kona, alltaf jafn falleg og góð.
Í gegnum tíðina hefur mér oft ver-
ið hugsað til hennar og fyllst þakk-
læti fyrir að hafa þekkt þessa ynd-
islegu og umfram allt hjartahlýju
konu.
Elsku Lára, Hanna og fjölskyldur,
ég votta ykkur mína innilegustu
samúð en veit að minningin um ynd-
islega móður og vinkonu lifir með
okkur öllum.
Unnur (Unnella).
Þegar ég settist nið-
ur að loknu amstri
dagsins í dag og fletti
blöðunum, rak ég mér til mikillar
skelfingar augun í tilkynningu um
jarðarför Dídí sem fram fór þennan
sama dag. Miður mín að hafa misst
af dánartilkynningunni og ekki kvatt
hana á viðeigandi hátt, sest ég niður
og skrifa nokkur minningarbrot:
Dídí sem tók mér opnum örmum. –
Dídí sem hafði fallegt og milt hjarta-
lag. – Dídí og Dóri og Lára og
Hanna. – Dídí sem var alltaf fín og
falleg, kát og skemmtileg. – Dídí og
öll börnin sem hún elskaði og helgaði
tíma sinn. – Dídí sem átti ekki mikið
af veraldlegum auði en fallegt heim-
ili, fullt af hlýju og hjartagæsku. –
Dídí sem opnaði heimili sitt fyrir mér
og leyfði mér alltaf að gista með til-
heyrandi dásemdum. – Dídí með
rúllur í hárinu um helgar. – Dídí og
bíltúrarnir út í náttúruna með smurt
nesti og teppi. – Dídí, forsöngvari í
Moskvitsinum og rauða Renaultin-
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is – smella á reitinn Senda
efni til Morgunblaðsins – þá birt-
ist valkosturinn Minningargreinar
ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Minningargreinar