Morgunblaðið - 15.12.2006, Side 34

Morgunblaðið - 15.12.2006, Side 34
34 FÖSTUDAGUR 15. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÍSLENSKUKENNSLA Í VINNU- TÍMA ER GÓÐ FJÁRFESTING Það frumkvæði sem Þjónustu-miðstöð Laugardals og Háa-leitis sýndi með því að bjóða er- lendu starfsfólki sínu upp á íslensku- nám á vinnustað í vinnutíma er til fyrirmyndar og hefur þegar skilað góðum árangri. Í Morgunblaðinu í gær var fjallað um starfstengda íslenskukennslu fyrir útlendinga og þann árangur sem slík kennsla skilar, til erlenda starfsfólks- ins, vinnuveitenda og þeirra sem njóta þjónustu starfsmannanna. Alþjóðahús stendur nú fyrir slíkum starfstengdum íslenskunámskeiðum en áður var það fyrirtækið Fjölmenn- ing sem stóð fyrir slíkri starfsemi. Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahúss segir að hugmyndin sé sú, að námsefnið taki mið af vinnu- staðnum og komi fólki af stað í sínu ís- lenskunámi. Fram kemur í máli hans að Grandi og Myllan hafi tekið ákveðna forystu í að nýta námskeið af þessu tagi en önnur fyrirtæki séu farin að taka við sér, t.d. verktakafyrirtæki. Samkvæmt því sem Líney Úlfars- dóttir, sálfræðingur hjá Þjónustumið- stöð Laugardals og Háaleitis, segir, þá er þetta í fyrsta sinn sem starfsmönn- um Reykjavíkurborgar er boðið upp á nám af þessu tagi. Það er jákvætt spor í rétta átt og mun skila sér í ánægðara starfsfólki og því sem er ekki síður mikilvægt – ánægðari viðskiptavinum, sem í þessu tilviki eru annars vegar íbúar í þjón- ustuíbúðum fyrir aldraða við Dalbraut og hins vegar aldraðir og fatlaðir, sem njóta heimaþjónustu frá Þjónustumið- stöðinni. Fatmire Hoda, sem sótti íslensku- námskeiðið á vinnustað sínum í þjón- ustuíbúðum fyrir aldraða við Dal- braut, var mjög ánægð með námskeiðið og lýsti árangrinum svo: „Ég lærði mikið og samstarfsmenn mínir hafa sagt við mig að ég hafi bætt mig mikið eftir þetta námskeið.“ Árangur af framtaki sem þessu er mælanlegur, eins og fram kemur í máli Einars Skúlasonar. Hann greinir frá því að Grandi hafi kannað áhrifin af starfstengdu íslenskunámi á sínum vinnustöðum og í ljós hafi komið að starfsmannavelta minnkaði, starfs- ánægja jókst og veikindadögum fækk- aði. Slíkar niðurstöður eru öðrum auð- vitað hvatning og forsvarsmenn fyr- irtækja átta sig á því að íslenskukunn- átta erlendra starfsmanna fyrirtækjanna er ekki einkamál starfsmannanna. Því betri líðan starfsmanna á vinnu- stað, aukið sjálfstraust, með aukinni þekkingu á okkar erfiða tungumáli, ís- lenskunni, tryggir vinnuveitendum betra og jákvæðara starfsfólk. Þannig er fjárfesting fyrirtækja og starfs- menntasjóða í íslenskukennslu fyrir erlent starfsfólk, ekki aðeins jákvæð fjárfesting, heldur einnig arðbær fjár- festing. ÚLDNIR, SOÐNIR, FALDIR OG GLEYMDIR Fyrir nokkrum vikum tók einhveraf þeim rafmagnið, þeir úldnuðu og var hent á haugana. Fyrir þremur vikum sprakk hitaveiturör þar sem þeir voru geymdir, en svo heppilega vildi til að vatnið lak út úr húsinu en ekki inn í það. Í vikunni fór öllu verr þegar annað rör fór í sundur og þeir voru næstum því soðnaðir. Kannski skiptir það engu máli, því að það skoðar þá hér um bil enginn; þeir sem ekki fóru á haugana eru geymdir uppi á þriðju hæð í húsi við Hlemm, gengið inn frá Hverfisgötu. Um hverja er verið að tala? Jú, dýr- gripi þjóðarinnar, náttúrugripi, suma hverja sýnishorn af sjaldgæfum eða jafnvel útdauðum tegundum lífvera, eins og geirfuglinn margfræga. Mörgum hefur verið safnað með ær- inni fyrirhöfn, en aðstaðan til að sýna þá er svo gjörsamlega óboðleg, bæði safngripunum og gestum, að það er landi og þjóð til hreinnar skammar. Á sínum tíma var Náttúrugripa- safnið vinsælt safn. Það fékk inni í hinu nýja og glæsilega Safnahúsi við Hverfisgötu í upphafi tuttugustu ald- ar, um leið og Forngripasafnið, Þjóð- skjalasafnið og Landsbókasafnið. Þrjú síðarnefndu söfnin hafa fyrir löngu fengið þúsunda fermetra fram- tíðarhúsnæði. Vegur Náttúrugripa- safnsins hefur hins vegar farið stöð- ugt minnkandi eftir að Hið íslenzka náttúrufræðifélag afhenti ríkinu það til varðveizlu árið 1947. Náttúrugripasafnið kúldrast í 200 fermetra húsnæði – að stigagöngum meðtöldum. Stigagangarnir eru ekki með lyftu, þannig að fatlaðir eiga að því engan aðgang. Safnið er lokað í desember. Yfir vetrarmánuðina er það annars opið í tvo og hálfan tíma á dag, fjóra daga í viku. Sumarmánuð- ina þrjá er það opið jafnmarga daga í viku, í fjóra tíma í senn. Þar er hins vegar engin leiðsögn. Geymslur á safnið litlar og frystigeymslur engar, sem var ástæða þess að ómetanlegt safn fuglshama og annarra sýna var geymt í frystigeymslu hjá óábyggi- legu fyrirtæki úti í bæ. Hvað er eiginlega að þjóð, sem um- gengst náttúruminjar sínar með þessum hætti? Öll önnur Evrópuríki eiga náttúrugripasöfn, þar sem veitt er fræðsla um náttúrufar viðkomandi lands fyrir heimamenn og erlenda gesti. Sums staðar er stórkostleg upplifun að koma í þessi söfn, til dæmis í London. Fáar þjóðir eru jafnháðar nátt- úrunni og Íslendingar og færa má rök fyrir því að óvíða sé almenningur jafnstoltur af náttúru lands síns og hér. Hvernig stendur þá á því að stjórnvöld hafa á undanförnum árum útvegað söfnum, sem hýsa afrek mannsandans, gott og aðgengilegt húsnæði en líta á safn með handa- verkum skaparans í íslenzkri náttúru sem afgangsstærð? Segir það eitt- hvað um afstöðu þeirra til náttúrunn- ar? Ríkisstjórn og Alþingi eiga að reka af sér slyðruorðið og gangast fyrir því að byggja Náttúrugripasafn, sem við getum verið þekkt fyrir. ERLENDIR starfsmenn á leik- skólanum Hvarfi við Álfkonuhvarf í Kópavogi hafa í vetur fengið ís- lenskukennslu einu sinni í viku eftir vinnu. Kennslan fer fram í skólanum og er fjármögnuð af skólanum sem er einkarekinn. Fjórir starfsmenn og maki eins að auki, hafa því getað sótt sér menntun eftir vinnu sér að kostn- aðarlausu. Hulda Magnúsdóttir, íslensku- kennari sem starfar á leikskóla í Reykjavík, hefur séð um kennsl- una. Hún segir að nemendunum hafi farið mikið fram síðan kennsl- an hófst en henni verður haldið áfram eftir áramótin. „Við miðum kennsluna við það orðfæri sem notað er í leikskólum en einnig er kennd almenn ís- lenska, sagnir og fleira,“ segir Hulda. M.a. sé lögð áhersla á að nemendurnir læri nöfn á dýrum á íslensku og annað sem nýtist þeim í starfi með börnunum. „Í byrjun töluðum við saman á ensku í tímunum en nemendunum hefur farið það mikið fram að nú tölum við saman á íslensku,“ segir Hulda um árangur nemenda sinna. Hún segir að þar sem erlendum starfsmönnum fjölgi hratt skólum sé nauðsynlegt fyr skólana að bregðast við m um hætti. Hún segist ekki þess að aðrir leikskólar ha upp íslenskukennslu fyrir starfsmenn. Starfsmennirnir eru frá landi, Kanada og Lettland „Þau er mjög ánægð me geta sótt námið eftir vinnu ekki að fara út í bæ,“ segi „Stjórnendur skólans tóku þessu og eru með þessu að starfsfólk sitt hæfara til a með börnunum.“ Starfsfólk fær ókeypis íslenskukennslu Morgunblaðið/Árn Kennsla Starfsmenn á leikskólanum Hvarfi við Álfkonuhvarf í Kópavogi, þær Jennifer frá Kanada og L frá Lettlandi, fá aðstoð Huldu Magnúsdóttur við íslenskunámið. ORKUVEITA Reykjavíkur hefur keypt Hitaveitu Skorradals ehf. Orkuveitan hefur áhuga á að stækka dreifikerfið, að sögn Guð- laugs Þórs Þórðarsonar stjórn- arformanns. Á þessu svæði, eink- um norðan við vatnið, eru nokkur hundruð sumarbústaðir og þeim fer fjölgandi. Skorradalshreppur boraði eftir vatni í landi Stóru-Drageyrar fyrir rúmum áratug og hitaveita tók til starfa árið 1996. Orkuveitan yfir- tekur skuldir Hitaveitu Skorra- dals að fjárhæð 26 milljónir kr. og greiðir Skorradalshreppi þá fjár- muni sem hann lagði á sínum tíma í virkjun og hitaveitu en það voru 28 milljónir kr. OR tekur við rekstri hitaveitunnar um áramót. Komið að endurbótum Davíð Pétursson, oddviti Skorradalshrepps, segir að mikil eftirspurn sé eftir tengingu við hitaveituna sem núverandi kerfi ráði illa við. Með kaupum Orku- veitu Reykjavíkur skapist meira rekstraröryggi og fleiri eigi kost á að tengjast. Guðlaugur Þór segir að gera þurfi ákveðnar endur- bætur á hitaveitunni. Hitaveitan sér lögbýlum arbústöðum sunnan og ves Skorradalsvatns fyrir heit alls á níunda tug bústaða a býlanna. Mikil sumarhúsa norðan vatnsins, til dæmis fimmta hundrað sumarbús þremur jörðum, og þeim f andi. Guðlaugur Þór segir Orkuveitan hafi áhuga á a þangað hitaveitu og bjóða ustu sína sem víðast á svæ Það verði athugað nánar á ári og of snemmt að fullyr eða hvenær af því geti orð hvaðan orkan til þess kæm Skoða möguleika á veit í stór sumarhúsahverfi Undirritun Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, og Guðmundur Þórod forstjóri undirrituðu kaupsamning fyrir hönd Orkuveitu Reykjavíkur. Á milli þeirra eru Steinunn Fjóla diktsdóttir varaoddviti og Davíð Pétursson, oddviti Skorradalshrepps. Orkuveita Reykjavíkur kaupir Hitaveitu Skorradals

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.