Morgunblaðið - 16.12.2006, Qupperneq 72
72 LAUGARDAGUR 16. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
/ KEFLAVÍK
ERAGON kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 B.I. 12
DÉJÁ VU kl. 8 - 10:30 B.I. 12
THE HOLIDAY kl. 5 - 10:10 LEYFÐ
SKOLAÐ Í B... kl. 2 m/ísl. tali LEYFÐ
/ AKUREYRI
DÉJÁ VU kl. 6 - 8 - 10:20 B.I. 12
DEAD OR ALIVE kl. 6 - 8 B.I. 12
SCANNER DARKLY ÁN TEXTA kl. 10 B.I. 16
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2 - 4 LEYFÐ
FLUSHED AWAY m/ensku tali kl. 4 LEYFÐ
SANTA CLAUSE 3 kl. 2 LEYFÐ
ÞESSAR HASARSKUTLUR HAFA
ÚTLIT TIL AÐ DEYJA FYRIR.
BYGGÐ Á TÖLVULEIKNUM VINSÆLA DEAD OR ALIVE
ÓBORGANLEG GRÍNMYND EFTIR LARS VON TRIER UM ÁREKSTRA ÍSLENDINGA
OG DANA, ÞAR SEM FRIÐRIK ÞÓR OG BENEDIKT ERLINGS STELA SENUNNI.
HVERSU LANGT MYNDIR ÞÚ GANGA TIL AÐ HALDA LÍFI
DÉJÁ VU kl. 3:30 - 6:15 - 9 - 10:30 B.i. 12 ára
BOSS OF IT ALL kl. 5:50 - 8 - 10:10
THE U.S. VS. JOHN LENNON kl. 5:50 - 8 B.i. 12 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 LEYFÐ
THE NATIVITY STORY kl. 3:40 - 5:50 - 8 B.i. 7.ára
MÝRIN kl. 10:10 B.i. 12.ára
THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16.ára
KVIKMYND EFTIR BALTASAR KORMÁK
eeeee
Jón Viðar – Ísafold
eee
SV, MBL
BNA GEGN JOHN LENNON
THE U.S. VS.
JOHN LENNON
TÓNLISTARMAÐUR. MANNÚÐARVINUR. ÞJÓÐARÓGN.
"SNJÖLL OG BRÁÐFYNDIN!"
eeee
HJ, MBL
ÞRJÁR Á TOPPNUM
LEIÐIN TIL BETLEHEM
BNA GEGN JOHN LENNON
á allar sýningar merktar með appelsínugulu
á laugardögum og sunnudögumSPARBÍÓ 450kr
HINIR FRÁFÖLLNU
FORSTJÓRI HEILA KLABBSINS
JÓLASVEININN 3
FRÁ JERRY BRUCKHEIMER
(“PIRATES OF THE CARIBBEAN”)
HÉR ER Á FERÐINNI FRUMLEGASTI
SPENNUHASAR ÁRSINS.
FRÁ TONY SCOTT LEIKSTJÓRA
"CRIMSON TIDE"
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
ENDURUPPLIFUNIN
HAGATORGI • S. 530 1919 WWW.HASKOLABIO.IS
hvers vegna er Vífilfell
að reyna að koma sinni
eigin ágætu framleiðslu
Diet Coca-Cola út af
markaðinum?
Og úr því að Víkverji
er farinn að fjalla um
sérkennilega markaðs-
setningu gosdrykkja-
fyrirtækja er ástæða til
að víkja að öðrum
drykk sem of oft er erf-
itt að fá.
Bezti pilsner sem
hér fæst er tvímæla-
laust Egils pilsner,
hinn eini og sanni, sem
er áreiðanlega með
beztu drykkjum sinnar
tegundar sem framleiddir eru. Egils
pilsner er langtum betri en pilsnerar
sem bera heimsþekkt vörumerki
eins og Carlsberg og Tuborg.
Ástæðan er sú að Egils pilsner er
bruggaður upp í þann hámarks-
styrkleika sem um er að ræða en
annað óáfengt öl er þynnt úr meiri
styrkleika niður í þann sem leyfileg-
ur er. Alla vega fékk Víkverji þessar
upplýsingar hjá Ölgerð Egils Skalla-
grímssonar fyrir langa löngu.
En spurningin er þessi: af hverju
er svona erfitt að finna Egils pilsner
í stórmörkuðum? Stundum fæst
hann alls ekki og alltof oft. Í öðrum
tilvikum er hann nánast falinn. Hví?
Hið ágæta fyrirtækiVífilfell hefur í
áratugi séð um fram-
leiðslu á Coca-Cola á
Íslandi og staðið sig
með sóma í því hlut-
verki. Einhvern tíma á
vegferð fyrirtækisins
hóf það framleiðslu á
svonefndu Diet Coca-
Cola og gerði það líka
af myndarskap eins og
flest sem þetta fyrir-
tæki hefur gert um
sína daga. Svo kom
Coca-Cola light á
markaðinn og ekkert
nema gott um það að
segja, þótt smekkur
sumra sé með þeim hætti að Coca-
Cola light sé ódrekkandi en Diet
Coca-Cola góður drykkur.
Verra er hins vegar að svo virðist
sem fyrirtækið sé að reyna að koma
Diet Coca-Cola út af markaðinum.
Það er gert með því að það er nánast
falið í hillum verzlana og mjög fáar
flöskur af þessum gosdrykk í hverri
hillu en þeim mun fleiri af Coca-Cola
light. Ef komið er á matsölustaði og
beðið um Diet Coca-Cola er það að
jafnaði ekki fáanlegt en í staðinn
komið með Coca-Cola light eins og
það sé sami drykkur sem það er
ekki.
Nú er spurning Víkverja þessi:
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: En hvert tré þekkist af ávexti sínum,
enda lesa menn ekki fíkjur af þistlum né vínber af
þyrnirunni. (Lúkas 6, 44.)
Í dag er laugardagur
16. desember, 350. dagur
ársins 2006
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Borgin kúgar fé af
hundeigendum
ÉG GET ekki lengur orða bundist
yfir meðferð þeirri sem við hundeig-
endur verðum að hlíta, ótrúleg gjöld
eru á okkur lögð svo skiptir tugum
þúsunda og ekki fáum við neitt í
staðinn. Nú skildi lítið barn eftir
opnar útidyr og hundurinn okkar
slapp, jú og var strax fangaður, ekki
var ég látinn vita að hann væri vist-
aður á hundahóteli fyrir 1000 kr pr
nótt en er rukkaður um 20.000 kr
föngunargjald. Það er nú þannig
ástatt í mínu heimilishaldi að við
eigum hreinlega ekki fyrir þessari
fjárkúgun borgarinnar svona rétt
fyrir jólin, og eftir að hafa haft sam-
band við viðeigandi yfirvald þá var
okkur tjáð að ef við borguðum ekki
þá yrði hundurinn geymdur á
hundahóteli í viku til 10 daga á minn
kostnað og síðan lógað á minn
kostnað og svo þarf ég að borga
förgunargjald ofan á allt þetta. Það
verða gleðileg jól hjá okkur í þetta
sinnið eða hitt þó heldur. Til ham-
ingju, kjörnir fultrúar kjósenda,
enn einu sinni hafið þið sýnt ótrú-
lega hæfni í að þjarma að borgurum
þessarar borgar.
Jóhann Þór Hopkins.
Hættulegir plasthringir
á götunum
ÉG VIL benda á að það liggja á
gangstéttum víða í Reykjavík hvítir
plasthringir sem eru utan af lausum
blöðum sem er verið að bera í hús.
Þetta er stórhættulegt því þetta
flækist fyrir fótunum á fólki. Í
snjónum getur fólk ekki varast
þetta, ekki síst ef það er myrkur.
Fólk sér þetta hreinlega ekki í
snjónum á gangstéttunum. Varð
vitni að því að maður datt um svona.
Þetta er líklega utan af auglýs-
ingabæklingum og öðrum ruslpósti
sem er verið að bera í hús. Þetta er
sérstaklega slæmt hérna í Vestur-
bænum. Það er orðin algjör plága
þessi dreifing á ruslpóstinum, dag-
blöðum, auglýsingabæklingum, dag-
skrám o.fl. Þetta liggur í hrúgum
fyrir utan dyr húsa.
Íbúi í Vesturbæ.
Þvottavélavandræði
ÉG KEYPTI þvottavél fyrir 4 árum
hjá Heklu. Vélin bilaði mjög mikið
og var mér sagt að orsökin væru
óhreinindi, en ég átti dreng sem var
í fótbolta. Var mér sagt að ég mætti
ekki setja óhreinan þvott í vélina.
Síðan var gert við vélina og var
það mikil viðgerð. En nú er mótor-
inn í henni farinn. Vélin er ónýt 4ra
ára gömul og kostar hátt upp í nýja
að gera við hana, því hún er ekki
lengur í ábyrgð.
Linda María Bellere,
Vesturgötu 17a, Reykjavík.
Náttúrugripasafn Íslands
ÉG VIL lýsa yfir megnri óánægju
minni með hvernig er búið að fara
með Náttúrugripasafn Íslands. Að
Alþingi skuli ekki sjá sóma sinn í
því að bjarga ómetanlegum gripum
sem eru þarna. Finnst mér að
alþingismenn ættu að skammast sín
fyrir aðgerðaleysið. Það er með
ólíkindum að þjóð sem á nóg af pen-
ingum skuli fara svona með gripi
sem eru ómetanlegir.
Sigurfinnur Jónsson,
Sauðárkróki.
Burt með ruslpóstinn
ÉG VIL koma því á framfæri,
vegna ruslpóstsins sem streymir til
okkar, að ég sé ekki betur en það sé
verið að sýna okkur fyrirlitningu.
Ég hef merkt við lúguna hjá mér að
ég vilji ekki ruslpóst en það virðist
ekki vera tekið mark á því. Gamalt
fólk hefur ekki góð augu eða góða
fætur og hvað eigum við að gera við
þetta rusl?
Gömul kona.
Gríma týndist við
Reykjavíkurflugvöll
FIMMTUDAGINN 7. desember s.l.
slapp læðan Gríma úr búri sínu við
flugvél Flugfélags Íslands á
Reykjavíkurflugvelli sem fara átti
til Akureyrar. Starfsmenn flugvall-
arins telja sig hafa séð hana fara í
átt að Skerjafirði hinum megin
brautarinnar. Gríma er stór og loð-
in, 8 ára gæf læða, dökkbrún með
ljósbrúnum yrjum, eyrnamerkt, ör-
merkt og með ljósbleika hálsól. Hún
á heima að Bergstaðastræti 33. Þeir
sem hafa orðið hennar varir eru vin-
samlega beðnir að hafa samband við
Sólveigu í síma 661 5754 eða
551 2988.