Morgunblaðið - 22.12.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 348. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Citizen Press
Nýr höfundur
slær í gegn
Afbragðsgóðir
dómar
og þúsundir
eintaka seld.
„...elskuleg hæðni sem veldur
hlátri hjá grandalausum lesanda
sem veit varla hvers er von.“
★★★ ½
PBB – Fréttablaðið
BRÁÐUM KOMA …
EIRÍKI HJÁLMARSSYNI FINNST GOTT
AÐ HUGSA Í KIRKJUGARÐINUM >> 26
2
dagar
til jóla
Camp Pendleton. AP, AFP. | Herforingi
í landgönguliði bandaríska flotans
var í gær ákærður fyrir að myrða
tólf manns og fyrirskipa undirmönn-
um sínum að myrða sex aðra í árás í
bænum Haditha fyrir rúmu ári.
Frank D. Wuterich, 26 ára herfor-
ingi, er í hópi átta hermanna sem
voru ákærðir vegna árásarinnar.
Fjórir voru ákærðir fyrir að taka
þátt í drápunum en fjórir fyrir að
láta hjá líða að rannsaka árásina og
skýra frá framferði hersveitarinnar.
Saksóknarar
Bandaríkjahers
sögðu að her-
mennirnir hefðu
hafið skothríð á
óvopnaða íbúa
Haditha, m.a.
börn, eftir að fé-
lagi þeirra beið
bana af völdum
sprengju þegar
hann fór í eftirlitsferð um bæinn. Er
þetta alvarlegasti stríðsglæpurinn
sem bandaríski herinn hefur rann-
sakað frá innrásinni í Írak árið 2003.
Wuterich og fleiri hermenn voru
einnig ákærðir fyrir rangar yfirlýs-
ingar um atburðinn. Bandaríkjaher
sagði í fyrstu að fimmtán íbúar Had-
itha hefðu beðið bana af völdum
sprengju og hermennirnir hefðu fellt
átta uppreisnarmenn eftir spreng-
inguna. Rannsókn var hafin á málinu
eftir að tímaritið Time skýrði frá því
í mars að saklaust fólk hefði verið
myrt.
Hermenn ákærðir fyrir að
myrða saklaust fólk í Írak
Frank Wuterich
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
„ÉG man varla eftir öðru eins álagi
og verið hefur undanfarna daga,“
segir Jón Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, um
umfangsmiklar aðgerðir björgun-
arsveita um land allt síðustu daga.
Lægð gekk yfir suðvesturhorn
landsins í gær og var aftakaveður
seinnipartinn en töluvert hægði á
með kvöldinu og fækkaði þá útköll-
um björgunarsveita.
Allt innanlandsflug lá niðri frá
og með hádegi og að sögn Árna
Gunnarssonar, framkvæmdastjóra
Flugfélags Íslands, bíða um 1.100
farþegar eftir flugi. Þá urðu tafir á
millilandaflugi vegna veðurs og
segir Guðjón Arngrímsson, upplýs-
ingafulltrúi Icelandair, að búast
megi við um tveggja klukkustunda
töfum á flugi í dag.
Fjölda hrossa bjargað
Í Skagafirði var á annað hundrað
hrossum, sem höfðu orðið innlyksa
á hólma í Héraðsvötnum, bjargað
og komið á þurrt í gærkvöldi.
Þá voru björgunarsveitir á Suð-
urnesjum kallaðar út í gær til að
festa þakplötur og lausamuni. Í
Grindavík höfðu rúður brotnað og í
Keflavík þurftu björgunarsveitar-
menn meðal annars að kalla til
stórvirkar vinnuvélar til að bjarga
skúrum í Helguvík.
Á Suðurlandi var 70 hrossum
bjargað við Vorsabæ I en litlu
munaði að hrossin færu út í Hvítá.
Alls voru um 50 björgunarsveit-
armenn að störfum í Reykjavík í
gær við að festa lausamuni og þak-
plötur.
Slitnaði frá bryggju
Lægðin gekk norður á bóginn í
gærkvöldi og var nokkur viðbún-
aður meðal björgunarsveita á
Akranesi í gærkvöldi. Loðnuskipið
Ingunn AK slitnaði frá bryggju og
rak á milli tveggja annarra skipa
en fór þó ekki utan í þau. Lóðsinn
var kallaður út til að ýta bátnum
upp að bryggju en ekki vildi betur
til en að hann fékk í skrúfuna og
varð vélarvana. Þurfti kafara til að
losa úr skrúfunni og tókst það seint
í gærkvöldi.
Mikið álag á björgunar-
sveitum um land allt
Horft yfir Ölfusá Miklir vextir hafa verið í Ölfusá síðustu daga og vatnsrennsli nærri sexfaldast í ánni. Heldur dró úr vextinum í gær.
Í HNOTSKURN
» Samkvæmt upplýs-ingum frá Veðurstofu
gengur ný lægð yfir landið
seinnipartinn í dag og má
búast við vonskuveðri.
» Tafir voru á millilanda-flugi í gær og má búast
við allt að tveggja tíma töf-
um í dag af þessum sökum.
Morgunblaðið/RAX
Heldur | 15 | 24
London. AFP, AP. | Breska lögreglan skýrði
frá því í gærkvöldi að hún hefði ákært 48
ára flutningabílstjóra, Stephen Wright, fyr-
ir morð á fimm vændiskonum í Ipswich.
Wright var handtekinn á þriðjudaginn
var og verður leiddur fyrir dómara í dag, að
sögn Stewarts Gulls sem stjórnar morð-
rannsókninni.
37 ára karlmaður hafði einnig verið hand-
tekinn vegna gruns um að hann hefði myrt
konurnar, en hann var leystur úr haldi gegn
tryggingu.
Saksóknarinn Michael Crimp sagði að
fundist hefðu næg sönnunargögn til að
ákæra Wright fyrir morð á konunum fimm.
Nakin lík þeirra fundust í grennd við Ips-
wich á tíu daga tímabili frá 2. desember.
Morðunum hefur verið líkt við mál Jack
the Ripper, eða Kobba kviðristu, sem myrti
fimm vændiskonur í London árið 1888, og
mál svonefnds „Yorkshire Ripper“, sem var
dæmdur fyrir morð á þrettán konum á ár-
unum 1975 til 1980.
Nær 500 lögreglumenn hafa tekið þátt í
morðrannsókninni í Ipswich, þar af 350 frá
öðrum stöðum í Bretlandi.
Ákærður
fyrir morð-
in í Ipswich
Dubai. AFP. | Stjórn furstadæmisins Ras al-
Khaimah í Sameinuðu arabísku fursta-
dæmunum hefur bannað ríkisstarfs-
mönnum að klæðast náttfötum í vinnunni,
að sögn þarlendra dagblaða í gær.
Blöðin sögðu að stjórnin hefði ákveðið
að setja reglur um klæðaburð ríkisstarfs-
manna eftir að margir þeirra hefðu verið
staðnir að því að klæðast náttfötum í
vinnunni.
Reglurnar taka gildi um áramótin og
samkvæmt þeim mega ríkisstarfsmenn-
irnir aðeins klæðast þjóðbúningum fursta-
dæmisins. Karlmennirnir eiga að vera í
síðum, hvítum skikkjum en konurnar í
svörtum. Erlendir starfsmenn eru und-
anþegnir þessari reglu og eiga að klæðast
jakkafötum með bindi.
Bann við nátt-
fötum í vinnunni
♦♦♦