Morgunblaðið - 24.12.2006, Side 2
2 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns-
son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson,
svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is
netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Morgunblaðið í dag
sunnudagur 24. 12. 2006
atvinna mbl.isatvinna
Gestir í vikunni 9.056» Innlit 16.017» Flettingar 113.536 » Heimild: Samræmd vefmæling
GAF ÖLLUM REYKSKYNJARA
TÓMAS MÁR SIGURÐSSON, FORSTJÓRI ALCOA Á
REYÐARFIRÐI, VILL HINDRA BRUNA Á JÓLUNUM >> 3
Krókháls 5a • 110 Reykjavík • Sími: 588 7700 • Fax: 588 8700 • www.radning.is • radning@radning.is
VA ARKITEKTARREKSTRARSTJÓRI
Starfssvið:
• Fjármálastjórnun í samráði við framkvæmdastjóra
• Gerð rekstrar-, árshluta- og ársuppgjara
• Hagkvæmiútreikningar
• Framsetning tölulegra upplýsinga
• Umsjón og útreikningur launa
• Umsjón og gerð reikninga
• Innheimta
• Starfsmannaráðningar fyrir skrifstofu og móttöku
• Ábyrgð og umsjón með tæknimálum
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun s.s. viðskipta-, rekstrarfræði eða
önnur sambærileg menntun
• Reynsla sem nýtist í starfi
• Áhugi og reynsla af rekstri fyrirtækja
• Góð tölvukunnátta er skilyrði
VA arkitektar óska eftir rekstrarstjóra til starfa. Rekstrarstjóri
ber ábyrgð á skrifstofuhaldi og daglegum rekstri í samstarfi við
framkvæmdastjóra. Í boði er krefjandi starf hjá öflugu og
framsæknu fyrirtæki sem flytur í glæsilegt húsnæði miðsvæðis
í Reykjavík.
Áhugasömum er bent á að leggja inn umsókn á heimasíðu
Ráðningarþjónustunnar www.radning.is
Fyrirspurnum er eingöngu svarað hjá Ráðningarþjónustunni.
Umsóknarfrestur er til og með 14. janúar 2007.
Umsjón með starfinu hefur Inga Steinunn Arnardóttir, inga@radning.is
VA arkitektar ehf. veita alhliða þjónustu á sviði skipulags og mannvirkjahönnunar. Hjá VA arkitektum starfa um
30 starfsmenn í tveimur löndum.
Markmið VA arkitekta eru:
• að vera leiðandi fyrirtæki í gerð skipulags, hönnun mannvirkja og ráðgjöf.
• að veita viðskiptavinum úrvals þjónustu þar sem vönduð vinnubrögð, hagsýni og listræn
sköpunargleði eru sett í öndvegi.
Krókháls 5a • 110 Reykjavík • Sími: 588 7700 • Fax: 588 8700 • www.radning.is • radning@radning.is
Gleðilega hátíð
Aðstoðarskólameistari
Menntaskóli Borgarfjarðar í Borgarnesi
Ný kennslufræði
Ný námsskrá
Ný bygging
Nýr skóli
Við erum að leita að dugmiklum einstaklingi,
sem er tilbúinn til að taka þátt í að móta nýjan
framhaldsskóla. Viðkomandi þarf að vera frjór í
hugsun og lipur í samskiptum. Kennsluréttindi
á framhaldsskólastigi eru nauðsynleg og
reynsla af stjórnun mjög æskileg.
Umsóknarfrestur er til 1. janúar 2007
Nánari upplýsingar veitir skólameistari í
síma 895 2256 .
http://www.menntaborg.is
Bygginga-
verkfræðingur/
Tæknifræðingur
Verkfræðistofan Hamraborg sf. óskar eftir
að ráða byggingaverkfræðing eða bygg-
ingatæknifræðing til starfa sem fyrst í
burðarþolsverkefni.
Góð þekking á burðarþolsfræði og þekk-
ing á autocad æskileg.
Nánari upplýsingar gefur Sævar Geirsson
í síma 554 2200. Umsóknir sendist með
tölvupósti saevar@hamraborg.is
Flatahrauni 12 - Hafnarfirði - sími 585 3600
Framhaldskólakennarar
Kennara vantar í rafmagnsgreinar, bæði
bóklegar og verklegar á vorönn 2007.
Umsóknir ásamt upplýsingum um mennt-
un, réttindi og fyrri störf berist til skóla-
meistara fyrir 7. janúar nk. sem veitir allar
nánari upplýsingar um starfið í síma
585 3600 eða á netfangi:
johannes.einarsson@idnskolinn.is
Laun samkvæmt kjara- og stofnanasamn-
ingi KÍ við fjármálaráðuneytið og
Iðnskólann í Hafnarfirði.
Skólameistari
Yf ir l i t
Í dag
Sigmund 8 Krossgáta 59
Staksteinar 8 Minningar 60/61
Veður 8 Menning 65/68
Daglegt líf 22/39 Sjónspegill 66/67
Forystugrein 40 Leikhús 68
Reykjavíkurbréf 40 Myndasögur 70/71
Við manninn mælt53 Dagbók 72/77
Hugsað upphátt 53 Víkverji 72
Umræðan 54/56 Velvakandi 72
Auðlesið efni 57 Staður og stund 73
Hugvekja 58 Bíó 74/77
Skákþrautir 58 Sjónvarp 62, 64, 78
* * *
Innlent
Sjávarútvegsráðuneytið greiðir
bandarísku fyrirtæki um eina millj-
ón króna á mánuði fyrir almenna
hagsmunagæslu og til að kynna
sjónarmið Íslands varðandi sjálf-
bæra nýtingu hafsins. Samstarfið
hefur varað frá árinu 2000 og nema
greiðslurnar á því tímabili samtals
87 milljónum króna. Sjávarútvegs-
ráðherra segir fyrirtækið vinna gott
og nauðsynlegt starf og gerir ráð
fyrir að hagsmunagæsla erlendis
verði í framtíðinni ríkari þáttur í
starfsemi ráðuneytisins. » Forsíða
Bálhvasst var víða um land í fyrri-
nótt og gekk sjór víða á land. Gríð-
arlega hvasst var á norðanverðu
Snæfellsnesi og Vestfjörðum. Á Ísa-
firði gekk sjór á land og olli tölu-
verðum usla og vatn rann víða inn í
hús. Töluvert eignatjón varð á
Grundarfirði en þar var vindstyrkur
um 50 m/s í verstu hviðunum.
» Baksíða
Viðbygging við húsnæði barna-
og unglingageðdeildar Landspít-
alans við Dalbraut hefur verið boðin
út. Áætlaður kostnaður er 340 millj-
ónir króna. Útboðsfrestur rennur út
í janúar, gert er ráð fyrir að fram-
kvæmdir hefjist í febrúar og áætlað
er að húsið verði tilbúið í maí 2008.
Yfirlæknir deildarinnar segir að ný-
byggingin muni breyta miklu í starf-
semi deildarinnar. Rætt hefur verið
um nauðsyn á stækkun deildarinnar
árum saman og er nú loks að rætast
úr. Framlag ríkisins til bygging-
arinnar er um 200 milljónir, sala á
húsi gefur 55 milljónir, Kvenfélagið
Hringurinn gefur 50 milljónir og
ýmsir aðrir aðilar 30 milljónir. » 4
Séra Sigríður Óladóttir á Hólma-
vík gerir víðreist um þessi jól eins og
önnur enda er hún eini presturinn í
einu víðfeðmasta prestakalli lands-
ins. Hún messar fimm sinnum um
þessi jól og tekur ferðalagið til og frá
þeirri kirkju sem lengst er frá
Hólmavík heilan dag. Í Bitrufjörð
eru 60 km og um 100 km í Árnes-
hrepp. Það er ekki nóg með að vega-
lengdirnar séu miklar því á sumum
leiðum þarf að fara yfir heiðar og
aðrar hindranir. » 6
Erlent
Rowan Williams, erkibiskup af
Kantaraborg og leiðtogi ensku bisk-
upakirkjunnar, segir að stjórnvöld í
Bandaríkjunum og Bretlandi hafi
stefnt lífi þúsunda kristinna íbúa
Mið-Austurlanda í hættu með
„skammsýnni“ og „fávíslegri“ stefnu
í málefnum Íraks. Erkibiskupinn er
óvenju harðorður í garð ráðamann-
anna í grein í breska dagblaðinu The
Times og varar við því að kristnir
íbúar Mið-Austurlanda kunni að
verða hraktir þaðan vegna innrás-
arinnar í Írak. » Forsíða
Polisario, sjálfstæðishreyfing
Vestur-Saharamanna, vonar enn að
þjóðir heims leyfi þeim að ákveða
framtíð sína í þjóðaratkvæða-
greiðslu þrátt fyrir andstöðu Mar-
okkómanna. Frönsk stjórnvöld hafa
stutt Marokkómenn í málinu en Pol-
isario vonar að afstaða Frakka
breytist þegar nýr forseti tekur við á
næsta ári. » 48–49
VINNSLA raforku á Íslandi á síð-
asta ári nam alls 8.681 gígavattstund
(GWh). Uppsett heildarafl virkjana
nam 1.507 megavöttum (MW) í lok
ársins. Afkastamesta virkjunin er
Búrfellsvirkjun, en heildarafl hennar
er 270 MW. Á árinu 2005 var Nesja-
vallavirkjun stækkuð um 30 MW og
er þá aflgeta hennar orðin samtals
120 MW. Þá voru allmargar litlar
vatnsaflsvirkjanir teknar í notkun.
Þetta kemur fram í nýjasta tölublaði
Orkumála, sem Orkustofnun gefur
út.
Í blaðinu kemur fram að raforku-
vinnsla hefur verið nokkuð stöðug
undanfarin ár. Stærsta vatnsafls-
virkjun landsins, kennd við Kára-
hnjúka (690 MW), sem byggð er
vegna sölu raforku til Fjarðaáls í
Reyðarfirði, svo og jarðgufuvirkjan-
ir á Hellisheiði (áætlaðar 200–210
MW, þar af 90 MW 2006) og Reykja-
nesi (100 MW) vegna stækkunar
Norðuráls, auka raforkuvinnslu
landsins verulega á árunum 2006 og
2007. Með tilkomu þessara þriggja
virkjana og annarra smærri virkjana
eykst vinnslugeta raforkukerfis
landsins um 70–80%.
19,1% frá jarðgufuvirkjunum
Vatnsorkan stendur undir yfir-
gnæfandi meirihluta raforkuvinnsl-
unnar á Íslandi en raforkuvinnsla úr
olíu er hverfandi. Vinnsla með jarð-
gufu hefur farið vaxandi frá árinu
1980 og nam árið 2005 19,1% af
heildinni.
Hlutur stóriðju í raforkunotkun á
Íslandi fer vaxandi og notar nú stór-
iðja (ál- og járnblendiiðnaður) um
63% af raforku landsins. Af heildar-
notkun raforkunnar eru 78% hennar
nýtt á höfuðborgarsvæðinu og Vest-
urlandi, þar sem stóriðjufyrirtækin
eru.
Sé horft til þróunar raforkunotk-
unar til ársins 2015 mun samningur
Landsvirkjunar við Alcoa um sölu
raforku til Fjarðaáls í Reyðarfirði
hafa mest áhrif, svo og samningar
Landsvirkjunar, Orkuveitu Reykja-
víkur og Hitaveitu Suðurnesja við
Norðurál um sölu á 3.549 GWh í for-
gangsorku og 423 GWh í ótryggðri
raforku. Verði álver við Helguvík og
á Húsavík byggð mun raforkunotk-
un aukast um 9–10 þúsund GWh til
viðbótar á ári, segir í Orkumálum.
Vinnslugeta raforkukerf-
isins eykst um 70–80%
Í HNOTSKURN
»Uppsett heildarafl virkj-ana á Íslandi nam 1.507
megavöttum (MW) í lok
síðasta árs. Afkastamesta
virkjunin er Búrfellsvirkjun.
»Hlutur stóriðju í raforkunotkun á Íslandi
fer vaxandi og notar nú
stóriðja (ál- og járnblendiiðn-
aður) um 63% af raforku
landsins.
»Af heildarnotkun rafork-unnar eru 78% hennar nýtt
á höfuðborgarsvæðinu og
Vesturlandi, þar sem stóriðju-
fyrirtækin eru.
JÆJA, þá fer að koma að því að jólahátíðin gangi í
garð. Biðin langa er því senn á enda. Eftir aðeins örfá-
ar klukkustundir má gera ráð fyrir að flestir lands-
menn séu komnir í sparifötin, hreinir, stroknir og með
gleði í hjarta. Þannig vilja í það minnsta flestir hafa
það.
Mest er tilhlökkunin eflaust hjá börnunum og sum
hver væntanlega fengið góðan glaðning frá Kertasníki,
þeim jólasveini er síðastur kemur til byggða, í skóinn
eða sokkinn í morgun, nú á sjálfan aðfangadag.
Systkinin Arnar Ingi Helgason og Rakel Helgadóttir
höfðu komið sér fyrir við gluggann í slagviðrinu í gær
og litu eftir sveinka. Höfðu þau hengt skemmtilega
jólasokka í gluggann til að auðvelda honum vinnuna.
Morgunblaðið/Sverrir
Biðin langa á enda
RAFMAGNSTÆKJUM fjölgar sí-
fellt á heimilum landsins. Allt að
10% raforkunotkunar heim-
ilistækja fer oft og tíðum í svo-
kallaða biðstöðu (e. stand by). Í
Orkumálum Orkustofnunar segir
að hafa beri í huga að í biðstöðu
eyða rafmagnstæki orku án notk-
unar.
Tæki í biðstöðu skila engu til
notenda nema hærri rafmagns-
reikningi. Biðstaða tækja er
stundum kölluð rafmagnsleki
enda lekur hægt og bítandi út
raforka engum til gagns. Auð-
veldasta leiðin til að minnka bið-
stöðunotkun er að slökkva alveg
á tækjum og helst taka þau úr
sambandi. Mjög einföld leið til að
draga úr biðstöðunotkun er að
tengja sjónvarp, DVD-spilara, af-
ruglara og hljómflutnings- og
myndbandstæki inn á sama fjöl-
tengi með rofa þar sem slökkva
má á öllum tækjum í einu.
Slökkvið á raf-
tækjum og
sparið peninga
GERA má ráð fyrir að í ár hafi hátt í
11.000 erlendir ríkisborgarar komið
til starfa á Íslandi, þótt ekki séu svo
margir starfandi hverju sinni, og að
um 6.000 séu enn á vinnumarkaði
sem voru hér starfandi á síðasta ári.
Erlendir ríkisborgarar á íslenskum
vinnumarkaði eru því að öllum lík-
indum nálægt 16.000 um þessar
mundir þótt erfitt sé að leggja ná-
kvæmt mat á fjöldann. Þetta kemur
fram í tölum frá Vinnumálastofnun.
Í lok nóvember voru um 814
starfsmenn hér á landi á vegum
starfsmannaleigna. Til landsins
höfðu þá komið alls um 1.130 manns
á vegum starfsmannaleigna. Alls eru
þetta því nálægt 7.500 manns sem
Vinnumálastofnun hefur beinar upp-
lýsingar um að hafi bæst við á ís-
lenskan vinnumarkað til loka nóvem-
ber 2006.
Vinnuafl á árinu 2006 verður á
milli 170 og 175 þúsund manns skv.
vinnumarkaðskönnunum Hagstof-
unnar. Því má gera ráð fyrir að er-
lendir ríkisborgarar, sem hlutfall af
vinnuafli, séu orðnir um 9% um þess-
ar mundir.
Hlutfallið hefur hækkað mjög á
síðustu tveimur árum og sker þróun-
in hér á landi sig töluvert úr þróun-
inni á Norðurlöndum, en fram til árs-
ins 2004 var þróunin hér með
svipuðum hætti og annars staðar á
Norðurlöndunum.
11.000 útlendingar
hafa komið til starfa
Ísland sker sig töluvert úr þróuninni á Norðurlöndum