Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 20
20 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
F
áum blandast hugur um
það að besti leikmaður-
inn í ensku knattspyrn-
unni á þessu haustmiss-
eri hefur verið Didier
Drogba, miðherji Chelsea. Hann hef-
ur verið á töfraskónum. Drogba er
ekki bara markahæstur í úrvalsdeild-
inni, með 10 mörk í 17 leikjum, heldur
hafa mörkin verið hvert öðru mikil-
vægara og glæsilegra. Skemmst er
að minnast fleygsins á Goodison Park
um liðna helgi. Aumingja Tim How-
ard í marki Everton hefur líkast til
haldið að hann væri tilraunadýr í eld-
flaugaæfingum alþjóðlegra hersveita.
17 mörk hefur Drogba gert á öllum
mótum í vetur, þar af fimm í Meist-
aradeild Evrópu, og hefur líklega
ekki í annan tíma leikið betur á
sveiflukenndum ferli.
Didier Yves Drogba Tébily fæddist
í Abidjan á Fílabeinsströndinni 11.
mars 1978. Fimm ára gamall fór hann
til dvalar hjá frænda sínum, Michel
Goba, sem var atvinnuknattspyrnu-
maður í Frakklandi og sneri ekki aft-
ur fyrr en þremur árum síðar. Þegar
Drogba, sem gengur undir gælunafn-
inu Tito innan fjölskyldunnar, var ell-
efu ára misstu foreldrar hans, sem
unnu í bankageiranum, vinnuna í
efnahagslægð sem gekk yfir landið
og var drengurinn sendur aftur til
frænda síns í Frakklandi. Tveimur
árum síðar fluttu foreldrar Drogba
ásamt sex systkinum hans þangað
líka.
Bannað að sparka í heilt ár
Þegar Drogba var þrettán ára átti
sparkið hug hans allan og skólinn sat
á hakanum. Í refsingarskyni gripu
foreldrar hans til þess ráðs að banna
honum að stunda knattspyrnu í heilt
ár. Sú ráðstöfun gerði hann bara
ákveðnari í því að leggja sparkið fyrir
sig og þegar banninu var aflétt gekk
Drogba til liðs við Levallois, lítið félag
í útjaðri Parísar. Þá bjó hann hjá öðr-
um sparkelskum frænda sínum, Oli-
vier Tébily, sem nú leikur með Birm-
ingham City.
Þótt ótrúlegt megi virðast hóf
Drogba feril sinn sem hægri-bak-
vörður en með dyggri hvatningu frá
Michel Goba færði hann sig hægt en
örugglega í fremstu víglínu. „Fólk
hefur bara áhuga á framherjum,“
sagði Goba af bláköldu raunsæi.
Drogba skoraði grimmt fyrir ung-
lingalið Levallois en fékk eigi að síður
fá tækifæri með aðalliðinu í annarri
deildinni í Frakklandi. Það fór á end-
anum svo að hann hafði vistaskipti,
gekk til liðs við Le Mans, sem lék í
sömu deild.
Fótbrotnaði í fjórgang
Hvert fótbrotið rak annað til að
byrja með hjá Le Mans, alls urðu þau
fjögur, en komu eigi að síður ekki í
veg fyrir að Drogba skrifaði undir
sinn fyrsta atvinnusamning, 21 árs að
aldri. Það skiptust á skin og skúrir
hjá hinum unga miðherja hjá Le
Mans en þegar hann yfirgaf félagið í
janúar 2002 hafði hann gert 12 mörk í
64 leikjum.
Enda þótt Drogba væri ennþá
óskrifað blað ákvað lið í efstu deild,
Guingamp, að veðja á krafta hans.
Pungaði út 150 þúsund evrum. Þar
byrjaði kappinn með látum en síðan
dró af honum. Hann fékk lítið að
spreyta sig um vorið og menn efuðust
um að hann ætti erindi í hóp hinna
bestu.
Drogba var aftur á móti staðráðinn
í að standa sig, æfði eins og berserkur
um sumarið, og uppskar laun erfiðis-
ins. Veturinn 2002–03 var hann
óstöðvandi í framlínu Guingamp og
gerði 17 mörk í 34 leikjum.
Þessi frammistaða var nóg til að
vekja athygli stórveldisins Olympi-
que de Marseille og eftir 20 mörk í 45
leikjum fyrir Guingamp reri Drogba
aftur á ný mið. Að þessu sinni skiptu
sex milljón evrur um hendur.
Á hálfu öðru ári hafði Drogba
breyst úr varamanni í annarri deild í
miðherja eins nafntogaðasta félags
landsins. Nú voru væntingarnar
miklar. Og sá stóð undir þeim. Tók
Evrópu með áhlaupi.
Drogba gerði 19 mörk í 35 deild-
arleikjum fyrir Marseille þennan vet-
ur og sló eftirminnilega í gegn á Evr-
ópumótunum. Gerði fimm mörk í
Meistaradeildinni áður en Marseille
sneri sér tilneytt að Evrópukeppni
félagsliða. Þar lagði liðið upp í lang-
ferð sem lauk ekki fyrr en í sjálfum
úrslitaleiknum – sem raunar tapaðist.
Drogba gerði sex mörk á þeirri veg-
ferð og lék m.a. ensku félögin Liver-
pool og Newcastle United grátt.
Stjarna var fædd.
Þegar hér er komið sögu var
Drogba farinn að láta til sín taka á
vettvangi landsliðsins en hann er
nafntogaðasti leikmaður Fílabeins-
strandarinnar frá upphafi. Hefur
gert 25 mörk í aðeins 36 leikjum og er
fyrirliði liðsins. Lék m.a. í lokakeppni
HM sl. sumar og fyrir tæpu ári tapaði
liðið úrslitaleiknum um Afríkubikar-
inn fyrir Egyptum í vítaspyrnu-
keppni. Þar brást okkar manni raun-
ar bogalistin. Drogba er þjóðhetja á
Fílabeinsströndinni og hefur verið
óþreytandi við að láta gott af sér leiða
í hinu snauða heimalandi sínu.
Abramovitsj tekur upp veskið
Drogba kunni vel við sig í hinni
sparkvænu borg Marseille og hélt að
frammistaðan fyrsta veturinn væri
bara forsmekkur að því sem koma
skyldi á Vélodrome. Það fór á annan
veg.
Drogba var á allra vörum sumarið
2004 og það kom engum á óvart þegar
auðkýfingurinn Roman Abramovitsj,
eigandi Chelsea, sveiflaði veskinu
mót suðri. 24 milljónir punda lagði
hann á borðið og Marseille gat ekki
hafnað því góða boði. Enn var mið-
herjinn á faraldsfæti.
Enda þótt Drogba hafi gegnt mik-
ilvægu hlutverki í meistaraliði
Chelsea undanfarin tvö ár eru menn
sammála um að hann sé fyrst núna að
sýna sitt rétta andlit. Hann hefur
þetta allt, snerpu, styrk og afburða
skot- og skallatækni. Það er samt
eins og eitthvað hafi haldið aftur af
honum – þar til nú.
Ýmsir þakka Úkraínumanninum
Andriy Shevchenko það að hömlum
hefur verið létt af Drogba. Koma
hans til Chelsea síðastliðið sumar
gerði það að verkum að José Mour-
inho knattspyrnustjóri tók upp nýtt
leikkerfi, 4-4-2. Tvö undanfarin ár var
Drogba oftar en ekki einn frammi í 4-
5-1-kerfinu og þótt hann leysti það
verkefni vel af hendi fer ekkert á milli
mála að hitt hentar honum betur.
Enda þótt Shevchenko sé bara
skugginn af sjálfum sér – enn sem
komið er – hefur hann í auknum mæli
dregið athygli varnarmanna frá
Drogba sem hefur gengið galvaskur á
lagið.
Kletturinn Mourinho
Þrátt fyrir velgengni Chelsea hef-
ur Drogba verið umdeildur og margir
hvatt Mourinho til að vísa honum á
dyr, einkum á síðustu leiktíð. Portú-
galinn hefur aftur á móti aldrei efast
um hæfni síns manns og á dögunum
framlengdi Drogba samning sinn við
Chelsea til ársins 2010. Sú ráðstöfun
styggði fáa Blástakka.
„Hann hefur alltaf haft trú á mér
og lagði sig í líma til að fá mig til
Lundúna,“ segir Drogba um Mour-
inho á heimasíðu sinni. „Ég held hann
hafi meira að segja viljað fá mig til
Porto á sínum tíma en hafði ekki fjár-
magnið. Hann gjörþekkir mig og stóð
eins og klettur við bakið á mér í fyrra
þegar gagnrýnisaldan gekk yfir mig.“
Drogba tekur þó fram að samband
þeirra Mourinhos sé fyrst og fremst
faglegt. „Við snæðum ekki saman á
degi hverjum. Samband okkar er
ákaflega jarðbundið. Hann gefur mér
tækifæri til að spila og ég skila mínu
hlutverki. Við skiljum hvor annan og
af því leiðir gagnkvæm virðing.“
Drogba segir ennfremur að enginn
nái árangri hjá Mourinho án þess að
leggja sig allan fram. „Einmitt þess
vegna eigum við svona vel saman.
Sigurviljinn er okkur í blóð borinn.
Við erum stoltir einstaklingar sem
gefumst aldrei upp. José getur verið
ákaflega strangur en hann á líka til
mikla einlægni þegar það á við.“
Ástalíf ánamaðka?
Enginn efast um knattspyrnuhæfi-
leika Drogbas en ýmsir hafa undan-
farið hálft þriðja ár legið honum á
hálsi fyrir að missa fótanna á vellin-
um við litla og jafnvel enga snertingu.
Og liggja svo eftir eins og hann hafi
orðið undir 250 lítra kæliskápi.
Enskir sparkunnendur hafa ímu-
gust á óheilindum og menn sem
staðnir eru að verki eru úthrópaðir.
Enginn trúir því að Drogba sé að
framkvæma ítarlega rannsókn á
ástalífi ánamaðka og verji þess vegna
svona miklum tíma í grasinu. Kapp-
inn er 188 sm á hæð og sterkur eftir
því, þannig að það fer í taugarnar á
mönnum þegar hann hnígur niður við
minnstu stroku.
Það vekur athygli að landar Drog-
bas, Emmanuel Eboué hjá Arsenal
og Didier Zokora hjá Tottenham,
hafa fengið ákúrur fyrir svipuð tilþrif
á Englandi. Spurning hvort ekki sé
sóknarfæri fyrir Lýsi hf. á Fílabeins-
ströndinni!
Drogba er sjálfum sér verstur í
þessum efnum. Þannig hefur maður á
tilfinningunni að hann fái ekki víti í
úrvalsdeildinni um þessar mundir
nema hann verði hreinlega ráðinn af
dögum í teignum. Og jafnvel ekki
einu sinni þá. Bágt mun úr að víkja.
Drogba hefur því miður ekki sýnt
mikla viðleitni til að laga þetta og við-
skipti hans á dögunum við annan um-
deildan karakter, Jens Lehmann,
markvörð Arsenal, minntu mest á
leikhús fáránleikans. Dario Fo hefði
ekki skrifað skondnara handrit. Ekki
stækkuðu kapparnir við þetta – en
rosalega var Lehmann hræddur þeg-
ar Drogba kom aðvífandi.
Á sama tíma er það óneitanlega
kómískt að sjá Mourinho ráðast á Eið
Smára Guðjohnsen og Andrew
greyið Johnson og bera þeim brögð á
brýn. Eitthvað er rotið í Danaveldi.
Kannski á Drogba fyrir höndum
bjartan feril á hvíta tjaldinu, kvenna-
ljómi þykir hann mikill, en meðan
hann hefur sparkið að atvinnu ætti
kappinn að hugsa sinn gang. Það eru
aðeins hinir leikrænu tilburðir sem
standa í vegi fyrir því að hann verði
vígður inn í samfélag hinna allra
bestu í faginu.
Tito og töfraskórnir
Didier Drogba hefur verið á skotskónum í ensku knattspyrnunni en er eigi að síður umdeildur
Reuters
Eldflaug Didier Drogba skorar undramarkið á Goodison Park.
KNATTSPYRNA» Í HNOTSKURN»Didier Drogba er 28 áragamall og hefur leikið með
fjórum félagsliðum, Le Mans,
Guingamp og Marseille í
Frakklandi og Chelsea á Eng-
landi.
»Drogba hefur gert 25mörk í 36 landsleikjum
fyrir Fílabeinsströndina.
»Drogba hefur líklega aldrei
leikið betur en í vetur og er
markahæstur í úrvalsdeildinni
með 10 mörk. 17 mörk hefur
hann gert í öllum keppnum.
»Drogba hefur verið um-deildur á Englandi. Þykir
gjarnan gera úlfalda úr mý-
flugu þegar andstæðingar
þjarma að honum.
Eftir Orra Pál Ormarsson
orri@mbl.is
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
Síðustu vikur hafa víðast hvar snúist um und-
irbúning jólanna og nú eru áreiðanlega allir
búnir að kaupa í matinn fyrir jólaboðin. En
jólaboð eru meira en matur og drykkur, þau
snúast um samskipti fólks. Þau eru fastur
punktur í tilverunni og breytast ekki svo auð-
veldlega. Maturinn er ekki í eins föstum skorð-
um aðra daga jólanna og á aðfangadagskvöld
en fólk er fastheldið á félagsskapinn. Það vill
hitta sama fólkið hvort sem það er á hádegi á
jóladag eða að kvöldi annars í jólum.
Þrátt fyrir góðan vilja verður oft minna um
gleðifjölskyldufundi á árinu sem er að líða en
fyrirætlanir voru um. Þess vegna er alltaf gott
að vera með fólkinu sínu um jólin en þar sem
allir hittast svona sjaldan verður að velja um-
ræðuefni við hæfi. Nokkur sígild varða mat,
gjafir, frí og jólastemningu almennt. Hvað
borðuðuð þið á aðfangadagskvöld? Þetta vilja
allir ræða. Ertu kalkúnamanneskja? Eða fyrir
hamborgarhrygg? Rjúpufjölskylda? Og hvern-
ig gekk þá eiginlega að fá rjúpurnar? Voru
þessar skosku nokkuð eins góðar og þessar ís-
lensku? Af nógu er að taka.
Hvað fékkstu í jólagjöf? Allir fá eitthvað
sem þeir eru ánægðir með og vilja tala um.
Litlu börnin taka oftast með sér eina gjöf og
geta þá sýnt hana. Hægt er að hrósa happi ef
gjafirnar halda börnunum uppteknum og gefa
ekki frá sér óþolandi hljóð. Ef raunin var hins
vegar sú að „hann fékk bók og hún nál og
tvinna“ má búast við heitum umræðum. Þá er
um að gera að standa fast á skoðunum sínum
en passa um leið að kjafta ekki þrjóskan
frænda út í horn. Þetta er ekki árstíðin til að
berja á öðru fólki.
Ennþá betra er að tala um bækur, það hafa
allir eitthvað um þær að segja. Gott er að fara
varlega af stað með umræðu um pólitískar
bókmenntir, góð í hófi en getur hleypt boðinu í
háaloft. Sumir lesa bækur fram á nótt um jólin
og allir ætla allavega að lesa eitthvað, þótt þeir
séu ekki byrjaðir ennþá.
Ef maður verður uppiskroppa með umræðu-
efni eða vill ekki svara erfiðri spurningu er um
að gera að troða mat upp í sig með hraði og af-
saka sig svo með bendingum um að það sé
ókurteisi að tala með fullan munninn.
Svo má ekki gleyma spjallinu um jólafrétt-
ina í ár. Alltaf er ein frétt rædd fram og til
baka. Oft eitthvað nýskeð, sennilega ekki enn
komið í fréttum þegar þetta er ritað síðdegis á
föstudegi. Líklegt er þó að flóðin verði umtals-
efni og 43 ára gamla konan sem óvænt ól barn.
Að lokum er við hæfi að öfunda þá sem eru í
fríi milli jóla og nýárs, láta eins og það hafi ver-
ið meðvituð ákvörðun (jafnvel lífsstefna) að
baka enga smákökusort og minnast ekki á ef
einhver er í sömu jólafötunum og í fyrra (og
hitteðfyrra).
Ímyndin um hin fullkomnu jól með fullkom-
inni fjölskyldu dynur á fólki í fjölmiðlum, ekki
síst í auglýsingum. En hin fullkomna fjöl-
skylda er ekki til sem slík heldur felst ánægjan
í því að njóta eigin ættmenna og tengda-
fjölskyldu. Góð leið til að finnast eigin fjöl-
skylda tiltölulega heilbrigð og hamingjusöm er
að horfa á National Lampoon’s Christmas
Vacation, geggjaða grínmynd frá 1989 með
Chevy Chase í hlutverki Clarks Griswolds.
Griswold-fjölskyldan fær ættingja hvaðanæva
í heimsókn fyrir jólin og kemur ýmislegt upp á.
Gamli frændinn kveikti í skraufþurru jóla-
trénu svo það fuðraði upp á svipstundu því ho-
rugi hundurinn hafði drukkið allt vatnið úr
skálinni. Hjólhýsafrændinn, eigandi hundsins,
sturtaði úr ferðaklósettinu í niðurfall fyrir ut-
an húsið. Gamla frænkan pakkaði inn heim-
iliskettinum til að gefa í jólagjöf. Og eitt það
allra fyndnasta, ofeldaður kalkúnninn sprakk
með hvelli eftir misheppnaðar tilraunir gesta-
húsfrúr til eldamennsku.
Gleðileg jól!
Jólaboðorð: Umræðu-
efni í fjölskylduboðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Krásir Hefðbundinn matur fylgir oft hefð-
bundnum umræðuefnum við veisluborðið.
JÓLABOл