Morgunblaðið - 24.12.2006, Side 24
í heimi bókanna
24 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
R
ólegur, virðu-
legur og ein-
staklega ljúfur
í viðmóti. Fer
að málum með
hægðinni.
Hann er sem
skapaður í
starfið. Jafnframt léttur á fæti. Tek-
ur stigann upp á aðra hæð í nánast
ólöglega fáum stökkum. Vilhjálmur
Einarsson hefði ekki roð við honum,
ekki einu sinni í silfurforminu.
Þannig man ég eftir Herði Jó-
hannssyni bókaverði á Amts-
bókasafninu á Akureyri fyrir um
aldarfjórðungi. Og þegar ég hugsa
um safnið eða heyri á það minnst sé
ég hann alltaf fyrir mér enda var
Hörður tákn þess í tæpa þrjá ára-
tugi.
Þegar ég stend í anddyrinu hjá
Herði og eiginkonu hans, Sigríði
Margréti Hreiðarsdóttur, öllum
þessum árum síðar og hristi af mér
skaflana, kemur í ljós að Hörður
hefur lítið breyst. Það er áratugur
síðan hann lét af störfum og nú nýt-
ur hann þess á ævikvöldinu að vera
sjálfs sín herra – og nostra við sitt
eigið bókasafn, sem er drjúgt vöxt-
um.
„Hann hefur aldrei haft meira að
gera en eftir að hann hætti að
vinna,“ segir Sigríður og hlær en
Hörður glottir, þessu góðlátlega
glotti sem allir Eyfirðingar, sem
komnir eru til vits og ára, þekkja
mætavel.
Hann kveðst hafa kunnað því
ágætlega að setjast í helgan stein.
„Ég var að vísu ekki mikið farinn að
tapa minni en það hefði verið pínlegt
að vera á safninu nokkur ár til við-
bótar og vita ekkert í sinn haus,“
segir hann kíminn.
Áður en lengra er haldið spyr
Hörður, eins og hans kynslóðar er
siður, hverra manna ég sé og í ljós
kemur að hann þekkir ekki bara föð-
ur minn og afa, sem fæddist á sama
býli og Hörður ólst upp á, heldur
langafa minn líka. Rekur ættir mín-
ar langleiðina aftur á miðaldir án
þess að hik komi á hann. Það er ekki
ofsögum sagt að ættfróðari menn
séu vandfundnir. Samt kveðst Hörð-
ur vera gleyminn á mannanöfn.
Vottur af lesblindu
Hörður Jóhannsson fæddist á
Syðra-Laugalandi í Eyjafirði 13.
apríl 1929. Sjö vikna var hann reidd-
ur upp í Garðsá, þar sem foreldrar
hans hófu búskap um vorið. „Ég
man lítið eftir mér fyrr en ég var
kominn á þriðja árið, þá fæddist
systir mín Hrafnhildur sem nú býr á
Vöglum. Þá var kona hjá mömmu
sem Jóhanna hét Jónsdóttir og er
nýlega dáin, 106 ára að aldri. Ég er
elstur sex systkina, á fimm yngri
systur sem allar eru á lífi.“
Hörður segir að ágætlega hafi
gengið að kenna sér að þekkja staf-
ina og kveða að. Hins vegar sóttist
lestrarnámið honum hægt. „Það
gæti verið að ég hafi haft svolítinn
vott af lesblindu en það var óþekkt
fyrirbæri á þeim tíma. En þegar ég
var farinn að stauta það mikið að ég
gat lesið fyrir sjálfan mig gekk þetta
fljótt og vel. Það voru t.d. til margir
árgangar af Nýjum kvöldvökum
heima sem sr. Jónas á Hrafnagili
ritstýrði. Þar var fullt af skemmti-
legum sögum sem ég las aftur og
aftur.“
Langt var á skóla frá Garðsá,
þannig að faðir Harðar fékk mann
til að koma heim og segja börnunum
til. „Þessi maður var Brynjólfur Ei-
ríksson og var mjög góður kennari.
Hann var heldur enginn nýgræð-
ingur, hafði stundað þessa vinnu í
eina fimmtíu vetur áður en hann
kom til okkar. Ég var fullur tilhlökk-
unar að fá kennara en líklega hef ég
verið frekar latur því gamli mað-
urinn sagði við mig: „Það er þrennt
sem þú kemst ekki undan að læra:
Lestur, skrift og reikningur. Hitt
geturðu svo lært sjálfur ef þú vilt.“
Þú getur séð hvað það er mikill
sannleikur í þessu. Ef fólk lærir ekki
þetta er það eiginlega bjarglaust.
Brynjólfur vissi hvað hann söng.“
Brynjólfur var í Garðsá í marga
vetur en aldrei lengur en 2–3 vikur í
senn. Hann ferðaðist á milli bæja og
kenndi ófáum börnunum um dag-
ana.
Hörður segir fáar bækur hafa
verið til á sínu æskuheimili en þær
hafi verið býsna góðar. „Pabbi átti
allar Íslendingasögurnar. Svo voru
þarna nokkrar ljóðabækur og skáld-
sögur eftir íslenska höfunda á borð
við Jón Trausta og Guðmund Haga-
lín.“
Hörður fór ungur að safna bókum
sjálfur. „Við krakkarnir fengum allt-
af bók í jólagjöf. Fyrsta bókin sem
ég man eftir var Sandhóla-Pétur.
Ætli ég hafi ekki verið níu ára þá.
Hún var að vísu ársgömul þegar ég
fékk hana, þannig að annað bindið
var komið út. Mér þótti bókin
skemmtileg og las hana fljótt. Svo
hafði ég veður af því að annað bindið
væri komið út og þegar mér var
næst lofað í kaupstað fór ég til
Gunnlaugs Tryggva, sem þá var
með bókaverslun, og spurði eftir því.
Það var til bæði bundið og óbundið.
Óbundin kostaði bókin 3 krónur og
75 aura en bundin 4 krónur og 50
aura. Ég var ekki svo efnum búinn
að ég gæti keypt bundna bók, þann-
ig að ég varð að láta mér nægja
óbundna. Seinasta heftið fékk ég svo
næstu jól á eftir.“
Hörður sækir bækurnar þrjár
upp í hillu og sýnir blaðamanni.
Annað bindið batt hann inn sjálfur
löngu síðar.
Hörður byrjaði ungur að búa sér
til bækur úr pappírsafgöngum
heima í Garðsá. „Þetta voru nú aum-
legustu tilburðir í fyrstu en svo
heppilega vildi til að ég átti gamlan
frænda, Randver Jóhannesson, sem
stundaði bókband og pabbi fékk
hann til að vera hjá okkur einar
þrjár vikur. Þótt hann hefði ekki
formlega lært þetta kunni hann það
vel og var aukinheldur vandvirkur
og lagvirkur. Það var undirstaðan
hjá mér og eftir það voru engin telj-
andi vandræði.“
Þessar bækur skal ég allar lesa!
Önnur bók sem Herði er hugleikin
er Um íslenskar þjóðsögur eftir Ein-
ar Ólaf Sveinsson. „Ég las allar
þjóðsögur sem ég komst í á þessum
árum og þessi bók var því hvalreki.
Þar skýrðist svo margt fyrir mér
sem ég hafði ekki fengið skýringu á.
Það sem mér þótti samt best við
þessa bók var að þar var skrá yfir
flestar eða allar íslenskar þjóðsögur
sem þá voru komnar út. Ætli þetta
hafi ekki verið í kringum 1940. Ég
man að þegar ég las þessa skrá
hugsaði ég með mér: Þessar bækur
skal ég allar lesa. Það hefur mér
tekist og á þær held ég flestar líka.
Dr. Einar Ólafur var enginn venju-
legur maður. Hann var snillingur.“
Hörður hefur langmest safnað ís-
lenskum þjóðsögum um dagana.
„Það er samt langt frá því að mitt
safn sé fullkomið. Mig vantar tals-
vert af frumútgáfum. Ég þekki eng-
an sem á fullkomnara safn af ís-
lenskum þjóðsögum en Þorstein
Jakobsson prentara í Reykjavík.
Það er ekki nóg með það að hann
eigi þetta allt, heldur eru eintökin
svo falleg að það ber alveg af.“
Hörður kveðst ekki vita nákvæm-
lega hvað hann eigi margar bækur.
„Ég hef bara skrásett titlana en
sumir þeirra eru í mörgum bindum.
Ætli ég eigi ekki eitthvað í kringum
sjö þúsund titla.“
Í safninu eru allra handa bækur.
Þjóðsögurnar hafa þegar verið
nefndar en þarna getur einnig að
líta kvæðabækur af ýmsu tagi,
skáldsögur og einnig talsvert af
vestur-íslenskum neðanmálssögum.
„Þær eru nú í lélegu standi sumar
og fást varla lengur.“
Margar bækur hefur Hörður
eignast á Akureyri en einnig hefur
hann gert sér ferð suður um heiðar í
bókaleit. „Það er misjafnt hvað mað-
ur hefur verið fengsæll þar. Mér
hefur líka verið gefið mjög mikið af
bókum, aðallega bókasafnarar.
Margir hafa gefið mér bækur sem
þeim hefur ekki þótt taka að gera
við. Svo kom frændi minn einu sinni
hingað með fullan ruslapoka af bók-
um. Ég svaf lítið næsta mánuðinn á
eftir.“
Af litríkum söfnurum
Hörður staðfestir að safnarar séu
samheldinn hópur og greiðviknir
hver við annan. Hann hefur kynnst
þeim mörgum um dagana. „Þegar
ég var að byrja voru safnarar miklu
„Mér var kennt að
bækur væru verðmæti“
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Bókasafnarinn Hörður Jóhannsson við bókasafnið á heimili sínu norður á Akureyri. Hann hefur áhyggjur af stöðu bókasafnarans, segir að ástríðan sé
ekki jafn mikil og áður. Enn mun þó vera von. „Sem betur fer eru alltaf til einhverjir sérvitringar. Vonandi halda þeir bókinni áfram á lofti.“
Hörður Jóhannsson,
fyrrverandi bókavörður
á Amtsbókasafninu á
Akureyri, hefur um ára-
tuga skeið verið bóka-
safnari af Guðs náð og
hefur safn hans að
geyma um sjö þúsund
titla. Orri Páll Orm-
arsson leit inn til Harð-
ar og ræddi við hann
um þessa ástríðu og ár-
in á Amtsbókasafninu
en Hörður þekkti flesta
titlana í útlánadeild
safnsins í sjón, fjörutíu
þúsund að tölu.
» „Það er ekki vafi á því að þar er fjársjóður af ís-
lenskum bókum en sagt er að á tímabili hafi um
40% af allri íslenskri bóksölu farið fram fyrir vest-
an [í Bandaríkjunum]. Nú er mikil hætta á því að
þetta glatist í eitt skipti fyrir öll þar sem það eru
svo fáir eftir sem lesa íslensku.“