Morgunblaðið - 24.12.2006, Page 41

Morgunblaðið - 24.12.2006, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 41 ekki orðið tímabært að gera í kjarasamningum skýra kröfu um styttri vinnutíma á móti skipu- lagsbreytingum, sem geta aukið framleiðni í fyr- irtækjum? Er það ekki mikilvægara fyrir marga félagsmenn stéttarfélaganna að eiga þannig meiri tíma með fjölskyldu sinni en að fá meiri peninga í vasann? Sumir kjósa kannski peningana, en er þá ekki hægt að byggja inn í kjarasamningana skýr- ara val á milli tíma og peninga? Það er þörf á nýrri hugsun í þessum efnum hjá verkalýðshreyfing- unni og örlar raunar á henni, ekki sízt hjá VR, sem einu sinni stóð fyrir Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. Lausnarorðin á undanförnum árum, þegar rætt er um jafnvægi vinnu og fjölskyldulífs, hafa gjarn- an verið sveigjanlegur vinnutími og fjarvinna. Í umfjöllun Morgunblaðsins kemur skýrt fram að það getur nýtzt sumum að komast fyrr burt úr vinnu og geta lokið verkefnum sínum t.d. þegar börnin eru sofnuð, en fyrir aðra þýðir þetta að vinnan eltir þá heim á hverjum degi og þeir eru aldrei í fríi, ekki heldur heima hjá sér. Sveigj- anleikinn og heimavinnan eru þess vegna tvíeggj- að vopn. Þegar upp er staðið er það stytting vinnu- tímans, sem fólk þarf á að halda til að geta sinnt börnunum sínum, fremur en sveigjanleiki. Vinnan og lífshlaupið Þ að þarf að nást samstaða um vinnu- fyrirkomulag, sem tekur meira mið af eðlilegu lífshlaupi barnafólks en nú er. Það er öfugsnúið að fólk, sem á lítil börn, sé á kafi í vinnu og hafi ekki tíma fyrir þau, en að fólk, sem er ekki byrjað að eignast börn eða löngu búið að því vinni styttri vinnudag. Viðhorfið ætti auðvitað að vera að fólk geti minnkað við sig vinnuna þegar börnin koma til sögunnar og aukið hana við sig smám saman þegar þau vaxa úr grasi og þurfa síð- ur á foreldrum sínum að halda. Það má líka spyrja hvort foreldrar sjálfir taki ekki gróna atvinnulífs- og fyrirtækismenningu sem gefnum hlut í alltof ríkum mæli, í stað þess að gera sjálfir kröfur um það hvernig þeir vilja haga vinnutíma sínum. Eins og fjölmargir viðmælendur Morgunblaðsins benda á, er þetta auðvitað spurn- ing um forgangsröðun; hvort fólki finnst mikil- vægara, peningarnir eða tíminn með börnunum. En hver segir að allir þurfi að vinna eitthvað, sem er kallað 100% vinna? Af hverju höngum við ríg- föst í einhverju, sem heitir 40 stunda vinnuvika? Er það einhver heilög tala? Af hverju er ekki al- mennt viðurkennt að fólk geti unnið t.d. 35 stunda vinnuviku og fengið greitt sem því nemur? Og aðr- ir, til dæmis ungir einhleypingar sem eru nýbúnir að kaupa sér íbúð, unnið 60 stunda vinnuviku og fengið borgað í samræmi við það? Þetta er auðvitað engan veginn viðurkennt í dag. Þeir starfsmenn, sem vilja vinna hlutastörf, eins og það er kallað, eru næstum því eingöngu konur. Þeir minnka möguleika sína á stjórnunar- störfum og stöðuhækkunum. En er bezti stjórn- andinn alltaf sá, sem vinnur tvöfaldan vinnudag? Getur hann ekki líka verið sá, sem fær beztu hug- myndirnar eða hefur mestu skipulagshæfileikana? Það gerir fólki erfiðara fyrir í þessum efnum, að margir eru staddir á krossgötum á sínum starfs- ferli einmitt þegar þeir eiga lítil börn, sem þurfa mikla umhyggju. Þá finnst fólki það þurfa að leggja meira á sig en oftast áður í vinnunni, eigi það að ná langt. Einu sinni var þetta einfalt; karlar áttu sér starfsferil utan heimilisins og lögðu nótt við dag að byggja hann upp á meðan konur voru heima og sáu um börnin. Fáir telja í dag að það hafi verið réttlátt eða eðlilegt fyrirkomulag. En við höfum enn ekki fundið lausnina á því að báðir foreldrar geti unnið úti án þess að þurfa að leggja nánast jafnmikið á sig hvor um sig og ein fyr- irvinna gerði áður. Neyzluæðið S varið liggur að hluta til í afstöðu okk- ar til veraldlegra gæða. Umræðan um neyzluæði Íslendinga gengur eins og rauður þráður í gegnum um- fjöllun Morgunblaðsins um börnin í samfélaginu. Hversu verr settar væru margar fjölskyldur ef t.d. báðir foreldrar ynnu fimm tímum skemur á viku? Ef svarið er að þá ætti fólk ekki fyrir flatskjá í öll barnaherbergin eða þyrfti að fækka utanlandsferðum um eina á ári, er kannski ástæða til að endurskoða forgangs- röðina. Auðvitað eru margar fjölskyldur þannig staddar að foreldrar hafa ekki efni á að minnka við sig vinnu; þá ættu þeir ekki fyrir lífsnauðsynjum. En þessar fjölskyldur eru lágt hlutfall þjóðarinnar og fer lækkandi. Við getum nefnilega ekki leyft okkur að horfa eingöngu til stjórnmálamannanna, stjórnenda fyr- irtækja eða aðila vinnumarkaðarins í leit að lausn á þeim vandamálum, sem snúa að börnum og fjöl- skyldum. Að verulegu leyti er lausnin fólgin í hug- arfarsbreytingu hjá okkur sjálfum. Ýmsir hafa orðið til að spá því hér á síðum blaðsins að fólk hlyti að fara að gera uppreisn gegn hinni skefja- lausu neyzluhyggju, sem virðist hafa náð tökum á samfélagi okkar og birtist til dæmis í fréttum eins og þeirri, sem Morgunblaðið flytur í dag, Þorláks- messu, af væntanlegu Íslandsmeti í verzlun; áætl- að er að þennan síðasta dag fyrir jól eyði þjóðin um þremur milljörðum króna í verzlunum. Lausnin er líka fólgin í meira jafnrétti. Hér í upphafi var það nefnt að það hefðu aðallega verið konur, sem hefðu haft samband við Morgunblaðið og þakkað umfjöllun þess um börn og foreldra. Brennur málefnið síður á körlum? Eru þeir ekki jafntættir á milli vinnu og fjölskyldu og konurnar? Eða er það enn svo í flestum tilvikum að konur eru undir tvöföldu álagi; vinna fullan vinnudag og koma svo heim og bera meginábyrgðina á heimili og börnum? Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, sagði í við- tali í síðustu greininni í úttekt Morgunblaðsins, að þátttaka karla í fæðingarorlofi hefði fært þá nær börnunum sínum. „Ég er ekki í vafa um að virðið í feðraorlofinu til lengri tíma litið liggur í því að feð- urnir eru að taka hluta af samvizkubiti mæðranna sem hefur verið þeirra versti óvinur í gegnum tíð- ina. Þær eru sífellt með nagandi samvizkubit yfir því að sinna ekki öllum sínum hlutverkum vel,“ segir Bjarni. Yfir tuttugu þúsund feður hafa nú tekið fæðing- arorlof, frá því lögunum um það var breytt í upp- hafi nýrrar aldar. Þetta er harla stór hópur með samvizkubit og orðið tímabært að hann láti í sér heyra. Það er að minnsta kosti víst, að breytingar á högum barnanna okkar verða ekki nema bæði feður og mæður telji þær nauðsynlegar og séu tilbúin að berjast fyrir þeim. » Verkalýðshreyfingin þarf að hlusta eftir óskum og hug-myndum félagsmanna sinna í þessu efni. Er ekki orðið tímabært að gera í kjarasamningum skýra kröfu um styttri vinnutíma á móti skipulagsbreytingum, sem geta aukið fram- leiðni í fyrirtækjum? Er það ekki mikilvægara fyrir marga fé- lagsmenn stéttarfélaganna að eiga þannig meiri tíma með fjöl- skyldu sinni en að fá meiri peninga í vasann? rbréf Morgunblaðið/Ásdís Barngæzka Krakkarnir á leikskólanum Hvammi í Hafnarfirði fengu heimsókn frá jólasveininum á litlu jólunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.