Morgunblaðið - 24.12.2006, Síða 52
52 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Það er alltaf sérstök og dul-úðug stemmning að fara íhellaferð og hvernig gatmann grunað að hin marg-
umræddu Brennisteinsfjöll lumuðu á
talsverðum fjölda hella sem vert er
að skoða? Fróðir ferðafélagar á borð
við Ómar Smára Ármannsson frá
gönguhópnum FERLIR og Einar
Júlíusson frá Hellarannsóknafélagi
Íslands eru nauðsynlegir á ferðum
sem þessum en einnig má þess geta
að bæði umrædd félög halda úti
heimasíðu, www.ferlir.is og
www.speleo.is. Ekki er úr vegi að
geta þess einnig að Hellarannsókna-
félagið hefur á heimasíðu sinni lýst
yfir stuðningi við framtíðarsýn Land-
verndar undir yfirskriftinni „Reykja-
nesskagi – eldfjallagarður og fólk-
vangur“. Segir ennfremur að
framtíðarsýnin grundvallist á nátt-
úruvernd samhliða fjölbreyttri nýt-
ingu á auðlindum Rekjanesskagans.
Hellarannsóknafélag Íslands lýsir
yfir fullum stuðningi við þetta verk-
efni og telur það sérstaklega ánægju-
legt að vernda eigi stór hraun, hraun-
myndanir og gíga sem eru einstakir á
heimsvísu.
Segir Hellarannsóknafélagið að
Brennsteinsfjöllin og næsta nágrenni
við þau sé stærsta ósnortna land-
svæðið á Reykjanesskaganum og
hafi að geyma ótal marga hella sem
hafa verið lítt rannsakaðir. Gígarnir
og hraunin séu ótalmörg og hvert og
eitt einstakt út af fyrir sig og mikil
þörf á að vernda þetta svæði í heild
sinni.
Undir þetta getur hver sá sem
skoðar sig um á svæðinu tekið heils-
hugar og víst er að af nógu er að taka.
Bara í þeirri ferð sem farin var að
þessu sinni var í senn farið í þekkta
hella og leitað nýrra.
Rannsóknarlögreglan
neðanjarðar
Um gönguhópinn FERLIR er það
að segja að hann stóð upphaflega fyr-
ir Ferðahóp rannsóknardeildar lög-
reglunnar í Reykjavík og hefur vaxið
fiskur um hrygg frá stofnun árið
1999. Segja má að félagsskapurinn sé
nú orðinn ein helsta uppspretta
þekkingar á hellum, seljum, letur-
steinum, skútum, fjárborgum og
fleiru á Reykjanesskaganum. Lögð
er nokkur áhersla á að fá staðkunn-
uga á hverjum stað til að fræða þátt-
takendur í hverri ferð og eru Ferlis-
ferðirnar nú orðnar vel yfir eitt
þúsund talsins. Því fylgir nokkuð sér-
stök tilfinning að ferðast með rann-
sóknarlögreglumönnum í leit að
hellum og guð hjálpi þeim heimska
bófa sem dytti í hug að ramba inn á
Reykjanesið með ránsfeng eða fíkni-
efni og telja góssið öruggt í fyrsta
hellisskúta sem hann fyndi. Með
þeirri aðferðafræði myndi skrattinn
aldeilis hitta ömmu sína en það er
önnur saga. Ferlisfélagar eru heldur
ekki eingöngu rannsóknarlög-
reglumenn heldur fólk úr lögreglunni
almennt og allir þeirra vinir eða
vandamenn. Sérstök derhúfa er veitt
sem viðurkenning fyrir fimm Ferlis-
ferðir.
En gönguhópurinn hefur nú nýtt
undanfarin misseri til að ganga um
hin einstöku svæði á Reykjanesi og
var upphaflegt markmið að fara eitt
hundrað ferðir um svæðið til að skoða
það helsta. En þrátt fyrir ferðirnar
þúsund eru enn stór svæði ókönnuð.
Hafa Ferlismenn nú skoðað á fjórða
hundrað hella og nafngreinda skúta
svo fátt sé talið.
Finna má urmul leiðarlýsinga á
heimasíðu Ferlis og má samsinna
fullyrðingum um að svæðið á Brenni-
steinsfjöllum, þ.e. Kistufell, Kista og
Eldborg, sé ótrúlegur undraheimur
með ósnertum litskrúðugum hellum
og einstökum náttúrufyrirbærum er
nauðsynlegt er að standa vörð um
þessa einstöku veröld, segir þar.
Á liðnum árum hafa uppgötvast
þarna langir hellar og enn er svæðið
langt í frá fullkannað. Gangan yfir að
hellasvæðinu í Brennisteinsfjöllum
tekur 2–3 klukkustundir og er haldið
frá bílunum við Breiðdal við Kleifar-
vatn. Upp úr Hvammadal er fylgt
gömlum stíg sem áður var genginn
milli Kaldársels og Krýsuvíkur. Þeg-
ar upp á brúnina er komið er beygt til
vinstri til að fylgja stíg austur með
brúninni yfir á slétta hraunhellu
Kistuhrauns, sem liggur þar milli
Kistufellshraunsins í austri og Eld-
borgarhraunsins í vestri. Undir hinu
síðarnefnda og vestar sjást fleiri Eld-
borgarhraun. Gangan getur talist
löng og sjálfsagt er að reikna með
heilum degi í hana fram og tilbaka að
meðtöldum hellaferðunum.
Duttu niður í Lýðveldishellinn
Í vesturhlíðum Kistu er svokall-
aður Lýðveldishellir sem dregur nafn
sitt af því að þann 17. júní árið 1994
fundu Guðmundur Löve og Þröstur
Jónsson hellinn. Samkvæmt frásögn
Ferlis voru þeir þarna á ferð í mikilli
þoku og rigningu þegar þeir svo til
„duttu“ niður um opið á hellinum. Er
hann um 200 metra langur. Ferlis-
menn leituðu þessa hellis á sínum
tíma en við þá leit uppgötvaðist ann-
ar hellir, sem fékk heitið Þjóðhátíðar-
hellir Norðmanna því hellisfundinn
bar einmitt upp á 17. maí. Hellisopin
eru ekki langt hvort frá öðru, en
reyndar sinn í hvoru hrauninu, segir
á Ferlisvef.
Að þessu sinni var farið ofan í ann-
an helli sem Ferlismenn fundu líka
og heitir sá FERLIR og er þarna í
nágrenninu. Er þetta með litskrúð-
ugri hellum landsins og ógleyman-
legur þeim sem niður í hann fara. Lít-
il hraunbreiða sem þar er að finna er
svo óveðruð að halda mætti að hraun-
ið væri nýrunnið og -storknað. Þótt
aldur þess sé talin í mörgun öldum
virðist það samt svo glænýtt og það
er töfrum líkast og horfa á þetta fyr-
irbæri sem gæti jafnast á við að hitta
fyrir ungbarn úr grárri forneskju.
Í raun jafnast fátt á við góða hella-
ferð. Ljóst er að margfalt fleiri hellar
en eingöngu Raufarhólshellir standa
fólki til boða. Sjálfsagt er að taka
með góð ljós og hlýjan fatnað sem má
skemmast við mögulegan núning í
hellunum. Nesti og ferðatilhögun
þarf að ganga frá og sýna góða um-
gengni hvar sem farið er um.
Morgunblaðið/Þorkell
Litadýrð Mögnuð lífsreynsla er að virða fyrir sér óveðruð hraunreipin í hellunum að ekki sé talað um alla litadýrðina.
Hellarnir í Brennisteinsfjöllum
Margar hæðir Sumir hellar í Brennisteinsfjöllum eru á nokkrum „hæðum“.
Gangarnir mætast á nokkurskonar torgi, sem hægt er að ganga umhverfis.
Á vit hellaævintýra Fyrst er um mosavaxin hraun að fara og upp úr
Hvammadal áður en stefnan er tekin yfir Kistuhraun.
Í Brennisteinsfjöllum á
Reykjanesi er áhugavert
útivistarsvæði sem státar
af fjölmörgum hraun-
hellum, skrifar Örlygur
Steinn Sigurjónsson að
lokinni gönguferð um
svæðið í fylgd kunnugra.
orsi@mbl.is
náttúra