Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 57
AUÐLESIÐ EFNI
FÉLAGS-MÁLA-RÁÐHERRA
hefur óskað eftir fundi með
stjórn Byrgisins.
Byrgið er
kristi-legt
líknar-félag. Það
fær styrki frá
ríkinu.
Forstöðu-maður
Byrgisins heitir
Guðmundur
Jónsson. Hann
hefur verið sakaður um
kynferðis-brot, sem hann hafi
framið á konum sem dvöldu í
Byrginu. Þetta kom fram í
frétta-þættinum Kompási.
Fólk sem dvelur í Byrginu á
allt við mikinn vanda að
stríða, m.a. út af
vímu-efnum. Einnig er sagt
að mikil fjármála-óreiða sé í
rekstri Byrgisins.
Óreiða
og kyn-
ferðis-
ofbeldi
Guðmundur
Jónsson.
BJÖRGUNAR-SVEITIR og
Landhelgis-gæslan hafa haft
í nógu að snúast.
Flutninga-skip frá Kýpur
strandaði rétt hjá Sand-gerði.
Danskt varð-skip sendi út 2
björgunar-báta. Bátunum
hvolfdi báðum. 7 menn
björguðust en einn lést. Það
tókst að bjarga öllum
skip-verjunum á
flutninga-skipinu. Skipið er
illa farið.
Flóð og aur-skriður
Í vikunni fór að hlýna og
víða flæddu ár yfir bakka
sína. Björgunar-sveitir
björguðu hrossum bæði á
Suður-landi og í Skaga-firði.
Miklar leysingar voru fyrir
norðan.
Bíll lenti ofan í Djúpa-dalsá
í Eyja-firði. Jón Sverrir
Sigtryggsson og hundur hans
björguðu sér á land.
Aur-skriður í
Eyja-fjarðar-sveit ollu miklum
skemmdum. Fjöldi kálfa dó á
bænum Grænu-hlíð.
Þá hafa björgunar-sveitar-
-menn verið til taks út af
slæmu veðri.
Skip-strand, flóð og aur-skriður
Morgunblaðið/RAX
Þessir hestar stungu sér ekki til sunds í gamni. Þeir spjöruðu sig þó og komust á þurrt land.
Margir þurfa aðstoð
Þúsundir Íslendinga þurfa
á aðstoð að halda fyrir jólin.
Flestir leita til
félaga-samtaka. Umsóknir
eru fleiri nú en í fyrra. Margir
eldri borgara þurfa aðstoð.
Feitari fyrir-sætur
Ítölsk stjórn-völd vilja að
fyrir-sætur fiti sig. Þau ætla
að setja reglur um það og
starfa með
tísku-fyrir-tækjum. Margar
fyrir-sætur grenna sig
hættu-lega mikið.
Ákærður fyrir rað-morð
Karl hefur verið ákærður
fyrir morð á 5
vændis-konum í Englandi.
Hann heitir Stephen Wright.
Konurnar fundust látnar
með stuttu milli-bili. Líkin
voru öll nakin.
Slæmt ástand í Sómalíu
Hreyfing íslamista í
Sómalíu hefur lýst yfir stríði.
Sómalía er Austur-Afríku.
Íslamistarnir segjast vera í
stríði við her-lið
Eþíópíu-manna sem er í
landinu. Þeir hafa náð
höfuð-borginni og fleiri
svæðum á sitt vald.
Barna-þrælkun í heiminum
16 af hverjum 100
börnum í heiminum er
þrælað út í vinnu. Þau þurfa
oft að nota hættu-leg
verk-færi. Börnin eru ekki
vernduð fyrir eitur-efnum. 2
milljónir barna eru í
kynlífs-ánauð.
StuttJAPANSKUR maður lifði af 24sólar-hringa án vatns og
matar. Hann hafði dottið
niður hlíðar Rokko-fjalls og
slasast. Maðurinn missti
með-vitund á degi númer tvö.
Hitinn var aðeins um 10
gráður. Þegar hann fannst var
hann með lítinn púls.
Líf-færin voru hætt að starfa
og líkams-hitinn var bara 22
gráður. Hann ætti með réttu
að vera dáinnn.
Lagðist í híði
Talið er að maðurinn hafi
lagst í híði. Þá stöðvast
efna-skipti í líkamanum.
Bjarn-dýr leggjast í híði á
veturna á sama hátt. Heilinn
á manninum skemmdist því
ekki við vos-búðina.
24 dagar
án vatns
Í TIL-EFNI af jólunum er deilt um vin-sælt
jóla-lag. Lagið er „Jólasveinar ganga um gólf“.
Sumir segja að textinn sé svona:
Uppi á stól stendur mín kanna
Aðrir segja hann vera svona:
Uppi á hól stend ég og kanna
Pétur Gunnarsson er rit-höfundur. Hann
segir að könnu-stóll sé þekkt fyrir-bæri. Á
stólinn hafi menn lagt öl-krúsirnar sínar.
Það er líka þrætt um hvort jóla-sveinninn sé
með gylltan eða gildan staf í hendi.
Í gömlum heimildum er sungið um gylltan
staf. Sé farið lengra aftur er bara talað um
jóla-sveina sem hafa staf í hendi. Talið er að
því hafi verið breytt til að vísan stuðlaði betur.
En lík-lega er jóla-sveinunum sjálfum alveg
sama. Þeir hafa staðið sig vel síðustu daga.
Það hlýtur að taka langan tíma að gefa öllum
þessum börnum í skóinn.
Gleðileg jól og jóla-lög!
Gleðileg jól og
jóla-lög
Morgunblaðið/BFH
Þessi er hvorki með gylltan né gildan staf.
ÁTTA banda-rískir her-menn
hafa verið ákærðir fyrir morð
á sak-lausu fólki í Írak.
Her-foringi er ákærður fyrir
að hafa myrt 12 manns og
skipað fyrir um morð á 6
öðrum í bænum Haidtha.
Hinir eru ákærðir fyrir
þátt-töku í drápunum eða að
hafa ekki sagt frá.
Sak-sóknarar
Banda-ríkja-hers segja að
mennirnir hafi skotið á
óvopnaða íbúa. Ástæðan hafi
verið að félagi her-mannanna
dó í sprengju-árás í bænum.
Rann-sóknin hófst eftir að
tíma-ritið Time sagði að
saklaust fólk hefði verið myrt.
Her-menn ákærðir
fyrir morð í Írak
Reuters
Enn er óöld í Írak. Þessi
maður missti búðina sína.
REYKJAVÍKUR-BORG eyðir
50-60 milljónum á ári í mála
yfir graffiti og veggja-krot. Á
næstu árum á að hækka
þessa upp-hæð. Hún verður
lík-lega 100-200 milljónir á
ári.
Borgin leyfði áður graffiti á
ákveðnum stöðum. Nú hefur
því verið hætt. Starfs-maður
borgarinnar segir að ef
graffiti sé leyft breiðist það
enn meira út. Þá sé líka
graffað á aðra veggi.
Ómar Ómar er graffari.
Hann segir að veggja-krot og
ljótt graffiti hafi aukist eftir
bannið. Ómar vill að borgin
leyfi graffiti á ákveðnum
stöðum. Almenningur þurfi
að átta sig á að sumt er bara
krot en annað er list. Að
sama skapi þurfi að fræða þá
sem vilja stunda graffiti.
Hundruð milljóna
í að hreinsa veggi
Morgunblaðið/Jim Smart
Áður mátti graffa á þennan
vegg við Miklu-braut.
Netfang: auefni@mbl.is