Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 24.12.2006, Blaðsíða 60
60 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ÚTFARARSTOFA KIRKJUGARÐANNA Vesturhlíð 2 • Fossvogi • Sími 551 1266 • www.utfor.is REYNSLA • UMHYGGJA • TRAUST Önnumst alla þætti útfararinnar Þegar andlát ber að höndum Arnór L. Pálsson framkvæmdastjóri Ísleifur Jónsson útfararstjóri Frímann Andrésson útfararþjónusta Svafar Magnússon útfararþjónusta Hugrún Jónsdóttir útfararþjónusta Guðmundur Baldvinsson útfararþjónusta Þorsteinn Elísson útfararþjónusta Ellert Ingason útfararþjónusta Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Geir Harðarson Í dag kveð ég ljúfa og fallega frænda minn, Ásgeir Jón. Þegar ég hugsa um litla frænda minn kemur í huga mér fal- lega brosið hans sem hann var svo óspar á, glettnin í augunum eins og hann væri alltaf tilbúinn að stríða manni og glæsileikinn, enginn tók sig jafn vel út á dansgólfinu og hann. Ásgeir Jón ólst upp við mikinn kærleika, umhyggjusemi og óeig- ingirni og bar hann það með sér. Ég á margar ljúfar minningar um góðar stundir heima hjá Stínu frænku þar sem við frændsyskinin brölluðum ýmislegt og er ég mjög þakklát fyrir þær minningar. Ég fel í forsjá þína, Guð faðir, sálu mína, því nú er komin nótt. Um ljósið lát mig dreyma og ljúfa engla geyma öll börnin þín, svo blundi rótt. (Matthías Jochumsson.) Elsku Stína frænka, Raggi Maggi, Linda, Sara Sif, Emma Ósk og Einar, megi Guð styrkja og hugga ykkur á þessum erfiðu tím- um. Guðleif Hafdís og fjölskylda. Kæri frændi. Þegar ég sit hér og fer yfir farinn veg finn ég hversu berskjaldaður og ósjálfsbjarga maður er þegar frétt á borð við þá að ungum manni, 29 ára gömlum, sé kippt fyrirvaralaust úr lífi fjöl- skyldunnar, ættingja og vina og yf- ir í móðuna miklu. Þegar þú varst tveggja ára gam- all dundi yfir hörmulegt slys og föður þínum, Einari Magnússyni þá 29 ára gömlum, er kippt út úr lífi þínu og fjölskyldan þarf að hefja nýtt líf án föður og maka. Ég veit að hún Stína frænka mín og móðir þín hefur verið sem klett- ur í lífi ykkar bræðra og staðið með ykkur sem sönn móðir og vin- ur. Því bið ég góðan Guð að leiða ykkur í gegnum sorgina og hjálpa okkur að muna góðan dreng. Ásgeir Þór frændi. Um hádegi 2. desember vaknaði ég með gleðibros, því afmæli mitt var í nánd og, eins og flestir í fjöl- skyldunni vita, á Ásgeir frændi minn það til að stríða mér með auka afmælispakka, oftast tengist það Póstinum Páli, bækur, leikföng eða dagatal. En síðan hvarf það bros og gleðin, þegar ég frétti að Ásgeir hefði lent í árekstri og þá kom áhyggjur og bið, sem breyttist Ásgeir Jón Einarsson ✝ Ásgeir Jón Ein-arsson fæddist í Reykjavík 7. júní 1977. Hann lést af slysförum 2. desem- ber síðastliðinn og var jarðsunginn frá Neskirkju 13. des- ember. fljótt í tár og sorg þegar ég frétti að hann væri dáinn. Þennan dag dó stór hluti af sál minni með þér, minn kæri frændi. Hann Ásgeir var ekki bara frændi minn og besti vinur minn, hann var mér líka sem bróðir og faðir sem ég átti aldr- ei. Hann Ásgeir var alltaf til staðar fyrir mig hvort sem ég var veikur eða leiður. Hann fékk mig alltaf til að brosa og hlæja. Ég sakna þín frændi, ég sakna þess að faðma þig, ég sakna þess að hlæja með þér, ég sakna þess að syngja með þér, ég sakna þess að heyra röddina þína, ég sakna þess að tala við þig en ég vona að þú heyrir þetta kall frá mér. Það kall er að láta þér líða vel og ég lofa að hugsa oft til þín, svo þú getir hald- ið áfram að elska mig. Þinn frændi Davíð Freyr Hjaltalín. Elsku Ásgeir minn, ég vildi óska þess að þú værir enn hér hjá mér. Ég sakna þín svo mikið, ég sakna hlátursins, ég sakna prakkaraskaparins, ég sakna þess að þú hringir í mig, ég sakna rödd þinnar, ég sakna þess að þú munir aldrei aftur hrekkja mig, ég man þegar þú fórst í rauða kjólinn hennar mömmu og fórst út í hon- um og hljópst í honum fyrir utan og lést öllum illum látum og þér var alveg sama hvað fólki fannst, því að þú varst að reyna að hressa frænku þína við. Ég man þegar við vorum lítil og gerðum allt saman, vorum saman í dansi og á hverjum sunnudegi þá fórum við til Hveragerðis, þú, ég, Davíð og mömmur okkar, manstu þegar við vorum í fataleik eða vor- um að leika okkur í playmo eða barbie? Ég man eftir því þegar við vorum að stela rabarbörum úr görðum hjá fólki því að okkur fannst þeir góðir. Ég man þegar við vorum alltaf að gera eitthvað, við þrjú, ég, þú og Davíð, það er svo skrítið þetta líf, þú varst tekinn svo snögglega frá okkur að ég vildi óska að þú myndir koma og taka utan um mig og segja mér að þetta hafi bara verið draumur og þú myndir hugga mig, passa upp á mig og faðma eins og þú varst vanur að gera. Við gát- um alltaf leitað hvort til annars ef okkur leið eitthvað illa, þú áttir alltaf annað heimili hér og munt alltaf eiga. Síðast þegar ég sá þig, þann 29. nóvember, faðmaðir þú mig svo fast að þér, þú hafðir aldrei faðmað mig svona mikið eins og þá, hund- arnir voru brjálaðir þegar þú komst og Mikki vildi ekki fara frá þér. Ég man og mun alltaf muna eftir því sem við gerðum saman og einn- ig hvað þú elskaðir pitsu, beikon- bát og uppáhaldið hjá þér, bíópopp með miklu kryddi og þú áttir til að stela kryddi í kókglas til að taka með þér heim. Elsku Ásgeir minn, ég veit bara ekki hvað ég á að segja. Það er svo erfitt að segja bless við þig og vita það að þú sért farinn héðan frá okkur. Ég sakna þín svo mikið að það er ekki hægt að láta það á blað. Það eru ekki til nógu mörg blöð í heiminum til að skrifa á hvað ég sakna þín mikið. Ég veit hvað þú elskaðir Mikka mikið og þú veist einnig hvað Mikki elskaði þig, hann er búinn að vera svo sorg- mæddur, hann saknar þín svo mik- ið. Ég veit að þú ert í góðum hönd- um þarna uppi og fögnuðurinn mikill þegar þú hittir föður þinn og Dúllu aftur sem þú ert búinn að þrá svo lengi, elsku Ásgeir minn. Nú kveð ég þig, sem er erfitt að gera, en ég mun alltaf geyma þig í hjarta mínu og mun alltaf hugsa til þín, minn elskulegi frændi. Ég elska þig svo mikið og sakna þín. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Með hárið þitt eldrautt og heilbrigða sýn. Er lát þitt ég frétti brást lífstrúin mín. Hugsandi um engla ég hugsa til þín. Guð fylgi þér engill þá ferð sem þér ber. Þótt farin þú sért, þá veistu sem er. Að sorg okkar hjörtu nístir og sker. Við sjáumst á ný þegar kemur að mér. (KK – þýð. ÓGK) Þín frænka, Kristín Soffía Kristmarsdóttir. Hvernig er hægt að taka burt líf svona ungrar manneskju? Svona hjartahlýrrar, góðrar, frábærrar og yndislegrar manneskju sem vildi allt fyrir alla gera. Sannur vinur sem ávallt var hægt að stóla á og hressti mann ávallt við ef eithvað bjátaði á. Það erfiðasta er að fá ei að sjá þig aftur hér á jörð, og segja þér hve ofboðslega mér þyki vænt um þig, Minning mín um þig er greini- leg Sársaukinn nístir mig, Trausts- ins verður og hjartahlýr. Hlýnar að innan um að hugsa um þig. Minnast svo hlátursins þíns, með stóru brosi á vör; hefði ég bara vitað að missir væri svo sár, ljósum geislaður engill fallinn frá. Ég minnist þess þegar við hitt- umst fyrst, í bíóferðinni með Jóni. Allir göngutúrarnir sem við fórum saman upp í Heiðmörk, Breiðholt- ið, og svo þegar þú sóttir mig í skólann og dróst mig síðan með þér í Elliðaárdalinn þar sem þú dróst mig á eftir þér alveg efst upp á risastóran hól og gafst ekki upp fyrr en ég var komin alla leið upp þrátt fyrir öll stoppin mín á leið- inni... Vídeókvöldin í kjallaranum heima hjá þér, og þegar ég kom að vestan hve gott, gaman og ynd- islegt það var að fá að sjá ykkur Dóru, og allar þær yndislegu stundir sem við áttum saman. Þú náðir strax að stela stórum hluta úr hjartanu mínu og aldrei minnkaði hann. Jafn yndislegan, góðan og traustan vin er erfitt að finna. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir, UNNSTEINN PÁLSSON trésmiður, lést á krabbameinsdeild 11E Landspítalanum fimmtudaginn 21. desember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðríður Haraldsdóttir, Elísabet Unnsteinsdóttir, Böðvar Páll Jónsson, Baldur Jón Böðvarsson, Þórunn Halla Unnsteinsdóttir, Runólfur Einarsson, Þórdís Pálsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamamma, amma og lang- amma, MARÍA SIGMARSDÓTTIR, lést á líknardeildinni í Kópavogi að morgni laugardagsins 23. desember. Ásgeir J. Guðmunsson, Sigmundur Ásgeirsson, Kristín Ottesen, Guðmundur Ásgeirsson, Helga Ólafsdóttir, Þóra Ásgeirsdóttir, Þorvaldur Gíslason, Ásgeir Ásgeirsson, Berglind Harðardóttir, barnabörn og barnabarnabarn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, GUÐFINNU ÓLAFSDÓTTUR, Gerðakoti 2, Álftanesi. Megi Guð gefa ykkur gleðilega jólahátíð. Sigríður Karlsdóttir, Sigurður G. Thoroddsen, Ólöf Björg Karlsdóttir, Jósep Guðmundsson, Ingveldur Karlsdóttir, Ólafur Karlsson, Kristín Bjarnadóttir, Þorsteinn Helgi Karlsson, barnabörn og langömmubörn. Hún settist hjá mér svo ljúf og hlý á svip. Sagðist heita Sigrún. Hún var fal- leg kona með góða nærveru. Þetta voru mín fyrstu kynni af Sigrúnu Magnúsdóttur sem mig langar að minnast með nokkrum orðum. Sigrún Magnúsdóttir ✝ Sigrún KristínMagnúsdóttir fæddist á Ísafirði 3. júní 1946. Hún and- aðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 21. sept- ember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Langholts- kirkju 3. október. Við vorum staddar á samverustund fyrir eldri borgara í Nes- kirkju, þetta var í október 2005. Fljót- lega tókum við tal saman, var eins og við hefðum þekkst lengi. Ekki var Sig- rún að flíka tilfinn- ingum sínum. En af einhverjum ástæðum sagði hún mér að hún ætti að fara í stóra aðgerð og brugðið gæti til beggja vona. Ég dáðist að rólyndi hennar og yf- irvegun. Við sem vissum af þessu studdum Sigrúnu eins og við gát- um. Fyrir það var hún mjög þakk- lát. Svo komu góðu fréttirnar, Sig- rún var komin heim, aðgerðin hafði gengið vel og allt virtist ætla að ganga upp. Við eigum svo frábæra lækna. En auðvitað var mikil bar- átta framundan. Við töluðum sam- an öðru hverju og allt leit frekar vel út. En samt sagðist hún vera með höfuðverk, sem ekki vildi hverfa. En við reyndum báðar að vera jákvæðar, að allt myndi lagast. Ekki var ég að hnýsast í einkamál Sigrúnar, en hún kvaðst vera fráskilin með tvær dætur og ætti tvö barnabörn, sem ég fann að hún unni heitt. Við Sigrún áttum saman nokkur áhugamál, báðar höfðum við sung- ið í kórum en ekki var ég eins dug- leg og hún að syngja í mörgum kórum samtímis. Einnig höfðum við báðar áhuga fyrir íslensku máli. Og eitthvað fleira. Ég reyndi að ná í Sigrúnu í sumar, en aldrei
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.