Morgunblaðið - 24.12.2006, Side 72

Morgunblaðið - 24.12.2006, Side 72
72 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ KROSSGÁTA LÁRÉTT 1. Dul í tilbúningi og jafnframt smá. (7) 7. Ávinningur undirföruls. (6) 9. Líkamshluti áss er fimur var á skíðum reynist vera táning. (7) 10. Mjúkur líkamshluti birtist sem freistingin. (5) 11. Skorða mót með reglufestu. (9) 12. Blóðhlaupinn fær meiðsl af steininum. (9) 13. Kasta stól með því að velta. (9) 15. Spennó, stokkur með kælivatni. (9) 19. Fugl næstum því kenndur við dranga nær að skrifa vitlaust (8) 21. Það sem vekur athygli og hægt er að teiga. (7) 22. Tónar í hljómsveit. (7) 24. Stúlka að seðja. (5) 26. Maturinn í dómstólnum. (9) 27. Kaffistofa hans enska veldur ekki einfaldlega æs- ingi. (8) 29. Titlaður fær blæ að lokum hjá fyrirhuguðum. (10) 32. Ein nakin er hrein. (6) 33. Þvo húð, sérstaka húð. (10) 34. Stefna hvalir að stoðgrindum. (12) 35. Klára kast næstum því í borg. (7) LÓÐRÉTT 1. Dytta einfaldlega að afkvæmi homo sapiens fyrir sögupersónu Nexø. (5,9) 2. Gengur eins og draugar (6) 3. Telja fram til skatts og greina frá. (6) 4. Smá fis við kar af dýrum (9) 5. Ávöxtur Malus sylvestris sem veldur deilu. (9) 6. Ekki djúpur finnur undirstöðu. (7) 7. Sprellikarl missir heiti bókstafs þegar hann hreyf- ir sig. (8) 8. Bíta í bút. (6) 14. Vant rómi og tortryggni (9) 16. Sá ys mest var einhvern veginn hjá stúlku. (8) 17. Mér heyrist prýði vera orðna mennt. (8) 18. Verustaður kynlegra kvista til að hugsa um pólitík. (13) 20. Hroki sem Frosti hefur. (5) 22. Er fyrir vegna útlima. (5) 23. Skýli úr málmi sem fannst í Evrópu? (9) 25. Fuglar fæða til þess að hressa. (9) 28. Bjóðið bátnum. (6) 30. Svipaður og líkindi (5) 31. Endalok færa fleiri en einn angan. (6) 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 G A R Ð S H O R N H R E P P I R A Ö E R S E F U U M S Á T U R S T Ó L P A R P T K U A H A D M L E S H E I T I Ð U Á S A L A B B A R K G E R Ó L Í K A R F L L Í R S K U R S U U Á U Ð T E Á L G R B R A R I T S T U L D U R E D T Á F R A M A G O S I D R I F S K A F T Ó T Ú U F Ö Ð U R L A N D Á S J Ó N U R Á U A F A B K M H A G A G A N G A U Ó U B Æ K L F L É T T A N R T A O U I N O M U R T U R G E R Ð I N F A T T A R N R VERÐLAUN eru veitt fyrir rétta lausn krossgátunnar. Senda skal þátttökuseðilinn með nafni og heim- ilisfangi ásamt úr- lausninni í umslagi merktu: Krossgáta Morgunblaðsins, Há- degismóum 2, 110 Reykjavík. Skila- frestur á úrlausn krossgátu 24. desember rennur út næsta föstudag. Nafn vinn- ingshafans birtist sunnudaginn 7. janúar. Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinn- ing. Vinningshafi krossgátunnar 10. desember sl. er Erla Ásmundsdóttir, Melateigur 41 - 201, 600 Akureyri. Hún hlýtur í verðlaun bókina Lærum að elda ítalskt sem Edda útgáfa gefur út. Krossgátuverðlaun Nafn Heimilsfang Póstfang Að skilja útundan ÉG HEF alltaf verið stolt af því að vera Íslend- ingur. Verið hreykin af okkar litlu þjóð sem hef- ur með dugnaði ekki bara þraukað á þessu skeri heldur byggt upp kraftmikið þjóðfélag. Þess vegna er það ennþá meira áfall þegar maður rek- ur sig á það að kerfið hér misbýður hinum smæstu í þjóðfélaginu, eins og fátækum börnum. Ég ætlaði ekki að trúa eigin eyrum þegar ég hlustaði á umræðuþáttinn Í vikulokin, þar sem rætt var um þá staðreynd að í skólakerfinu væru ekki til sérstök úrræði til að hjálpa börnum frá tekjuminni fjölskyldum til að taka þátt í eðlilegu starfi grunnskóla, hvað þá til að borga fyrir þau skólamáltíð. Það er nefnilega ný reynsla fyrir mig að vera með barn í íslensku skólakerfi, en ég hef reynslu sem foreldri grunnskólabarns í Bret- landi. Þar var enginn skilinn útundan, að minnsta kosti ekki í því skólaumdæmi sem við vorum búsett í. Hið opinbera borgaði fyrir skóla- máltíðir þeirra sem þurftu á því að halda, og einnig þegar farið var út fyrir skólaveggina – hvort sem það var leikhúsferð eða aðrar skoð- unarferðir. Og þegar börnin voru beðin um að taka með sér nesti í slíkar dagsferðir gátu þeir efnaminnstu fengið nestispakka frá skólanum. Ég í sakleysi mínu taldi víst að Íslendingar stæðu ekki Bretum að baki í þessum málum. Það er engin furða að vandamálin hrannist upp hér á landi þegar börn eru markvisst skilin eftir ef fjöl- skyldur þeirra verða undir í lífsgæðakapphlaup- inu. Anna Sveinbjarnardóttir, Tómasarhaga 12, Rvík. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Anna Sveinbjarnardóttir Víkverji er mikill heims-borgari og flakkar milli heimshorna jafn léttilega og sumir ferðast milli borg- arhverfa í Reykjavík. Af þessum sökum þykist Vík- verji vita hvað hann talar um þegar kemur að þjónustu flugfélaga á heimsvísu. Víkverji er almúgamaður og ferðast sem slíkur. Hann hefur aldrei ferðast á við- skiptafarrými og í löngum biðum á flugvöllum hvílir hann æðrulaus æðri endann á hörðum bekkjum. Víkverji, sem annars er rólyndismaður, verður nán- ast alltaf frústreraður þegar hann ferðast með Icelandair. Oftar en ekki er honum svarað stuttaralega eins og hann sé voða- lega kröfuharður þegar hann svo mikið sem biður um teppi og hvað þá íslenskt dagblað en aldrei er nóg af þeim um borð. Síðast þegar Víkverji bað um Moggann var honum tjáð að það væri bara eitt blað á röð og þar sem parið sem sat við hlið Víkverja hafði valið DV átti hann að láta sér það nægja! Mesta frústrasjón Víkverja tengist þó mat enda er Víkverji einn af þeim sem verður ægilega pikkaður þegar hann er svangur. Víkverji borðar nánast aldrei kjöt og alls ekki svínakjöt og pantar því alltaf grænmetismat á flug- ferðum. Öll flugfélög sem Víkverji hefur flogið með færa honum grænmetisfæðið án allra vandræða. Und- antekningarnar eru Air Ma- roc og Icelandair. Hjá því síðarnefnda virðist grænmet- ispöntun Víkverja alltaf koma flugfreyjum og -þjón- um á óvart með þeim afleið- ingum að Víkverja finnst sem hann sé álitinn lygari þegar hann skilar kurteisislega kjötbakkanum og bið- ur um matinn sinn. Víkverji hefur líka lent í því að grænt- metismatarpöntun hans virðist bara ná í gegn aðra leiðina en ekki á heimleiðinni, eins og það hafi eitthvað breyst í útlönd- um og einu sinni þegar Víkverji þurfti að breyta dagsetningu á fluginu sínu hvarf grænmetisfæðið líka! Víkverji skorar á Icelandair að bæta úr þessu hið fyrsta. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is      

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.