Morgunblaðið - 24.12.2006, Síða 76
76 SUNNUDAGUR 24. DESEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 3 - 4:30 - 7:30 - 9 - 10:30 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2:30 - 4:45 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 2:30 - 4:45 - 9 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára
NATIVITY STORY kl. 5:50 B.i. 7 ára
SANTA CLAUSE 3 kl. 3:40 LEYFÐ
BOSS OF IT ALL kl. 8 - 10:10 B.i. 7 ára
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2:30 LEYFÐ
FRAMLEIDD AF STEVEN SPIELBERG EFTIR ÓSKARSVERÐLAUNAHAFANN CLINT EASTWOOD
SANNKALLAÐ MEISTARAVERK SEM
KVIKMYNDAÐ VAR AÐ MESTUM
HLUTA Á ÍSLANDI
CLINT EASTWOOD HLAUT TILNEFNINGU TIL GOLDEN
GLOBE VERÐLAUNA FYRIR BESTU LEIKSTJÓRN
DENZEL WASHINGTON VAL KILMER
ENDURUPPLIFUNIN
FÁNI FEÐRANNA
eee
S.V. MBL.
HAGATORGI • SÍMI 530 1919 • WWW.HASKOLABIO.IS
/ AKUREYRI
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 5:40 - 8 - 10:30 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 LEYFÐ
HAPPY FEET m/ensku tali kl. 4 - 8:30 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 10:30 B.I. 12 ára
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
ERAGON kl. 3 - 5:30 - 8 B.I. 12 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 3 - 5:30 LEYFÐ
DÉJÁ VU kl. 10:10 B.I. 12 ára
Óskum landsmönnum
SÝNINGARTÍMAR GILDA FYRIR 26. DESEMBER
HINIR FRÁFÖLLNU ÞRJÁR Á TOPPNUM
ÆTLI nokkur djasssveit, eftir að
Charlie Parker leið, hafi náð slíkum
hæðum í klassískum djassleik og
kvintett Miles Davis er starfaði á ár-
unum frá 1965–68 með Shorter og
Hancock innanborðs? Margar bestu
djasssveitir sem nú leika hafa leitað
þangað beint eða óbeint og er Atl-
antshafið, fyrrum Atlantshafs-
bandalagið, ein þeirra. Kannski ekki
meðvitað, heldur hefur skólun þeirra
fyrir austan haf sem vestan beint
þeim á þær brautir. Þeir félagar
hafa leikið meira og minna saman
síðan þeir voru í Menntaskólanum í
Hamrahlíð en þessa tónlist hafa þeir
aðeins leikið saman þrisvar sinnum.
Fyrst árið 2004, þá 2005, er hljóm-
plata þessi var hljóðrituð, og svo nú í
desember. Gulli er sá eini þeirra sem
enn býr erlendis; atvinnubassaleik-
ari í Hollandi. Það má segja að þeir
séu í sama hlutverki í ungdjassinum
íslenska og Útlendingahersveitin í
þeim eldri. Í þessum sveitum hittast
nokkrir af helstu snillingum heillar
kynslóðar og leika eigin djasstónlist.
Á nýju skífunni, sem tilnefnd hefur
verið til íslensku tónlistarverð-
launanna sem besta djassplata árs-
ins, eru fjögur verk eftir Gulla, þrjú
eftir Agga og tvö eftir Einar Val.
Allflest þeirra eru ofin úr ljóðrænum
glitþráðum en sterk sveifla skýtur
þó upp kollinum af og til. Nitron eft-
ir Gulla er meðalhraður mælsískur
ópus og fylgir ljúfsár ballaða hans í
kjölfarið, Lögur. Þá er keyrt á fullu í
Slangeman Agga þar sem Jóel blæs
frábæran stílblandaðan sóló. Hljóð-
vit Agga er aftur á móti evrópskara í
byggingu þar sem píanó og boga-
bassi leika inngang áður en Jóel
blæs laglínuna, sólóar eru fínir og
fer höfundur glæsilegur í leikandi lí-
nuspuna studdum sterkum hljóm-
um. Þarna sem annars staðar eru
Gulli og Einar Valur allt um kring í
sterkum hryni sem styður einleik-
arana til dáða. Ballaða Gulla, T , ber
norrænan blæ með sér og N-ið hans
er skemmtilegur tónleikur. Líf Ein-
ars Vals er tilnefnt til íslensku tón-
listarverðlaunanna sem djasslag
ársins, ljúf ballaða, rótföst í íslenskri
mold, aftur á móti er seinni ópus
hans, Small Wonder, hrynfastari og
alþjóðlegri. Lokalag skífunnar er
eftir Gulla, Láður nefnist það, einfalt
og grípandi, en býr yfir ryþmískum
seið og slær réttum botni í skífuna.
Þessi diskur er fallegur gripur og
vandaður, bæði að ytri sem innri
gerð. Það þarf að gefa sér góðan
tíma til að ná að kjarna tónlistar-
innar sem kann að virðast nokkuð
einsleit við fyrstu hlustun. En það er
fyrirhafnarinnar virði. Hljóðfæra-
leikurinn er eins og best verður kos-
inn, enda Jóel og Agnar sólistar af
fínustu sort, Gulli tandurhreinn og
mjúkur bassisti og Einar Valur bæði
hrynfastur og melódískur.
Djassklassík af
meiði Miles
Djass
Íslenskur geisladiskur
Jóel Pálsson tenórsaxófón, Agnar Már
Magnússon píanó, Gunnlaugur Guð-
mundsson bassa og Einar Valur Scheving
trommur.
Atlantshaf
Vernharður Linnet