Morgunblaðið - 27.01.2007, Side 15

Morgunblaðið - 27.01.2007, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 15 FRÉTTIR Sjálfstæðisflokkurinn Háaleitisbraut 1 105 Reykjavík sími 515 1700 www.xd.is 13.15 Aðalfundur Varðar – Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík Venjuleg aðalfundarstörf Ræða formanns Sjálfstæðisflokksins, Geirs H. Haarde, forsætisráðherra Þingforseti: Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnmálafræðingur 14.30 Opinn fundur – allir velkomnir Umhverfi og velferð Framsöguræður flytja: Ásta Möller, alþingismaður Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður, Illugi Gunnarsson, hagfræðingur og Ragnar Árnason, prófessor. Pallborðsumræður. Stjórnandi: Sigríður Andersen, lögfræðingur. 20.00 Þorrablót sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík í Súlnasal Hótels Sögu. Húsið opnað kl. 19.00 Heiðursgestur: Guðlaugur Þór Þórðarson, alþingismaður. Blótsstjóri: Illugi Gunnarsson, hagfræðingur. Umhverfi og velferð Kjördæmisþing reykvískra sjálfstæðismanna laugardaginn 27. janúar 2007 í Sunnusal Hótels Sögu. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is MATSNEFND sem var skipuð skv. samningi Landsvirkjunar og flestra landeigenda við Jökulsá á Dal, Jök- ulsá í Fljótsdal og Kelduá og ákveða mun verðmæti og umfang vatnsréttinda landeigenda vegna Kárahnjúkavirkjunar, er að störfum og úrskurðar hennar líklega að vænta í vor. Hægt verður að fara með niðurstöður nefndarinnar fyrir dómstóla, sætti aðilar sig ekki við úrskurð hennar. Lögmenn vatnsréttarhafa munu leggja fram frekari gögn fyrir mats- nefndina í lok mánaðarins og mál- flutningur um kröfur aðila áætlaður í lok mars nk. Að því búnu verður málið tekið til úrskurðar og niður- staða gefin út. Formaður mats- nefndarinnar er Skúli Pálmason, f.v. héraðsdómari. Landeigendur fara fram á að vatnsréttindin í heild verði metin að andvirði 60 milljarða króna í mats- máli gegn Landsvirkjun, sem gerir kröfu um að þau nemi í hæsta lagi 375 milljónum króna. Krafa landeig- enda byggist á eingreiðsluuppreikn- ingi 15% árgreiðslu af brúttótekjum Kárahnjúkavirkjunar, en sú að- ferðafræði er að mati lögmanna Lögmannsstofunnar Regula, sem starfar að málinu, í samræmi við verðmyndun sem orðið hefur á vatnsréttindum eftir gildistöku raf- orkulaga frá 2003. Jón Jónsson hdl. hjá Regula, segir óumdeilda og viðurkennda reglu að eignarnámsbætur ráðist að jafnaði af þekktu markaðsverði á eign eða sambærilegum eignum. „Sú krafa sem vatnsréttarhafar byggja að meginstofni á er að eðlilegt hlutfall af árlegum brúttótekjum Kára- hnjúkavirkjunar verði ákveðið 15%, þær árstekjur verði svo reiknaðar upp með afvöxtunarútreikningi í ein- greiðslu með tilliti til fyrir- sjáanlegrar hækkunar á raforku í framtíðinni“ segir Jón. „Á þeim grundvelli er þess krafist að heildar- vatnsréttindi vegna Kárahnjúka- virkjunar verði metin á u.þ.b. 60 milljarða. Af þeim vatnsréttindum eiga einkaaðilar einungis hluta og er þar um að ræða eigendur um 5–60 jarða.“ Engar viðræður farið fram Með Kárahnjúkavirkjun er Jök- ulsá á Dal tekin úr farvegi sínum og flutt í Lagarfljót eftir aðrennslis- og fallgöngum virkjunarinnar. Landeigendur við Lagarfljót eru ósáttir við að Landsvirkjun skuli ekki ganga til viðræðna um áhrif af flutningi Jöklu í Lagarfljót, en fyr- irtækið telur þau verða hverfandi. Því eru landeigendur ósammála og vilja krefja Landsvirkjun um fébæt- ur og frekari rýmkun farvegar Lag- arfljóts. Þegar er búið að sprengja burt um 10 þúsund rúmmetra berg- haft við Lagarfoss til að stækka vatnsveginn, en ekki gert ráð fyrir frekari rýmkun hans af Landsvirkj- unar hálfu. Landsvirkjun hefur í samvinnu við heimamenn í Fljótsdalshreppi látið vinna að gerð varnargarða til að verja tún sem liggja að farvegi Jökulsár í Fljótsdal þar sem hún rennur í Lagarfljót. Þá hafa skv. Pétri Ingólfssyni hjá Landsvirkjun verið gerðir samningar við landeig- endur í Fljótsdal um bætur vegna túna. Pétur Elísson, formaður Félags landeigenda við Lagarfljót (FLL), telur atriði eins og skerðingu á fisk- gengd og á silungsveiði, rask á lífríki vegna kólnunar við Lagarfljót og landrof geta skaðað hagsmuni land- eigenda. Jarðirnar meðfram fljótinu eigi Lagarfljót og hafi ráðstöfunar- rétt yfir því. Pétur segir landeigend- ur ekki muni flytja vatnið úr Háls- lóni endurgjaldslaust fyrir Lands- virkjun til sjávar. Kvöð á eigendur vatnsvegar Kristinn Bjarnason hrl, lögmaður landeigandafélagsins, segir vera til skoðunar hver kunni að vera réttindi þeirra sem eiga land að Jökulsá í Fljótsdal og Lagarfljóti frá enda frá- rennslisskurðar og til sjávar. Inn í þá skoðun spili sú staða að vatn sem leitt sé yfir í nýjan farveg nýtist við orkuvinnslu í Lagarfossvirkjun eftir stækkun hennar sem nú er unnið að. „Ég hef unnið með stjórn FLL að því að greina réttarstöðuna og und- irbúa kröfugerð,“ segir Kristinn. „Er þar m.a. til skoðunar hvort þeir sem land eiga að framangreindum vatnsföllum og eru að íslenskum lög- um eigendur vatnsbotnsins sem net- lögum nemur eigi rétt til endur- gjalds fyrir þá nýtingu sem felst í því að vatnsfarvegurinn er notaður til að koma „nýju“ vatni til sjávar eftir að nýtingu þess við orkuvinnslu er lokið. Með þeirri heimild sem virkjunaraðilinn fær til að taka vatn Jökulsár á Brú úr sínum farvegi, nýta það til orkuvinnslu og láta það síðan í nýjan farveg, má líta svo á að verið sé að leggja kvöð á eigendur vatnsfarvegarins. Augljóst er að framkvæmd sú sem verið er að vinna er möguleg og arðbær af því þessi vatnsfarvegur er til staðar. Þá er einnig til skoðunar í þessu sam- hengi að vatnsfarvegurinn er notað- ur til miðlunar vatns til Lagarfoss- virkjunar.“ Kristinn slær þann varnagla að vatnalög og lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu geti tak- markað heimildir landeigenda, þ.e. eigendur netlaga til nýtingar á vatnsbotni. Vinna við kröfugerð og undirbún- ingur að málarekstri er hafinn. Í þeirri athugun felst einnig að hverj- um skuli beina kröfum, þ.e. Lands- virkjun og/eða Rafmagnsveitum rík- isins. „Ég vænti þess að málið fari fyrir dómstóla en meðal þess sem til skoð- unar er, er hvernig kröfugerð verð- ur sett fram. Þannig kann að vera að leitast verði við að fá viðurkenning- ardóm um greiðsluskylduna áður en farið verður að stofna til matskostn- aðar um hæfilegt endurgjald eða bætur.“ Kristinn segir erfitt að segja til um fjárhæðir í þessu sambandi enda ekki fordæmi fyrir hendi. Við kröfu- gerð yrði væntanlega litið til þeirra hagsmuna sem í húfi eru, þ.e. verð- mæti þeirrar nýtingar sem um ræðir og mæla má í andvirði raforkunnar sem framleidd er. Hugsanlega megi að einhverju leyti beita sambæri- legum aðferðum og notaðar eru við mat á verðmæti vatnsréttinda til orkuvinnslu. Landeigendur við Lagar- fljót undirbúa kröfugerð Í HNOTSKURN »Matnefnd um verðmæti ogumfang vatnsréttinda land- eigenda á Jökulsá á Dal er að störfum og mun væntanlega skila niðurstöðu snemma í vor. »Lönd og höf skilja að hug-myndir landeigenda og Landsvirkjunar um eðlilega upp- hæð bótafjár. »Landeigendur við Lagarfljótog Jökulsá í Fljótsdal und- irbúa kröfugerð á hendur Lands- virkjun vegna flutnings Jökulsár á Dal um farveg Lagarfljóts til sjávar. »Engin fordæmi eru í þessummálum enda vatnaflutningar af þessari stærðargráðu óþekkt- ir hér á landi fram til þessa. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Vatnsverðmæti Landeigendur við Jökulsá á Dal bíða úrskurðar sérskip- aðrar matsnefndar um virði vatnsréttinda þeirra með óþreyju meðan land- eigendur við Lagarfljót undirbúa kröfugerð á hendur Landsvirkjun. Eftir Steinunni Ásmundsdóttur steinunn@mbl.is VIÐ höfum fullkomna aðgerðastjórn- stöð og ágætis viðbragðskerfi sem sett hefur verið á laggirnar á síðustu árum og erum tilbúin að takast á við rýmingu ef vá ber að höndum,“ sagði Lárus Bjarnason, sýslumaður á Seyð- isfirði, á opnum fundi um stöðu við- bragðs- og rýmingaráætlana vegna hugsanlegs stíflurofs við Hálslón Kárahnjúkavirkjunar. Á fundinum, sem haldinn var í Jök- ulsárhlíð á fimmtudagskvöld, kynntu fulltrúar frá almannavarnadeild rík- islögreglustjóra og almannavarna- nefnd Héraðssvæðis og Borgarfjarð- ar stöðu mála, en hún er í stuttu máli sú að rýmingaráætlun er tilbúin fyrir svæðið en heildarviðbragðsáætlun er í vinnslu og lýkur í vor með æfingu. Heimamenn á Fljótsdalshéraði hafa kallað eftir upplýsingum um alla áhættuþætti tengda virkjunarfram- kvæmdinni og átalið seinagang við gerð viðbragðsáætlunar vegna hugs- anlegs stíflurofs. Eiríkur Bj. Björgvinsson, bæjar- stjóri Fljótsdalshéraðs, sagði við- bragðsaðila ekki hafa setið auðum höndum heldur væri fyrirliggjandi rýmingaráætlun og sl. fjóra mánuði hefði farið fram vinna sem nýtast myndi í gerð viðbragðsáætlunar fyrir svæðið. „Við höfðum tiltækar upplýsingar um alla íbúa hér á svæðinu og áður en byrjað var að fylla í Hálslón var þeim upplýsingum komið til Neyðarlínu,“ sagði Eiríkur. „Ef eitthvað hefði gerst eða gerist á næstu vikum erum við því ekki óviðbúin.“ Stíflurof með löngum fyrirvara Viðvörunarmerki um yfirvofandi stíflurof gætu t.d. verið óeðlilegur leki gegnum Kárahnjúkastíflu, hreyfing á mannvirkjum og mikil vatnsveður, jarðskjálftar og óeðlilegt framskrið jökla. Mælitæki eru víða við lónstæð- ið, m.a. í stíflunni sjálfri og mæla hreyfingar og breytingar sem fylgst er með allan sólarhringinn. Ekkert hefur komið fram til þessa sem bendir til annars en að stíflan standist ýtr- ustu kröfur. Fram kom á fundinum að ef yrði straumrof við Kárahnjúka- stíflu væru varaaflsvélar við stífluna og í stöðvarhúsinu í Fljótsdal. Þannig væri öruggt að orka héldist á mæli- kerfi virkjunarinnar. Ef allt um þryti væri mjög stórt yfirfall við Desjarár- stíflu sem tæki geysilegt vatnsmagn í verstu mögulegum tilfellum stíflurofs og/eða flóða. Fyrirvarar eiga að vera nokkrir verði stíflurof og þrengstu mörk skv. útreikningum þau að flóð nái efstu bæjum á skilgreindu áhættusvæði á tveimur klukkustund- um og gefi um 90 mínútna viðbragðs- tíma, miðað við 150 þúsund rúmmetra flóð úr Hálslóni til sjávar. Heimamenn bentu viðbragðsaðil- um m.a. á að alls óviðunandi gsm- samband væri víða á skilgreindu áhættusvæði og í jöðrum þess, eink- um á Jökuldal og í Jökulsárhlíð, þrátt fyrir loforð Landsvirkjunar og Sím- ans um hið gagnstæða. Hét bæjar- stjóri að fast yrði fylgt eftir að úrbæt- ur væru gerðar á því. Tilbúin ef vá ber að höndum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.