Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 26
TOLSTOJ, Laxness og Dic- kens. Auðvitað hafa allir les- ið verk eftir þessa snilld- arhöfunda enda eru þeir siðmenntað fólk. Eða hvað? Niðurstöður nýrrar breskrar rannsóknar sýna nefnilega að þriðja hver manneskja játar að hafa log- ið til um hversu vel lesin hún er, að sögn Berlingske Ti- dende. Um 4.000 manns voru spurðir. Tveir af hverjum fimm segjast ljúga til um lestur sinn til að geta tekið þátt í umræðum og einn af hverjum tíu karl- mönnum gerir það til að ganga í augun á hinu kyninu. Rannsóknin var á vegum The Museums, Libraries and Archive Council í Bretlandi og segist John Dolan, sem var í forsvari fyrir hana, mjög ánægður með niðurstöðurnar. „Það er heillandi að sjá hversu margir reyna að ganga í augun á öðrum með bókum sem þeir hafa aldrei lesið,“ segir hann. Samkvæmt rannsókninni er algengast að Bretar ljúgi því að hafa lesið Hringadróttinssögu eftir J.R.R. Tolkien en bækur á borð við Stríð og frið eftir Tolstoj og Fýkur yfir hæðir eftir Emily Brontë eru einnig ofarlega á lista. Logið til um lestur Skáldverk Jú, þær eru margar bæk- urnar sem við ættum að lesa. Morgunblaðið/ÞÖK |laugardagur|27. 1. 2007| mbl.is daglegtlíf Í sumar ættu herrarnir að skarta fötum sem bera persónulegum stíl vitni og leita innblásturs í því sem efst er á baugi. » 30 tíska Ingi Már Úlfarsson er nýkominn heim til Íslands eftir að hafa verið skiptinemi í Paragvæ síð- asta árið. » 32 ferðalög Sigurbjörg Einarsdóttir kann best við sig í risíbúðum og gömlum húsum sem hefur verið haldið vel við. » 28 lifun Við vorum pínulitlar, kannskiþriggja eða fjögurra ára,þegar við byrjuðum að fálánuð gúmmístígvél hver annarrar. Þetta hefur ekki stoppað síðan,“ segir Sigrún María Grét- arsdóttir um það fatalán sem þær stunda stíft, hún og vinkonur hennar Brynja Gunnarsdóttir og Svava Kristjánsdóttir. „Svo er fjórða stelp- an líka með í þessari fataklíku, hún er frænka okkar Sigrúnar, en það vill svo vel til að við notum allar um það bil sömu stærð af fötum,“ segir Svava og bætir við að skónúmer og brjóstahaldaranúmer þeirra séu þó ekki öll þau sömu. „En tvær okkar nota sömu stærðir af brjóstahöld- urum og hinar tvær geta notað sömu skó.“ Þær segja að karlkyns vinir þeirra hafi orðið þó nokkuð hneykslaðir þegar þeir komust að því að þær lán- uðu hver annarri líka nærföt. „Þetta eru bara hrein og fín föt sem við sjáum engan mun á að fá lánuð frek- ar en aðrar flíkur. Aðstæður geta líka verið þannig að maður verður að fá undirföt lánuð, til dæmis þegar við gistum hver hjá annarri, sem er þó nokkuð algengt, þá fer maður kannski í sturtu um morguninn og þarf að fá hrein nærföt lánuð af því maður er ekki heima hjá sér. Í okkar huga er þetta sjálfsagt mál og við lánum líka hver annarri tannburst- ana okkar,“ segir Brynja og bætir við að það hafi marga kosti að skiptast svona á með föt. „Við spörum heilmikið í fata- kaupum því okkur líður eins og við séum í nýrri flík þegar við fáum eitt- hvað lánað hjá hver annarri. Svo er þetta líka svo gaman, að máta, prófa og skoða hvað fer hverri vel. Og þeg- ar einhver okkar kaupir nýja flík sem einhverri annarri í hópnum líst vel á, þá erum við ekkert feimnar við að segja. „Ég ætla sko pottþétt að fá þetta lánað hjá þér einhvern tíman.“ Allar jafn frekar Reyndar koma stundum upp árekstrar þegar einhver í hópnum hefur hugsað sér að vera í einhverri flík frá annarri við eitthvert ákveðið tækifæri þar sem þær eru allar sam- an. „Og það kemur kannski í ljós að eigandinn ætlar einmitt að vera í þeim bol eða buxum. Þá förum við ekkert að rífast um það, fíflumst kannski eitthvað og frekjumst, en eigandinn ræður auðvitað. Við erum allar jafn frekar, þannig að það valt- ar enginn yfir neinn þegar kemur að fataláni.“ Þær segja að stundum vilji flík- urnar fara á flakk og gleymast. Þær eru allar sammála um að mæður þeirra hafi oft pirrað sig á því þegar þær voru yngri. „En núna þegar við kaupum okkar föt sjálfar, þá er þetta okkar mál. Og það er svolítið gaman að komast allt í einu að því að maður á flotta flík hjá vinkonu sinni sem maður var búinn að steingleyma að væri til. Þetta skil- ar sér nú oftast að lokum í rétta fata- skápa en stundum höldum við að við eigum eitthvað af því við erum búnar að vera svo lengi með það í láni.“ Þær segja að fatalán krefjist ákveðins trausts, sem þær beri hver til annarrar. „Við lánum ekki neinum öðrum nema systrum okkar fötin okkar. Ég hef reyndar lánað Brynju föt af systur minni sem ég var með í láni frá henni og mamma mín varð dálítið hissa þegar hún sá Brynju í fötum systur minnar,“ segir Sigrún og hlær en þær vinna allar á sama stað. „Við förum saman í ræktina fyrir vinnu á morgnana, vinnum sam- an og djömmum saman. Enda fáum við fráhvarfseinkenni ef einhver okk- ar fer í burtu í meira en viku.“ Þær segjast halda að fataláns- hegðunin sé stelpufyrirbæri. „Við sjáum þessa hegðun ekki mikið hjá strákum í kringum okkur. Kannski eru þeir eitthvað feimnir við að fá lánað hjá hver öðrum eða þeir pæla bara ekki eins mikið í fötum og við.“ Ég í þínu, þú í hennar og hún í mínu Morgunblaðið/Árni Sæberg Tekist á Brynja, Svava og Sigrún togast á um flík sem þær vilja allar fá lánaða hjá þeirri fjórðu. Litla fatafríkið Hundurinn hennar Sigrúnar ánægður í fatahrúgunni. Alþjóðlega leikfangasýn- ingin verður haldin í Banda- ríkjunum í febrúar. Þar kynna leikfangaframleið- endur nýjungar og meðal þeirra í ár er páfagaukur sem hegðar sér eins og al- vörupáfagaukur og kannski rúmlega það. Hann end- urtekur orð sem eru sögð við hann, bregst við snertingu og dansar. Páfagaukur eða leikfang? Reuters Nú hugsar landinn til landsliðsins íhandbolta, sem stendur í ströngu í Þýskalandi. Sigrún Sveinsdóttir færði landsliðinu hamingjuóskir í bundnu máli eftir sigurinn á Túnis á bloggsíðu sinni, sem finna má á slóðinni www.savior.blog.is: Í sófanum ég sit ei hljóð svona fer með marga. Ég er orðin alveg óð, upp ég stend og garga. Já, þeir sigra eflaust enn, þótt af þeim svitinn bogi. Þetta eru mínir menn: Meira svona Logi. Og enn yrkir hún: Áfram liðið Alfreð dregur unun er að sjá til hans. Allan leikinn ótrúlegur iðkar sannan línudans. VÍSNAHORNIÐ Af handbolta pebl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.