Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 43 og helju sólarhringa þar á eftir. Á þeim sjúkrabeði öðlaðist hann þá sýn sem varð til þess að hann kveið ekki vistaskiptum á annað tilveru- stig. Eftir að heim var komið varð krabbamein sem hann hafði áður greinst með, honum æ erfiðara og ekki síst sem einbúa. Var það mikið lán fyrir Bjössa þegar vinkona hans, Ólöf Sölvadóttir, bauð honum að dvelja hjá sér á Egilsstöðum og mik- ill léttir dætrum hans að vita hann á því heimili, fáandi alla þá góðu umönnum hjá Ollu sem aldrei verður fullþökkuð. Það var öllum ljóst sem til þekktu að lífið var orðið erfitt síð- ustu mánuði. Því kveðjum við góðan vin sátt og þökkum honum allt það góða sem hann gaf okkur. Dætrum hans og tengdasonum, barnabörn- um, systkinum og Ollu biðjum við blessunar. Guðmundur og fjölskylda á Vaði. Það eru forréttindi að eiga ömmu og afa en ég var svo heppin að eiga ekki bara venjulega ömmu og afa heldur átti ég ömmu og afa í sveit- inni. Ég beið óþreyjufull á vorin eftir að komast í sauðburðinn en varð svo að yfirgefa sæluna kvöldið áður en skólinn byrjaði. Ég naut góðs af því að vera elsta barnabarnið og fá óskipta athygli þeirra beggja og not- uðu þau tímann til að spilla mér en jafnframt að gera mig að betri manneskju eins og þau orðuðu það. Amma og afi voru ólík. Amma var hávaðasöm, rösk, pólitísk og fljót- huga en átti auðvelt með að skipta um skoðun á meðan afi var rólyndur, úrræðagóður, hreinskilinn, stríðinn, þögull en jafnframt þrjóskari en allt. Þegar hann var búinn að taka ákvörðun var erfitt að breyta henni. Ég fékk oft það hlutverk að hringja í afa til að kjafta hann til, t.d. þegar átti að fá hann til að koma í heim- sókn til Reykjavíkur yfir jól og ára- mót. Á milli okkar þriggja, mín afa og ömmu, ríkti vinátta og virðing og var því erfður tími fyrir okkur afa þegar amma dó 1992. Afi tók það ekki í mál að flytja suður til barna og barna- barna og vildi halda áfram með bú- skap á Sauðhaga 2, enda leið honum hvergi betur en á Austurlandi. Við afi vorum miklir vinir og gát- um við rætt allt milli himins og jarð- ar, hvort sem það var eitthvað um sveitina eða ástamálin auk þess að geta dundað okkur við hin ýmsu verkefni eins og að spila kasínu þó að ég þekki engan sem svindlaði eins mikið í spilum og hann afa minn. Það var eingöngu eitt atriði sem við vorum ósammála um og það var hvort hann ætti að taka í nefið. Mín leið til að fá afa til að hætta var að fela neftóbaksdollurnar og að lokum var afi farinn að fela þær sjálfur til að ég myndi ekki finna þær. Úr þessu varð hinn skemmtilegast leik- ur okkar á milli en auðvitað gaf ég mig alltaf um leið og afi var búinn að týna öllu saman og bað um smá tób- ak. En líklega myndum við ef vel væri leitað finna einhverjar dollur í sveitinni. Oft hringdi afi þegar honum leidd- ist til að spjalla en það breyttist fyrir nokkrum árum þegar hann flutti til hennar Ollu sinnar en þá urðu fáar þær stundir sem honum leiddist. Þá hafði afi ekki alltaf tíma til að spjalla lengi því það var svo mikið að gera í spilamennskunni hjá honum og Ollu. Því miður fékk afi minn ekki langan tíma með Ollu en ég veit að þau áttu góðar stundir saman og vil ég þakka Ollu fyrir að hafa gert afa ánægðan með lífið á ný. Einnig vil ég þakka starfsfólki sjúkrahússins á Egilsstöðum fyrir að hafa hugsað vel um afa og fyrir alla þá aðstoð sem það veitti mér og fjölskyldu minni síðustu daga hans. Elsku afi, ég kveð þig með söknuði en ég veit að þú varst sáttur við þitt líf og tilbúinn að halda áfram á nýrri braut. Þú sagðir mér síðast þegar við hittumst að þú værir orðinn gam- all og yrðir ekki til staðar að eilífu en minningin um þig mun lifa í hjarta mínu auk allra þeirra fallegu hluta sem þú útbjóst handa mér. Ég bið innilega að heilsa ömmu og ég veit að hún hefur tekið vel á móti þér. Hvíl í friði, elsku afi. Þín Ásbjörg. ✝ Þorgerður Jens-dóttir fæddist á Þingeyri 1. nóv- ember 1921. Hún lést á öldrunardeild Sjúkrahúss Ísa- fjarðar 19. janúar síðastliðinn. For- eldrar hennar voru Jens Ögmundsson, f. á Hálsi á Skógar- strönd 1885, og Að- alheiður Soffía Bjarnadóttir, f. á Tjaldanesi í Auð- kúluhreppi 1898. Systkini Þorgerðar sammæðra eru Gunnjóna Fanney 1923–1924, Guðvarður 1924, Gunnjóna Fann- ey 1927–1976, Svavar 1928–2006, Yngvi 1930, Hjörleifur 1931– 2000, Sigurbjörg 1933, Hreiðar 1935 og Guðbjörn 1941. Samfeðra eru Erna Brynhildur 1928, Þór Reynir 1931–1990, Magnús 1934– 1970, Garðar 1935–1994. Þorgerður giftist 6. desember ar Örn, f. 2004; Ísak, f. 1977; og Rakel Helena, f. 1981. 5) Að- alheiður Guðbjörg, f. 31.7. 1949. 6) Pálína, f. 28.2. 1951, gift Sig- mari Páli Ólafssyni, börn þeirra eru Jóna Margrét, f. 1970, sam- býlismaður Guðmundur B. Bald- vinsson; Gerða, f. 1976, gift Hin- riki Sigurði Jóhannessyni, börn þeirra eru Jóhannes Páll, f. 1999, Sigmar Breki, f. 2003, Valgerður Saga, f. 2005; og Signý Pála, f. 1985, sambýlismaður Páll Indr- iðason. 7) Matthías, f. 21.3. 1952, kvæntur Guðmundínu Hallgríms- dóttur. Synir þeirra eru Páll Þor- geir, f. 1971, kvæntur Gunnvöru Brögu Jónsdóttur, synir þeirra eru Hafþór Ingi, f. 1993, Björn Hreiðar, f. 1996, Matthías Þor- bergur, f. 1999, og Olíver Helgi, f. 2002; Kári Þór, f. 1976, kvænt- ur Majbritt Hansen, dætur þeirra eru Guðný Hallgerð, f. 1996, Ronja Þóra, f. 1998, og Rebekka Dís, f. 2005; Matthías Freyr, f. 1980, sambýliskona Elísabet Thoroddsen. Útför Þorgerðar verður gerð frá Ísafjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. 1942 Páli Ásgeirs- syni frá Baulhúsum í Arnarfirði og eign- uðust þau sjö börn. Þau eru: 1) Matthías Ásgeirs, f. 16.8. 1943, d. 17.5. 1950. 2) Sigríður, f. 18.11. 1944. Dóttir hennar er Jóhanna Íris Jak- obsdóttir, f. 1975. Sambýlismaður hennar er Hafsteinn Ásgrímur Ingvars- son. Dóttir Jóhönnu og Hafsteins er Ísa- bella Íris, f. 2006. 3) Sturlaugur, f. 6.3. 1946, kvæntur Margréti Svavarsdóttur, skilin. Sonur þeirra er Óskar Páll, f. 1987. 4) Kristján, f. 29.11. 1947, kvæntur Ólöfu Helgadóttur. Börn þeirra eru Jóna Lind Karlsdóttir, f. 1968; Karítas Elísabet, f. 1972, sambýlismaður Rúnar Örn Rafns- son, sonur Karitasar er Hilmar Þ., f. 1995, sonur Rúnars er Veig- Ævi Gerðu var ekki alltaf auð- veld. Foreldrar hennar giftust aldrei og bjuggu ekki saman. Gerða var elsta barn móður sinnar og var hjá henni fyrstu átta ár æv- innar, en þá leystist heimilið upp vegna veikinda stjúpa hennar. Þau voru þá orðin fjögur systkinin og voru þrjú þau elstu send sitt á hvern bæinn í sveitinni, en það yngsta fékk að fylgja móður sinni. Þessar aðstæður eru okkur fram- andi í dag, þar sem samfélagið hef- ur breyst svo mikið á einni manns- ævi, að ekki er unnt fyrir ungt fólk að skilja hvernig tekist var á við aðsteðjandi vanda fyrr á tímum. Gerða fór frá móður sinni til sæmdarhjónanna Sturlaugs Ein- arssonar og Guðrúnar Elínar Kristjánsdóttur í Múla í Ísafirði. Þar ólst hún upp til fullorðinsára með uppeldissystkinum sínum, þeim Gerði og Kristjáni. Hún naut þeirrar menntunar, sem tiltæk var í sveitinni og stundaði síðan nám við Húsmæðraskólann á Ísafirði með stuðningi fósturforeldra sinna, en slíkt nám var ekki al- gengt á þeim tíma. Henni lá alltaf hlýtt orð til fósturforeldra sinna og uppeldissystkina. Gerða hélt góðu sambandi við móður sína þrátt fyrir aðskilnað- inn og fylgdist með systkinum sín- um úr fjarlægð, þó ekki hafi verið náið samband þeirra í milli. Því eins og Guðvarður, bróðir hennar, skrifar: „Aldrei hefur okkur systk- inunum tekist að mynda eðlileg systkinatengsl og býst ég við að það hefði litlu breytt hjá hvaða fósturforeldrum við hefðum alist upp.“ Þessar aðstæður í uppeldinu hljóta að vera erfiðar hvaða ein- staklingi sem er og hljóta einnig að setja mark sitt á þá sem fyrir því verða, en Gerða var sterkur og gefandi einstaklingur og það fylgdi henni í gegnum lífið. Hún mátti aldrei aumt sjá og var alltaf boðin og búin, að gefa það sem hún átti þeim sem hún taldi þurfandi, en þeir voru margir. Hún giftist Páli Ásgeirssyni frá Baulhúsum í Arnarfirði árið 1942. Þau bjuggu fyrstu sambúðarár sín á Ísafirði en fluttu til Flateyrar ár- ið 1949 og bjuggu þar þangað til Páll lést árið 1989, en þá flutti Gerða til Ísafjarðar aftur og bjó þar til dauðadags. Gerða og Palli eignuðust sjö börn og voru fimm þeirra fædd er þau fluttu til Flateyrar. Elsti drengurinn, Matthías Ásgeir, var orðinn sex ára þegar þau fluttu og vorið eftir hvarf hann og fannst ekki aftur, þrátt fyrir mikla leit. Hvarf Matthíasar varð Gerðu mik- ið áfall og leitaði hún hans lengi eftir að skipulagðri leit var hætt. Þetta mikla áfall fylgdi henni í gegnum árin, enda ekki um áfalla- hjálp að ræða á þeim tíma. Gerða vann mikið og hélt fallegt heimili, þrátt fyrir mörg börn, sem fæddust öll á innan við tíu árum, hún vann úti og hafði kostgangara til þess að drýgja tekjur heimilis- ins. Hún var smekkmanneskja varðandi hannyrðir og heimili, þannig að eftir var tekið. Ég þekkti Gerðu frá barnæsku, en kynntist henni ekki náið, fyrr en eftir að við Pálína fórum að draga okkur saman, en þá héldum við hópinn saman nokkur og eydd- um tímanum heima hjá Gerðu og Palla. Stundum hefur hvarflað að mér, eftir á, hverskonar endalausri þolinmæði og umburðarlyndi þessi sæmdarhjón voru gædd, því aldrei var orðinu hallað við okkur ung- lingana, þó kvöldin yrðu stundum löng og ekki væri alltaf talað sam- an á lágu nótunum í stofunni á Grundarstígnum. Ég vildi að ég hefði smá brot af þessum eigin- leikum til þess að sýna mínum af- komendum. Gerða var alla tíð gefandi. Það var hennar einkenni allan þann tíma sem ég þekkti hana. Hún hafði alltaf áhyggjur af því að við værum svöng eða okkur vantaði eitthvað. Hún hafði ljúfa kímni- gáfu og sá auðveldlega jákvæðar hliðar tilverunnar. Hún var sérlega elsk að dætrum okkar og þær að henni, enda eydd- um við saman mörgum frídögum, bæði hér heima á Íslandi og einnig erlendis þar sem við héldum til, vegna starfa minna. Gerða bjó síðustu árin í íbúð sinni á Hlíf á Ísafirði og þangað heimsóttum við hana þegar færi gáfust, en þau hefðu gjarnan mátt vera fleiri. Seinustu árin hafa ver- ið henni erfið vegna fjarlægðarinn- ar og einsemdarinnar. Hún lést á öldrunardeild Sjúkrahúss Ísafjarð- ar, þar sem hún hafði dvalið frá lokum síðasta árs. Við hjónin viljum koma á fram- færi þakklæti til starfsfólks deild- arinnar, fyrir hlýlegt viðmót og frábæra umönnun þessa síðustu daga. Ég horfi með þakklæti til þess tíma, sem við áttum saman. Kveðja. Sigmar. Elsku amma okkar. Þá ertu far- in frá okkur, farin til afa. Það er okkur mikill missir að þú skulir vera farin. En þér líður í það minnsta betur núna. Það er yndislegt að hugsa aftur í tímann og rifja upp góðar minn- ingar um þig. Okkur þótti öllum yndislegt að koma í heimsókn á Grundarstíg- inn. Það var svo notalegt að koma til ykkar. Enda var oft mikið líf þar, sérstaklega á kvöldverðartím- anum. Það var alltaf til nóg handa öllum, alveg sama hversu marga vini maður dró heim með sér. Allt- af var eitthvað á borðum hjá þér og varst þú mikill og góður gest- gjafi. Hjá þér fengum við líka góð- an og gamaldags heimilismat, eins og ýmiss konar fisk, hrogn, lifur og svið. Eins munum við aldrei gleyma kaniltertunni góðu sem þú bakaðir svo oft og við hin ýmsu tækifæri, og ekki má nú gleyma heimsins bestu vínarbrauðum. Þegar afi var á lífi fóruð þið í bíltúr á hverju kvöldi eftir lok sjónvarpsdagskrárinnar og var það ein af ykkar uppáhaldsstund- um, og vitum við að þú saknaðir bíltúranna mikið eftir að afi lést. Okkur þótti rosa gaman að geta farið með þig í bíltúra eftir að við fengum bílpróf og gátum veitt þér smá skemmtun. Ekki leiddist okk- ur í bíltúrum og vorum við að rifja upp þegar þú fórst með Gerðu í bíltúr á Laugaveginn og töluðuð þið um að ræna banka og ná ykkur í stráka. Þú varst mikill húmoristi og varst alltaf tilbúin að grínast með okkur. Þú varst alltaf létt í lund og stutt í brosið hjá þér. Þú leyfðir okkur líka að komast upp með flest þegar við vorum í heimsókn hjá þér. En þó að svo væri varstu nú ekki tilbúin að leyfa okkur að komast upp með allt. Þegar Jóna var að skrópa í vinnunni tókstu hana á eintal og sagðir henni að ábyrgðarleysi væri ekki kostur, og nægði það til að Jóna tók sig á. Þú varst líka klár hannyrða- kona. Saumaðir út myndir og prjónaðir sokka og vettlinga á okkur allar. Alltaf áttum við nóg af vett- lingum og sokkum, og hefur það oft komið sér vel, bæði þegar kalt hefur verið í veðri og þegar flutn- ingar áttu sér stað. Svo þegar barnabarnabörnin fóru að koma í heiminn prjónaðir þú teppi sem vöktu mikla lukku og nýttust vel. Eftir að þú fluttir á Hlíf sastu við svefnherbergisgluggann og horfðir út og prjónaðir og var alltaf svo mikil ró yfir þér. Við munum sakna þín mikið, elsku amma. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem) Jóna, Gerða, Signý og Jóhanna. Þorgerður Jensdóttir ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát ástkærs eiginmanns míns, föður, afa og langafa, ÁRSÆLS GUÐSTEINSSONAR, Dalvegi 16c, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Landa- kotsspítala og heimaþjónustu Karítasar. Pálína K. Pálsdóttir, Sigurður Ársælsson, Anna Dóra Guðmundsdóttir, Vilborg Ósk Ársælsdóttir, Finnbogi G. Kristinsson, Páll H. Ársælsson, Guðrún H. Ársælsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og stuðning vegna andláts og útfarar FRIÐRIKS BJÖRNSSONAR bónda á Gili í Svartárdal. Guð blessi ykkur öll. Erla Hafsteinsdóttir, Örn Friðriksson, Hólmfríður Rögnvaldsdóttir, Guðríður Friðriksdóttir, Jón Hallur Pétursson, Hafrún Friðriksdóttir, Gauti Höskuldsson, Sigþrúður Friðriksdóttir, Guðmundur Guðbrandsson, Björn Grétar Friðriksson, Harpa Hrund Hafsteinsdóttir, Jóhanna Björnsdóttir, Sigfús Guðmundsson, barnabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur vináttu, samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, JÓNU GRÓU AÐALBJÖRNSDÓTTUR, Mýrarvegi 111, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Asparhlíð og Skógar- hlíð á dvalarheimilinu Hlíð fyrir góða umönnun. Eygló Sigurliðadóttir, Birgir Pálsson, Una Sigurliðadóttir, Þórir Haraldsson, Björn Sigurliðason, ömmu- og langömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.