Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 64
64 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
verzlanir þessarar
keðju geti selt á svo
háu verði? Getur það
verið? Ef ekki gæðin
hvað þá? Verri inn-
kaup? Varla getur það
verið að keðja margra
verzlana nái verri inn-
kaupum en einstaka
fisksalar – eða hvað?
Íslendingar eru
þekktir fyrir ýmislegt
annað en verðskyn. En
varla fer svona verð-
munur fram hjá fólki,
ekki sízt þegar erfitt er
að skýra hann.
Hvað sem segja má
um stórmarkaði al-
mennt hafa þeir þó lækkað vöruverð
a.m.k. miðað við það, sem var í eina
tíð. Ætti það sama ekki að gerast í
fiski?
En talandi um fisk, þá verður Vík-
verji alltaf tortrygginn, þegar fiskur
er seldur í alls konar sósum. Er ver-
ið að selja gamlan fisk í sósum?
Eru sósurnar aðferð fisksalanna
til þess að koma í veg fyrir að rýrn-
unin verði of mikil?
Kannski er þetta gamaldags af-
staða og allt í lagi með fisk í sósum!
En óneitanlega væri fróðlegt ef gerð
yrði ekki bara verðkönnun á fisk-
meti heldur líka gæðakönnun. Svo
að við vitum hvað við erum að kaupa.
Víkverji er að veltaþví fyrir sér,
hvers vegna fiskbúðir,
sem reknar eru undir
nafninu Fiskisaga,
skera sig svo mjög úr í
verðkönnun Alþýðu-
sambands Íslands á
fiskmeti.
Í verðkönnun ASÍ,
sem birt var í Morg-
unblaðinu í fyrradag,
eru fimm fiskbúðir,
sem reknar eru undir
þessu nafni, sem bend-
ir ótvírætt til þess að
hér sé að verða til fisk-
búðakeðja en það er
nýtt fyrirbæri hér.
Ætla mætti að slík keðja hefði
möguleika á að kaupa fisk á lægra
verði frá birgjum en svo virðist ekki
vera, ef marka má verðkönnun ASÍ.
Ein verzlana Fiskisögu er átta
sinnum með hæsta verð. Önnur níu
sinnum. Sú þriðja ellefu sinnum, sú
fjórða þrettán sinnum og sú fimmta
fimmtán sinnum.
Í könnun ASÍ kemur fram, að 90%
verðmunur reyndist á útvötnuðum
saltfiski. Dýrastur var hann í verzl-
unum Fiskisögu eða á 1.590 krónur
kílóið en ódýrastur í Fjarðarkaupum
á 838 krónur kílóið.
Hvað veldur þessu? Eru gæðin
svona miklu meiri í Fiskisögu, að
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
dagbók
Orð dagsins: Vertu ekki hrædd, litla hjörð, því að
föður yðar hefur þóknast að gefa yður ríkið.
(Lk. 12, 32.)
Í dag er laugardagur
27. janúar, 27. dagur
ársins 2007
velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Bakkynjur – frábær
leiksýning
ÉG fór í Þjóðleikhúsið í síðustu viku
ásamt stórum hópi nemenda við
Kennaraháskóla Íslands og sá sýn-
inguna Bakkynjur eftir gríska leik-
skáldið Evrípídes.
Mig langar að koma því á fram-
færi að um er að ræða óvenjulega
metnaðarfulla sýningu sem á erindi
til okkar allra. Þarna hefur ekkert
verið til sparað. Það er því leitt til
þess að vita að gagnrýnendur sáu
ekki ástæðu til að hrósa sýningunni
og hefur það sjálfsagt dregið úr að-
sókn. En það er ekki of seint að
taka við sér. Allir sem ég hef rætt
við og séð hafa sýninguna ljúka upp
einum munni: frábær sýning. Þá má
geta þess að leikskráin er til fyr-
irmyndar og afar upplýsandi.
Umrætt kvöld var auk þess boðið
upp á fyrirlestur á undan sýning-
unni um leikritið og goðsagnirnar
um Díonýsos (Bakkos) sem liggja að
baki verkinu.
Nú langar mig að hvetja alla sem
vettlingi geta valdið til að flykkjast
á þessa sýningu áður en það verður
um seinan. Það væri t.d. ekki ama-
legt fyrir framhaldsskólanema að fá
þarna innsýn í fornan grískan arf og
tengja við lesefni skólabókarinnar.
Og þeir sem hafa hrifist af norrænni
goðafræði munu sjá þarna furðu-
legar hliðstæður við þetta gríska
efni. En það sem er kannski mest
um vert er það að sýningin í Þjóð-
leikhúsinu höfðar alveg sérstaklega
til samtíma okkar, og það er eig-
inlega stórmerkilegt að einmitt það
skuli hafa farið fram hjá gagnrýn-
endum.
Baldur Hafstað.
Minningargjöf
VIÐ setningu Menntaskólans við
Sund sl. haust afhenti 15 ára út-
skriftarárgangur skólans veglega
bókargjöf í minningu bekkjarbróður
síns, Friðrik Ásgeirs Her-
mannssonar, sem lést í september
2005.
Gjöfin var valin í anda Friðriks
með áhugasvið hans í huga. Móðir
og fjölskylda Friðriks vilja koma á
framfæri kærum þökkum fyrir þá
virðingu og hlýju sem skólafélagar
sýna látnum vini.
Agnes Einarsdóttir.
Gullhálsmen týndist
GULLHÁLSMEN með bleikum
steini týndist á leið frá Seltjarn-
arnesi vestur í bæ. Skilvís finnandi
hafi samband í síma 561 1329. Fund-
arlaun.
Púnsi er týndur
PÚNSI á
heima á
Mánabraut
19 í Kópa-
vogi. Hann
hefur ekki
komið heim síðan laugardaginn 13.
janúar sl. Púnsi er hvítur með svört
eyru og svarta rófu og nokkra
svarta bletti. Hann er að verða 2ja
ára, er langur, grannur og háfættur.
Hann er með svarta hálsól með
tveimur bjöllum, lítilli gylltri og
stærri blágrænni, en ekki merki-
spjald. Hann er eyrnamerktur 05-
F-46. Púnsi er nokkuð hræddur við
ókunnuga. Þeir sem hafa orðið hans
varir og geta gefið upplýsingar eru
vinsamlega beðnir að hafa samband
við Guðrúnu eða Dagvin í síma 554-
2431 eða 846-42-42.
hlutavelta
ritstjorn@mbl.is
Hlutavelta | Þessir duglegu drengir,
Jón Hallmar Stefánsson og Vésteinn
Örn Pétursson, söfnuðu fyrir gjafa-
bréfum fyrir geitur og hænur að verð-
mæti 12.300 kr. til styrktar Hjálp-
arstarfi kirkjunnar.
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar
um afmæli, brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að kostn-
aðarlausu. Tilkynningar þurfa að ber-
ast með tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara fyrir
sunnudags- og mánudagsblað. Sam-
þykki afmælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk
getur hringt í síma 569-1100 eða sent á
netfangið ritstjorn@mbl.is.
Hægt er að senda tilkynningar í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Árnað heilla ásamt frekari upplýs-
ingum.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 LEYFÐ
NIGHT AT THE MUSEUM kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 8 B.i. 12
TENACIOUS D IN: THE PICK OF D... kl. 10 B.i. 12
KÖLD SLÓÐ kl. 10:15 B.i. 12
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
/ KEFLAVÍK
BLOOD DIAMOND kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 4 - 6 LEYFÐ
BABEL kl. 8 - 10:40 B.i. 16 ára
FRÁIR FÆTUR m/ísl. tali kl. 2 LEYFÐ
SKOLAÐ Í BURTU m/ísl. tali kl. 4 LEYFÐ
THE PRESTIGE kl. 5:40 B.i. 12 ára
/ AKUREYRI
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir aðalhlutverk karla/ Leonardo dicaprio5
FRÁ LEIKSTJÓRA
“THE LAST SAMURAI”
ÆVINTÝRALEG SPENNA OG HASAR.
STYÐST VIÐ RAUNVERULEGA ATBURÐI
FRÁBÆR BARNA-OG FJÖLSKYLDUMYND
FRÁ HÖFUNDI STÚART LITLA.
ATH! BÓKIN SEM MYNDIN ER BYGGÐ Á HEFUR VERIÐ ENDURÚTGEFIN
eeee
L.I.B. TOPP5.IS
eeee
S.V. MBL.
ÓSKARSTILNEFNINGAR2
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
ÓSKARSTIL-
NEFNINGAR5
MARTIN SCORSESE
BESTI LEIKSTJÓRINNSÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
eeee
H.J. MBL.
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
ÓSKARSTILNEFNINGAR
m.a. fyrir besta handrit ársins3
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 6 - 8 - 10
BABEL kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
CHILDREN OF MEN kl. 5:50 - 8 B.i. 16 ára
FLAGS OF OUR FATHERS kl. 6 B.i. 16 ára
THE DEPARTED kl. 10:10 B.i. 16 ára
THE HOLIDAY kl. 8:30 B.i. 7 ára
HJÁLPIN BERST
AÐ OFAN SÝND BÆÐI MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI
eeee
L.I.B. - TOPP5.IS
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is SPARBÍÓ 450kr