Morgunblaðið - 27.01.2007, Side 18
18 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallar Ís-
lands hækkaði um 1,63% í gær og
endaði í 6.986 stigum, sem er nýtt
met, gamla metið var sett sl. mánu-
dag og var 6.929 stig.
Hlutabréf Mosaic hækkuðu um
3,17%, bréf Landsbankans hækk-
uðu um 3,09% y bréf Straums Burð-
aráss um 2,22%. Bréf Atlantic Petr-
olium lækkuðu um 0,79%.
Krónan styrktist um 0,65% í gær
samkvæmt upplýsingum frá Lands-
bankanum. Veltan á millibankamark-
aði nam rétt rúmum 19 milljörðum
króna. Gengi Bandaríkjadals er nú
69,45 kr., evran er 89,66 kr. og
pundið kostar 136,10 kr.
Nýtt met vísitölunnar
● HAGNAÐUR
SP-fjármögnunar
eftir skatta nam
802,7 milljónum
króna á síðasta
ári sem er 67%
aukning frá árinu
2005 er hagn-
aðurinn var
479,7 milljónir
króna. Mikil aukning var í útlánum
félagsins á árinu og stækkaði efna-
hagsreikningur félagsins um 72%
og var í árslok 38,5 milljarðar, þar
af eru útlán félagsins 37,1 millj-
arður.
Hagnaður fyrir skatta var 1.007,6
milljónir sem er besti árangur í
sögu fyrirtækisins, að því er segir í
tilkynningu.
Staða vanskila í árslok 2006
nam um 313,7 milljónum króna,
eða 0,85% af heildarútlánum.
Hagnaður upp á 800
milljónir króna
Uppgjör - Landsbankinn
Eftir Arnór Gísla Ólafsson
ÝTUM methagnaði og arðsemi til
hliðar um stund; úr uppgjöri Lands-
bankans almennt má nefnilega lesa
mjög jákvæða þróun, ekki síst ef tek-
ið er mið af því sem erlendir grein-
endur hafa helst fundið að í rekstri
íslensku bankana. En þeir sem
höndla með hlutabréf tóku uppgjör-
inu líka einkar vel því gengi bréfa
Landsbankans hækkaði um 3,1% í
Kauphöllinni í gær.
En að tímamótunum: nú gerðist
það í fyrsta sinn hjá Landsbankan-
um að meirihluti teknanna eða 52%
varð til utan Íslands – þróun sem
augljóslega styrkir tekjugrundvöll
hans og gerir bankann um leið síður
háðan íslensku efnhagsástandi.
Bresku pundin streyma inn
Ekki er síður athyglisvert að inn-
lán viðskiptavina Landsbankans lið-
lega tvöfölduðust á milli ára og er nú
svo komið að innlánin nema orðið
47,5% af útlánum til viðskiptavina
bankans en hlutfallið var tæplega
34% í upphafi ársins. Sem aftur tákn-
ar að bankinn þarf þá í minna mæli
að leita á alþjóðlega fjármálamark-
aði til þess að sækja sér fé en erlend-
ir greinendur hafa verið óþreytandi
að minna á það og lágt hlutfall inn-
lána hjá íslensku bönkunum. Greini-
legt er að bresk pund hafa flætt inn í
bankann á undanförnum mánuðum í
gegnum sparnaðarleiðina Icesave:
innlán Icesave námu nær 110 millj-
örðum í lok ársins (16% af heildar-
innlánum) og voru þó ekki liðnir
nema þrír mánuðir síðan reikning-
urinn var opnaður. Í þriðja lagi má
svo nefna að grunntekjur Lands-
bankans (ekki gengishagnaður) juk-
ust um 30 milljarða eða um 76%.
Eiginfjárhlutfall bankans var
14,8% í lok árs á móti 13,1% í upphafi
þess en lögbundið hlutfall er 8%
þannig að ljóst er eiginfjárstaðan er
traust og bankinn hefði – ef því væri
að skipta – fjárhagslega burði til
uppkaupa.
En ekki má gleyma: hagnaður
Landsbankans eftir skatta í fyrra sló
met og losaði 40 milljarða á móti 25
milljörðum árið 2005. Um helmingur
hagnaðarins í fyrra var af erlendri
starfsemi. Og hagnaðurinn á þriðja
ársfjórðungi var verulega yfir vænt-
ingum flestra greinenda eða 14,1
milljarður. Eigendur Landsbankans
hafa væntanlega ekki heldur verið
freklega ósáttir við ávöxtunina –
36,3% arðsemi eigin fjár eftir skatta.
Þeir munu síðan fá greidda 4,4 millj-
arða króna í arð.
Lánshæfismat hækkað?
Landsbankinn er með lægri láns-
hæfiseinkunn en Glitnir og Kaup-
þing banki eða A2 en fyrir skemmstu
spáðu sérfræðingar UBS að Moody’s
myndi hækka lánshæfismat Lands-
bankans og uppgjörið mun vafalaust
ekki draga úr líkunum á því. Og í
reynd gera fjárfestar ekki lengur
greinarmun á Landsbankanum og
Glitni ef miðað er við skuldtrygg-
ingarálag á bréfum þeirra nú en það
er nánast orðið hið sama en álagið á
Kaupþing er um 0,1% hærra en á
Landsbanka og Glitni.
Landsbankinn styrkir stöðu
sína með öflugu uppgjöri
Hlutfall innlána af heildarútlánum hækkar og er komið fast að 50%
Metafkoma Björgólfur Guðmundsson, bankaráðsformaður Landsbank-
ans, ávarpaði fundinn í gær, þar sem metafkoma bankans var kynnt.
%
<@ !
<@ ! "
%& A
!
"%
%& " ! "
'(%
)
/../7'
1/2//
))*
0-1.0
*)+,
.(>((
)),*)
00-1
/.71
3 !
#
3
;
=;E;F
'7'(20'
//0'('
220.-
0.00/
++**,
.-1(.
,$*-
'712-
+.
>-20
'--
FGFH
/'1>07/
//77>1
!"# ;H
$%&'&#
%
;G
I
;JH I
;JG
arnorg@mbl.is
HALLDÓR J.
Kristjánsson,
bankastjóri
Landsbankans,
segir uppgjörið
vera yfir vænt-
ingum mark-
aðarins. Allir
þættir starfsem-
innar skili góðri
afkomu og vöxt-
ur bankans skili
sér í auknum
vaxta- og þókn-
unartekjum.
Halldór segir
kjarnaafkomu
bankans vera að
styrkjast, stoð-
irnar hafi verið
styrktar enn
meir. Einnig
hafi vakið mikla
athygli á kynn-
ingarfundi bankans í London í gær
sú umbreyting sem hafi orðið á
uppbyggingu efnahagsreiknings-
ins. Bankinn sé að ná feykilega
góðum árangri í töku innlána með-
al almennings í Bretlandi. Frá því
að hafa opnað innlánsreikninginn
Icesave í október sl. séu komnir
þar um 44 þúsund viðskiptavinir.
Með stórauknum innlánum hafi
þörf fyrir erlenda fjármögnun
minnkað og þannig sé bankinn að
bregðast við gagnrýni í erlendum
bankaskýrslum. Telur Halldór að
bankinn muni gefa út skuldabréf á
árinu fyrir um tvo milljarða evra,
samanborið við fjóra milljarða í
fyrra. Vaxtaálag á skuldatrygg-
ingum bankans sé þegar farið að
lækka og eigi jafnvel eftir að
lækka enn meir.
Traustur tekjugrunnur
Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri
Landsbankans, segir afkomu síð-
asta árs hafa verið einstaklega
góða. Grunntekjur bankans haldi
áfram að vaxa og tekjur af er-
lendri starfsemi nemi nú 52% af
heildartekjum samstæðunnar. Því
megi segja að tekjugrunnur sam-
stæðunnar sé í senn fjölbreyttur og
traustur. Vel hafi tekist til með
fjármögnun bankans, bæði með
skuldabréfaútgáfum og ekki síður
með nýjum innlánaafurðum.
Umbreyting á
reikningnum
Halldór J.
Kristjánsson
Sigurjón Þ.
Árnason
%(6< ,.-
,06<4
0(.4'%%$%1
!"
#
$ ## %
"&
' #
() # * +, -
. /+' #
& -' #, -
0
0 "
1 2$3 4"54'
6
)7
" +
8 - (-+
8 -
9:
5
;0<$
=>
=>+++ 3 %3
? %3
14 * +13 -
!"#$
($ -
( 35
%
&
(
)
*
+,++-
+,./-
+,01-
#+,/2-
+,34-
1,4.-
4,+2-
+,0+-
#+,3+-
4,52-
3,+6-
+,24-
3,4/-
1,11-
+,2.-
4,51-
+,3.-
(- 2
3#
- +
='3@#- +A
. 1
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
2
?3# @#B
=(C
+ "5%-
3#
2
2
2
2
2
2
2
1@3
3# 3
9 - D
1E
F
F
"=1)
G<
F
F
HH ;0<1 ##
F
F
;0<.
%
9##
F
F
8H)< GIJ
F
F