Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
ÖÐRU starfsári Sinfóníu-
hljómsveitar tónlistarskól-
anna, sem hófst 17. desember
síðastliðinn, lýkur með tón-
leikum í Langholtskirkju í dag
klukkan 16.
Liðlega 100 tónlistarnem-
endur skipa sveitina.
Stjórnandi hennar að þessu
sinni er Guðni Franzson og
einleikari á klarinett Ingimar
Andersen.
Hljómsveitin er samstarfsverkefni tónlistar-
skóla á höfuðborgarsvæðinu en nemendur nokk-
urra tónlistarskóla af landsbyggðinni taka einnig
þátt í námskeiðinu.
Tónleikar
Sinfóníuhljómsveit
tónlistarskólanna
Guðni Franzson
GÍTARLEIKARINN Kristinn
Árnason heldur tónleika í Ás-
kirkju í dag, 27. janúar, klukk-
an 15.
Á efnisskránni eru verk eftir
Weiss, Bach, Barrios, Giuliani
og Granados. Einnig frum-
flytur Kristinn verk eftir sjálf-
an sig.
Kristinn hóf ungur nám í
klassískum gítarleik og stund-
aði framhaldsnám í New York, Englandi og á
Spáni.
Kristinn hefur leikið inn á fjölda geisladiska og
hlaut diskur hans með verkum eftir Sor og Ponce
Íslenku tónlistarverðlaunin árið 1997.
Tónleikar
Gítartónleikar
í Áskirkju
Kristinn Árnason
EINYRKINN Pétur Ben
treður upp í kvöld ásamt
hljómsveitinum Ske og
Shadow Parade á Café Amst-
erdam. Pétur er nýkominn
frá Hollandi þar sem hann
tók þátt í tónlistaráðstefnu
sem þar fór fram en miklar
vonir eru bundnar við að tón-
list Péturs nái út fyrir land-
steinana. Ske lauk nýverið
við hljóðmynd fyrir leikritið Svartan kött sem
LA sýnir en sveitin vinnur nú hörðum höndum
að því að klára nýja plötu fyrir næsta sumar.
Tónleikarnir hefjast kl. 23.30 og er aðgangseyrir
500 krónur.
Tónleikar
Rokktónleikar á
Café Amsterdam
Pétur Ben
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
VERIÐ, heimili Söngvakeppni Sjón-
varpsins í ár, hefur vakið forvitni fyr-
ir ýmissa hluta sakir. Verið er stórt
upptökuver, sem á árum áður hýsti
vélasmiðjur Héðins á Mýrargötunni
en hefur nú fengið nýtt hlutverk.
Þetta er það sem á útlensku er kallað
black box; svartur kassi, svart, autt
rými með rám í lofti sem hægt er að
hengja ýmiss konar tæknibúnað í.
Salir af þessu tagi eru vinsælir er-
lendis til ýmiss konar verkefna á sviði
kvikmynda- og auglýsingagerðar –
sem alhliða stúdíó, leikhús, tónleika-
salir og jafnvel veislusalir svo eitt-
hvað sé nefnt. Það er fyrirtækið
Basecamp sem rekur þennan nýja
sal, en Basecamp, sem einnig rekur
Loftkastalasalinn, sinnir ýmiss konar
viðburðatengdri þjónustu auk þess að
framleiða kvikmynda- og sjónvarps-
efni. Basecamp framleiðir Söngva-
keppnina fyrir ríkisútvarpið. Rafn
Rafnsson er eigandi og fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins. Hann
segir að fleiri verkefni bíði þess að
komast í Verið að Söngvakeppninni
lokinni, bæði sjónvarpsupptökuverk-
efni og fleira.
Til ýmissa hluta nytsamlegt
„Svörtu boxi á að vera hægt að
breyta í hvað sem er,“ segir Rafn. „Í
Söngvakeppninni röðum við upp 634
stólum, en þeir gætu verið fleiri eða
færri. Sviðið gæti líka verið hvar sem
er í salnum.“
Verið er nýtt fyrir hvort tveggja:
eigin framleiðslu og verkefni Base-
camp og önnur utanaðkomandi verk-
efni. „Það getur verið hvað sem er:
veisla eitt kvöld, þess vegna; þriggja
mánaða leiksýning, kvikmynda-
upptaka í einn mánuð eða sjónvarps-
upptökur í tvær vikur.“
Rafn segir tæknibúnað ekki fylgja
Verinu – það sé einfaldlega tómur
svartur kassi. „Í Söngvakeppninni er-
um við í samstarfi við Exton, sem sér
um allan ljósa- og tækjabúnað fyrir
okkur. Þeir skaffa okkur þau tæki
sem við þurfum til okkar framleiðslu,
en aðrir sem nýta Verið geta haft sinn
hátt á.“
Rafn segir rekstrarhorfur Versins
góðar, en upphaf rekstrarhugmynd-
arinnar liggur einmitt í Söngva-
keppninni. „Við leituðum lengi að
húsnæði fyrir keppnina. Vandamálið
með hana er það að leikmynd, ljós og
annað þarf að standa í allar þær fimm
vikur sem tekur að vinna verkefnið.
Fyrir utan útsendingarnar eru æfing-
ar á hverjum degi og annars konar
undirbúningur. Það leigir enginn
Laugardalshöllina í fimm vikur. Það
dýrasta í framkvæmdinni er að setja
allt upp og taka niður. Þess vegna
urðum við að finna hús sem væri
nógu ódýrt í leigu og væri bara hrár
kassi. Þegar við fórum inn í húsnæðið
fór fólk að sýna þessu áhuga og aðrir
möguleikar opnuðust. Það eru margir
búnir að koma og skoða salinn bæði
til tónleikahalds, leiksýninga og ann-
ars. Ég tel að rekstrargrundvöllurinn
sé góður meðan húsnæðið er nógu
hrátt – nánast bara skjól fyrir veðri
og vindum – og leiguverðið er ekki
það hátt að það sligi fólk. Við segjum
að horfurnar séu góðar og að við
munum læra heilmikið af að reyna
okkur í þessum rekstri.“
Verið í Héðinshúsinu er nýr stúdíókostur og býður upp á ýmsa möguleika
Einfaldlega tómur, svartur kassi
Verið „Ég tel að rekstrargrundvöllur sé góður meðan húsnæðið er nógu
hrátt og leiguverðið ekki það hátt að það sligi fólk,“ segir Rafn Rafnsson.
Góðar rekstrarhorfur í Verinu
Óperusöngvar-
inn frægi Plac-
ido Domingo ætl-
ar að færa sig úr
hlutverki tenórs
í barítón í upp-
færslu á óper-
unni Simon
Boccanegra eftir
tónskáldið Verdi.
Spænski
söngvarinn, sem
varð 66 ára í vikunni, mun fara
með hlutverk sjálfs Simons Bocc-
anegra í óperunni sem verður
frumsýnd í Staatsoper Unter den
Linden í Berlín árið 2009. Oft er
sagt að hlutverk Boccanegra sé
eitt erfiðasta barítónhlutverk sem
Verdi skrifaði.
Domingo mun einnig flytja verk-
ið í La Scala-óperunni í Mílanó á
Ítalíu og í Konunglega óperuhús-
inu í Covent Garden í London.
Það var í apríl árið 2005 sem
Domingo sagði að hann vildi láta
draum sinn rætast um að syngja
barítónhlutverk Boccanegra áður
en hann settist í helgan stein, en
hann sagði ekki til um hvenær það
yrði.
„Eftir þetta hlutverk mun ég lík-
lega segja Amen,“ sagði söngv-
arinn í viðtali við dagblaðið Ob-
server.
Einn af Tenórunum þremur
Domingo fæddist í Madríd á
Spáni en flutti til Mexíkó átta ára
gamall.
Í Mexíkóborg lærði hann á píanó
og hljómsveitastjórnun en kom
fyrst fram sem söngvari árið 1959 í
Marina í Degollado-leikhúsinu í
Guadalajara as Pascual.
Árið 1962 gekk hann til liðs við
þjóðaróperuna í Ísrael, sem var
staðsett í Tel Aviv, þar var hann í
tvö og hálf ár.
Það var svo 1968 sem hann kom
fram í Metropolitan-óperunni í
New York og eftir það lá leiðin að-
eins uppávið hjá Domingo og í dag
er hann einn þekktasti óperu-
söngvari í heimi.
Hann hefur nú sungið yfir 120
hlutverk á sviði og inn á fjöldann
allan af plötum og naut mikilla vin-
sælda sem hluti af Tenórunum
þremur með þeim Jose Carreras
og Luciano Pavarotti.
Ákvörðun hans um að syngja
Boccanegra var tilkynnt í febr-
úarútgáfu breska óperublaðsins.
Domingo fer
úr tenór í
barítón
Syngur aðalhlut-
verkið í Boccanegra
Domingo í Fyrsta
keisaranum.
Á AÐALFUNDI Bandalags ís-
lenskra listamanna fyrir skömmu
voru samþykktar ályktanir sem
kveða á um þau atriði er bandalagið
leggur áherslu á í menningar-
stefnumótun sinni.
Bandalagið bendir til að mynda á
„nauðsyn þess að fjölga starfs-
launum listamanna. Í heilan áratug
hefur fjöldi starfslauna listamanna
staðið í stað. Á sama tíma hefur flest
annað tekið stórfelldum breytingum,
til dæmis hefur þjóðinni fjölgað um
13% og landsmenn búið við hagvöxt
og vaxandi velmegun,“ eins og segir
í fréttatilkynningu þess. Bandalagið
skorar því á alþingismenn að ráða á
þessu bót.
Stofnað verði
menningarráðuneyti
Fundurinn lagði jafnframt il að
„stofnað verði sérstakt menning-
arráðuneyti. Margt bendir til þess
að verðmætasköpun framtíðarinnar
verði hvað mest í hinum skapandi at-
vinnugreinum – en alveg burtséð frá
því er löngu tímabært að mikilvægi
lista í íslensku samfélagi verði við-
urkennt.“
Jafnframt er skorað á stjórnvöld
„að viðurkenna hugverk sem eign er
lúti sömu lögmálum og aðrar eignir
á borð við húsnæði, hlutabréf og
kvóta og beri samkvæmt því 10%
fjármagnstekjuskatt.“
Vilja fjölbreytta íslenska dag-
skrárgerð í Ríkisútvarpinu
Loks ályktaði fundurinn um
menningarhlutverk Ríkisútvarpsins
á þessa leið: „Aðalfundur BÍL vill
enn og aftur benda á menningar-
hlutverk Ríkisútvarpsins og hve
mikilvægt það er að á vegum þess
fari fram fjölbreytt íslensk dag-
skrárgerð og þá ekki síst vandað
leikið efni.
Brýnt er einnig að Ríkisútvarpið
leitist við að bregða ljósi á þá grósku
sem ríkir í listsköpun landsmanna,
og í því sambandi ber að fagna
glæsilegum þáttum um íslenska tón-
listarmenn sem nýlega hafa verið á
dagskrá sjónvarpsins, auk stuttra
þátta um myndlistarmenn. En betur
má ef duga skal og það er ekki
vansalaust að eini fasti þáttur sjón-
varpsins um listir skuli hafa verið
lagður niður og brýnt að ráðin verði
bót á því sem bráðast.
Aðalfundurinn lýsir ánægju sinni
með að sérstakur fréttamaður skuli
nú sjá um menningarfréttir á rás eitt
í útvarpinu.“
Telur að tónlistarhús muni efla
tónlistarlífið í borginni
Síðasta ályktunin sem samþykkt
var laut að byggingu tónlistarhúss í
Reykjavík, en fundurinn lýsti yfir
„ánægju sinni með að hafin sé bygg-
ing tónlistarhúss í Reykjavík, sem
víst er að muni enn efla hið blómlega
tónlistarlíf í borginni.“
Bandalag íslenskra listamanna ályktar um stefnumótun á sviði menningar
Vilja sérstakt menningarráðuneyti
Morgunblaðið/Jim Smart
Stundin okkar Barnatími sjónvarpsins á sunnudögum er það innlenda dag-
skrárefni sem einna best hefur náð fótfestu í innlendri dagskrárgerð.
BÍL krefst nú aukinnar áherslu á innlenda dagskrárgerð í sjónvarpi.
Í HNOTSKURN
» Framleiðslufyrirtækið Base-camp leigir og rekur Verið
og nýtir sem upptökuver.
» Verið er svokallaður svarturkassi, hrár, tómur salur, sem
getur verið með hvaða móti sem
er innanstokks, eftir þörfum.
» Basecamp fremleiðirSöngvakeppni Sjónvarpsins
fyrir RÚV í Verinu.
» Hugmyndir hafa kviknað aðnýtingu Versins fyrir leik-
sýningar, tónleika, upptökur og
fleira.
» Framtíð Versins í Héðins-húsinu er óljós vegna fyr-
irhugaðra nýbygginga á svæð-
inu.