Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 27.01.2007, Blaðsíða 34
34 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ Í RÍKISSTJÓRN? Í setningarræðu sinni á landsfundiFrjálslynda flokksins, sem hófst ígær, sagði Guðjón Arnar Krist- jánsson, formaður flokksins, m.a.: „Við viljum ná þeirri stöðu eftir næstu alþingiskosningar að eiga aðild að ríkisstjórn. Við viljum komast í þá stöðu að hafa áhrif og völd til þess að koma áherzlum okkar að í stjórn landsins og löggjöf. Það mun verða gæfuspor Íslendinga fyrir framtíðina að skipta um ríkisstjórn í landinu.“ Þessi orð benda til þess að Guðjón Arnar Kristjánsson hafi ekki áttað sig á því hvað hefur komið fyrir Frjáls- lynda flokkinn síðustu mánuði. Staða flokksins er sú, að það vill enginn ann- ar stjórnmálaflokkur vinna með hon- um. Það er sú breyting, sem orðið hef- ur á stöðu Frjálslynda flokksins. Ástæðan fyrir þessari breytingu er einföld. Afstaða flokksins til innflytj- enda eins og hún hefur komið fram í málflutningi talsmanna hans er slík að Frjálslyndi flokkurinn hefur eyðilagt möguleika sína á samstarfi við aðra flokka, sem vissulega voru fyrir hendi. Það er bæði gagnlegt og nauðsyn- legt fyrir fulltrúa á landsfundi Frjáls- lynda flokksins að gera sér grein fyrir þessu. Flokkur þeirra á enga mögu- leika á að eiga aðild að ríkisstjórn vegna þess, að enginn flokkur, hvorki Samfylking né Vinstri grænir, að ekki sé talað um aðra, vilja eiga líf ríkis- stjórnar undir flokki, sem aðhyllist þá stefnu í málefnum innflytjenda, sem sumir talsmenn Frjálslynda flokksins hafa boðað. Þar að auki lízt fulltrúum annarra flokka ekki á blikuna, þegar kemur að þingflokki Frjálslynda flokksins, eins og hann er nú skipaður. Auðvitað er hugsanlegt að breyting verði á afstöðu annarra flokka til Frjálslynda flokksins ef einhver grundvallarbreyting verður á mál- efnalegri afstöðu flokksins eða á for- ystu flokksins á þessum landsfundi. En það á eftir að koma í ljós. Það þýðir ekkert fyrir Guðjón Arn- ar Kristjánsson að veifa þeim mögu- leika framan í flokksmenn sína að flokkurinn eigi aðild að ríkisstjórn eft- ir kosningar. Það verður ekki að óbreyttri afstöðu og forystu. Dæmi um þá afstöðu Frjálslynda flokksins, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, má finna í ræðu flokksfor- mannsins í gær, þegar hann sagði m.a.: „Varla er ofmælt að segja að Ísland upplifi nú aðstæður, sem aldrei hafa komið upp fyrr í sögu landsins, þar sem mikill fjöldi erlends fólks mun keppa við Íslendinga um vinnu.“ Hvað á Guðjón Arnar Kristjánsson við? Staðan á vinnumarkaðnum nú er sú, að við gætum ekki rekið þjóðfélag- ið án þeirra útlendinga, sem hér hafa komið. Við gætum ekki mannað marg- vísleg þjónustustörf og byggingariðn- aðurinn byggir að verulegu leyti á vinnuafli frá útlöndum. Af hverju er hinn merki skipstjóri frá Vestfjörðum að veifa svona ómerkilegri dulu framan í fólk? SÁ SEM MENGAR Á AÐ BORGA Það á að vera liðin tíð að eigendurfyrirtækja, sem valda umhverf- isspjöllum, geti firrt sig ábyrgð á því að hreinsa til eftir sig. Í alþjóðlegum umhverfisrétti, sem þróazt hefur á undanförnum áratugum, er mengun- arbótareglan svokallaða algjört grundvallaratriði. Hún felst í því að sá, sem veldur mengun, á að borga skaðann eða þann kostnað, sem til fellur við að hreinsa umhverfið og koma því í samt lag. Í nágrannalöndum okkar hefur víða verið gengið langt í að virkja mengunarbótaregluna. Jafnvel hefur verið slakað á sönnunarbyrði þannig að fyrirtæki verða að sanna að starf- semi þeirra valdi ekki mengun, frem- ur en að sanna þurfi að þau eigi sök á menguninni. Eigendur flutningaskipsins Wil- sons Muuga, sem strandaði við Hvalsnes fyrir jól, neita að borga meira fyrir niðurrif og flutning skips- ins af strandstað en 74 milljónir króna og bera þar fyrir sig ákvæði siglingalaga frá 1985. Í fréttaskýringu Örlygs Sigurjóns- sonar, sem birtist hér í blaðinu í fyrradag, kemur fram að í lögum um verndun hafs og stranda sé kveðið á um að eiganda sé skylt að fjarlægja skip af strandstað innan hálfs árs frá strandi. Hins vegar kemur fram í máli Guðmundar Sigurðssonar lagaprófessors við Háskólann í Reykjavík að ábyrgðarreglur sigl- ingalaga og laga um verndun hafs og strandar séu ekki alltaf samræman- legar og að hans mati gangi sigl- ingalögin framar hinni löggjöfinni. Guðmundur bendir á að þannig sé komin upp furðuleg staða. Ef eigandi skipsins taki strax sjálfstæða ákvörð- un um að fjarlægja flakið, beri hann sjálfkrafa kostnað af framkvæmd- inni. haldi hans hins vegar að sér höndum og bíði eftir að opinberir að- ilar sendi honum reikninginn þegar hreinsun er yfirstaðin, geti hann beitt fyrir sig ábyrgðartakmörkunar- reglum siglingalaga. Þetta þýðir að mengunarbótaregl- an er ekki fyllilega virk í íslenzkum rétti. Það er óviðunandi staða. Sá, sem veldur menguninni, hvort sem það er fyrir slysni eður ei, á auðvitað að greiða kostnaðinn af hreinsun líf- ríkisins. Menn eru löngu hættir að líta á ryðgandi skipsflök við strendur landsins sem sjálfsagðan hluta um- hverfisins. Það er út af fyrir sig jákvætt, sem fram kemur í máli Jóhannesar Tóm- assonar, upplýsingafulltrúa sam- gönguráðuneytisins, í Morgunblaðinu í gær að skoðað verði hvort breyta þurfi gildandi lögum. En auðvitað hefði átt að vera búið að því fyrir löngu. Þegar flutningaskipið Vikartindur strandaði í Háfsfjöru fyrir tæpum tíu árum, tóku eigendur skipsins á sig allan kostnað af því að hreinsa um- hverfið. Nú sjást þar engin ummerki strandsins lengur. Það hefði óneitanlega verið meiri reisn yfir því ef eigendur Wilsons Muuga hefðu tekið sömu afstöðu, hvað sem lagakrókum líður. Við skulum breyta vaxtar-verkjunum í orku fyrirframtíð Frjálslyndaflokksins,“ sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslyndra, í ávarpi sínu við setn- ingu landsþings flokksins í gær. Um 300 manns hlýddu á Guðjón Arnar og fram kom í máli hans að á 50 dögum hefðu 500 nýir liðsmenn gengið í flokkinn. Guðjón sagði Frjálslynda flokkinn stefna á að eiga aðild að næstu ríkisstjórn. „Það mun verða gæfuspor Íslendinga fyr- ir framtíðina að skipta um rík- isstjórn í landinu. Við þingmenn flokksins viljum leggja okkar af mörkum til þess að hér verði tekið upp meira lýðræði og virkara jafn- ræði fólksins en nú er til staðar á mörgum sviðum eftir uppskipti auðs og afla á hendur fárra undanfarin ár sem ríkisstjórnin hefur valið til að njóta allsnægtanna. Ég vænti þess að stjórnarandstaðan felli rík- isstjórnina og fylgi eftir þeim ásetn- ingi sínum að mynda nýja rík- isstjórn með aðrar áherslur en misskiptingarflokkarnir sem lengi, alltof lengi, hafa setið að völdum í landinu.“ Virkja innlent vinnuafl Guðjón sagði mikilvægt að gera fólki sem flyst hingað til lands kleift að aðlagast íslensku samfélagi. „Margt hefur verið í ólestri um mál- efni erlendra ríkisborgara á Íslandi. Fólk býr víða í atvinnuhúsnæði, skráning og eftirlit er gloppótt. Ís- lenskukennsla var af skornum skammti og áfram mátti telja. Mjög mikið innstreymi hefur verið af fólki hingað til lands og aldrei meira en síðustu mánuði. Varla er ofmælt að segja að Ísland upplifi nú aðstæður sem aldrei hafa komið upp fyrr í sögu landsins þar sem mikill fjöldi erlends fólks mun keppa við Íslend- inga um vinnu,“ sagði Guðjón og benti á að Frjálslyndi flokkurinn hefði verið eini flokkurinn sem and- mælti því að Alþingi skyldi ekki óska eftir frestun á frjálsri för vinnuafls til landsins. Guðjón sagði mikilvægt að bregð- ast við áhrifum þessa flæðis, m.a. með því að fylgjast með fjölgun starfsmanna á vegum starfs- mannaleigna og veita stétt- arfélögum heimildir til að fara í fyr- irtæki og krefjast þess að fá að sjá launaseðla, vinnuskýrslur og önnur gögn. „Við teljum brýnt að kannað verði hvort þeir, sem vilja setjast hér að um lengri eða skemmri tíma, hafi hugsanlega sakaferla. Meta verður menntun innflytjenda, bæði hvað varðar iðnmenntun og æðri menntun. Heilbrigðisyfirvöld þurfa að vera á varðbergi varðandi smit- sjúkdóma eins og berkla. Mikilvægt er að virkja innlent vinnuafl frekar en nú er gert, og þannig nýta betur þann mannauð sem fyrir er í land- inu. Það mætti gera með breyt- ingum á skattakerfi, þar sem tekið yrði tillit til skerðingarreglna sem bitna nú harðast á eldri borgurum og öryrkjum, sem og því hvernig skattbyrði hefur þróast gagnvart lágtekjufólki,“ sagði Guðjón. „Við viljum reyna að takmarka á ný frjálst flæði launafólks frá nýjum ríkjum EES a.m.k. á meðan unnið er að ráðstöfunum í samfélaginu sem tryggja hagsmuni bæði þeirra útlendinga sem hingað vilja koma og ekki síður þeirra sem eru hér fyrir. Hér er ekki verið að tala um að loka landinu eða reka fólk á brott. Okkur Íslendingum er nauðsynlegt að stýra sjálf flæði erlendra nýbúa til landsins. Við erum frekar fámenn þjóð,“ sagði Guðjón og vísaði til 112. og 113. greinar EES-samningsins. „Samkvæmt þeim ákvæðum getur íslenska ríkið gripið einhliða til við- eigandi öryggisráðstafana ef upp koma alvarlegir efnahagslegir, þjóð- félagslegir eða umhverfislegir erf- iðleikar í sérstökum atvinnugrein- um eða á sérstökum svæðum.“ Guðjón sagði að þingmenn Frjáls- lynda flokksins myndu leggja sitt af mörkum til að sátt næðist um þær tillögur sem teknar verða til um- ræðu á Alþingi um málefni innflytj- enda, en einnig fylgja eftir sínum eigin tillögum. „Þessi mál gátu ekki legið í þagnargildi og við látum ekki málin sofa. Þau verða rædd hvort sem fólki líkar það vel eða illa.“ Hollywood-veislur bankanna Guðjón var harðorður í garð ís- lenskra banka og sagði Íslendinga þurfa að sætta sig við mun hærri vexti en fólk í nágrannalöndunum. Sívaxandi hluti af tekjum skuldugra heimila færi í að greiða vexti og af- borganir af lánum auk þess sem lán- tökugjöld hefðu farið hraðvaxandi á síðustu árum. „Þetta hefur gerst í kjölfar einkavæðingar bankanna þar sem sumir fengu að kaupa en aðrir ekki. Viðskiptabankarnir þurfa að gera grein fyrir því hvers vegna íslenskur almenningur fær verri og verri kjör á sama tíma og hagur bankanna vex sem og þeirra sem bönkunum var ráðstafað til. Það sést á ofurhagnaði bankanna og dýrlegum veislum sem haldnar eru og eiga frekar við í Hollywood en 300 þúsund manna þjóðfélagi í Norðurhöfum þar sem flest alla.“ Guðjón sagði nauðsynleg aðhald með bönkunum og tr jafnræði neytenda í viðskip lánastofnanir. „Íslenskt fjár málakerfi er orðið hluti af a umhverfi og þess vegna þar reglur þess og kjör að því se mennt gerist í vestrænum r sagði Guðjón og talaði fyrir verðtrygginga. „Helstu rök fyrir verðtryggingu lána á Í hafa hingað til verið þær að henni skapist forsendur fyr vöxtum. Sú hefur þó alls ek raunin,“ sagði Guðjón og bæ að afnám verðtryggingar þy að skerða hag lánveitenda t tíma þar sem efnahagslífið y ugra. Guðjón sagði núverandi s völd ekki hafa láglaunafólk gangslista og að það sæist b forgangsröðun stjórnarliða afnema hátekjuskatt frekar hækka tekjuviðmið svo skat væri raunverulega hátekjus Um 300 manns hlýddu á setningarræðu Guðjóns Arnar Breytum vaxtarve fyrir framtíð Frjál Áfram í félagi? Guðjón Arnar hefur lýst yfir stuðningi við Magn Landsþing Frjáls- lynda flokksins var sett á Hótel Loft- leiðum í gær. Halla Gunnarsdóttir segir hér frá helstu atriðum í setningarræðu for- mannsins. Kosið í dag Margrét Sver flokksins. Kosningin fer fr » Við teljum brýnt að kannað verði hvort þeir, sem vilja setjast hér að um lengri eða skemmri tíma, hafi hugsanlega sakaferla. Meta verður menntun innflytjenda, bæði hvað varðar iðnmenntun og æðri menntun. Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.