Morgunblaðið - 27.01.2007, Page 60

Morgunblaðið - 27.01.2007, Page 60
60 LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ fólk Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn LÍSU FINNST BROSIÐ MITT FALLEGT MIG VERKJAR ÁSTIN FÆST EKKI GEFINS STUNDUM LIGG ÉG BARA OG VELTI ÞVÍ FYRIR MÉR AF HVERJU ÉG FÆDDIST AF HVERJU ER ÉG HÉRNA Á JÖRÐINNI? HVER ER TILGANGUR TILVERU MINNAR? ÞÁ ÁTTA ÉG MIG Á ÞVÍ... AÐ ÉG HEF BARA EKKI HUGMYND UM ÞAÐ ÞETTA ÆTTI AÐ KENNA MÉR EITTHVAÐ. ÉG HEF BARA EKKI HUGMYND UM ÞAÐ HVAÐ ÞAÐ ER ER Í LAGI AÐ ÉG SPILI HÉRNA Í GEGN? VIÐ BÍÐUM BARA! TAKK FYRIR! ÉG ÞOLI EKKI AÐ BERJAST Í SKOTLANDI VOFF! VOFF! GELT! GELT!VOFF! GELT! VOFF! VOFF! ÞETTA ER UPPÁHALDS ÚTVARPS- STÖÐIN MÍN ÉG VAR AÐ FÁ SENDAN BÆKLING UM EINKASKÓLANN SEM VIÐ VORUM AÐ SKOÐA FRÁBÆRT! MÁ ÉG FÁ AÐ SJÁ SJÁÐU AÐSTÖÐUNA OG ALLT SEM ÞEIR HAFA UPP Á AÐ BJÓÐA EN HVAÐ KOSTAR ÞETTA EIGINLEGA? HÉRNA STENDUR HVAÐ ÞETTA KOSTAR Á ÁRI... ÞETTA ER ANSI MIKIÐ EN ÉG HELD AÐ VIÐ GÆTUM HAFT EFNI Á ÞESSU HVAÐ ÞETTA KOSTAR Á ÁRI? ÞETTA ERU MÁNAÐARLEG GJÖLD Æ, NEI ÚFF! EINS GOTT AÐ ÉG NÁÐI AÐ KOMAST MEÐ BÚNINGINN MINN ÚT ÓSÉÐUR EN HVAÐ EF BLÓÐPRUFAN SÝNIR HVER ÉG ER Í RAUN OG VERU Á MEÐAN... PETER HEGÐAÐI SÉR UNDARLEGA ÉG HELD AÐ ÉG FARI SJÁLFUR Í ÞAÐ AÐ SKOÐA BLÓÐPRUFUNA HANS Nemar í japönsku við hug-vísindadeild Háskóla Ís-lands efna í samvinnu viðsendiráð Japans til menningarhátíðarinnar Japan festi- val í dag, laugardag. Ólafur Ágúst Sigurðsson er jap- önskunemi: „Allir nemendur í jap- önsku taka þátt í skipulagningu og framkvæmd dagskrárinnar, og bjóða almenningi að kynna sér ýmsar hlið- ar japanskrar menningar og um leið fræðast um japönskunámið við há- skólann,“ segir Ólafur. „Dagskráin hefst með völdum fyrirlestrum um japanskt samfélag og menningu úr tímum síðustu annar. Sýningarbásar nemenda verða opnaðir klukkan 14, og hafa nemendur skipt á milli sín ýmsum viðfangsefnum, allt frá jap- önskum sjálfsvarnarlistum og teat- höfnum til japanskra ófreskja og matargerðar.“ Haldnar verða sýningar á aikido og júdó og haldin spurningakeppni á léttum nótum: „Þar fá áhorfendur að bregða sér upp á svið til að svara lau- fléttum og skemmtilegum spurn- ingum um menningu og sögu þjóð- arinnar,“ segir Ólafur. Þetta er í þriðja skipti sem nemendur í jap- önsku standa fyrir hátíð af þessu tagi: „Hátíðin hefur gert mikla lukku, en stuðningur japanska sendi- ráðsins gerir okkur kleift að gera dagskrána jafnvel úr garði og raun ber vitni.“ Japönskunámið við Háskóla Ís- lands er ungt, hófst haustið 2003, og hefur farið stigvaxandi ár frá ári: „Nú stunda 25 manns nám í jap- önsku, sem er kennd sem 30 eininga aukagrein og hægt að stunda 60 ein- inga nám með námsdvöl í Japan í eitt skólaár, en meirihluti nemenda fer utan í nám við einhvern þeirra mörgu samstarfsskóla sem Háskóli Íslands á í Japan,“ segir Ólafur. „Eins og að- sókn og áhugi á náminu fer vaxandi hefur verið hafin vinna í átt að hugs- anlegri framlengingu á náminu í ná- inni framtíð um 30 einingar, og verð- ur þá hægt að taka námið sem 60 eininga aðalgrein hér heima þar sem taka má eitt námsár erlendis til að ljúka 90 eininga námsleið.“ Ólafur játar að hafa hálfpartinn látið kylfu ráða kasti þegar hann ákvað að hefja nám í japönsku: „Ég hef fjarri því séð eftir þeirri ákvörð- un. Bæði er námið stórskemmtilegt, og um leið persónulegt, því nem- endahópurinn er nokkuð smár og vinnur náið saman,“ segir Ólafur. „Að þekkja japanska tungu og menn- ingu skapar líka spennandi tækifæri nú þegar samskipti og viðskipti milli Íslands og Japans fara ört vaxandi. Margir mikla fyrir sér japönsku- námið, enda bæði tungumál og letur framandi, en það er furðulétt að ná tökum á málinu. Ef gert er gott áhlaup á fyrsta þröskuldinn, sem óneitanlega er nokkuð stór, þá reyn- ist tungumálið frekar auðvelt við- ureignar eftir það.“ Auk kennslu í japönsku máli og ritun læra nemendur um japanska sögu og menningu, japanskar bók- menntir og kvikmyndir: „Að loknu fyrsta vetrinum eiga nemendur að hafa náð ágætum tökum á málfræði og grunnorðaforða, og vera færir um að bjarga sér á kurteisu máli við ein- faldar hversdagskringumstæður og lesið helstu ritkerfi.“ Dagskrá Japan festival hefst kl. 13 og lýkur kl. 18. Hátíðin er haldin í há- tíðarsal aðalbyggingar Háskóla Ís- lands. Menntun | Japan festival haldið í hátíðarsal Háskóla Íslands í dag kl. 13 til 18 Japanskt fjör og fjölbreytileiki  Ólafur Ágúst Sigurðsson fædd- ist í Reykjavík 1979. Hann lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi 2005. Ólafur starfaði sem sundlaug- arvörður í Sundlaug Borgarness, hjá Fjölritunar- og útgáfuþjónust- unni og við verslunarstörf hjá Kaupfélaginu í Borgarnesi. For- eldrar Ólafs eru Sigurður Oddur Ragnarsson bóndi og Guðbjörg Ólafsdóttir bóndi. SVÍNIÐ Wilbur kvíðir komandi hausti því þá veit hann að líklega komi hann til með á enda á mat- arborði svínakjötsneytenda. Til að koma í veg fyrir þau örlög nýtur hann aðstoðar köngulóarinn- ar Charlotte en þau koma upp með áætlun sem bjarga á Wilbur. Um þetta fjallar Charlotte’s Web, sem frumsýnd er um helgina. Myndin er sýnd bæði með ensku og íslensku tali. Með helstu hlut- verk í þeirri íslensku fara Ólöf Kristín Þorsteinsson, Björgvin Franz Gíslason, Inga María Valdi- marsdóttir, Jóhanna Vigdís Arnar- dóttir, Sigurður Sigurjónsson, Örn Árnason og Hjálmar Hjálmarsson. Helstu enskumælandi raddirnar eru hinsvegar í höndum þeirra Julia Roberts, Steve Buchemi, John Cleese, Oprah Winfrey og Robert Redford. Charlotte’s Web verður sýnd í Sambíóunum Reykjavík, Keflavík, Akureyri og Smárabíói. Frumsýning | Charlotte’s Web Vefur Karlottu Nær Wilbur að forða sér frá örlögum sínum? Kónguló kemur til bjargar Erlendir dómar: Metacritic: 68/100 The Hollywood Reporter: 100/100 New York Times: 80/100 Variety: 50/100 Allt skv. Metacritic.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.