Morgunblaðið - 13.02.2007, Síða 18

Morgunblaðið - 13.02.2007, Síða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ MENNING EINN af frægari rithöfundum Svía, Marianne Fredriksson, er látinn, 79 ára að aldri. Fredriksson hóf feril sinn sem blaðamaður og vann m.a. á Svenska Dagbladet áður en hún sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu, Bók Evu, þá orðinn 53 ára. Hún skrifaði vel á annan tug bóka áður en yfir lauk og er meirihlutinn skáld- sögur. Þeirra frægust er Anna, Hanna og Jóhanna sem fjallar um þrjár kynslóðir kvenna. Verk Marianne Fredriksson hafa verið þýdd á yfir 40 tungumál. Sam- kvæmt því sem kemur fram í sænska dagblaðinu Expressen hafa bækur hennar selst alls í yfir 17 milljónum eintaka víða um heim. Sigrún Ástríður Eiríksdóttir hef- ur þýtt fjórar af bókum Fredriksson á íslensku. Þær eru: Anna, Hanna og Jóhanna, María Magdalena, Von- arbarn og Símon og eikurnar. Fredriks- son látin Einn þekktasti rit- höfundur Svíþjóðar Látin Marianne Fredriksson. GRÍNMYNDIN Litla ungfrú sól- skin (Little Miss Sunshine) og spennumyndin Hinir fráföllnu (The Departed) tóku til sín aðalverðlaun- in á árlegri verðlaunaathöfn Sam- taka bandarískra handritshöfunda sem fram fór um nýliðna helgi. Handritið að Litlu ungfrú sólskin var útnefnt besta frumsamda hand- ritið og handritið að Hinum fráföllnu það besta sem gert er eftir bók. Sjónvarpsþættirnir um Soprano- fjölskylduna og þættirnir Stóra ástin (Big Love) þóttu best skrifaðir í flokki dramatískra þátta enLjóta Betty (Ugly Betty) fékk verðlaun sem best skrifaði nýi þátturinn. Amy Berg hlaut verðlaun fyrir besta handrit að heimildarmynd, fyrir mynd sína Frelsa oss frá illu (Deli- ver Us From Evil), sem tilnefnd er til Óskarsverðlauna í ár. Þar er fjallað um fjölskyldur sem urðu fyrir barðinu á misgjörðum kaþólsks prests sem misnotaði a.m.k. 25 börn. Handrit verðlaunuð KLUKKAN 12.10 í dag mun Steinunn Kristjánsdóttir forn- leifafræðingur ,,ausa úr visku- brunnum“ á Þjóðminjasafni Ís- lands. Steinunn gengur með gestum um grunnsýningu safnsins og beinir athyglinni sérstaklega að munum sem tengjast börnum. Að sögn Steinunnar hafa fáir gripir varðveist sem minna á bernsk- una en þar er mat hennar að slíkt ætti ekki að hindra okkur í að leiða hugann að tilvist barna til forna. Steinunn gegnir stöðu lektors í fornleifafræði við Þjóðminjasafnið og Háskóla Íslands. Söfn Sérfræðileiðsögn á Þjóðminjasafninu Steinunn Kristjánsdóttir SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands er þessa dagana á tón- leikaferðlagi um þrjú Evr- ópulönd ásamt hljómsveit- arstjóranum Rumon Gamba. Þrennir tónleikar verða í Þýskalandi, í Köln, Düsseldorf og Braunschweig, einir í Zag- reb í Króatíu og einir í Vín- arborg í Austurríki. Nú hefur hljómsveitin byrj- að með bloggsíðu á vefsetri mbl.is þar sem hljóð- færaleikararnir segja frá ferðalagi sínu og tón- leikum, auk þess sem nýjar myndir frá ferðalaginu verða birtar reglulega. Slóðin er: sinfonian.blog.is. Blogg Sinfóníuhljómsveit Íslands á mbl.is Rumon Gamba ÍSLENSKA kvikmyndin Köld slóð er ný sýnd með enskum texta í Regnboganum. Þar með gefst nýbúum og erlendum gestum færi á að sjá þessa íslensku spennu- mynd, eins og segir í frétta- tilkynningu frá aðstandendum en þar segir jafnframt að eft- irspurn eftir enskum texta á myndinni hafi verið talsverð. Köld slóð hefur nú verið sýnd í rúman mánuð og eru áhorfendur orðnir tæplega 17 þúsund talsins sem gerir hana að best sóttu íslensku kvikmyndinni frá 2004 að Mýrinni undanskil- inni. Kvikmynd Köld slóð með enskum texta Úr Kaldri slóð. Eftir Flóka Guðmundsson floki@mbl.is DAGANA 1.–5. mars munu Michael og Valerie Johnson taka þátt í sinni fyrstu liststefnu. Tilhlökkunin er mikil hjá þessum rosknu banda- rísku hjónum sem ákváðu ekki alls fyrir löngu að opna nýtt gallerí í litlum heimabæ sínum skammt frá Washingtonborg undir nafninu Fire and Ice Art. Í galleríinu er íslensk samtímalist kynnt og seld, en auk þess stendur metnaður Michaels og Valerie til þess að koma íslenskri list á framfæri sem víðast í Banda- ríkjunum. Þeim fyrirætlunum fylgir augljóslega alvara því það er á einni stærstu liststefnu heims, New York Artexpo, sem upphafsskrefin verða tekin. „Ég og eiginkona mín höfum allt- af haft áhuga á list og þá mál- verkum sérstaklega. Þessi áhugi hefur færst mjög í aukana á sl. tíu árum og þá sérstaklega eftir að við fluttum til Íslands,“ útskýrir Mich- ael sem þar til fyrir einu ári þjónaði í bandaríska hernum. „Við fluttum til Íslands árið 2003,“ heldur Michael áfram. „Við fórum fljótlega að kynna okkur hvað Ísland hefði upp á að bjóða á listasviðinu – vorum dugleg við að heimsækja gallerí og ekki síst lista- mennina sjálfa – og komumst að því að hér er margt hrífandi að gerast. Við deildum uppgötvunum okkar með vinum á herstöðinni sem vildu vita hvernig við hefðum uppi á allri þessari spennandi list.“ Skipulögðu listagöngur og sýningar á Íslandi „Í kjölfarið tók konan mín það að sér að kynna íslenska list og ís- lenska listamenn fyrir starfs- mönnum herstöðvarinnar. Hún skipulagði t.d. það sem hún kallaði „listagöngur“, þar sem hún fór með fólk í heimsókn á vinnustofur lista- manna og gaf þeim þannig kost á að hitta listamennina sjálfa og kynna sér verk þeirra.“ Að sögn Michaels undu listagöng- urnar upp á sig og þau hjónin tóku að skipuleggja litlar listasýningar á herstöðinni með verkum eftir ís- lenska listmálara. Þær sýningar urðu nokkrar áður en yfir lauk. „Við héldum síðustu listasýn- inguna í endaðan febrúar á síðasta ári og nokkrum dögum síðar flutt- um við aftur til Bandaríkjanna,“ segir Michael sem fór á eftirlaun við þau tímamót. „Við vorum að velta því fyrir okkur hvað við ætt- um að gera okkur til dundurs hér heima þegar við fengum þá hug- dettu að opna gallerí sem einbeitti sér að íslenskri list.“ Dýrt að taka þátt í liststefnu Að sögn Michaels áttuðu þau sig þó fljótlega á því að þau þyrftu að komast inn á stærri markað, á landsvísu, enda eftirspurn eftir ís- lenskri list takmörkuð. „Við fórum því að kynna okkur liststefnur og þá möguleika sem í þeim felast. Og nú erum við sem sagt að fara að taka þátt í liststefnunni í New York.“ Það er von Michaels og Valerie að þau nái að selja verk fyrir and- virði um 3,5 til sjö milljóna króna í New York, en þau leggja talsverða fjármuni í verkefnið, tæpar tvær milljónir króna. „Að leigja lítið pláss kostar um 13.000 dollara [u.þ.b. 900 þúsund krónur]“ segir Michael og útskýrir að með litlu plássi eigi hann við um 18 fermetra gólfflöt. Um metnað og væntingar Fire and Ice Art segist Michael vonast til að geta sótt fjórar til fimm list- stefnur árlega víðsvegar um Banda- ríkin og jafnframt fjölga í þeim hópi listamanna sem þau vinni nú með. „Í dag vinnum við með nokkrum listamönnum sem við kynntumst á Íslandi. Liðlegheit þeirra í þessu áhættusama verkefni hafa verið með ólíkindum. Það er svo okkar von að það eigi eftir að ganga það vel að fleiri listamenn vilji slást í hópinn.“ Selja íslenska samtímalist Bandarísku hjónin Michael og Valerie Johnson kynna íslenska myndlist á liststefnunni í New York sem fram fer á upphafsdögum næsta mánaðar Íslandsvinir Hjónin Valerie og Michael Johnson eru sannir Íslandsvinir. Í HNOTSKURN » Áhugi Johnson-hjónanna áíslenskri myndlist kviknaði fyrir fjórum árum. » Michael gegndi herþjónustuá herstöðinni í Keflavík 2003–2006. » Á New York Artexpo verðaMichael og Valerie með verk eftir Bjarna Jónsson, Jónas Braga Jónasson, Höllu Har., Gunnellu, Sigrúnu Láru Shanko, Fríðu Rögnvaldsdóttur, Eirík Árna Sigtryggsson, Thorberg, Ágúst Bjarnason, Garðar Jökuls- son og Steinunni Einarsdóttur. »Árlega sækja um 40.000 gest-ir liststefnuna í New York. NÆSTKOMANDI laugardag kem- ur í ljós hver verður fulltrúi Ís- lendinga í Evróvisjón-söngva- keppninni. Í tilefni af því hefur verið boðað til mikillar veislu á NASA þá um kvöldið. Um leið og keppninni lýkur byrjar Páll Óskar Hjálmtýsson að þeyta skífum. Keppendur í forkeppninni ætla að láta sjá sig og svo mun sigurveg- arinn taka sigurlagið. Síðar um kvöldið mun svo Páll Óskar troða upp sjálfur, en hann ætlar að leggja mesta áherslu á Evróvisjón- lög fyrri ára. Sérstakur gestur verður svo fulltrúi Rúmeníu í Evróvisjón árið 2006, Mihai Traistariu, en hann sló í gegn í Grikklandi með laginu „Torneró“. Smáskífan með laginu seldist í stærra upplagi en smá- skífa sigurvegaranna frá Finnlandi, Lordi. Lagið hans varð gríðarlega vinsælt víða um Evrópu og Ísland var þar engin undantekning. Evróvisjón-partí á laugardaginn Stuð Páll Óskar ætlar að halda uppi fjörinu á laugardaginn ásamt fleirum. Evróvisjón-partí á NASA laug- ardaginn 17. febrúar. Húsið verður opnað klukkan 23. Miðasala 16. febrúar á milli klukkan 13 og 17 og svo við innganginn. Miðaverð er 1.900 kr. 20 ára aldurstakmark. ♦♦♦ FRAMLAG Dana til Evró- visjónkeppninnar í ár er lagið „DQ“ með dragdrottn- ingunni Drama Queen eða Dramadrottn- ingu. Drama Queen, öðru nafni Peter Andersen, var síðasti keppandinn á úrslita- kvöldinu á laugardaginn og mynd- aðist mikil stemning í sjónvarpssal undir atriði hennar. Líkt og hér heima eru það hins vegar sjónvarps- áhorfendur sem hafa úrslitavaldið í sms-kosningu og er ljóst að Drama Queen náði ekki síður að hrífa þá. „Í Evrópu eru menn vanari drag- drottningum en hér,“ sagði Drama Queen við Jyllands-Posten og bætti því við að samkynhneigðir mættu enn þá fordómum í Danmörku. Danir senda drottningu Drama Queen ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.