Morgunblaðið - 13.02.2007, Page 24
uppáhaldshlutur
24 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
G
uðrún Dögg Guðmunds-
dóttir, framkvæmda-
stjóri Mannréttinda-
stofu Íslands, á sér
einn uppáhaldshlut
sem stendur og er það hinn svokall-
aði „Big Boss“ stóll sem hún og
Óttar Freyr Gíslason, maðurinn
hennar, keyptu þegar þau voru að
ferðast í Kenía í vetur. „Þegar við
fórum til Kenía þá byrjuðum við í
Mombasa við Indlandshaf og ferð-
uðumst síðan norður strandlengj-
una, í átt til landamæra Sómalíu.
Keyptur á stórkostlegri eyju
Við dvöldumst m.a. nokkra daga
á stórkostlegri eyju sem heitir
Lamu en að koma þangað er eins
og að stíga inn í Þúsund og eina
nótt. Forn swahilimenning, mína-
rettur, hennaskreyttar konur og ar-
abísk seglskip en eyjan er á heims-
minjaskrá UNESCO. Það var
eiginlega líka eins og fara aftur í
tímann að komast þangað landleið-
ina; sex tíma rútuferð og síðan báts-
ferð. Við erum ýmsu vön og ferð-
umst mikið með rútum en þetta var
svakalegt. Hluta leiðarinnar fylgdu
vopnaðir verðir rútunni, hún var
fjaðralaus og vegirnir voru alger-
lega ónýtir. Við vorum raunveru-
lega blá og marin þegar við loks
komumst á áfangastað. Á Lamu
fundu þau hinn stórkostlega „Big
Boss“ stól en eyjan er þekkt fyrir
völundarsmiði. „Þetta eru einstakir
stólar en þeir eru swahiliútgáfa af
svokölluðum plantekrustólum frá
tíma breska heimsveldisins. Stól-
arnir eru handgerðir og maður
kaupir þá beint af handverksmann-
inum. Þeir eru útskornir úr tekki en
bakið og setan hnýtt úr bómull.
Stólinn okkar er ótrúlega þægileg-
ur, sérstaklega fyrir fólk eins og
mig sem get ekki setið eins og
manneskja því hann er með fram-
lengingu á örmunum sem maður
setur fæturna upp á. Þetta eru því-
líkir hæginda- og höfðingjastólar.“
Slógu til og keyptu einn
Hjónakornin veltu því lengi fyrir
sér hvort þau ættu að láta verða af
því að kaupa stólinn þar
sem það væri ekk-
ert grín að
ferðast með
hann. „Við
hugsuðum
okkur lengi
um, það er náttúrlega fáránlegt að
burðast með stól yfir hálfan hnött-
inn. En við slógum samt til og
keyptum einn. Við fengum reyndar
lærlingsstykki en viðurinn í honum
er ekki eins fínn og ef um stól frá
útlærðum er að ræða. Við höfðum
hins vegar ekki nægan tíma til að
bíða eftir að næsti stóll yrði tilbú-
inn. Hann var því aðeins ódýrari en
þeir eru venjulega og kostaði 4.000
krónur.“
Nokkur matarstell
og hnattlíkön
Guðrún og Óttar héldu svo burt
frá eynni en í stað þess að fara aft-
ur í rútu ákváðu þau að fljúga til
Naíróbí. Þaðan fór stóllinn með í
fjögurra daga safaríferð. Hann var
bundinn aftan á bílinn en það er
hægt að leggja hann smávegis sam-
an. ,,Stóllinn hristist og lamdist í
fjóra daga og við vorum viss um að
hann væri ónýtur eftir þá ferð.“
Svo reyndist þó ekki vera þó
hann væri nokkuð lemstraður. Guð-
rún ferðaðist svo með stólinn heim
þangað sem hann komst heilu og
höldnu í stofuna í Miðstræti. „Ég
held reyndar ég sé haldin farang-
ursmasókisma, ég er alltaf að
drusla einhverju með mér frá út-
löndum. Meðal þess sem ég hef
burðast með frá hinum ýmsu
heimshornum er diskókúla, krist-
alsljósakróna, sælgætissjálfsali,
nokkur matarstell, gólflampi, helgi-
myndir og fimm hnattlíkön. En
þessi stóll er minn uppáhaldshlutur
í dag,“ segir Guðrún að lokum og
hallar sér makindalega aftur í stóln-
um sem þó þarf að herða aðeins eft-
ir ferðalagið frá Kenía.
„Náttúrlega fáránlegt að burðast
með stól yfir hálfan hnöttinn“
Guðrún Dögg
Guðmundsdóttir á sér-
stakan stól sem hún
heldur mikið upp á. Laila
Sæunn Pétursdóttir
skoðaði gripinn.
Morgunblaðið/Ásdís
Fyrirhöfn Guðrún Dögg Guðmundsdóttir lagði mikið á sig til að koma stólnum heim, en það tókst þó að hann væri nokkuð lemstraður eftir ferðalagið.
Meðal þess sem ég hef
burðast með frá hinum
ýmsu heimshornum er
diskókúla, kristals-
ljósakróna,
sælgætissjálfsali …
Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur
ingarun@mbl.is
RALPH Lauren er eitt af stóru
nöfnunum í bandarískum tísku-
heimi. Hann er jafnframt þekktur
um allan heim
fyrir klassískan,
ekta bandarísk-
an stíl. Sýning
hans á haust- og
vetrartískunni
2007-8 fór fram á
föstudagskvöld í
New York, á síð-
asta degi tísku-
vikunnar. Fata-
línur hans eiga
það sammerkt að
hann er ekki að reyna að finna upp
hjólið og heldur sig við sígildan og
fágaðan fatnað. Í línunni var mikið af
fötum úr ull og kasmír. Gráir og
brúnir tónar voru allsráðandi í dag-
fatnaðnaðinum, ásamt svörtum. Til
skreytingar notaði hann gylltan, í
vesti, jakka, pilsi og kjólum.
Sýningunni lauk svo á kjólum,
ýmsum einföldum og klæðilegum út-
gáfum af bæði síðum og stuttum
svörtum kjólum, til dæmis einum
með háum kraga.
Fágaður
fatnaður
Ull Fáguð og aðsniðin dragt. Miðjan Áherslan er á mittið.
Reuters
Kjóll Einfaldur og fallegur.
Fylgihlutir Góð
taska er ómissandi.
Gull
Þessi
fær
fyrstu
ein-
kunn.