Morgunblaðið - 13.02.2007, Side 41
staðurstund
Íslendingar fjölmenntu á nýj-
ustu kvikmynd Wills Smiths,
The Pursuit of Happiness, um
helgina. » 42
kvikmyndir
Hljómsveitin Dikta er ekki bara
vinsæl á Íslandi því nú hefur
lag með sveitinni einnig
vakið athygli í Katar. » 42
tónlist
Penelope Cruz segist ekki hafa
átt ástafund með Olivier Mart-
inez, fyrrverandi unnusta Kylie
Minogue. » 48
fólk
Grammy-tónlistarverðlaunin
voru afhent í Bandaríkjunum
aðfaranótt mánudags að
viðstöddu fjölmenni. » 49
verðlaun
Gamanmyndin Norbit með
Eddie Murphy var vinsælasta
myndin í Bandaríkjunum um
þessa helgi. » 42
bíó
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞEGAR ég var beðinn um að ræða við spán-
nýja hljómsveit sem héti Riot gerði ég ósjálf-
rátt ráð fyrir því að þar færi ung og upprenn-
andi harðkjarnasveit, skipuð nokkrum
svartklæddum unglingspiltum með brjálað
bölmóðsrokk að vopni. Ég rak því upp stór
augu þegar ég fékk sendan póst með liðsskip-
aninni. Riot er nefnilega skipuð þeim Birni
Thoroddsen og Halldóri Bragasyni gítarleik-
urum, Jóni Ólafs píanóleikara, Jóni Rafnssyni
bassaleikara og Ásgeiri Óskarssyni trymbli.
Sannkallað stórskotalið þar á ferð.
Það var reyndar sannkölluð bílskúrsrokks-
temning er ég kíkti inn á æfingu í gærmorgun,
félagarnir fimm samantroðnir í litlum skúr
miðsvæðis í Reykjavík. Blaðamaður fékk að
hlýða á nokkur lög, m.a. lagið „Gítarormur“,
hratt gítardrifið lag í anda Dick Dale og Vent-
ures. Nafn lagsins gefur vísbendingar um
form þess og gítarlínurnar hlykkjuðust áfram
hratt og örugglega. Í laginu brá þó fyrir alls
kyns hlutum, enda ætlun Riot að snúa dálítið
upp á hinar og þessar tónlistarstefnur. Riot
mun leika á sínum fyrstu tónleikum á fimmtu-
daginn næstkomandi. Tónleikarnir fara fram á
Domo og er það djassklúbburinn Múlinn sem
stendur að tónleikunum.
Loksins eitthvað gert
Hugmyndin að Riot fæddist er Halldór, eða
Dóri, var gestur Björns á tónleikaröð á Q-bar
síðasta sumar. Samspil þeirra var með slíkum
ágætum að þeir sammæltust um að fara með
þetta lengra.
„Ég og Dóri hittumst alltaf reglulega á hin-
um og þessum hátíðum og þá spjöllum við allt-
af saman,“ segir Björn. „Nú var loks ákveðið
að gera eitthvað í málunum“. Hann bætir því
við að Riot sé partur af stærra verkefni sem
nánar verði upplýst síðar.
„Þegar andstæðir pólar hittast verður oft til
eitthvað nýtt og skemmtilegt,“ álítur Björn og
Dóri tekur undir. „T.d. er Bjössi sérfræðingur
í því að spila hratt á meðan ég spila hægt.
Þetta er einslags bræðralag blúsarans og
djassarans.“ Dóri tekur skýrt fram að hlut-
verk hljómsveitarinnar sé þó að gera uppreisn
gegn formunum, eins og nafn hennar gefur til
kynna. Riot eru í uppreisn gegn rokki, djassi
og blús og „reglur“ þessara stefna eru snið-
gengnar bæði með- og ómeðvitað. Ríkarður
Örn Pálsson, tónlistargagnrýnandi hjá Morg-
unblaðinu, sagði enda um upprunalegan sam-
slátt þeirra félaga að þar hefðu mæst olía og
vatn: „ … þegar mættust virtúós kamm-
erdjassfimi Thoroddsens og hlutfallslega hrá-
slagalegur og sálarþrunginn blússláttur Hall-
dórs, er stundum skartaði nístandi
flöskuhálsskrensi af stálgyrtum litlafingri.“
Það er Jón Ólafsson sem fer fimum höndum
um píanóið. Hann segist harla glaður með að
Björn hafi haft samband við sig.
„Já, ég var farinn að sakna svona tónleika-
spilamennsku. Maður er búinn að vera fulllok-
aður inni í hljóðverum undanfarið þannig að ég
stökk á þetta góða tækifæri.“
Þess má geta að þetta er í fyrsta skipti sem
Dóri og Björn starfa að einhverju ráði saman,
og eins er Jón að spila í fyrsta skipti með þeim.
Það þarf vart að taka það fram að þegar um
svona kanónur er að ræða voru hlutirnir ekki
lengi að smella saman.
„Ég fann það strax á fyrstu æfingu,“ segir
Dóri. „Það var allt á sínum stað. Lögin eru svo
djömmuð upp á milli okkar, við erum að leita
eftir ákveðnu tempói, ákveðnu grúvi eða til-
finningu, frekar en að allt sé kórrétt. Það er
verið að sækja í ákveðinn glundroða líka,
þannig séð. Við komum allir úr ólíkum áttum
og því má segja má að það sé hátt til lofts og
vítt til veggja hjá okkur tónlistarlega séð.“
Uppreisn gegn formunum
Morgunblaðið/ÞÖK
Óeirðir Hugmyndin að Riot fæddist er Halldór var gestur Björns á tónleikaröð á Q-bar síðasta sumar.
Tónlist | Ný hljómsveit, Riot, stígur fram
Tónleikarnir eru sem áður segir á fimmtudag-
inn, í húsakynnum Domo. Dyr verða opnaðar
kl. 20 og er aðgangseyrir 1.000 kr. við hurð.
Tónleikarnir hefjast svo stundvíslega kl. 21.
EINS og sagt var frá í Morg-
unblaðinu á sunnudag skrifaði Silvía
Nótt (þá væntanlega Ágústa Eva
Erlendsdóttir og fyrirtæki hennar
Meistari alheimsins ehf.) undir 30
milljóna króna samning við útgáfu-
fyrirtækið Reykjavík Records.
Samningurinn er eftir því sem
Morgunblaðið kemst næst, sá
stærsti sem íslenskur tónlist-
armaður gerir við íslenskt plötu-
fyrirtæki en að sögn Jakobs
Frímanns Magnússonar hjá
Reykjavík Records hljóðar samning-
urinn upp á þrjár plötur. Eins og
Silvíu er von og vísa var heljarinnar
umstang í kringum undirritun samn-
ingsins sem fram fór í
hvalaskoðunarbátnum Eldingu við
Reykjavíkurhöfn og ljóst að nú fer í
hönd umfangsmikil markaðsherferð
utan um væntanlega plötu og sjón-
varpsþátt sem senn fer í loftið á Skjá
einum.
Silvía Nótt í heimsókn
Einn liður í þessari markaðs-
herferð hefur komið reyndustu
markaðfræðingum í opna skjöldu en
það uppátæki gengur út á að Silvía
Nótt banki upp á hjá þekktu fólki og/
eða bloggurum til að kvarta undan
færslum þeirra á síðum sínum. Á
meðal þeirra sem Silvía Nótt heim-
sótti á sunnudagskvöld voru Sigmar
Guðmundsson Kastljósmaður og
Björn Ingi Hrafnsson, borg-
arfulltrúi og formaður borgarráðs,
en báðir blogga þeir um þetta á síð-
um sínum. Sigmar segir frá því að
upp úr kvöldmat á laugardag hafi
Silvía Nótt bankað upp á hjá honum
og minnst á einhverja útilegu um
næstu helgi en síðan boðist til að
lesa kvöldsögu fyrir dóttur Sigmars.
Kveðst Sigmar ekki hafa þorað að
bjóða popp-prinsessunni og tveimur
fílefldum lífvörðum hennar inn og
geisladiskurinn sem hún hafi gefið
honum að skilnaði hafi reynst ónýt-
ur.
Ekki öllum skemmt
Björn Ingi Hrafnsson og flokks-
félagi hans í Reykjavík suður,
Sveinn Hjörtur Guðfinnsson gagn-
rýna hvor um sig blaðamannafund
Silvíu Nóttar á laugardag. Segja
ummæli Silvíu hafa verið fyrir neðan
allar hellur og Sveinn hvetur Ágústu
Evu að hætta þessum látalátum og
halda sig við alvöru tónlistarflutn-
ing.
Eins og gefur að skilja rita þeir
stuttu síðar á bloggsíður sínar frá
heimsókna Silvíu þar sem hún í
krafti lífvarða sinna, hvetur þá til að
skrifa vel um sig og láta af gagnrýn-
inni. Björn Ingi virðist þó gera sér
betur grein fyrir markaðsgildi heim-
sóknarinnar en Sveinn Hjörtur sem
er ekki jafn skemmt.
Silvía Nótt herjar á bloggara
Morgunblaðið/Kristinn
Hörundssár Silvía Nótt ásamt ungum skósveinum við undirritun samn-
ingsins. Hún beitir áður óþekktum markaðsbrögðum þessa dagana.
|þriðjudagur|13. 2. 2007| mbl.is