Morgunblaðið - 13.02.2007, Side 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 13. FEBRÚAR 2007 MORGUNBLAÐIÐ
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Þakkir til Ríkisútvarpsins
ÉG VIL þakka fyrir frábæra tónlist-
arþætti sem eru á Rás 1 á laug-
ardagsmorgnum. Svanhildur Jak-
obsdóttir á þar mjög mikinn heiður
skilinn fyrir þáttinn sinn.
Þar á eftir er ferðaþátturinn Út-
um grænar grundir, mjög góður
þáttur og svo allir góðu djassþætt-
irnir sem þeir flytja, þar er Lana
Kolbrún Eddudóttir alveg frábær. Á
sunnudögum byrjar klassíkin eld-
snemma, sem er ekki síður skemmti-
legt. Svo endar það á messunni sem
er jafngóð. Rás 1 er besta stöðin sem
ég hlusta á. Lifi Ríkisútvarpið.
Ásta Lilja Kristjánsdóttir.
Íþróttabakpoki týndist
BJARGMUNDUR týndi, sennilega
í nágrenni Austurbæjarskóla eða
Valsheimilisins, svörtum Puma-
íþróttabakpoka. Í honum voru svart-
ir Nike-körfuboltaskór og körfu-
boltabúningur frá Val, merktur
Bjargmundur. Skilvís finnandi
hringi í síma 895-2590. Fundarlaun.
Bakpoka sárt saknað
STÓR bakpoki hvarf af bílastæði
við Vatnsendaskóla milli 17.30 og
18.30 sl. föstudag. Í honum var ým-
iss konar útivistar- og klifurbún-
aður. Hans er mjög sárt saknað. Ef
einhver getur gefið upplýsingar um
hvar hann er er viðkomandi beðinn
að hafa samband við Örnu í síma
694-5708.
Leiðrétting
MISTÖK urðu í Velvakanda sunnu-
daginn 11. febrúar þegar undirskrift
á einum pistlinum var röng. Birtum
við, hér fyrir neðan, textann aftur
með réttri undirskrift, og biðjumst
velvirðingar á mistökunum.
Áhugavert rit
um Barðaströnd
FYRIR síðustu jól kom út lítið (80
bls.) og látlaust rit eftir Kristján
Þórðarson á Breiðalæk á Barða-
strönd. Það heitir Vegir og vegleys-
ur og segir frá samgöngum og ferða-
lögum á Barðaströnd 1935–1965.
Ritið er heillandi fyrir útivistar- og
göngufólk og upplagt að stinga því í
bakpokann. Það er á mjög fallegu
máli og ættjarðarástin skín af hverri
setningu. Þökk fyrir.
Sesselja Guðmundsdóttir,
Mosfellsbæ.
velvakandi
Svarað í síma 569 1100 frá kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is.
Morgunblaðið/G.Rúnar
70ára af-mæli.
Sjötugur er í
dag Sigursgeir
Ísaksson, Tjarn-
artúni 3, Ak-
ureyri. Afmæl-
isbarnið verður
að heiman í dag.
70ára af-mæli.
„Belive it or
not!“ Ef þið, vin-
ir og vanda-
menn, viljið
heiðra mig, lítið
við á Classik,
Ármúla 5, milli
kl. 19 og 21 í
kvöld og hittið
gæjann. Þórir H. Ottósson, Hátúni
10b.
MORGUNBLAÐIÐ birtir til
kynningar um afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira lesendum sín-
um að kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrirvara
fyrir sunnudags- og mánudags-
blað.
Samþykki afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynningum og/
eða nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer.
Hægt er að hringja í síma 569-
1100, senda tilkynningu og mynd
á netfangið ritstjorn@mbl.is, eða
senda tilkynningu og mynd í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins,
www.mbl.is, og velja liðinn
„Senda inn efni“. Einnig er hægt
að senda vélritaða tilkynningu og
mynd í pósti. Bréfið skal stíla á
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2
110 Reykjavík.
Áhugi íslensku þjóð-arinnar á sviplegu
andláti Önnu Nicole
Smith hefur komið Vík-
verja í opna skjöldu.
Hann er stórmerki-
legur. Af umfjöllun
fjölmiðla um þennan
dapurlega viðburð
mætti ætla að ein
stærsta stjarna heims
væri fallin í valinn.
Ófáum dálk-
sentimetrum hefur
verið varið í frásagnir
af lífi og dauða Smith.
Að ekki sé talað um all-
ar ljósmyndirnar. Ekki
ætlar Víkverji að gera
lítið úr Smith heitinni. Hún hefur
örugglega ekki verið ómerkilegri
manneskja en hver önnur. En hvers
vegna hefur íslenska þjóðin svona
mikinn áhuga á henni?
Smith var ýmist titluð fyrirsæta
eða leikkona en hlaut ekki heims-
frægð vegna þeirra starfa sinna –
áhugamenn um kvikmyndaleik ættu
að vísu að kynna sér feril hennar á
imdb.com – heldur vegna þess að
hún gekk ung að eiga aldraðan auð-
kýfing sem andaðist skömmu síðar.
Upp frá því hefur heimsbyggðin
fylgst agndofa með deilu Smith við
afkomendur gamla mannsins um
auðæfin.
Andlát Önnu Nicole Smith sýnir,
svo ekki verður um
villst, að fólk þarf ekki
endilega að vinna stór-
kostlega listræna sigra
eða snerta strengi í
brjósti almennings með
öðrum hætti til að vekja
áhuga. Það er nóg að
vera frægur. Frægt
fólk er áhugavert.
Punktur.
x x x
Víkverji var staddurá rauðu ljósi í um-
ferðinni í höfuðborginni
á dögunum. Það væri
svo sem ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær
sakir að hann var örlítið viðutan og
var andartaki of seinn að taka af stað
þegar græna ljósið brast á. Skipti
engum togum að maðurinn á eftir
honum umturnaðist af bræði og lagð-
ist á flautuna. Þegar aumingja Vík-
verji loks hrökklaðist af stað undir
lúðrablæstrinum spólaði reiði mað-
urinn fram hjá honum á jeppanum
sínum og steytti hnefann framan í
Víkverja.
Heldur þótti Víkverja nú tilefni
þessarar skapvonsku lítið en mögu-
lega hefur maðurinn verið eitthvað
illa upplagður, að minnsta kosti hefur
Víkverji ákveðið að láta hann njóta
vafans. Hitt er þó ljóst að umburð-
arlyndi fer ekki vaxandi í umferðinni.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
dagbók
MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMI: 569 1100. SÍMBRÉF:
ritstjórn: 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 569 1118, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: ritstjorn@mbl.is, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands.
Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Í dag er þriðjudagur
13. febrúar, 44. dagur
ársins 2007
Orð dagsins : Þú hefur elskað réttlæti og hatað rang-
læti. Því hefur Guð, þinn Guð, smurt þig gleðinnar ol-
íu fram yfir þína jafningja. (Hebr. 1, 9.)
ALPHA DOG kl. 8 B.i. 16
LITTLE CHILDREN kl. 8 B.i. 14
/ KEFLAVÍK
PERFUME kl. 8 B.i. 12 ára
BLOOD DIAMOND kl. 8 B.i. 16 ára
VEFURINN HENNAR KARLOTTU m/ísl. tali kl. 6 LEYFÐ
FORELDRAR kl. 6 LEYFÐ
/ AKUREYRIPERFUME kl. 6 - 9 B.i. 12 ára
DREAMGIRLS kl. 6 - 9 LEYFÐ
BLOOD DIAMOND kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
FORELDRAR kl. 8 LEYFÐ
BABEL kl. 6 - 9 B.i. 16 ára
STRANGER THAN FICTION kl. 5:50 B.i. 16 ára
BYGGÐ Á METSÖLUSKÁLDSÖGU PATRICK SUSKIND
SJÁIÐ EINA MERKUSTU
MYND ÁRSINS EN
MYNDIN HEFUR
SLEGIÐ Í GEGN Í
EVRÓPU
ATH! BÓKIN HEFUR VERIÐ
ENDURÚTGEFIN Í TENGSLUM VIÐ
FRUMSÝNINGU MYNDARINNAR
HVERSU LANGT ERTU TILBÚINN AÐ GANGA
TIL AÐ HYLJA GLÆP
ÓSKARSTILNEFNINGAR2eeeeÞ.T. KVIKMYNDIR.IS
GOLDEN GLOBE TILNEFNING
BESTI LEIKARI : WILL FERRELL eeeeV.J.V. TOPP5.IS
eeee
B.S. FRÉTTABLAÐIÐ
eeee
B.B.A. PANAMA.IS
eeee
RÁS 2
FOR
SKRÁÐU ÞIG Á SAMbio.is
Hagatorgi • Sími 530 1919 • www.haskolabio.is
FYRSTA KVIKMYND BYGGÐ Á RAUNVERULEGU SAKAMÁLI SEM ER
FRUMSÝND ÁÐUR EN MÁLIÐ HEFUR VERIÐ TEKIÐ FYRIR Í DÓMSSAL
Söngkonan Kylie Minogue hefurvísað á bug sögusögnum um að
fyrrverandi unn-
usti hennar,
franski leikarinn
Olivier Mart-
inez, hafi haldið
framhjá henni
meðan á fjög-
urra ára ást-
arsambandi
þeirra stóð.
„Það er ekkert satt í kjaftasög-
um um að Olivier hafi haldið
framhjá. Ég trúi ekki neinu af því,“
sagði hún er hún kynnti ilmvatn
sitt „Darling“ í versluninni Harrods
í London. „Okkur Olivier þykir enn
vænt hvoru um annað og það eru
enn miklir kærleikar á milli okkar.
Við tölum enn saman og það er
aldrei að vita hvað mun gerast í
framtíðinni.“
Þá hefur spænska leikkonan
Penelope Cruz vísað því á bug að
hún hafi átt ástarfund með Mart-
inez á Chateau Marmont-hótelinu í
Los Angeles sama kvöld og greint
var opinberlega frá sambandsslit-
um hans og Minouge. „Við Olivier
höfum verið vinir í sjö ár og við er-
um mjög náin,“ segir hún í viðtali
við breska blaðið Daily Mirror
„Þetta er augljóslega erfiður tími
fyrir hann þannig að ég hef reynt
að vera til staðar og veita honum
stuðning. Það var indælt að hitta
hann þennan dag enda var langt
síðan við höfðum hist,“ sagði hún
en það vakti athygli viðstaddra
hversu hlýtt faðmlag þeirra virtist
vera er þau hittust umrætt kvöld.
Söng- og leik-konan Jenni-
fer Lopez hefur
nú slegist í hóp
þeirra Holly-
woodstjarna sem
hafa lýst hrifn-
ingu sinni á hjón-
unum Victoriu
og David Beck-
ham og fagnað væntanlegum flutn-
ingi þeirra til Kaliforníu. Þetta
kemur fram á fréttavef Ananova.
„Við hittumst í boði og Victoria
virtist mjög jarðbundin. Marc og
David eru líka mjög góðir vinir og
þeir tala mikið saman í síma. Þau
eru dásamleg fjölskylda,“ sagði hún
nýlega í viðtali við blaðið Daily
Mirror. „Ég dáist að og ber mikla
virðingu fyrir stíl hennar og ótrú-
legu tískuskyni,“ sagði Lopez enn-
fremur um Victoriu.
Fólk folk@mbl.is