Morgunblaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 37 VEGNA umræðu fjölmiðla und- anfarna daga um yfirvofandi lokun iðjuþjálfunar á geðdeild Landspítala – Háskólasjúkrahúss við Hringbraut, sjáum við okkur knúin til að benda al- menningi á eftirfarandi atriði: Iðjuþjálfun hefur verið starfrækt á geðdeild Landspítalans í 26 ár með það sem markmið að endurhæfa ein- staklinga með geðraskanir til þess að takast á við hversdagslífið, svo sem vinnu, skóla, heimilislíf og áhugamál. Síðustu árin hafa verið starfandi iðjuþjálfar og aðstoðarmenn í 8.1 starfshlutfalli á deildinni, en vegna lé- legra launakjara hafa iðjuþjálfar og aðstoðarfólk sagt upp störfum svo að í vor munu aðeins fjórir starfsmenn í 3.1 starfshlutfalli verða eftir á deild- inni. Þrátt fyrir ítrekaðar auglýsingar á störfum iðjuþjálfa og aðstoðarfólks hefur ekki verið hægt að manna stöð- urnar. Ástæðan er launakjör. Iðjuþjálfunardeildin hefur verið að sinna 50–60 einstaklingum á dag, fimm daga vikunnar, auk þess að veita útskrifuðum einstaklingum eft- irfylgd. Frá áramótum hafa ekki ver- ið teknir inn nýir einstaklingar vegna yfirvofandi manneklu, þrátt fyrir að einhverjir hafi útskrifast. Flestir þeirra sem sækja endurhæfingu á deildina voru í nóvember síðastliðinn á bilinu 19–35 ára eða 50% undir 25 ára og 90% undir 35 ára. Fá endurhæfingarúrræði eru í boði fyrir geðsjúka. Ef af yfirvofandi lok- un verður mun mikill fjöldi ein- staklinga vera án þjónustu. Við vitum að iðjuþjálfunin á Kleppi er ekki í stakk búin til að taka við þeim ein- staklingum sem eru í endurhæfingu hér á Hringbrautinni. Hér er því um að ræða mjög skerta þjónustu við ein- staklinga með geðraskanir, sem hlýt- ur að teljast alvarlegt mál í ljósi þess að tala ungra öryrkja með geðrask- anir fer ört hækkandi. Ef eitthvað er þá þyrfti að auka þjónustu við þetta unga fólk. Vegna ummæla sviðsstjóra geð- sviðs LSH í kvöldfréttum á RÚV 23. febrúar síðastliðinn um ýmis atriði varðandi yfirvofandi lokun viljum við segja þetta: Að vissu marki er það rétt að spít- alinn hefur ekki annan valkost en að fylgja kjarasamningum, en aðrar rík- isreknar stofnanir virðast þó geta gert annað. Einnig viljum við benda á að fólk á LSH talar saman. Það er gert betur við suma en kjarasamn- ingar segja til um. Það kemur fram hjá sviðsstjóra að endanleg ákvörðun um lokun hafi ekki verið tekin. Hann hefur ekki rætt við starfsfólk iðju- þjálfunar um hvaða kostir eru í stöð- unni. Það fréttum við í gegnum fjöl- miðla. Við sem erum að vinna á deildinni sjáum okkur ekki fært að vinna faglega og markvisst með eins stóran hóp skjólstæðinga og er gert í dag þegar starfshlutfallið verður 3.1. Sviðsstjóri nefndi að mögulega þyrfti að draga úr þjónustunni og beina skjólstæðingum að öðrum úrræðum utan spítalans eins og t.d. til fé- lagsmiðstöðva. Við spyrjum: 1) Hver vill taka að sér að ákveða hverjir fái þjónustu og hverjir ekki? 2) Hvaða önnur úrræði í þjóðfélaginu er hann að tala um? 3) Hvað meinar hann með fé- lagsmiðstöðvum? Við teljum það lítilsvirðingu við skjólstæðinga okkar og veikindi þeirra að beina þeim að úrræðum sem ekki flokkast undir endurhæf- ingu. Það er lítilsvirðing við okkar faglega starf og stefnu og það er lít- ilsvirðing við þá fagaðila sem hafa vísað skjólstæðingum í endurhæfingu iðjuþjálfunar. Við skorum á sviðsstjóra geðsviðs, á stjórn LSH og á heilbrigðisyfirvöld að beita sér í málinu til að endurhæf- ingarúrræði fyrir einstaklinga með geðraskanir verði ekki skert með þessum hætti. SYLVIANE L. PÉTURSSON yfiriðjuþjálfi, HALLGERÐUR ÁSTA GUÐJÓNSDÓTTIR iðjuþjálfi, SONJA GÚSTAFSDÓTTIR iðjuþjálfi, HEIMIR GUÐMUNDSSON aðstoðarmaður, JÓN BJARNI PÉTURSSON aðstoðarmaður, STEINBERG ÞÓRARINSSON aðstoðarmaður, SIGURBJÖRG EINISDÓTTIR aðstoðarmaður, JÓHANNA HARALDSDÓTTIR aðstoðarmaður. Viljið þið fleiri öryrkja? Frá iðjuþjálfun á geðdeild við Hringbraut: Bílaland B&L, Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - 575 1230. Lúxus á einstöku verði Úrval lúxusbíla á einstöku tilboði í takmarkaðan tíma. Komdu núna í Bílaland B&L og gerðu frábær kaup! Opið virka daga frá kl. 10 til 18 og á laugardögum frá kl. 12 til 16. BMW 530i Nýskr: 09/2003, 3000cc Sjálfskiptur, dökkgrár Ekinn 25.000 þ. Verð kr. 4.890.000 Tilboð kr. 4.220.000 LAND ROVER - RANGE ROVER Nýskr: 09/2003, VOGUE 4400cc Sjálfskiptur, silfurgrár Ekinn 67.000 þ. Verð kr. 7.480.000 Tilboð kr. 6.450.000 PORSCHE Cayenne S Nýskr: 10/2004, 3000cc Sjálfskiptur, dökkgrár Ekinn 90.000 þ. Verð kr. 5.680.000 Tilboð kr. 4.660.000 BMW X5 INDIVIDUAL Nýskr: 01/2005, 3000cc Sjálfskiptur, grænsanseraður Ekinn 59.000 þ. Verð kr. 5.150.000 Tilboð kr. 4.350.000 TOYOTA Land Cruiser V6 Nýskr: 01/2006, 4000cc Sjálfskiptur, hvítur Ekinn 19.000 þ. Verð kr. 5.420.000 Tilboð kr. 4.650.000 VOLVO XC90 V8 Nýskr: 11/2005, 4400cc Sjálfskiptur, hvítur Ekinn 15.000 þ. Verð kr. 6.190.000 Tilboð kr. 4.950.000 MercedesBenz Nýskr: 05/2006, 2500cc Sjálfskiptur, silfraður Ekinn 6.000 þ. Verð kr. 4.690.000 Tilboð kr. 3.750.000 LAND ROVER - RANGE ROVER Nýskr: 07/2004, 3000cc dísel Sjálfskiptur, ljósgrænn Ekinn 45.000 þ. Verð kr. 6.780.000 Tilboð kr. 5.850.000 SELDUR SELDUR SELDUR SELDUR SELDUR 575 1230 Síðasti dagu r útsölu Gott úrval a f lúxusbílum á staðnum! Komdu stra x í dag, höfu m opið til kl . 16! P IP A R • S ÍA • 7 0 4 0 8 Atlantsolía hefur flutt skrifstofur sínar að Lónsbraut 2 Hafnarfirði, við hliðina á birgðastöð fyrirtækisins. Við erum flutt... Atlantsolía Lónsbraut 2 / 220 Hafnarfirði / Sími 591 3100 / atlantsolia@atlantsolia.is / www.atlantsolia.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.