Morgunblaðið - 03.03.2007, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Svona hold kjaft minn gamli, þú þolir alveg að verða grænn svona rétt framyfir kosningar.
VEÐUR
Niðurstöður Þjóðarpúls Gallup,sem birtust á fimmtudag, eru
ekki góðar fréttir fyrir elztu og
virðulegustu stofnun þjóðarinnar,
hið háa Alþingi.
Þegar traust ástofnunum
samfélagsins var
mælt í Þjóð-
arpúlsi fyrir ári
var Alþingi í
neðsta sæti ásamt
dómskerfinu,
naut trausts 43%
svarenda. Nú
segjast aðeins 29% bera traust til Al-
þingis, færri en nokkru sinni áður
frá því mælingar hófust árið 1993.
Hvernig skyldi nú standa á þessarihörmulegu útkomu Alþingis?
Getur verið að málþófið, sem stjórn-
arandstaðan stóð fyrir vikum saman
í vetur, hafi haft þessi áhrif á kjós-
endur? Að kjósendur hafi tapað
trausti á fólki, sem er á launum hjá
þeim sjálfum en sóar vinnutíma sín-
um í innihaldslaust þvaður?
Það er krónískur misskilningurstjórnarandstöðunnar – nokk-
urn veginn burtséð frá því hver hún
er – að hægt sé að bregðast við
meintu virðingarleysi ríkisstjórn-
arinnar gagnvart þinginu með því
að mala endalausa vitleysu í ræðu-
stóli. Það eina, sem hefst upp úr því,
er að þingið tapar enn frekar virð-
ingu sinni og enn auðveldara verður
fyrir stjórnina að hunza það næst.
Ein leiðin til að endurheimta virð-ingu og traust Alþingis er að
stytta ræðutíma þar til muna. Hið
skefjalausa málæði, sem enn tíðkast
á löggjafarsamkundu okkar, við-
gengst varla í neinu öðru þjóðþingi,
sem vill láta taka sig alvarlega.
Þingmenn þurfa sömuleiðis að um-gangast starf sitt af meiri virð-
ingu til þess að verða ekki álitnir
innantómir kjaftaskar.
STAKSTEINAR
Hrapandi virðing Alþingis
SIGMUND
!
"#
$!
%!!
! &'
(
)
* !
-.
-/
-0
-.
-/
-.
1--
1'
-2
1-
'3
4!
5 4!
)
%
5 4!
)*4!
4!
)
%
! 4!
! 4!
)# + !
,- . '
/ ! !
0
+-
!
!
-
6
0
2
(
(
7
0
2
3
'
8
9
5 4!
4!
: *%
5 4!
9 "12
!
1
3 2- 2 4!
1!
& 5# )67!
8 !!)
'
1/
17
1/
-
1-6
1(
1-'
/
/
/
4!
! 4!
! 4!
)*4!
)
%
4!
4!
8
9! :
;
! " ! #
# : # !* )
!
<2 < # <2 < # <2
!
;<
=
>
7
* 9
=
: %
6 .
:! >
$
* 9
=
: %
6 .
!!
* =/1(; 4!
=
:
95
6 .
=
>9 *4
*?
"3(4?
?<4@"AB"
C./B<4@"AB"
,4D0C*.B"
6-7
'-2
7'.
6=.
6=/
6=/
2''
(-7
-67'
/76
-'/3
-773
-06.
07(
-(7'
'677
'/-'
-.7(
(/6
(/3
('/
(6-
-(.-
-(.-
-(/7
-(-3'-.2
/=3
'=6
-=/
-=3
6=.
6='
6=-
6=7
/=0
-=(
-=-
-=( 6='
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
Ómar Ragnarsson | 2. mars 2007
Áfram tvísýnt
Skoðanakönnun Capa-
cent Gallup sýnir hvað
kosningaúrslitin geta
orðið tvísýn. Ef úrslitin
yrðu þessi yrði meiri-
hluti núverandi stjórn-
arandstöðuflokka svo
naumur að ekki þyrfti nema einn eða
tvo stóriðjuþingmenn til að fella
grænu stefnuna eða halda henni í
gíslingu. Nægir að nefna Kristin H.
Gunnarsson, Kristján Möller og
Einar Má Sigurðarson í því sam-
bandi.
Meira: omarragnarsson.blog.is
Snorri Bergz | 2. mars 2007
Mikill höfðingi látinn
Við, sem urðum fyrir
barðinu á erfiðum
sjúkleik í barnæsku og
höfum ekki borið þess
fullar bætur, höfum
hér glæsilega fyr-
irmynd um mann, sem
gekk í gegnum ótrúlega þjáningu án
þess að láta bugast. Og í ljósi erf-
iðleika hans virðist margt það, sem
margir hafa vælt yfir og afsakað sig
með, vera hjóm eitt. Ég lít svo á, að
séra Pétur í Laufási hafi verið meðal
merkustu Íslendinga 20. aldar.
Meira: hvala.blog.is
Guðríður Haraldsdóttir | 2. mars 2007
Plís, plís ...
lækkið fyrir 1. apríl
... en þá rennur Rauða
kortið mitt út! Það yrði
skelfilegt að þurfa að
kaupa rautt kort á yfir
12 þúsund og svo lækk-
ar allt um meira en
helming.
Ef strætófargjaldið lækkar þetta
mikið þá held ég að það veitti ekki af
ferðum á hálftíma fresti milli Akra-
ness og Rvíkur!
Og hætta með þetta þriggja tíma
hádegishlé.
Meira: gurrihar.blog.is
Páll Vilhjálmsson | 2. mars 2007
Drykkjarvenjur
Morgunblaðsins
Að jafnaði eru for-
ystugreinar Morg-
unblaðsins allsgáðar og
í borgaralegum anda.
En þegar kemur að
umræðu um drykki,
áfenga eða ekki, hættir
blaðinu til að beita röksemdafærslu
sem heldur ekki vatni. Nú síðast um
sykraða gosdrykki.
Í Staksteinum á miðvikudag var
Ágústi Ólafi Ágústssyni þingmanni
Samfylkingarinnar hrósað fyrir að
vilja leggja af skatt á sykraða gos-
drykki. Rökin sem Ágúst færir fyrir
máli sínu eru gamalkunn úr áfeng-
isumræðu í leiðaraskrifum Morg-
unblaðsins.
Ágúst Ólafur segir að þrátt fyrir
að við séum með háa skatta á syk-
urgosdrykki sé neyslan mikil. Því
ættum við að leggja skattana af, enda
séu þeir forsjárhyggja. Við eigum að
setja fjármuni í fræðslu og treysta
fólki til að fara eftir skynsamlegum
ábendingum um hollustu. Marg-
sinnis hefur Morgunblaðið farið með
áþekka rullu um áfengi, blaðið vill
selja það í matvörubúðum og treysta
fólki.
Ef við prófum röksemdina á öðr-
um sviðum þjóðfélagsins sést hversu
haldlítil hún er. Treystir Ágúst Ólaf-
ur sér til þess, nú eða þá Morg-
unblaðið, að halda eftirfarandi fram?
Á Íslandi eru meiri hraðatakmark-
anir í umferðinni en víðast hvar í ná-
grannalöndum okkar. Þrátt fyrir það
er há slysa- og dánartíðni hér á landi
vegna hraðaksturs. Við eigum að af-
nema hámarkshraða í umferðinni,
það er gamaldags forsjárhyggja, og
treysta á fólki til að aka varlega.
Hægt er að setja fíkniefni inn í
rökhenduna og fá út að við eigum að
leyfa þau; skotvopn og afnema skot-
vopnaleyfi; læknaleyfi og hætta að
gefa þau út því að þrátt fyrir lækna-
leyfin eru gerð læknamistök. Og svo
má áfram telja lög og reglur sem ætti
að afnema samkvæmt rökleiðslunni.
Sjálfsagt er að ræða hvort eitt eigi að
leyfa en banna annað og endurskoða
reglulega gildandi lög og reglur. En
það er fulllangt gengið að setja mál-
efni eins og offitu barna og áfeng-
isneyslu inn í jöfnu sem gefur alltaf
sömu niðurstöðuna og kalla það rök-
stuðning.
Meira: pallvil.blog.is
BLOG.IS
HÁSKÓLI Íslands nýtur mests
trausts, eða 85%, meðal þeirra sem
tóku þátt í þjóðarpúlsi Capacent Gall-
up. Af þeim átta stofnunum sem spurt
var um nýtur Alþingi minnst trausts
eða 29%. Gallup hefur kannað traust
almennings til nokkurra stofnana frá
árinu 1993. Líkt og undanfarin ár var
nú spurt um átta stofnanir. Traust til
allra stofnana hefur dalað, í mismikl-
um mæli, frá því í febrúar 2006.
Alþingi nýtur minnst trausts en
einungis 29% svarenda sögðust bera
traust til þingsins, sem er minnkun
um 14 prósentustig frá síðasta ári og
hefur aldrei verið eins lítið síðan mæl-
ingar hófust í ágúst 1993.
Traust til dómskerfisins er 31%,
sem er einnig minna en mælst hefur
áður og minnkaði um 12 prósentustig
frá síðustu mælingu. Lögreglan nýtur
aftur mests trausts almennings á eftir
Háskólanum. 78% þjóðarinnar bera
traust til lögreglunnar sem er einu
prósentustigi minna en í febrúar á
síðasta ári. Traust til lögreglunnar í
síðustu tveimur mælingum hefur ekki
verið eins mikið síðan 1993 þegar það
var 84%.
Óánægja með frávísun
Yfirgnæfandi meirihluti er
óánægður með þá ákvörðun Héraðs-
dóms að vísa frá dómi ákæru ríkissak-
sóknara á hendur forstjórum olíufé-
laganna fyrir meint brot á
samkeppnislögum. Alls lýstu 83,5%
sig óánægð með frávísunina, þar af
voru 59% mjög óánægð og 24,5%
frekar óánægð. Þetta kemur einnig
fram í þjóðarpúlsi Capacent Gallup.
Hinsvegar voru aðeins tæplega 8%
ánægð með ákvörðun héraðsdóms, en
þeir skiptust jafnt sem voru mjög
ánægðir og frekar ánægðir. Tæplega
9% voru hvorki ánægð né óánægð.
Þeir sem sögðust óánægðir með úr-
skurðinn voru í kjölfarið spurðir
hvaða niðurstaða þeir teldu að hefði
verið réttlát. Flestir eða rúm 38%
töldu að sektir hefðu verið réttlátar.
Um 30% vildu að forstjórarnir yrðu
dregnir til ábyrgðar og dæmdir fyrir
þau brot sem lágu fyrir dómi án þess
að tilgreina sérstaklega hvaða refs-
ingar ættu að felast í dómnum.
Tæp 19% töldu að það hefði verið
réttlát niðurstaða að kveða upp fang-
elsisdóm í málinu. Tæp 7% vildu að
málinu hefði verið leyft að fá meðferð
og að því hefði verið lokið með dóms-
úrskurði í stað frávísunar.
Um 5% töldu réttlátt að forstjór-
unum yrði gert að bæta þann skaða
sem neytendur urðu fyrir vegna verð-
samráðs olíufélaganna. Vildu sumir
að skaðabætur yrðu greiddar til sam-
félagsins eða neytenda, en aðrir end-
urgreiðslur í formi lækkaðs bensín-
verðs.
Mikið traust til
Háskóla Íslands